Morgunblaðið - 21.09.1976, Qupperneq 39
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976
21
Valsmenn úr leik í fyrstu
lotu Reykjavíkurmótsins
REYKJAVlKURMOTIÐ I hand-
knattieik, sem nú stendur yfir, er
með greinilegum byrjendabrag,
mikið um alls kyns mistök, spil
ráðleysislegt, varnir og mark-
varsla slök, enda ekki við miklu
að búast ( upphafi keppnistfma-
bils. Þó eru Valur og Fram slak-
ari en við mætti búast, sérstak-
lega Valur, sem tapað hefur fyrir
Vfkingi og Ármanni. En nú skul-
um við snúa okkur að úrslitum
einstakra leikja:
VALUR — VÍKINGUR
23—24
Þetta var sennilega úrslitaleik-
ur þessa riðils, en í honum eru að
auki IR, Ármann og Leiknir. Lið-
in voru nokkuð jöfn í þessum leik
og gat hann farið á hvorn veginn
sem var. Þegar fimm mínútur
voru til leiksloka höfðu Víkingar
tveggja marka forystu, en þegar
ein mínúta var eftir var Valur
með eins marks forskot og með
boltann en fyrir klaufaskap töp-
uðu Valsmenn boltanum tvívegis
og Víkingar gerðu sigurmarkið á
síðustu sekúndum leiksins. Flest
mörk gerðu Ólafur Einarsson 10
og Þorbergur Aðalsteinsson 6 fyr-
ir Víking en fyrir Val gerðu flest
mörk: Jón Karlsson 8, Jón Pétur
Jónsson 4 og Þorbjörn Guðmunds-
son 4.
IR—ÁRMANN 25—14
Þetta var slakur leikur og gátu
Ármenningar nánast ekki neitt
enda var staðan í hálfleik 13—4
ÍR í vil, en ÍR-ingar fóru sér róleg-
ar í seinni hálfleik og gerðu Ár-
menningar þá 10 mörk. Flest
mörk ÍR gerðu Ágúst Svavarsson
6, Brynjólfur Markússon 5 og
Höröur Hákonarson 4. Fyrir Ár-
mann gerðu Hörður Harðarson 3
og Óskar Ásmundsson 3.
KR—FRAM 15—15
Frammarar voru alveg bitlausir
í þessum leik og áttu ekki meira
skilið en jafntefli, annars voru
bæði liðin afar ráðleysisleg í sókn-
araðgerðum sinum og gekk illa að
opna varnir hvors annars en þær
voru það skásta sem sást i leikn-
um. Flest mörk KR gerðu Hilmar
| Valur og
Fram unnu
ÍSLANDSMEISTARAR Vals
þurftu ekki að leggja hart að
sér til þess að sigra 2. deildar
lið Selfoss, þar eystra á laugar-
daginn, en leikur þessi fór
fram í tilefni 40 ára afmælis
Ungmennafélagsins. Urslit
leiksins urðu 3—0 fyrir Vals-
menn, en sigurinn hefði getað
orðið mun stærri hefðu Vals-
menn haft heppnina með sér
og nýtt marktækifæri sem
þeim buðust fjölmörg I leikn-
um. Einn Valsmanna, Her-
mann Gunnarsson, lék þarna
afmælisleik, þar sem þetta var
250. leikur hans með meistara-
flokki Vals. Hélt Hermann upp
á afmælið með því að skora tvö
mörk, en markakóngur liðsins,
Ingi Björn Albertsson, skoraði
þriðja markið.
Á laugardaginn fór svo fram
á Akureyri minningarleikur
um þá Kristján Kristjánsson
og Þórarinn Jónsson sem lét-
ust af slysförum fyrir allmörg-
um árum. Áttust þar við lið
Þórs og Fram og lauk leiknum
með 2—1 sigri Framara. Mörk
Fram skoruðu þeir Trausti
Haraldsson og Ásgeir Elíasson
en Baldvin Harðarson skoraði
fyrir Þór.
Björnsson 4 og Haukur Ottesen 4.
Flest mörk Fram gerðu Pálmi
Pálmason 5 og Gústaf Björnsson
3.
ÞRÓTTUR—FYLKIR
21—13
Þróttarar voru ekki í vandræð-
um með Fylki þó að þá vantaði
Friðrik Friðriksson annars var
þessi leikur slakur eins og aðrir
leikir mótsins. Fyrir Þrótt gerðu
flest mörk þeir Konráð Jónsson 6,
Bjarni Jónsson 5 og Sveinlaugur
Kristjánsson 5. Einar Einarsson
gerði flest mörk Fylkis 4, aðrir
minna.
VALUR—ÁRMANN
15—16
Valsmenn voru alveg heillum
horfnir i þessum leik og höfðu
ekkert svar við baráttuglöðum
Ármenningum, sem sýndu mun
betri leik nú en gegn ÍR kvöldið
áður. Ef Valsmenn ætla að standa
sig f Islandsmótinu í vetur verður
mikið að lagast. Flest mörk Vals
gerðu Jón Pétur Jónsson 4 og
Þorbjörn Guðmundsson 4. Vil-
berg Sigtryggsson gerði 3 mörk
fyrir Ármann, en aðrir minna.
Alls gerðu 9 menn mörk liðsins.
VlKINGUR—LEIKNIR
Það er ekki hægt að hæla Vík-
ingum fyrir þennan leik; að vinna
Leiknf með 4 marka mun 23—19
er ekkert afrek. Það er vissulega
vonandi að handknattleikurinn
fari batnandi i vetur og I raun og
veru held ég að hann geti ekki
annað. Flest mörk Vfkings gerðu
Ólafur Einarsson 6 og Erlendur
Hermannsson 4. Flest mörk
Leiknis gerðu Hafliði Pétursson 7
og Gunnar örn Kristjánsson 4.
H.G.
63 MORK í TVEIMUR
LEIKJUM HJÁ FH
REYKJANESMÓTIÐ I hand-
knattleik hófst I Iþróttahúsinu f
Hafnarfirði á sunnudaginn og var
leikið þar frá morgni til kvölds,
enda ætlunin að ljúka mótinu af
að mestu á tveimur sunnudögum.
Ekki buðu leikirnir á sunnudag-
inn upp á mikil tilþrif né óvænt
úrslit. Helzt var það lið Stjörn-
unnar úr Garðabæ, nýliðarnir ( 2.
deild, sem kom á óvart. Það veitti
1. deildar Iiði Hauka mikla
keppni og vann sfðan yfirburða-
sigur yfir 2. deildar liði IBK.
Fyrsti leikur mótsins var milli
íslandsmeistara FH og liðs
UMFN. Ekki þurftu FH-ingar
mikið fyrir stórsigri sínum í þess-
um leik að hafa, en úrslitín urðu
30—12 fyrir FH. Næsti leikur var
milli 1. deildar liðanna Hauka og
Gróttu og þar kom hið sama upp á
teningnum. Annað liðið, Haukar,
hafði algjöra yfirburði og sigraði
27—12.
Næsti leikur var milli Aftureld-
ingar og Breiðabliks, tveggja 3.
deildar liða og lauk þeim leik með
sigri Aftureldingar 19—9.
Þá léku FH-ingar við 3. deildar lið
HK úr Kópavogi og unnu sigur
með 12 marka mun 33—21. Þessu
næst kom svo leikur Hauka og
Stjörnunnar, Hafði Stjarnan í
fullu tré við fyrstu deildar liðið
lengst af i leiknum, en úrslitin
urðu 19—17 fyrir Hauka.
Breiðablik vann siðan sigur I
leik sínum við UMFN 22—18, HK
sigraði Aftureldingu 26—20 og f
siðasta leik leik dagsins sigraði
Stjarnan lið IBK 25—15.
Hugurinn beinist
að Moskvu 1980
SPJALLAÐ VIÐ LILJU GUÐMUNDSDÓTTUR,
FREMSTU FRJÁLSÍÞRÓTTAKONU ÍSLENDINGA
Þarna var á ferðinni meistara-
hlaupari i mörgum skilningi. Hún
var óttalaus við keppinauta sfna,
hraðinn var yfirvegaður, hlaupið
afslappað og stíllinn afar fullkom-
inn. Lilja var nú meistarinn sem
keppinautarnir báru lotningu fyr-
ir.
UNDIR 2:10,0 MlN.
I byrjun ágúst f fyrra náði Lilja
áfanga sem hún hafði þá stefnt
lengi að, en l>að var að hlaupa 800
m undir 2:10 mín. Þetta tókst
henni f fyrsta sinn á miklu móti á
þeim fræga velli, Slottaskogsvall-
an í Gautaborg, en á sama móti
— Fyrst fór ég til Norrköping f febrúar
1973 og var þá bara f 1V6 mánuð. Þá komst
ég að raun um að aðstaða öll til æfinga og
keppni var þar miklu betri en hér heima,
þótt hún sé þar ekki eins og bezt gerist í
Svíþjóð. Þennan stutta tfma kynntist ég
forráðafólki og þjálfara IFK Norrköping,
en Guðmundur Þórarinsson, sem þjálfaði
mig hér heima, kom mér f samband við það.
Þetta fólk var mér afar hjálplegt og því
ákvað ég að fara út til Norrköping um
áramótin 1973/1974, en sfðan hef ég dvalizt
þar meira og minna.
Þetta voru orð Lilju Guðmundsdóttur,
bezta millivegalengdahlaupara Islands í
kvennaflokki fyrr og sfðar, en Mbl. tók
hana tali nýlega.
Lilja hefur vakið óskipta athygli hin síð-
ustu ár fyrir góðan árangur sinn á hlaupa-
brautinni hér heima og erlendis, en með
afrekum sfnum hefur hún skipað sér á bekk
meðal beztu millivegalengdahlaupara á
Norðurlöndum. Hún hefur orðið fyrsta ís-
lenzka konan til að sýna þá ákveðni, ein-
lægni og sjálfsaga við æfingar f sinni grein
sem þarf til þess að verulegur árangur
náist. Stórgóð islandsmet hennar f 800 m og
1500 m er bera þvf bezt vitni hve föstum
tökum hún hefur tekið æfingar sínar.
BYRJAÐII
HLJÓMSKÁLANUM
— Ég byrjaði að keppa í Hljómskála-
hlaupunum hjá ÍR, en f þá daga var auðvit-
að ekki æft neitt. Ég kom svo öðru hverju á
völlinn og keppti eitthvað, en árangur lét
alveg á sér standa þar til árið 1971, enda
ekki skrítið þar sem ég æfði ekki neitt fyrr
en svolítið veturinn 1970—71, sagði Lilja.
Samkvæmt upplýsingum þeim sem við
fengum hjá Guðmundi Þórarinssyni, þeim
ötula þjálfara ÍR-inga, þá var það á árinu
1969 að Lilja keppti fyrst í Hljómskála-
hlaupunum, en hlaupin byrjuðu einmitt
það ár. Guðmundur sagði okkur að ekki
hefði farið mikið fyrir árangri Lilju f þess-
um hlaupum, þar sem margar stúlkur hefðu
þá hlaupið á betri tfma. — En þetta breytt-
ist þó sfðar þegar Lilja byrjaði að æfa
svolftið með okkur, sagði Guðmundur.
ÞJÓÐHÁTIÐARMÓTIÐ
KVEIKJAN AÐ 400 M
I fyrstu keppti Lilja f 100 og 200 m, enda
lftið keppt þá í 400 og 800 m hlaupi, og
ungar stúlkur ekki beint hvattar til þátt-
töku í þeim vegalengdum f þá daga. Á árinu
1971 vekur hún þó mesta athygli fyrir
árangur sinn f 400 m, en vegalengdina hljóp
hún bezt á 62,4 sek. það árið og var þá rétt
við þágildandi Islandsmet. Þessum árangri
náði hún á 17. júnf-mótinu, og varð þetta
kveikjan að frekari undirbúningi fyrir 400
metra. Lilja sigraði f 400 m á Þjóðhátfðar-
daginn næstu skipti sem hún var hérlendis,
en einmitt þann dag 1973 setti hún islands-
met (59,3 sek.) á vegalengdinni, og með
þeim árangri varð hún fyrst íslenzkra
kvenna til að hlaupa 400 metra undir 60
sekúndum.
FYRSTA METIÐ
— Ég byrjaði að fikta við 800 m 1971, en
hafði þó ekkert sérstakan áhuga á þeirri
grein. Ég man því ekki beinlínis hvað vakti
fyrir mér þegar ég ákvað að taka þátt f
þeirri grein á Meistaramótinu 1972. Hlaup-
ið sjálft fannst mér frekar rólegt f byrjun
og tók ég því forystuna eftir 300 m. Ég
leiddi svo þar til að um 100 m voru eftir, en
þá fóru bæði Unnur Stefánsdóttir og Ragn-
hildur Páisdóttir fram úr mér. Einhvern
veginn tókst mér að svara spretti þeirra og
ná þeim aftur og vinna hlaupið. Ekki hafði
ég búizt við sigri fyrir hlaupið, og þvf varð
ég mjög hissa að heyra að ég hefði sett nýtt
islandsmet f hlaupinu, en ég hljóp á 2:20.2
mín. Þetta var mitt fyrsta islandsmet og
bætti ég fyrra metið um 1.8 sek., en það átti
Ragga, sagði þessi geðuga hlaupakona þeg-
ar við ræddum við hana nýlega.
Lilja sagði okkur að þetta hlaup hefði
gert það að verkum að hún hefði ákveðið að
einbeita sér að 400 m og 800 m f framtfð-
inni.
Margt af okkar fremsta frjálsfþróttafólki ( dag hóf feril sinn ( hinum vinsælu Hljómskálahlaupum
Guðmundar Þórarinssonar. Lilja Guðmundsdóttir er meðal þeirra og hér má sjá hana fara af stað ( eitt
slfkt. Með henni á þessari mynd er einnig Gunnar Páll Jóakimsson einn fremsti millivegalengdahlaupari
landsins f dag, en hann er greinilega við upphaf hlaupaferils sfns þegar þessi mynd er tekin. Ur svip
þeirra má lesa mikla einbeitingu þótt ekki sé kunnáttan mikil á tfma myndarinnar.
gerðist sá markverði viðburður að
ein ensk míla var fyrst hlaupin
undir 3:50 mfn.
— Ég var ekki í sem bestu stuði
fyrir hlaupið og eftir 300 metra
fannst mér fæturnir ætla að gefa
sig því þeir voru eitthvað þungir.
Ég þráaðist þó við og barðist af
hörku við keppinauta mfna, en
hópurinn var vel haldinn rúmlega
hring. Ég var í 5. sæti eftir 400 m
og fékk 62 sekúndur í millitlma.
Barðist ég mikið við sænska
stelpu msem heitir Lotta Malm-
ström, en svo voru einnig útlend-
ar hlaupakonur f keppninni. Þeg-
ar 300 metrar voru eftir vann ég
mig upp f 4. sæti og hélt því í
mark. Ég var illa á mig komin að
hlaupi loknu. Fæturnir voru al-
veg máttlausir og einnig var ég
heltekin af svima. En það var eins
og þetta hyrfi allt saman þegar ég
heyrði tímann minn, 2:08,5 mfn.
Þar með var langþráðu takmarki
náð, þ.e. að komast undir 2:10,0
mínútur í 800 metrum. Ég var
auðvitað himinlifandi yfir þessu,
sagði Lilja, og svo var einnig með
þjálfara minn Zicka og forráða-
fólk félagsins.
ÓLYMPtULEIKAR UNDIRBUN-
IR
Árangur Lilju á árinu 1975 var
rétt við íslenzku lágmörkin sem
sett voru sem skilyrði fyrir þátt-
töku f Ólympíuleikunum i Mon-
treal. Hafði hún hlaupið 1500 m á
4:34.0 mín. og 800 m á 2:08.5 mín.,
en lágmörkin hljóðuðu upp á
4:30,0 mín og 2:08,5 mfnútur.
Markið var þvf sett hátt og þau
Lilja og Zicka skipulögðu æfing-
arnar veturinn 1975—76 með það
f huga að sigrast á lágmörkunum
og það þá meira en lítið. Meðal
annars fór hún í æfingabúðir til
italíu og Júgóslavfu og bjó sig
undir sumarið af kostgæfni. Þess
er svo skemmst að minnast að
Lilja náði lágmarkinu f 1500 m
léttilega með glæsilegu nýju Is-
landsmeti, 4:26,2 mfn. Þessu náði
hún á móti í Gautaborg, en þar
finnst henni best að keppa, og
eins og áður kemur fram þá hafa
mörg met hennar verið sett þar.
Ekki tókst Lilju að sigrast á lág-
markinu f 800 m, en hún var
fremur óheppin meó keppni í
þeim greinum. Þar sem hún hafði
unnið sér rétt til þátttöku í Ól. i
1500 m var hún einnig valin til að
keppa í 800 m I Montreal.
1 MONTREAL
Þegar til Montreal var komið
var greinilegt að Lilja stefndi að
sem bestum árangri, því tíma
þann sem hún þurfti að bfða þar
til að keppni kom, notaði hún af
kostgæfni og undirbjó sig vel.
Árangurinn talar bestu máli en
tvö ný og glæsileg islandsmet sáu
dagsins ljós. 800 metrarnir voru á
undan. Þar hljóp Lilja á 2:07,26
mín. Gamla metið var 2:08,5 mín.,
en best um sumarið var hún búin
að hlaupa á 2:11,7 mín., og var það
hér heima sem hún náði þeim
árangri. Var það f Kalott-
keppninni sem hún sigraði með
yfirburðum.
1500 metrarnir voru öllu glæsi-
legri. Þar hljóp Lilja á stórgóðum
tfma, 4:20,27 mín. Var hér um 5.9
sekúndna bætingu á fyrra metinu
að ræða, og framfarirnar frá fyrra
ári voru orðnar 13.7 sekúndur.
Þótt Lilja hafi rekið lestina i
sínum riðlum, en hún var óheppin
með riðladrátt og lenti f sterkum
riðlum, þá var ekki að sjá að hjá
henni gætti neins ótta við keppi-
nautana og skki var hún með
neina sérhlífni, því hún barðist
við keppinauta sfna eftir fremsta
megni. Óhætt er að fullyrða að
Lilja hafi náð bestum árangri ís-
lenzka frjálsfþróttafólksins í
Montreal.
FRAMTÍÐIN I JÁRNUM
Þegar við spurðum Lilju hvað
nú tæki við, þá sagðist hún vera
nokkuð óákveðin með framtíðina.
Ahuginn væri þó fyrir hendi og
markmiðið er að taka stefnu á
Ólympíuleikana í Moskvu, sem
verða á árinu 1980. — Það er
spurning með það atriði að geta
dvalist erlendis við æfingar og
keppni. Eigi ég að ná eitthvað
lengra þá er ef til vill nauðsynlegt
að skipta um umhverfi. Þá eru
vandræði með að geta einbeitt sér
fullkomlega við æfingar því hing-
að til hef ég þurft að stunda at-
vinnu til að geta lifað, en fremsta
fólk f öðrum löndum býr við alit
aðra aðstöðu í þeim efnum, sagði
Lilja okkur. — Bestu menn okkar
Framhald á bls. 25
HALDIÐ UTAN
i janúar 1974 ákveður Lilja að
fara til Svfþjóðar til æfinga og
keppni. Hún stundaði einnig at-
vinnu þar, en félagið sem hún
keppti fyrir, IFK Norrköping, út-
vegaði henni atvinnu og húsnæði.
— Þarna komst ég í kynni við
þjálfarann Zivojin Zicka, en frá
þeim tfma hefur hann skipulagt
æfingaprógrömm mfn. Það er
harður maður sem krefst þess að
maður leggi sig fram við æfingar.
Hann hefur aðeins fáa einstak-
linga og sinnir hverjum mjög
mikið. Þannig er hann oft f viku
viðstaddur mfnar æfingar, og
hann lætur til sfn heyra maðurinn
sá, hvort sem gengur vel eða illa.
Já, hann er harður yfirmaður og
hefur litla samúð með þeim sem
kveinka sér, en þannig eiga þjálf-
arar að vera. Þeir mega ekki láta
íþróttamanninn komast upp með
leti eða sérhlífni.
Sumarsins 1974 er skemmst að
minnast, þvf þá bitust Lilja og
Ragnhildur um íslandsmetið í 800
m. Skiptust þær á að bæta það og
þegar upp var staðið átti Lilja
metið, sem hljóðaði upp á 2:15.1
mfnútu.
YFIRBURÐIR A
MILLIVEGALENGDUNUM
Sfðan 1974 hefur Lilja haft yfir-
burði f millivegalengdunum hér-
lendis, en þegar Lilja tók sem
mestum framförum (1975) þá
virtist, því miður, sem hennar
helzta keppinaut, Ragnhildi Páls-
dóttur, færi aftur, en eitt helzta
skilyrði góðra framfara er hörð
keppni, en á þann hátt hefðu þær
getað hjálpað hvor annarri.
Sfðustu 2 árin hefur mai’gt drif-
ið á daga Lilju. Hvert Islandsmet-
ið af öðru, innanhúss og utan,
hefur litið dagsins ljós, og hefur
hún unnið margan góðan sigur-
inn. Hún hefur t.d. verið afar
sigursæl f keppnum í Svíþjóð, en
þar í landi er hún nú f allra
fremstu röð f sínum greinum. í
sumar vann hún ásamt stöllum
sfnum IIFK Norrköping sænskan
meistaratitil, er þær komu fyrstar
að marki 13x800 m boðhlaupi. Þar
hljóp Lilja endasprettinn, og fékk
hún um 2:10.0 mfn., svo til alveg
kappnislaust.
SIGRAR I KALOTT
islenzkir frjálsíþróttaunnendur
og landsliðsfélagar Lilju hafa lftið
séð hana í keppnum sfðustu 3
árin, þar sem hún hefur dvalizt
meira og minna f Svíþjóð, en
þangað leitar íslenzkt frjáls-
íþróttafólk þó frekar lítið.
Lilja hafði sett nokkur met ytra
þegar hún kom til móts við félaga
sfna í Kalott-keppninni í Tromsö í
fyrra, en þá fengu menn heldur
betur að sjá þessa afrekskonu f
fullu fjöri. Hún var ekkert að
tvínóna við hlutina heldur tók
forystu í 800 m og 1500 m þegar í
upphafi og hljóp frá keppinaut-
um sfnum. Henni varð aldrei litið
um öxl, heldur hljóp mjög yfir-
vegað, réð alveg lögum og lofum f
hlaupunum tveimur og sigraði í
báðum greinum á tímum við
hennar bezta.
í keppni þessari kom í ljós að
stúlkan sem flestir höfðu þekkt
hingað til sem dálítið duttlunga-
fulla og óörugga í keppni, hafði Lilja Guðmundsdóttir sigrar með yfirburðum
gjörsamlega tekið stakkaskiptum. keppni á Laugardalsvellinum.
(
Lauda lætur sig ekki
„The show must go on.“ Þannig
hugsar greinilega austurr(ski
kappakstursmaðurinn Niki
Lauda, sem vann það frækilega
afrek um fyrri helgi að verða (
fjórða sæti I Monza kappakstrin-
um á Italfu, röskum sex vikum
eftir að hann lenti f alvarlegu
slysi ( kappakstri f Vestur-
Þýzkalandi — svo alvarlegum, að
honum var ( fyrstu vart hugað lff.
Engum datt þá f hug, að Lauda
myndi nokkru sinni framar sjást
á kappakstursbrautunum, en
viljaþrek og kjarkur þessa lág-
vaxna Austurrfkismanns virðist
vera með ólfkindum. A.m.k. var
það ekki að sjá ( kappakstrinum f
Monza, að Lauda væri neitt brugð-
ið.
Fyrir keppnina f Monza lýsti
Ferrari-verksmiðjurnar yfir þvi,
að Lauda tæki þátt f þessum kapp-
akstri algjörlega á eigin ábyrgð,
en þær munu hafa verið þvf mót-
fallnar, að Lauda hæfi keppni svo
fljótt, jafnvel þótt það hafi gífur-
lega mikið fyrir fyrirtækið að
segja, að Lauda hreppi heims-
meistaratitilinn, en sem kunnugt
er ekur hann Ferrari-bifreið. —
Það var Lauda sjálfur og læknir
hans, sem tóku ákvörðunina um
keppni hans, ekki við sagði Enzo
Ferrari, forstjóri Ferrariverk-
smiðjunnar, þegar tilkynnt var,
að Lauda myndi keppa í Monza.
Þegar Lauda hitti blaðamenn að
máli fyrir keppnina brá þeim í
brún. Andlit kappaksturhetjunn-
ar er mjög illa farið af brunasár-
um, sem hann hlaut í slysinu,
þrátt fyrir að sérfræðingar hafi
gert mikið tii þess að lappa upp á
útlit hans. Því verki er þó engan
veginn lokið, og telja læknarnir,
að unnt verði að laga líkamslýti
Lauda að mestu.
Kappaksturinn í Monza var
hinn sögulegasti, ekki sfzt vegna
þess, að helzti keppinautur Lauda
um heimsmeistaratitilinn, James
Hunt frá Englandi, var staðinn að
því að reyna að sniðganga reglur
keppninnar. Notaði hann sterk-
ara bensfn en heimilt er i undan-
keppninni, og var það til þess að
hann var dæmdur til þess að vera
sfðastur f hópnum, þegar ræst var
út f kappaksturinn. Fór líka svo,
að James Hunt hætti keppni eftir
12 hringi. Eftir keppnina kærði
svo Hunt keppnina, og er enn
ekki vitað, hvort mótmæli hans
verða tekin til greina.
Það var Svíinn Ronnie
Peterson, sem varð sigurvegari f
Monzakappakstrinum, en í öðru
sæti varð félagi Niki Lauda, Clay
Niki Lauda á blaðamannafundi
fyrir keppnina ( Monza. Svo sem
sjá má er andlit hans illa útleikið
eftir slysið. Læknar hafa þó gefið
honum góða von að takast megi að
laga það að mestu.
Regazzoni frá Sviss, en hann ekur
Ferrari-bifreið. Var þetta fyrsti
sigur Petersons í Grand-Prix
kappakstri f ár.
í frásögn Morgunblaðsins af
kappakstri þeim sem fram fór ný-
lega var sagt, að þar hefði James
Hunt unnið sinn fyrsta sigur í
Grand-Prix keppni. Þar var
aldeilis ekki farið rétt með, þar
sem Hunt hefur oftsinnis sigrað í
slíkri keppni, og það oftar en einu
sinni f ár.
Staðan f keppninni um heims-
meistaratitilinn er þannig eftir
keppnina i Monza:
1) Niki Lauda, Austurriki
(Ferrari) 61 stig
2) James Hunt, Englandi
(McLaren) 56 stig
3) Jody Scheckter, S-Afríku
(Tyrrell) 38 stig
4) Clay Regazzoni, Sviss
(Ferrari) 30 stig
5) Patrick Depailler, Frakklandi
(Tyrell) 27 stig
6 Jacques Laffitte, Frakklandi
(Ligier-Matra) 20 stig
7) John Watson, írlandi
(Penske) 18 stig
8) Jochen Mass, V-Þýzkalandi
(McLaren) 14 stig
9) Ronnie Peterson, Svíþjóð
(March) lOstig
10) Gunnar Nilsson, Sviþjóð
(Lotus) lOstig
Ronnie Pettersson — Sigurinn í Monzakappakstrinum
var honum mjög kærkominn, eftir misjafnt gengi þaó
sem af er þessu keppnistímabili.
Boit vann
Keníabúinn Mike Boit sigraði i
800 metra hlaupi á miklu frjáls-
íþróttamóti sem fram fór í Parfs
um helgina. Hljóp Boit á 1:46,5
mfn. og hafði hann forystu f
hlaupinu allt frá upphafi til enda.
Ætlaði Boit sér að setja heims-
met, en var nokkuð langt frá því
að þessu sinni. Annar í hlaupinu
varð Milovan Savic frá Júgóslaviu
sem hljóp á 1:47,1 mfn. og þriðji
varð landi Boits, John Kipkurgat,
og var tími hans 1:47,2 mín.
Margir af beztu frjálsíþrótta-
mönnum heims tóku þátt í mótinu
og yfirleitt náðist ágætur árangur
f öllum keppnisgreinum.
í Pads
Mike Boit.