Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR l.OKTÓBER 1976 Menningarstofnun Banda- ríkjanna að Neshaga 1 6 býð- ur leikum sem lærðum upp á kynningu á einhverju besta og fjölbreyttasta samsafni grafískra mynda, eftir ameríska listamenn, er ég minnist að hafi skolað á fjör- ur okkar. Á sama stað var ágæt sýning fyrir ári síðan, en þessi tekur henni tví- mælalaust fram. Hér er um að ræða fjölbreytni i grafisk- um aðferðum og ólíkri af- stöðu til hinna margvisleg- ustu tæknibragða, sem gerir sýninguna einstaklega lær- dómsríka fyrir alla þá er vilja velta fyrir sér möguleikum þessarar hrífandi listgreinar. Þá eru hér á ferðinni sérstak- lega hrein og vönduð vinnu- brögð við þrykkingu ein- stakra mynda. Þessi sýning færir okkur heim sanninn um það, hve margt íslenzkir grafíklista- menn eiga eftir ólært, og er ei heldur hægt að gera kröfur til þess, að hér komi veruleg- ur fjörkippur f, fyrr en við höfum eignast okkar full- komna verkstæði og hingað ráðast menn með sérþekk- ingu í hinum ýmsu aðferð- um, — þ.e. fagmenn til að- stoðar og leiðbeiningar lista- mönnum. — Miðað við takmörkuð húsakynni er hér um gott sýnishorn á amerískri grafík að ræða, þótt vitanlega vanti margt og slfkar sýningar hafa mikla þýðingu fyrir menning- arlíf okkar þótt ekki séu þær stórar f sniðum. — Sýning þessi er farand- sýning og á í rauninni að LEONARD BASKIN (1922) „Hercule Seghers', æting 1968 Claes Oldenburg, Drums, London 1960— litograffa. — Svo ég bendi á nokkrar myndir miklar andstæður má nefna hinar hárfínu sáld- þrykkmyndir Anuszkiewicz og Crutcfield, hinar fínlegu og margslungnu ætimyndir þeirra Peter Milton (Free Fall), Noru Hersley (Ballett- dansmær) og Richard Zie- mann. Tjáningarríka og kröftuga mynd hins fræga Leonard Baskin þar sem eftir BRAGA ÁSGEIRSSON hann útfærir andlitsdrætti Hercule Seghers, hins mikla frumkvöðuls málmætingar- innar og samtíðarmanns Rembrandts, er R. áleit mest- an tæknimann þeirrra allra hollenskra á þvi sviði. Við hlið þá mynd hangir hin ein- stæða mynd Dennis Corrigan „Woman With Sentimental Portrait", sem er útfærð i tækni er nefnist „Cronaflex print", hvað sem það nú er. — Annars er upptalning lítils virði miðað við eigin heimsókn á sýning- una og hvet ég flesta grafik- listarmenn og alla þá sem áhuga hafa á listgreininni að láta þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara. — í sambandi við slikar sýningar í framtiðinni væri mjög til athugunar hvort ekki væri hægt að senda þær í nokkra daga út á land t.d. til ísafjarðar, Akureyrar, Egils- staða, Neskaupstaðar m.m. Þakka ber framtakið með virktum og vonast eftir fram- haldi á því og jafnvel minni sýningum á myndlistarverk- um amerískra nútímalistar- manna, en slíkar sýningar eru stöðugt á ferð. JAQUES MICHAEL (1945) „Vermont Cowboy ", ætimynd 1976. DENNIS CORRIGAN (1944), „Woman With Sentimental Portrait", Cronaflex print 1974. vera komin til Helsingfors er þetta birtist, en fyrir sérstaka velvild ráðamanna upplýs- ingaþjónustunnar fékk undir- ritaður því framgengt, með vísun til þess, að listaskólar hefja starfsemi sína nú um helgina, — að henni yrði framlengt um nokkra daga. Vill hann því vekja sérstaka athygli á sýningunni og um leið, að mánudagur verður síðasti sýningardagur. Þetta er ekki sölusýning en hún er sett á laggirnar af sérstöku gallerii í Washing- ton (Jane Haslem Gallery 2121 P.Street N.W. Wash. 200 37 ), — og geta þeir er vilja festa sér mynd snúið sér þangað en verð (í dollurum) og eintakafjöldi hverrar myndar er á sérstökum miða neðantil á hverri mynd. Þetta er þó að mér skilst framar öðru kynningarsýning, sýnis- horn á ólíkum viðhorfum og vinnubrögðum til grafískra aðferða í Ameriku. En er ekki kominn tími til að íslendingar geti viðað að sér gildri grafik hvaðanæva úr heiminum og hér verði sett á stofn gallerí í því skyni, — eða jafnvel að Kjarvalsstaðir kynni slíkt á árvissri sýningu? — Vafalítið sakna framúr- stefnulistamenn hér margs, en engum getur dulist gæði sýningarinnar á tæknilega sviðinujog það þykir undirrit- uðum megiinmáli skipta. . . — Það er ekki heldur á hverjum degi, sem okkur gefst að líta myndir manna líkt og Gabor Pederdi, Mark Tobey, Harold Altman, Josef og Anni Albers, Leonard Baskin, Claes Old- enburg, Richard Anuszkiewicz eða indíánans William Crutcfield m.m. Myndllst Margbreytileg viðhorf (Amerískir grafíklistamenn)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.