Morgunblaðið - 21.09.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.09.1976, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, sími 22480 Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. Úrslitin í Svíþjóð Fall stjórnar jafnað- armanna í Svíþjóð eftir 44 ára valdaferil, er meiri háttar tíðindi í stjórnmál- um hér á norðurhveli jarð- ar. Sænskir jafnaðarmenn hafa byggt upp háþróaó- asta velferðarríki heims. Þeir hafa gengió svo langt á þeirri braut að á síðustu árum hefur gætt vaxandi óánægju almennings í Sví- þjóð vegna þess að kostnað- ur við velferðarríkið hefur gengið býsna nærri pyngju skattborgaranna. Þá hefa jafnaðarmenn fylgt fram launajöfnunarstefnu, sem m.a. byggir á gífurlegri skattlagningu hátekna, og margir telja að hafi gengið út í öfgar. Þessi óánægjuefni ásamt því, að sænskum kjósend- um hefur þótt tími til kom- inn að gefa jafnaðarmönn- um frí frá störfum, en veita öðrum flokkum og öðrum mönnum tækifæri til að sýna hvað í þeim býr, hafa vafalaust valdið því, að sænskir jafnaðarmenn töpuðu þessum kosningum. Borgaraflokkarnir munu nú væntanlega mynda rík- isstjórn í Svíþjóð í fyrsta skipti i nær hálfa öld. Það segir sína sögu um styrk sænska jafnaðarmanna- flokksins og hæfni forystu- manna hans, að þeim hefur tekizt svo lengi að halda trausti kjósenda. Sænskir jafnaðarmenn hafa alltaf átt sterkum og traustum forystumönnum á að skipa og hefur hlutur Olofs Palme ekki verið minni en annarra í þeim efnum. Það traust sem sænskir jafnað- armenn hafa notið meðal kjósenda á sér fáar hlið- stæður í lýðræðisríkjum á þessari öld. Nú eru þáttaskil í sænsk- um stjórnmálum. Síðasta meirihlutavígi jafnaðar- manna á Noróurlöndum er fallið. Verkamannaflokk- urinn norski missti fyrir allmörgum árum meiri- hluta í Stórþinginu, enda þótt hann sé enn forystu- flokkur í norskum stjórn- málum. Hlutur jafnaðar- manna hefur farið sí- minnkandi, þótt þeir haldi enn nokkru forystuhlut- verki í dönskum stjórnmál- um. Það er rannsóknarefni út af fyrir sig, hvað veldur því, að kjósendur á Norð- urlöndum hafna forsjá jafnaðarmanna í vaxandi mæli. Vel má vera, að leiði á sömu flokkum og sömu mönnum eigi ríkan þátt í því en ekki er heldur ólík- legt að velferðarríkið, sem jafnaóarmenn hafa haft forystu um að byggja upp á Norðurlöndum sé orðið einstaklingunum býsna þungbært. Skattheimtan sem velferðarríkið gerir kröfur til, er orðin svo mik- il, að skattgreiðandur segja hingað og ekki lengra og leita 1 auknum mæli til þeirra stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna, sem vilja snúa við blaðinu. Glistrup hinn danski er ef til vill vísbending um, að uppreisn skattborgaranna sé rótin að hnignandi veldi jafnaðarmanna á Norður- löndum. Af þessum sökum verður fylgzt mjög náið með fram- vindu mála i Svíþjóð og hvaða stefnubreyting verð- ur með borgaralegri stjórn þar í landi. Að vísu er það svo að bilið milli stjórn- málaflokka hefur minnkað mjög. Jafnaðarmenn hafa haft áhrif á stefnu borgara- flokka og þeir hafa haft áhrif á stefnu og störf jafn- aðarmanna. Þess vegna er skoðanamunur milli jafn- aðarmanna og borgara- flokka ekki jafn mikill og ætla mætti við fyrstu sýn. Þó verður að telja lík- legt, að borgaraleg stjórn í Svíþjóð dragi úr skatt- heimtu og ráðist gegn of- vexti skrifstofuveldis vel- ferðarríkisins. Það verður ekki síður fróðlegt að fylgjast með þeirri stefnu, sem borgara- flokkarnir marka í menn- ingarmálum í Svíþjóð. Hvergi hefur misnotkun hins opinbera kerfis, skóla- kerfis, fjölmiðla og menn- ingarstofnana í þágu vinstri sinnaðra stjórn- málaskoðana gengið lengra en einmitt í Svíþjóð. Kosningaúrslitin í Svíþjóð . Kosningaúrslitin í Svíþjóð Andres Kíing um kosningarnar í S Þess vegna töpuðu iafnaðarmenn 0 Andres Kting er eflaust mörgum lesendum Morgun- blaðsíns kunnur af greinum, sem hann hefur skrifað fyrir blaðið um norræn stjðrnmál og mftlefni Eystrasaltsþjöð- anna. Hann hefur nú skrifað tvær greinar fyrir Morgun- blaðið um kosningarnar ( Svfþjðð og birtist sú fyrri hér. Andres Kung starfar við sænska sjónvarpið I Mftlmey. • Sænsku kjósendurnir sögðu nei við sósíalismanum! Og nei við kjarnorkunni! Þannig getur maður I fáum orðum skýrt af hverju jafnaðarmenn töpuðu kosningunum 1 Svfþjóð ð sunnudag. Erlendis er litið á úrslit sænsku kosninganna sem mjög merkan atburð. Það voru þau á einn hátt — stjórn jafnaðarmanna verðurað segja af sér eftir 44 ár við völd. Bæði jafnaðarmenn og kommúnistar töpuðu minna en 1% hvorir. Það var ekki mikið. En meir en þeir höfðu ráð á I þeirri jafnvægisstöðu, sem sfðustu ár hefur verið f rfkisdeginum. Að fylgisbreytingarnar á milli flokkana voru svo litlar sýnir að ekki var um fjóldaflótta Svfa und- an sósíalismanum að ræða. En þær sýna líka að Svíar voru heldur ekki neinir sannfærðir sósíalistar fyrir kosningarnar. Kosningasigur borgaraflokkanna hefði alveg eins getað hafa átt sér stað í fyrri kosningum fyrir 3 árum. Þá skyldu bara nokkur þús- und atkvæði þá borgaralegu frá sigrinum. Það sem gerðist á sunnudaginn er þess vegna ekki jafn merkilegt og það kann að virðast. Það var heldur engin tilviljun að sósíal- istablokkin tapaði. Jafnaðarmenn hafa stöðugt verið að tapa fylgi síðan Olof Palme tók við af Tage Erlander sem flokksformaður og forsætisráðherra. Palme hefur nefnilega tapað 3 kosningum í röð: Jafnaðarmenn fengu meir en 50% atkvæðaf siðustu kosningum Erlanders 1968, aðeins meira en 45% fengu þeir í fyrstu kosning- um Palme 1970. Síðan rúmlega 43% 1973 og nú fengu þeir minna en 43%. Af hverju hafa þá jafnaðar- menn verið á niðurleið hægt en sígandi 1 stjórnartfð Palme? Af hverju hélt fylgistapið áfram I kosningunum á sunnudag? Ein orsök er að Olof Palme með sinn yfirstéttarbakgrunn og köldu snilli hefur aldrei orðið jafn vinsæll og hinn landsföður- legi og manneskjulegi Tage Erlander. Eins og mörgum stjórn- málamönnum, sem hefur gengið vel í utanríkismálum, hefur hann ekki náð sama framgangi í innan- ríkismálum: enginn er spámaður í sínu föðurlandi... önnur orsök er að sifellt fleiri Svfar hafa það fjárhagslega betra og hafa þvf orðið æ borgaralegri. Háir jarðarskattar voru áður aðal- lega vandamál hinna riku en nú hafa flestir verkamenn náð launa- stigi þar sem þeir verða að borga 60 krónur í skatt af hverjum við- bótar 100 krónum, sem þeir vinna sér inn. Sifellt fleiri hafa fundið fyrir þungri skattabyrði, sífellt færri hugsa út í hvað þeir fá fyrir skattpening sinn i gegnum félags- leg réttindi. Þriðja orsök er að æ fleirir manneskjur finna sig vera framandi gagnvart efnahags- og tækniþróun, sem leiðir æ meira til miðstýrðs skriffinnskusam- félags. Sífellt fleiri ákvarðanir safnast á sffellt færri hendur. Þar sem jafnaðarmenn hafa sett stimpil sinn á allt ríkiskerfið hefur óánægjan með þróunina fyrst og fremst bitnað á þeim. Sérstaklea af því að stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn. Mið- flokkurinn sem eins og fslenzki Framsóknarflokkurinn á rætur sínar aðallega i sveitum, hefur einarðlea og með klókindum krafizt valddreifingar á öllum sviðum samfélagsins. Stjórnarandstaðan hefur á síðustu árum sffellt meir varað við þvf að hin langa seta jafnaðar- manna við völd geti orðið til eða hafi þegar orðið til þess að þeir líti á sig sem sjálfsagða valdhafa. Þeir hafa lagt áherzlu á nauðsyn þess að skipt verði um valdamenn og að slfkt yrði mikilvægt fyrir þróun lýðræðis í Svíþjóð. Goð- sagnapersónan Gunnar Str'áng, fjármálaráðherra, vinnumaður- inn, sem varð jafningi eða meiri maður en hagfræðiprófessorarnir er gott dæmi um hvernig jafn- aðarmenn lita á völd sín sem sjálf- sögð. Hann hefur keypt hús I gamla bænum í Stokkhólmi og fær frádrátt fyrir geysiháa vexti og getur þannig minnkað sinn skatt. Það er löglegt en fer í taugarnar á mörgu fólki, sem ekki fær þannig frádrátt og sem finnst að fjármálaráðherra beri ekki að taka þannig frádrátt. Annað dæmi um stórkarl úr flokki jafn- aðarmanna sem ekki lifir alltaf eins og hann ætti, er fyrrverandi formaður samtaka flutninga- verkamanna, Hans Ericson. Hann braut gegn banni sænsku verka- lýðshreyfingarinnar við ferðalög- um til Spánar með því að fara þangað í frí í vetur og búa í sumarbúðum sænska vinnuveit- endasambandsins(!) á Kana- ríeyjum. Myndir af hinum feita verkalýðsleiðtoga sem sat og reykti vindil og drakk í leynilegu fríi sinu komu í sænsku blöðun- um og festust í minni fólks. Sfðan var flokksgjaldkeri jafnaðar- manna tekinn fastur af sænska tollinum þegar hann ætlaði að smygla peningum frá ótilgreind- um aðilum til finnskra jafnaðar- manna til aðstoðar þeim I bar- áttunni við kommúnista í Finn- landi. Tilgangurinn með þessari dularfullu peningayfirfærslu var sjálfsagt virðingarverður fannst sænsku þjóðinni en aðgerðin var jafn ólögleg og hún var klaufaleg. Ekki batnaði það þegar vinsæl- asti rithöfundur Svfa, Astrid Lindgren, en barnabækur hennar eru einnig vinsælar meðal full- orðinna, f vor gekk á áberandi hátt úr J afnaðarmannaflokknum f mótmælaskyni við flokksræðið og skattaárásir á hana og aðra. Á lokastigi kosningabaráttunnar réðst hún enn á jafnaðarmenn og undirritaði bréf sitt „fyrrverandi sósfaldemókrati, nú bara demó- krati". Þegar svo hinn heims- frægi kvikmyndaleiksstjóri Ing- mar Bergman fór frá Svíþjóð var orðið nóg um smáhneyksli og jafhaðarmenn voru hraktir i varnarstöðu, en þvf eru þeir óvan- ir og urðu þess því ekki megnugir að gera gagnárás með því að taka meiriháttar málefni til umræðu. Þau tvö stærstu málefni, sem hafa verið notuð gegn jafnaðar- mönnum í kosningabaráttunni, eru hinir svo kölluðu Meidner- sjóðir og kjarnorkan. Meidner er hagfræðingur í verkalýðshreyf- ingunni. Hann lagði til f vor fjár- munamyndun í fyrirtækjum, sem bera mestan hagnað, skyldi verða beint í stóra sjóði, sem stjórnað er af miðstjórn verkalýðshreyfingar- innar. Aætlunin var samþykkt af ársfundi alþýðusambandsins. Sameinuð borgaraleg stjórnar- andstað gekk þá til gagnárásar. Stjórnarandstaðan varaði vð að Meidnersjóðirnir myndu leiða til þróunar frá blönduðu hagkerfi til sósíalistisks samfélags án nokk- urs einkareksturs. Palme og aðrir leiðtogar jafn- aðarmanna sögðu aftur og aftur að tillagan um Meidnersjóðina væri aðeins bráðabirgðaáætlun, sem ætti að ræða af alvöru fyrst eftir mörg ár, en aðvaranir stjórn- arandstöðunnar um þjóðnýtingar- tilhneigingar jafnaðarmanna höfðu eflaust áhrif á margt fólk. Ekki sízt vegna þess að stjórnar- andstaðan gat bent á fleiri til- burði til þjóðnýtingar og sósíal- isma, til dæmis ákvörðun lands- fundar Jafnaðarmannaflokksins um að ríkið skyldi taka að sér námsbókaútgáfu. Flestir Svfar og flestir jafnaðarmenn eru ekki sannfærðir sósialistar. Þess vegna voru aðvaranirnar gegn sósíal- isma áreiðanlega árangursrfk rök gegn jafnaðarmönnum í þessum kosningum. Mesta mál kosninganna var framtíð kjarnorkunnar. Sænska stjórnin hefur hrundið i fram- kvæmd viðamestu kjarnorkuáætl- un í heimi miðað við mannfjölda. Stærsti borgaraflokkurinn, Mið- flokkurinn, hefur ákaft gagnrýnt þessa áherzlu sem lögð er á kjarn- orku. Flokkurinn álitur það vera hægt að spara svo mikla orku að ekki gerist þörf á að nýta kjarn- orku með öllum þeim áhætt- um.sem að henni fylgja. Olof Palme er sannfærður um að full Framhald á bls. 24 PUTTINN NIÐUR — Gunnar Strang, fjármálaráðherra í stjórn Palmes, bendir niður sem merki um kosningaósigurinn. _______ Ólafur Pétursson, hagfræðingur í Svíþjóð, um úrslitin: „Fólk var ekki viðbúið þessu” # „ÞETTA kom ekki alveg á óvart en fólk var samt ekki viðbúið þessu. Mér virtist eins og sjálfur Fálldin hefði verið hálf hissa í nótt. Hann vissi varla hvernig hann átti að taka þessu," sagði Ólafur Pétursson, hagfræðingur hjá Samgöngunefnd Norðurlandaráðs f Stokkhólmi, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann f gær og spurði um hvernig Svfar brygðust við kosningaúrslitunum. „En Palme tók þessu bara vel fagnað í blöðum borgaraflokk- og sagði i sjónvarpinu í nótt að nú væri bara að segja af sér. En þetta er dálítið áhyggjumál 75 mönn- um, sem hverfa úr ríkisstjórn- inni, ráðherrum, aðstoðarráðherr- um og ráðuneytisstjórum." Ólafur sagði að blöðin skrifuðu að sjálfsögðu mikið um kosning- arnar og veltu fyrir sér ráðherra- Iistum. Óháð blöð eins og Dagens Nyheter hefðu ekki tekið afstöðu til úrslitanna en þeim væri mikið anna eins og Svenska dagbladet. „Blöðin eru sammála um að Mið- flokkurinn og Þjóðarflokkurinn muni mynda næstu stjórn en að það sé ekki eins öruggt og Hæg- fara einingarflokkinn." Um hvaða ástæða væri helzt tal- in vera fyrir falli jafnaðarmanna- stjórnarinnar sagði Ólafur Palme álíta að kjarnorkumálið hefði ver- ið fremsta orsökin. „En það er erfitt að dæma um að. Kjarnorkan var það mál, sem bar hæst í sjónvarpi og blöðum, en fólk á vinnustöðum álftur að hún hafi ekki skipt svo miklu máli. Mál eins og Meidner sjóðirn- ir og skattarnir hafi vegið þyngra. Hins vegar held ég að kjarnorkan hafi komið Fálldin inn. Hann hefði tapað meiru en þessum 4 þingsætum án hennar. Ólafur sagði að kosninganóttin hafi ekki verið mjög spennandi. „Tilhneigingin kom fram strax i upphafi, svo að spenningurinn fólst í því hvort jafnaðarmenn myndu ekki vinna á þegar á leið. En það varð ekki“. Misjöfn viðbrögð í Evrópu við kosningaúrslitunum: Skattabyrði ekki sérsænskt fyrirbrigði, heldur sósíalískt — segir Helmut Kohl Lundúnum — NTB — Reuter — UPI # STJÓRNMÁLALEIÐTOGAR f flestum Evrópurfkjum hafa tjáð sig um niðurstöður kosninganna f Svfþjóð. Kristilegir demókratar f V- Þýzkalandi hafa lýst ósigri sósfaldemókrata sem sigri frelsisins, en leiðtogi franskra sósfalista, FrancoLs Mietterand, lét svo um mælt að Oiof Palme og flokkur hans ætti áreiðanlega eftir að vinna nýja sigra. Helmut Kohl, kanslaraefni kristilegra demókrata í kosning- unum, sem fram fara í V- Þýzkalandi í næsta mánuði, sendi Gösta Bomann, formanni Moderata samlingspartiet, heilla- óskaskeyti þar sem hann sagði, að ósigur sósíaldemókrata eftir 44 ára stjórnartímabil hefði í för með sér, að nú væri hægt að fram- kvæma stefnu, sem byggðist á frelsi, en kjörorð kristilegra demókrata í kosningabaráttunni er „frelsi í stað sósfalisma". Kohl lét svo um mælt, að hin mikla skattbyrði væri ekkert sér- sænskt fyrirbrigði, heldur ætti slík stefna rætur sínar í sósíai- isma. Willy Brandt, fyrrverandi kanslari V-Þýzkalands, sagði þeg- ar niðurstaðan var kunn, að sósíaldemókratar væru eftir sem áður forystuaflið í sænskum stjórnmálum, og enn væri ekki komið í ljós, hvort borgaraflokk- arnir væru færir um að mynda starfhæfa ríkisstjórn. Brandt sagði um leið, að Helmut Kohl væri óraunsær ef hann héldi að ástandið í V-Þýzkalandi væri sam- bærilegt við það, sem væri í Sví- þjóð, og búast mætti við sams konar niðurstöðu f kosningunum, sem standa fyrir dyrum í V- Þýzkalandi. Mitterand sagði í skeyti til Olofs Palme, að reynslan í ná- grannalöndum Svíþjóðar sýndi, að samtök borgaraflokka væru þess ekki megnug að halda völd- um nema skamma hríð, þannig að ósigurinn á sunnudaginn væri ekki endanlegur ósigur sósíalism- ans í Svíþjóð. Le Monde, sem gefið er út í París, sagði í gær, mánudag, að Helmut Kohl og Frans Josef Strauss skyldu ekki gera sér i hugarlund að kostningaúrslitin væru vísbending um endalok kerfis, sem hefði gert smáríki að fyrirmynd annarra ríkja. Josef Taus, formaður Ihalds- sama þjóðarflokksins í Austur- ríki, sagði, að úrslitin væru stór- kostleg, og greinilegt væri að Sví- ar hefðu fengið nóg af sósíalism- anum. Joop den Uyl, forsætisráðherra Hollands, kvaðst óánægður með ósigur sósfalista, en lagði áherzlu á að fylgistap þeirra væri ekki ýkja mikið. Hann sagði, að úrslit- in yrðu sennilega til þess að binda enda á ýmiss konar samvinnu stjórna Svíþjóðar og Hollands. Helsinkiblaðið Ilta Sanomat, sem fylgir ‘frjálslyndri stefnu, sagði að meginorsök úrslitanna væri sú, að Svfar hefðu viljað breytingu eftir 44 ára stjórn sósíaldemókrata. Eftir úrslit sænsku þingkosn- inganna velta norskir stjórnmála- menn því fyrir sér hvaða lærdóm megi draga af þeim, en kosningar eiga að fara fram í Noregi að ári, en m.a. Oddvar Nordli og Erling Várvik, leiðtogi hægri manna, hafa þegar varað við þvi að menn fari að halda að kosningaúrslit og skoðanir kjósenda í Svíþjóð séu útflutningsvara. Dagfinn Várvik, formaður Mið- flokksins, telur að breytingar breytinga vegna hafi haft áhrif á úrslitin, og Reiulf Steen, formað- ur Verkamannaflokksins, er á sömu skoðun. I Noregi eru skiptar skoðanir á því hvaða áhrif kjarnorkumálið hafi haft á úrslitin. Lars Korvald, formaður þingflokks Kristilega þjóðarflokksins, er ekki þeirrar skoðunar, að þetta mál hafi haft eins mikil áhrif og ætlað var fyrir kosningarnar, en Dagfinn Várvik telur aftur á móti, að kosninga- úrslitin eigi eftir að hafa mikil áhrif á stefnu í kjarnorkumálum í framtíðinni. 1 ræðu, sem Oddvar Nordli hélt á mánudag, lýsti hann því yfir, að hann byggðist ekki við miklum breytingum á stefnu Svía í utan- ríkis- og öryggismálum. Hann kvaðst ekki búast við breytingum á samstarfi Norðurlandanna í kjölfar kosninganna. Þá sagði Oddvar Nordli: „Kosn- ingarnar í Svíþjóð gefa til kynna, að við verðum að nota timann fram til kosninga í Noregi til að tryggja að ekki verði kosið um það hvort stjórn Verkamanna- flokksins verður áfram við völd, eða hvort við tekur borgaraleg stjórn undir sterkum áhrifum frá hægri öflunum". THORBJÖRN FÁLLDIN — Svipmynd V eðurbitinn fjárbóndi THORBJÖRN Fálldin, verður næsti forsætisráðherra Sviþjóðar, á umhverfisverndarhópum, sem styðja stefnu hans f kjarnorku- málum, mikið að þakka framgang sinn. Þó eru ekki nema örfá ár sfðan hann var stuðningsmaður stefnu sænsku stjórnarinnar f orkumálum, sem miðaði að þvf að Svfþjóð yrði um 1985 það land f heiminum, sem mest byggði raf- orkuframleiðslu sfna á kjarn- orku. Afstaða hans breyttist eftir að þingbróðir hans kynnti hann fyrir Hannes Alfvén, sem er sænskur eðlisfræðingur og nóbelsverð- launahafi. Segir Fálldin, sem er bóndasonur frá Högsjö i Ang- ermanlandi í Norður-Svíþjóð, að vísindamaðurinn hafi opnað augu sfn fyrir þeirri hættu, sem kjarn- orkuver gætu haft í för með sér. Alfvén skýrði honum frá vaxandi svartsýni vfsindamanna á að hægt yrði að ráða við úrganginn úr kjarnorkuverunum og koma i veg fyrir eyðileggingarstarfsemi. Eftir að Fálldin fór að kánna málið nánar, varð hann æ sann- færðari um að ríkisstjórnin væri að gera mikil mistök. Honum tókst að gera kjarnorkumálin og gagntillögur sinar um að í i stað byggingu kjarnorkuvera skyldi veita fé til orkusparandi ráðstaf- ana og til rannsókna á nýjum orkugjöfum að aðalmáli kosninga- baráttunnar. Hann hefur getað haldið imynd sinni sem óheflaður bóndi með mannkosti sveitamannsins, ábyrgð, traust og góða dómgreind gagnstætt snilld menntamannsins og fágun borgarbúans. 1 augum almennings er Fálldin veðurbit- inn fjárbóndi i vinnugalla og með sigg I gro fum höndum. 1 meir en 20 ár hefur Fálldin búið nálægt Ramvik í Angerman- landi þar sem hann og fjölskylda hans hefur stundað fjárbúskap, ræktað kartöflur og höggvið skóg. Og þangað fór hann frá Stokk- hólmi I hverri viku þegar þing stóð yfir. Hann lauk skólagöngu 19 ára gamall og varð varaliðsforingi í herdeild úti á landi. Hann var virkur í unglingasamtökum Bændaflokksins f lok fimmta ára- tugarins og var kosinn á þing 1958, um það leyti sem flokkur hans breytti nafni sinu i Mið- flokkurinn. Hann tapaði þingsæti sinu með 11 atkvæðum 1964 en vann það aftur 1967. Hann var kosinn í miðstjórn flokksins 1966 og tók við af Gunnari Hedlund sem formaður 1971.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.