Morgunblaðið - 21.09.1976, Síða 40
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976
Andy Gray, leikmaður með Aston Villa er nú markhæsti ieikmað-
ur ensku knattspyrnunnar og hefur hann skorað 7 mörk f sex
leikjum. Myndin var tekin er Gray hafði sent knöttinn f mark
Queens Park Rangers fyrra laugardag. Þðtt Gray skoraði fyrir Villa
f leik liðsins við Birmingham á laugardaginn nægði það ekki til og
hefur Villa, sem byrjaði keppnistfmabilið mjög vel, lækkað flugið f
sfðustu leikjum sfnum.
mistókst hjá
og Liverpool
forystunni
ENSKU meistararnir Liverpool tryggðu stöðu sfna á toppnum f ensku
1. deildinni á laugardaginn er liðið van góðan sigur á heimavelli sínum
gegn Lundúnaliðinu Tottenham Hotspur f fjörugum og spennandi
leik. Hefur Liverpool nú hlotið 10 stig úr fyrstu sex umferðunum, og
verður ekki annað sagt en að byrjunin hjá liðinu sé góð, og bendi til
þess að það ætli sér ekkert minna en að verja titilinn, en það er raunar
ekki oft sem sama liðið hefur orðið meistari tvö ár f röð f ensku
knattspyrnunni. En þetta er nú reyndar bara byrjunin, og þótt hún
hafi óneitanlega verið góð hjá meisturunum á enn mikið vatn eftir að
renna til sjávar áður en bikarinn verður afhentur næsta vor.
Liverpool hafði betur I leik sín-
um gegn Tottenham Hotspur allt
frá upphafi til enda, en Lundúna-
liðið sýndi þó öðru hverju af-
bragðs takta og hefði verðskuldað
að skora mark, Til þess fékk
Totenham líka gullið tækifæri er
dæmd var vitaspyrna á Liverpool
en Keit Osgodd sem tók víta-
spyrnuna brást illa bogalistin, og
skaut framhjá. Pat Jennings,
landsliðsmarkvörður Norður-
írlands lék að þessu sinni sinn
450, 1. deildar leik fyrir Totten-
ham Hotspur, en Jennings hefur
verið með liðinu s.l. tólf ár. Hann
stóð sig mjög vel í þessum
afmælisleik sínum, en réð þó ekki
við skot frá David Johnson á 8.
mínútu og Steve Heighway á 29.
mín.
Það þykir í frásögur færandi að
nú eru liðin 64 ár síðan Totten-
ham vann Liverpool síðast á
heimavelli, og lítur út fyrir að
Lundúnamenn verði að bíða með
það enn um stund. Ef til vill hefst
það á sjötugsafmælinu!
Mikil athygli beindist að viður-
eign Manchester United og
Middlesborough, en fyrir þennan
leik á Old Trafford var Middles-
borough í öðru sæti í deildinni
með átta stig eftir fimm leiki. Var
greinilegt að leikmenn Middles-
brough ætluðu ekki að tefla á
tvær hættur í þessum leik, og
léku nokkuð stífan varnarleik.
Þar kom að Tony McAndrew skor-
aði sjálfsmark, og við það breytt-
ist leikurinn nokkuð. Míddles-
broúgh fór að sækja meira, og
jafnframt opnaðist vörn liðsins.
Varð það til þess að Stuart Pear-
son tókst að innsigla sigur
Manchester United með góðu
skoti, 14 minútum fyrir leikslok.
Mikil harka hljóp I leik þennan
eftir að Middlesbrough hafði
skorað umrætt sjálfsmark og var
einn leikmaður, John Craggs,
bókaður fyrir ftrekaðan háska-
leik.
Manchester City vann langþráð-
an sigur á útivelli á laugardaginn,
er liðið mætti nýliðunum í deild-
inni, Sunderland. Fram til þessa
leiks hafði City ekki unnið leik á
útivelli í tæpt ár, eða frá þvf að
liðið bar sigurorð af Wolver-
hampton Wanderes 4—0 í nóvem-
ber í fyrra. Lengi vel leit út fyrir
að leik þessum myndi lykta með
markalausu jafntefli, en á síðustu
mínútum leiksins tókst Dennis
Tueart og Joe Royle að skora tví-
vegis fyrir City, og skjóta þar með
liðinu f annað sætið f deildinni,
aðeins einu stigi á eftir Liverpool.
Um 20.000 áhorfendur fylgdust
með viðureign Stoke City og Ips-
wíeh Town og urðu þeir vitni að
því að sami leikmaðurinn skoraði
tvfvegis á tuttugu mfnútum. Sá
var Stoke-leimaðurinn skoraði
tvívegis á tuttugu mínútum. Sá
var Stoke-leikmaðurinn John
Trudor sem skoraði þegar eftir 90
sekúndna leik og bætti síðan öðru
marki við á 19. mínútu, með
skalia af alllöngu færi. Stoke hélt
síðan áfram að sækja í leiknum,
eða unz Trevor Whymark tókst að
skora fyrir Ipswich á 55 mfnútu.
Eftir það breyttist leikurinn
nokkuð og var greinilegt að Stoke
lagði alla áherzlu á að halda
fengnum hlut sínum', hvað tókst.
Mikil spenna var í leik Leeds
United og Newcastle United í
Leeds og voru þar skoruð þrjú
mörk á fimm mfnútum. David
McNiven skoraði fyrir Leeds á
fýrstu mínútu seinni hálfleiks og
var staðan þannig 1—0 þegar 80
mínútur voru af leik, en þá loks
tókst Cassidy að jafna fyrir New-
castle. Þvf marki svaraði Carl
Harris samstundis fyrir Leeds en
á 85. mínútu skoraði Paul Cannell
fyrir Newcastle eftir varnarmis-
tök hjá Leeds og krækti þar með f
annað stigið í leik þessum fyrir lið
sitt.
Leicester gerði sitt sjötta jafn-
tefli í jafnmörgum leikjum í
deildinni á laugardaginn. Mót-
herjinn var Queens Park
Rangers. Leikur þessi var í jafn-
vægi allan tfmann, eða unz John
HoIIins skoraði fyrir Queens Park
Rangers þegar 15 mfnútur voru
til leiksloka og breytti stöðunni f
2—1 fyrir Q.P.R. Flestir áttu von
á því að mark þetta myndi nægja
Lundúnaliðinu til sigurs, en þeir
Leicester-leikmenn voru ekki á
þvf að gefast upp og mínútu fyrir
leikslok tókst Chris Garland að
skora og jafna. Áhorfendur að
leik þessum voru rúmlega 18.000.
Arsenal vann sinn fyrsta sigur
á heimavelli síðan Terry Neill tók
við framkvæmdastjórn liðsins.
Ekki þótti leikur liðsins við
Everton á laugardaginn sannfær-
andi þótt sigur hefðist 3—1, en öll
mörk Arsenal í leik þessum voru
fremur ódýr, og vörn Everton-
liðsins var allan leikinn mjög
óörugg og gaf oft á sér höggstað.
Áhorfendur að leik þessum voru
28.932.
Tveir leikmanna West Ham
United urðu fyrir alvarlegum
meiðslum f leik sínum við Bristol
City. Frank Lampard varð að yfir-
gefa völlinn í fyrri hálfleik, illa
meiddur á fæti og í seinni hálf-
leiknum fótbrotnaði Pat Holland.
Bristol-Iiðið sótti til muna meira í
þessum leik og skoraði f fyrri
hálfleik. Markið gerði Keith Fear
eftir hornspyrnu. Þegar aðeins 20
mfnútur voru eftir af leiknum
jafnaði Alan Taylor fyrir West
Ham og kom það mark einnig
eftir hornspyrnu. Áhorfendur að
leik þessum voru 28.932.
Hinn marksækni leikmaður
Aston Villa Andy Gray færði liði
sínu forystu í leiknum við
nágrannaliðið Birmingham
snemma í leiknum. Það nægði þó
ekki til þar sem leikmenn
Birminghamliðsins börðust af
miklum krafti í leiknum og tókst
að skora tvívegis. Gerðu þeir Ken
Burns og John Connolly mörkin.
í annarri deildinni urðu miklar
sviptingar og þau lið sem skipuðu
efstu sætin fyrir umferðina töp-
uðu leikjum sfnum. Ulfarnir, sem-
féllu úr 1. deildinni í fyrra, sýndu
hins vegar heldur betur tennurn-
ar í leik sínum við Oldham Athlet-
ic — eitt af efstu liðunum í deild-
inni. Unnu Ulfarnir leikinn 5—0
og skipuðu sér þar með f efsta
sætið í deildinni. Þykja Ulfarnir
leika hina ágætustu knattspyrnu
um þessar mundir og er líklegt að
þeir hafi fullan hug á því að
endurheimta sæti sitt í 1. deild.
t Skotlandi heldur Dundee
United sínu striki og er eina liðið
sem hefur unnið alla leiki sína í
deildinni til þessa og er því með 6
stig. í öðru sæti er Aberdeen með
5 stig, Hearts, Partick og Rangers
hafa 3 stig, Celtic, Hibernian,
Kilmarnock, Motherwell og Ayr
United hafa hlotið 2 stig.
■
1. DEILD
Liverpool 6 3 0 0 6—1 2 0 1 5—4 10
Manchester City 6 3 0 0 4—1 1 2 0 4—2 9
Arsenal 6 1 1 1 3—2 2 1 0 7—3 8
Middlesbrough 6 3 0 0 4—1 0 2 1 0—2 8
Bristol City 6 1 2 0 6—3 1 1 1 2—2 7
Manchester United 6 1 1 1 6—5 1 2 0 4—2 7
Stoke City 6 2 1 0 4—2 0 2 1 1—4 7
Aston Villa 6 2 0 1 10—4 1 0 2 3—4 6
Everton 6 1 1 1 4—3 1 1 1 6—4 6
Newcastle United 6 0 3 0 4—4 1 1 1 4—3 6
West Bromwich Albion 6 1 1 1 3—2 1 1 1 3—3 6
Birmingham City 6 1 1 1 2—2 1 1 1 4—4 6
Leicester City 6 0 3 0 5—5 0 3 0 0—0 6
Queens Park Rangers 6 2 0 1 3—5 0 2 1 4—5 6
Coventry City ^ 6 2 0 1 6—4 0 1 2 2—5 5
Leeds United 6 1 2 0 6—4 0 1 2 2—5 5
Ipswich Town 6 1 2 0 5—3 0 1 2 4—8 5
Tottemham Hotspur 6 1 1 1 1—2 1 0 2 4—7 5
Derby County 6 0 2 1 2—3 0 2 1 2—4 4
West Ham United 6 1 1 1 1—2 0 1 2 2—7 4
Norwich City 6 1 1 1 2—3 0 0 3 0—5 3
Sunderland 6 0 2 1 2—4 0 1 2 2—6 3
2. DEILD
Wolverhampton 6 2 1 0 8—0 1 2 0 5—3 9
Chelsea 6 2 1 0 5—3 2 0 1 4—5 9
Bolton Wanderes 6 3 0 0 10—2 1 0 2 3—5 8
Blackpool 6 2 0 1 7—4 2 0 1 5—3 8
Oldham Athletic 6 2 1 0 6—2 111 3—7 8
Millwall 6 2 1 0 6—0 1 0 2 5—8 7
Notts County 6 1 0 2 3—3 2 1 0 6—4 7
Fulham 6 1 2 0 3—2 1 1 1 4—4 7
Hereford United 6 2 0 1 5—2 0 2 1 6—7 6
Hull City 6 2 1 0 8—2 0 1 2 2—7 6
Sheffield United 6 1 2 0 6—3 0 2 1 2—4 6
Notthingham Forest 6 1 1 1 6—7 0 3 0 4—4 6
Bristol Rovers 6 1 1 1 2—4 111 2—2 6
Carlisle United 6 1 2 0 5—4 1 0 2 3—6 6
Charlton Atheltic 6 1 1 1 5—6 1 1 1 3—5 6
Burnley 6 2 0 1 6—3 0 12 1—5 5
Luton Town 6 1 1 2 6—7 1 0 1 3—4 5
Plymouth Argyle 6 1 0 2 7—5 0 2 1 4—7 4
Cardiff City 6 1 0 2 5—6 1 0 2 4—6 4
Orient 6 1 1 1 5—3 0 0 3 0—6 3
Blackburn Rovers 6 1 1 1 3—2 0 0 3 1—8 3
Southampton 6 0 2 1 3—4 0 1 2 0—6 3
Knattspyrnuúrsilt
ENGLAND 1. DEILD:
Arsenal — Everton 3—1
Aston Villa — Birmingham 1—2
Bristol City — West Ham 1—1
Leeds — Newcastle 2—2
Leicester — 2—2
Liverpool—Tottenham 2—0
Manchester Utd. — Middlesbrough 2—0
Norwich — Derby 0—0
Stoke — Ipswich 2—1
Sunderland — Manchester City 0—2
ENGLAND 2. DEILD:
Blackburn Rovers — Bristol Rovers 0—0
Carlisle — Bumley 2—1
Chelsea — Bolton 2—1
Hereford — Charlton 1—2
Luton — Fulham 0—2
Millwall — Plymouth 3—0
Notts County — Blackpool 2—0
Orient — Cardiff 3—0
Southampton — Notthingham 1—1
Wolves — Oldham 5—0
ENGLAND 3. DEILD:
Brighton — York 7—2
Bury — Chester 2—0
Gillingham — Portsmouth 2—1
Lincoln—Swindon 0—0
Mansfield—Tranmere 1—1
Oxford — Grimsby 5—2
Peterborough — Crystal Palace 0—0
Preston — Rotherham 0—0
Reading — Port Vale 1—1
Sheffield Wed. — Chesterfield 4—1
Shrewsbury — Northampton 3—0
Wrexham — Walsall 1—0
ENGLAND 4. DEILD:
Brentford—Southport 3—0
Cambridge — Bournemouth 2—0
Colchester — Crewe 3—2
Darlington — Huddersfield 2—0
Halifax — Exeter 1—2
Hartlepool — Southend 1—1
Newport — Aldershot 2—1
Rochdale — Watford 3—1
Scunthorpe — Workington 3—1
Swansea — Doncaster 1—1
Torquay — Bradford 0—3
SKOTLAND — tlRVALSDEILD:
Aberdeen — Kilmarnock 2—0
AyrUnited — Dundee United 1—4
Celtic — Hearts 2—2
Hiberaian — Rangers 1—1
Partick — Motherwell 2—0
SKOTLAND 1. DEILD:
Airdrionians — Morton 3—2
Clydebank — St. Johnstone 1—0
Dundee — Queen of the South 1—1
Hamilton — East Fife 3—1
Montrose — Falkirk 3—2
Rait Rovers — Arbroath 1—0
St. Mirren — Dumbarton 2—1
SKOTLAND 2. DEILD:
Berwick Rangers — Albion Rovers 1—3
Dunfermline — Alloa 0—2
East Stirling — Strangaer 2—1
Forfar — Clyde 1—3
Queens Park — Brechin City 3—1
Stenhousemuir — Cowdenbeath 0—2
Stirllng — Meadowbank 2—2
VESTUR- ÞVZKALAND 1. DEILD:
Rot-Weiss Essen — Karlsruhe 3—2
Eintracht Braunswick — Schalke 04 1—0
FC Kaiserslautern —
Borussia Mönchengladbach 1—2
Fortuna Dtísseldorf — Hamburg SV 2—0
Eintracht Frankfurt —
FC Saarbruecken 2—1
Tennis Borussia — FC Köln 3—2
FVL Bochum — Bayern Miinchen 5—6
Borussia Dortmund — Hertha Berlín 2—1
Werden Bremen — MSV Duisburg 2—2
FC Köln hefur nú forystu f þýzku 1. deild-
inni með 10 stig eftir 6 leiki. Borussia
Mönchengladbacc hefur einnig 10 stig, en
næstu lið eru Eintracht Braunswick með 9
stig og Bayern Munchen með 8 stig.
AUSTURRtKI 1. DEILD
Austria Salzburg — SSW Inssbruck 2—0
Vooest — Sturm 1—0
GAK — Admira Wacker 0—1
SSW Innsbruck hefur forystu f deildinni
með 12 stig, en næstu lið eru Austria Salz-
burg með 11 stig og Vooest með 10 stig.
AUSTUR- ÞVZKALAND 1. DEILD:
Dynamo Dresden —
FC Vorwaerts Frankfurt 7—1
Sachsenring Zwickau —
Carl Zeiss Jena 3—1
Union Berlfn — Karl—Marx Stadt 1—2
Rot—Weiss Erfurt—Chemie Halle 1—0
Hansa Rostock — Dynamo Berlfn 2—3
Lok. Leipzig — Magdeburg 3—3
Stahl Riesa — Wismut Aue 2—0
FRAKKLAND 1. DEILD:
Lyons — Nlce 4—1
Nancy — Bordeaux 7—3
Nimes — Lens 0—2
Troyes — Marseilles 0—0
Bastia — Metz 2—0
Sochaux — Valenciennes 2—1
Lille — Saint Etienne 1—0
Rennes — Nantes 2—1
Anger — Laval 1—1
Paris SG — Rheims 2—1
SVISS 1. DEILD:
Bellinzona — Neuchatel 2—2
St. Gallen — Chnois 0—3
Servette Geneva — Lausanne 3—0
Slon — Grasshoppers ZUrich 1—3
Young Boys Berae — Winterthur 5—2
Ziirich — Basle 1—0
UNGVERJALAND 1. DEILD:
UJpest Dozsa — Honved 4—1
Csepel — Ferencvaros 0—5
Vasas — Kaposvar 0—0
MTK — VM — Szombathely 1—3
RabaEto — Videoton 3—1
Dunaujvaros — Salgotarjan 4—0
Diosgyor — Dorog 1—0
Szeged — Zalaegerszeg 1—1
Bekescaba — Tatabanya 1—0
Ujpest Dozsa hefur forystu f delldinni með
14 stig, en næstu lið eru Ferencvaros með 13
stig og Vasas með 11 stfg.