Morgunblaðið - 21.09.1976, Page 32

Morgunblaðið - 21.09.1976, Page 32
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976 Börnin 1 Bjöllubæ effir INGIBJÖRGU JÓNSDÓTTUR — Er einhver þarna? spuröi hún hræðslulega. Ekkert svar. Lilla ætlaði að hlaupa aftur aó borðinu, sem skókassinn var á, en þá sá hún köngurló koma fram undan kommóðunni. Lilla varð svo skelfingu lostin, að hún þorði ekki að hreyfa sig. Hún gat raunar alls ekki hreyft sig. Hún var lömuð af ótta. En hún hélt áfram að hugsa. — Nú grætur mamma, þegar hún finn- ur mig ekki á morgun, hugsaði Lilla. — Hún veit áreiðanlega ekkert, hvað hefur komið fyrir mig. Henni dettur ekki í hug, að ég hafi stolist að heiman og köngurló- in étið mig, en ég trúði því heldur ekki, að köngurlær væru svona hræðilega stór- ar og ljótar. Mér var nær. Köngurlóin skreið í áttina til Lillu og ræskti sig. — Ætlarðu að svíkja mig? spurði köngurlóin. — Ha, hvað, hver, ég? stundi aumingja Lilla litla og fálmaði út í loftið. — Ég held, ég held, að mamma vilji ekki hafa köngurlær inni í stofunni hjá sér. Við búum nefnilega hérna hjá vísindamann- inum. — Auövitað vildi hún ekki sjá mig hérna, sagði Köngurlóin fyrirlitlega. — Það vilja engar konur sjá köngurlær í stofunni hjá sér og þó ætla ég að láta þig vita, að ég hef aldrei gert konu neitt illt. Hvað gæti ég svo sem gert af mér? Hvert ætti ég að fara? Ég hef alltaf átt heima hérna og ég veit ekkert, hvert ég ætti svo sem að fara, ef mér verður sagt upp horninu mínu. Ein löppin á Lillu kom við brúðuna hennar og Lillu jókst kjarkur á stund- inni. Þarna var Púnti og hann myndi ekki láta neina köngurló gera henni mein! — Vísindamaðurinn bauð okkur hing- að, sagði Lilla. — Hefur hann boðið þér? Nei, köngurlóin varð að viðurkenna, að hún væri þarna óboðin. — Þarna sérðu, sagði Lilla. — Þetta er okkar gólf, því að við erum gestir hér og okkur langar til að ganga á gólfinu. Hve lengi ætlar þú að ganga með þennan borða? Mw MORö-dlv KAFF/NO (() ______ 4 GRANI göslari NEI NEI Þetta er óskiljanlegt. Fyrst er Ég held að það væri ráðlegast ég látinn læra að tala, en sfðan að hætta þessum bananakúr, sagt að halda kjafti. læknir. — Stamar þú alltaf svona mikið, aumingja drengurinn, spurði konan sendisvein, sem var að koma með sendingu til hennar. — N-n-n-nei, b-ba-ba-bara, þ- þe-þegar é-ég t-t-ta-ta-tala. Sonurinn: Pabbi, ég get ekki reiknað dæmið mitt. Kennar- inn sagði mér að finna ein- hvern samnefnara. Faðirinn: Hamingjan hjálpi mér, eru þeir nú ekki búnir að finna hann ennþá, þeir voru að leita þegar ég var strákur. Rússi og Amerfkani voru að rffast um það, hvor þeirra hefði verið f kaldara loftslagi. — Ég hef vitað um vatn, sem fraus meðan verið var að hella þvf úr katlinum, sagði Rússinn. — Það er nú ekki mikið, svar- aði Amerfkumaðurinn, ég hef séð kindur stökkva fram af klettum og stöðvast f loftinu. ■— Það getur nú ekki verið, það gerir þyngdarlögmálið. Það var frosið Ifka. — Þetta var krónubrandari fyrir strfð. Sumt fólk heldur að það sé margra peninga virði, af þvf að það hefur þá. Sumt af þessari fyndni hefur þú ábyggilega séð áður, sumt ekki ennþá. Fangelsi óttans Framhaldsuga aftir Rosamary Gatenby Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 26 Sfðustu orðin voru sögð á angurværan hátt. — Þér farið þangað áður en langt um Ifður Dwight. Ilafið nú engar áhyggjur. Ég skal svo sann- arlega leyfa yður að fylgjast með framvindu mála. Þvf næst hringdi hann til Linn Emries og spurði, hvort hann mætti koma og skila bréfunum aftur. Yður hefði verið f lófa lagið að senda bréfin, sagði Linn Hún var klædd f gulan kjól, sem undirstrikaði enn betur en fyrr blá, stór augun og dökkt hár- ið. — Já. það er öldungis rétt. Hann braut regnfrakkann sam- an og lagðí hann á sætið á hvft- máluðum stól. — Segið mér, hvað þér hafið ákveðið að gera? Hafið þér komizt á snoðir um eitthvað annað? Hann hafði ekki sagt henni að ákveðnar grunsemdir hefðu vakn- að hjá honum við sfðustu bréfin. Hann skýrði málið nú fyrir henni og sagði henni að þau væru ekkí fölsuð. Fölsuð? Hún hrukkaði ennið. — Hélduð þér virkilega að bréfin væru fölsuð? — Það var minnsta kosti mögu- leiki. Én mér skjátlaðist. Hún gekk út að glugganum og leit niður f dimma götuna. — Ég veit ekki hvað ég á að halda um þennan leik sem þér leikið. Haldið þér með Everest eða haldið þér með mér’’ Hún sneri sér að honum og horfði ásakandi augnaráði á hann. — Hvað vakir eiginlega fyrir yður? Haldið þér með honum? Já, svo mikið get ég sagt yður, að ég held með honum. — Kinmitt? Reiðin gerði rödd hennar eilft- ið óstyrka. — Allt þetta skraf um Éverest. Þér hafið bara spurt mig f þaula. Þér segið mér ekki neitt. Þér vitið nóg til að gruna einhvern um fölsun, en auðvitað viljið þér ekki segja mér ástæðuna. — Ég veit ekkert. Ég er aðeíns að reyna að nota útilokunarað- ferðina. — Hún stóð grafkyrr um stund og bærði ekki á sér. — Jæja, sagði hún að lokum. — Hvað eigið þér með þvf að segja þetta svona? — Það gæti skýrt svo margt. Allt. Jamie er óskaplega rfkur og það væri sjálfsagt ómaksins vert að gera þetta. Og hann hefur sjálfur leitað út fyrir vernd lag- anna, ekki satt ? — Rétt. — Og nú þegar Qalter er dá- inn.... Það var eins og rynni upp fyrir henni Ijós og hún þagnaði. — Það er þannig f pottinn búið? Hún gekk nær honum til að geta eiginlega þvingað svar frá honum með sérstæðum bláum augunum. Hann fann geðshrær- ingu hennar eins og rafmagns- straum. — Ég veit ekki hvað þér eruð að reyna að segja, svaraði hann varfærnislega. — Það er samsæri til að ná tangarhaldi á peningunum hans Jamies. Þeir halda honum þarna til að hann skrifi og skrifí og mali stöðugt meiri peninga fyrir þá. Eruð þér ekki að gera yður eitt- hvað slfkt f hugarlund? Þegar hann svaraði ekki að bragði greip hún f jakkann hans og togaði f. — Erþaðekki? Vfst hafði þessi hugsun hvarfl- að að honum. Hún hafði sjálf reiknað þetta út. Hann hafðí ekk- ert sagt henni. Hann hefði ekki átt að minnast á fölsunina. — Ég er að gera mér getgátur og — EG er að gera mér getgátur og ÞÉR hafið grun. Hún hagræddi sér f gluggakist- unni. — Kemur mfn kenning heim og saman við yðar? — Já, sagði hann dapurlega. Hann vissi að Dwigth Percy myndi ekki verða hress ef hann vissi að hann viðurkenndi þetta. En nú var of seint að lemja hausnum við steininn. — Voru þau bæði undir eftir- liti allan tfmann sem þér voruð það um daginn? — Já, það var óhugsandi að tala undir f jögur augu víð þau. Alltaf var vörður f sjónmáli. Við náðum nú reyndar fjarska litlu sambandi við Helene og reyndum kannski ekkert til þess. Hún var alltaf á þönum f kringum Everest. Svo tókst mér að króa hana af fáeinar mfnútur og ég ætlaði að tala víð hana. En hún skalf og nötraði af óstyrk og svo alft f einu f miðri setningu nánast stakk hún bara af .... — Það er afskaplega ólfkt henni. Hún er mjög hispurslaus og skemmtileg. Ég er viss um hún hefði gripið þetta tækifæri tveim höndum til að hitta einhvern — um New York, vinnuna ykkar — eða bara eitthvað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.