Morgunblaðið - 21.09.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976
15
3gr. af aur í lítra
„Við höfum aðeins tekið eitt
sýni til nákvæmrar rannsóknar,
en það var tekið daginn eftir að
við fréttum af hlaupinu. t því
reyndust vera um 3 grömm af aur
pr. lítra, en þegar hlaupið er í
hámarki eru um 10 grömm af aur
pr. lítra. Eftir að hlaupið byrjaði
að sjatna 1972 kom sérstaklega
mikill aurburður og mældust þá
um 40 grömm pr. lítra, og er það
mesta magn af aur sem mælzt
hefur í á á tslandi.
Til samanburðar má geta þess,
að Jökulsá á Brú er mesta aur-
burðará á tslandi i venjulegu
ástandi. Samkvæmt mælingum
ber hún fram 10 milljón tonn af
aur á ári, þannig að Skeiðará með
sínum miklu hlaupum nær henni
varla. 1—2 grömm mælast venju-
lega í hverjum lltra úr Jökulsá á
Brú, en I Þjórsá mælist yfirleitt
ekki meira en 0,3 grömm pr. litra.
Mál: Þórleifur
Olafsson
Myndir:
Friðþjófur
Helgason
Það telzt mikið ef venjuleg á
ber meira en 1 gramm af aur með
sér í hverjum litra. Jökulhlaup
bera oft með sér 5—10 grömm.
Þau rifa úr botnjöklinum, og með
því að hirða alla þá ismola, sem
við finnum fáum við nokkra hug-
mynd um hve mikið af aur er i
jöklinum, sem rifnar og brotnar
við jökulhlaupið," sagði Haukur.
„Við áttum vart von á hlaupinu
svona snemma þrátt fyrir allt, þar
sem ekki er liðið nema 4lA ár frá
siðasta hlaupi á móti 6‘A ári þar
áður. Tvö undanfarin úrkomuár
hafa örugglega haft sitt að segja
til að flýta hlaupinu," sagði Helgi
Hallgrimsson verkfræðingur hjá
Vegagerð rikisins, en hann hefur
sem kunnugt er haft yfirumsjón
með mannvirkjagerðinni á Skeið-
arársandi frá upphafi.
„í sumar mældist vatnsborð í
Grímsvötnum 1435 metrar yfir
Séð yfir Skeiðará frá Skaftafelli
Skeiðará ber með sér 30 millj. tonn af aur
Vatnsmagnið álíka og í öllu Þingvallavatni
sjó, þannig að við máttum búast
við hlaupinu."
Hefur grafið
sig niður með
stöplunum
„Finnst þér hlaupið ekki vaxa
nokkuð hægt?“
„Utaf fyrir sig er það ágætt, að
það vaxi hægt, en það er ekki séð
að það vaxi hægar en undanfarin
Haukur Tómasson jarðfræðingur að störfum við Skeiðará
hlaup. Það verður þó að viður-
kenna að vöxturinn hefur verið
hægur síðustu daga og ekki nema
200 rúmmetrar pr. sekúndu sið-
asta sólarhring."
„Nú rennur áin i miklum álum
undir brúna á tveiur stöðum, og
hefur grafið sig þar niður. Hvern-
ig lizt þér á þá þróun?
„Frá upphafi þessa hlaups hef-
ur áin legið í ál undir brúnni, við
endana, fyrst meira við vestur-
endann en siðustu daga hefur
austurállinn sótt i sig veðrið, og
sem stendur renna um það bil %
hlutar vatnsins i gegnum 3 aust-
ustu höfin en alls eru þau 20.
Dýpið hefur mælzt um 4.5 metrar
og undir stöplana eru reknir
staurar, sem standa 9 metra niður
fyrir sökkul stöplanna. Sjálfur
stöplasökkullinn nær 2.5 metra
niður i sandinn, þannig að sökkl-
arnir standa alveg upp úr á 2 yztu
bilunum.
Enn sem komið er er ekki hægt
að segja neitt um hvernig mann-
virkin standa sig, þar sem ekki
hefur reynt verulega á þau enn.
Ef tekið er mið af hlaupum sið-
asta áratugar á rennslið eftir að
tvö- eða þrefaldast og þá fyrst
reynir verulega á mannvirkin —
hlaupið verður sem sagt að ná
hámarki."
„Eruð þið með einhvern sér-
stakan viðbúnað, ef eitthvað
skyldi bera út af?“
„Nei, viðbúnaður er ekki veru-
lega mikill, að visu erum við með
fyrirhleðslunet, jarðýtu og
moksturstæki, sem eru ekki mjög
fjarri."
„En hvernig hafa leiðigarðarnir
beggja vegna við brúna reynzt
það sem af er?“
„Enn sem komið er hafa þeir
virkað vel, en þeir eiga að beina
ánni undir brúna, þannig að hún
renni ekki skáhallt á stöplana, og
um leið virka þeir nokkuð til
dreifingar á vatninu."
Þá sagði Helgi, að miðað við
síðustu hlaup kæmi vatn I Sand-
gígjukvisl og Súlu nokkuð seint,
en ekki væri mikil skjalfest
reynsla á hvenær hlaup kæmi þar
fram.
„Þvi er ekki að neita að eitt-
hvert sig hefur orðið á straum-
brjótunum, hve mikið vitum við
ekki. Þar kemur ekki vatn nema i
aftakavatni og grjótið hefur þvi
ekki fengið tækifæri til að siga
við rólegar aðstæður,“ sagði Helgi
Hallgrimsson að lokum.
1 gær byrjaði áin að brjðta stóra jaka úr jöklinum og hér er einn á leið
niður ána.
*•
' '*y ' » '
tsjaki á ferð skammt frá einum sfmastaurnum. Hætt er við að staurinn
hefði brotnað ef jakinn hefði lent á honum