Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 227. tbl. 63. árg. FÖSTUDAGUR 1. OKTOBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Stjóm Schmidt með 4% forskot Carter ■mmhh ■■ Ford Washington, 30. september. Reuter. AP. Ford forseti spáði þvf f dag að rannsókn á kosningasjóðun hans á þeim árum þegar hann var þingmaður mundi hreinsa hann af allri sök. Hann kvað nauðsynlegt að rannsókninni yrði fljótt lokið því að „dráttur á réttvísi væri afneitun á réttvísi“. Rannsókn- in mun verða í höndum sak- sók.iarans f Watergate-málinu, Charles Ruff. Ford kvað sig meiru skipta að mannorð sitt yrði hreinsað en hvaða áhrif rannsóknin hefði á kosningabaráttuna. Andstæð- ingur hans, Jimmy Carter, hef- ur krafizt þess að birtar verði allar staðreyndir um kosninga- sjóði forsetans og golfferðir sem stórfyrirtæki borguðu. Forsetinn sagði aó hann hefði Framhald á bls. 22 Bonn, 30. september, AP. Reuter. STJÓRN Helmut Schmidts kanzlara hefur 4% meira fylgi en Kristilegi demókrataflokkurinn samkvæmt skoðanakönnun sem tfmaritið Quick birti f dag, þrem- ur dögum fyrir kosningarnar. Fylgi kristilegra demókrata hefur aukizt um 0.3% á einni viku og er 47.7% miðað við 51.5% fylgi samsteypustjórnar sósfal- Schmidt. Kohl. Tugir íra taka Rússa í landhelgi Dublin, 30. september. Reuter. AP. tRAR sendu f dag 50 vopnaða hermenn og sjóliða um borð f sovézkan togara, sem þeir saka um ólöglegar veiðar, til aðstoð- ar 24 sjóliðum sem þegar höfðu verið settir um borð f togarann og f kvöld var togar- inn á leið til hafnar. írska varðskipið Grainne skaut nokkrum viðvörunar- skotum í nótt að togaranum er það stóð hann að meintum ólöglegum veiðum innan 12 mflna landhelginnar undan suðurströnd irlands. Eftir nokkurn eltingarleik varpaði togarinn akkerum rúmlega 20 km frá ströndinni. Irska herskipið Banba kom á vettvang og tveir hópar vopn- aðra manna voru sendir um borð. Skipstjórinn neitaði að sigla til hafnar í Cork. Þrjátíu frskir hermenn og 20 sjóliðar til viðbótar voru síðan sendir um borð f togarann sem Framhald á bls. 31 demókrata og frjálsra demókrata. Fylgi sósfaldemókrata er 43.3% og frjálsra demókrata 8.2% sam- kvæmt könnuninni. Skoðanakönnunin var gerð dag- inn eftir ósigur sósfaldemókrata f Svfþjóð. Helmut Kohl, leiðtogi kristilegra demókrata, hefur skorað á Vestur-Þjóðverja að fara að dæmi sænskra kjósenda og sagt að ekki væri að marka skoðanakannanir þar sem þær væru frá þvf fyrir sænsku kosn- ingarnar. Talsmaður sósíaldemókrata sagði f dag að Franz Josef Strauss, einn helzti leiðtogi kristilegra demókrata, hefði logið þegar hann sagði að hann hefði ekki haft á brott með sér skjöl um Lockheedmálið þegar hann lét af störfum landvarnaráðherra 1967. Stjórnin hefur skipað sérstaka nefnd sem á að rannsaka gögn sem bandarfsk þingnefnd hefur safnað saman um málið. Schmidt kanzlari höfðaði mál f dag til að koma f veg fyrir að Strauss endurtæki gagnásökun þess efnis að kanzlarinn hefði lof- að Hollendingum 100 milljónum marka þegar hann var landvarna- ráðherra 1971 ef þeir keyptu Cobra-flugvélar sem bandariska fyrirtækið Northrop smíðar. í Hessen ákváðu kristilegir demókratar f dag að leggja fram tillögu um vantraust á Albert Osswald, forsætisráðherra sósíal- demókrata og forseta efri deildar sambandsþingsins, sem er sagður hafa til athugunar að segja af sér eftir kosningarnar þar sem hann Framhald á bls. 22 Símamynd AP DENIS HEALEY fjármálaráöherra undirbýr ræðu sína á þingi brezka Verkamannaflokksins i Black- pool. Healey ræðst til atlögu gegn vinstra arminum Blackpool, 30. september. Reuter. AP. DENIS Healey fjármálaráðherra skoraði f dag á fulltrúa á þingi brezka Verkamannaflokksins f Blackpool að spilla ekki fyrir tilraun- um sfnum til að semja um lán við Alþjóðabankann til að bjarga pundinu og vfsaði á bug kröfum vinstrisinna um innflutningseftirlit. Þingið samþykkti síðan einróma ályktun þar sem lýst var yfir stuðn- ingi við lántökuna. Healey sagði að vinstrimenn í Verkamannaflokknum yrðu að Skæraliðar í úlfakreppu Aley, Líbanon, 30. september. AP. Reuter. LEIÐTOGAR Palestfnumanna sátu á fundi f dag I bænum Aley f Lfbanon til að ákveða hvort þeir ættu að halda áfram að berjast eða setjast að samningaborði. Meðan þeir rökræddu sóttu skrið- drekar Sýrlendinga fram og réð- ust á framvarðarstöðvar skæru- liða f 7.5 km f jarlægð. Skæruliðarnir ræddu þá kröfu Sýrlendinga að þeir hörfuðu frá stöðvum sínum á mikilvægu svæði rumlega 20 km norður af Beirút meðfram veginum til Dam- askus til flóttamannabúða Framhald á bis. 22 slá af kröfum sínum og hagræða sósfalistakenningum sínum til þess að bjarga þjóðinni. Jafn- framt sagði James Callaghan for- sætisráðherra i útvarpsviðtali að ef ekki tækist að leysa efnahags- vanda Breta gæti afleiðingin orð- ið einræðisstjórn hægrimanna eða vinstrisinna. Hann sagði að þjóðin hefði lifað um efni fram og komið væri að skuldadögunum. Á gjaldeyrismörkuðum voru miklar sveiflur i dag á gengi pundsins sem hækkaði um tíma um þrjú cent gagnvart dollar mið- að við lokun í gær en var skráð hálfu centi lægra við lokun en við opnun eða á 1.6615 doliara. Ástæðan til þess að pundið styrktist um tíma var talin orð- rómur, sem síðar var borinn til baka, um að Englandsbanki ætl- aði að hækka lánsvexti. Astæðan til þess að pundið lækkaði aftur var talin svartsýni vegna ræðu- halda vinstrimanna á þinginu i Blackpool. „Ég kem hingað frá vígstöðvun- um,“ sagði Healey þegar hann kom til þingsins. Hann varaði fulltrúana við þvi að ályktanir þeirra hefðu alvarleg áhrif og að vanhugsaðar yfirlýsingar gætu kostað Breta milljónir punda í erlendum gjaldeyri. Þegar Healey kvaðst ætla að Framhald á bls. 22 Túlkun Smiths fær stuðning New York, 30. september. Reuter. HENRY Kissinger utanríkisráð- herra sagði I ræðu f Allsherjar- þinginu f dag að um það hefði verið samið að mynduð yrði rfkis- stjórn f Rhódesfu þar sem blökku- menn væru f meirihluta og for- sætisráðherrann blökkumaður og virtist þar með styðja túlkun lan Smiths forsætisráðherra á sam- komulaginu um Rhódesfu. Smith sagði f ræðu sinni um samkomulagið að þriðja tillaga Kissingers af sex um lausn f Rhó- desfu kvæði á um þetta og auk þess að hvítir menn gegndu emb- ættum landvarna- og dómsmála- Framhald ð bls. 22 Kristnir hermenn f bandarfskum brynvagni af gerðinni M-113 á landamærum tsraels. Liðsafli NATO notar þessa gerð til liðsflutninga og Israelsmenn einnig. Fréttir herma að tsraelsmenn hafi sent kristn- um mönnum f Lfbanon hergögn. Sfmamvnd AP F ord kveðst viss um að verða hreinsaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.