Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÖBER 1976
17
Ljósmyndir Sigurgeir I Eyjum.
Leggja þökur
á Herjólfsdal
VESTMANNEYINGAR hafa sfðustu helgar unnið við það f sjálf-
boðaliðsvinnu að leggja þökur á þúsundir fermetra I Herjólfsdal,
en mjög illa hefur gengið að fá grasvöxt þar eftir gos með sáningu.
Þekja þarf mörg þúsund fermetra og hefur verkið gengið bærllega,
þvf fólk mætti vel og þá stóð ekki á afköstunum.
Mikil vinna hefur farið f það hjá fólki að græða upp gróður-
skemmdir við hús sfn eftir gos og má segja að flestar frfstundir
fólks hafi farið f það að dytta að einu og öðru sem úrskeiðis fór.
Eyjamenn miða að þvf að geta haldið þjóðhátfð sem fyrst f
Herjólfsdal, ef vel tekst til næsta sumar eða ári seinna, en mikið
starf liggur fyrir næstu árin f Eyjum til þess að lagfæra þær
gróðurskemmdir sem urðu f gosinu.
Fjöldi fólks á öllum aldri hefur lagt hönd á plóginn við upp-
græðslu Herjólfsdals, þvf eins og fyrr segir, Herjólfsdalur er
Eyjafólki sérstaklega kær og svo þykir þjóðhátfðin á Breiðabakka
aðeins svipur hjá sjón miðað við f gamla góða Her jólfsdal. ,
Ályktun kvennadeildar
Verkalýdsfélags Akra-
ness um mjólkursölumál
FUNDUR f kvennadeild Verka-
lýðsfélags Akraness hefur sam-
þykkt ályktun um mjólkursölu-
málin og lýsir yfir andstöðu sinni
við breytingar á lögunum um
mjólkursölumál sem samþykkt
voru á Alþingi á sfðast liðnu vori.
Fundur þeirra telur að þjónusta
Mjólkursamsölunnar við neyt-
endur hafi verið með ágætum og
það sé alls ekki vfst að matvöru-
verzlanir á Akranesi vilji ábyrgj-
ast alla mjólkursölu þar nema
með auknum tilkostnaði. Félagið
telur að Mjólkursamsalan hafi
miklum skyldum að gegna við
þær konur sem hafa unnið hjá
fyrirtækinu um langt árabil:
1) Með því að tryggja þeim
konum, sem þess óska, atvinnu.
2) Að greiða þeim konum líf-
eyri sem orðnar eru 60 ára eða
eldri og hafa unnið hjá fyrirtæk-
inu um árabil. —
3) Að ábyrgjast sjúkra- og
orlofssjóði A.S.B. til þess að
félagskonur geti notið áunninna
réttinda.
Þá lýsir félagið samstöðu sinni
með baráttu A.S.B.
Fer um land og
heldur skemmt-
anir fyrir börn
Merkileg tilraun
Höskuldar Skagfjörð
„ÞESSI tilraun mfn er algerlega
eigin hugmynd, en ég hafði verið
að brjóta þetta með mér um tfma
og ákvað svo að framkvæma hana.
Þetta er eiginlega sprottið út frá
þvf að yfirleitt þegar leikflokkar
hafa verið að fara út á land, þá
hefur ekki verið séð fyrir efni
fyrir börn. Oft hafa þau ekki
heldur fengið að fara á þær sýn-
ingar sem boðið hefur verið upp
á, og þess vegna langaði mig til að
gera þetta og gefa krökkunum
sjálfum um leið tækifæri á að
troða upp og tjá sig“. Þannig fór-
ust orð Höskuldi Skagf jörð leikar
og leikstjóra, þegar hann leit við
á ritstjórn Mbl.
Höskuldur hefur verið með
barnaskemmtanir I sumar á 10
stöðum á svæðinu Vopnafjörður
— Hofsós, að báðum stöðum með-
töldum. Þá kom hann einnig við i
Grímsey, og sóttu 86% eyjar-
skeggja samkomu Höskuldar þar.
„Þetta var í upphafi sjálfsögðu
bara tilraun, en ég þykist hafa
fengið nógu mikla og góða
reynslu á þetta til að fara vlðar
með þetta fyrirbæri," sagði
Höskuldur. Næstu skemmtanir
verða nk. laugardag á Akranesi
og á Borgarnesi á sunnudag. (3.
okt.) Helgina þar á eftir verður
(Ljósm. RAX)
Höskuldur Skagf jörð
og hundurinn Bangsi
svo haldið til Akureyrar og Dal-
víkur, og síðan mun leið liggja til
Vestfjarðanna.
Skemmtanirnar eru þannig úr
garði gerðar að sýndar eru a.m.k.
2 litkvikmyndir. Eru það þá yfir-
leitt myndir sem höfða til barna á
einn eða annan hátt, en Höskuld-
ur hefur úr miklu safni að velja
og því eru sjaldan sýndar sömu
myndir á einni helgi. Þá eru lesin
ljóð eftir nokkur höfuðskálda Is-
lendinga, svo sem Tómas, Davlð,
Kristján frá Djúpalæk, o.s.frv.
Höskuldur segir einnig sögu ein-
hverja, og einnig er gjarna litið
leikrit. Hefur t.d. Bakkabræður
verið vinsælasta leikritið hjá
honum á skemmtunum hans. „Þá
hef ég einnnig getraunaþátt, þar
sem börnin koma upp á sviðið og
taka þátt í spurningakeppni, og
hefur þetta atriði alltaf hlotið
góðar viðtökur. Siðast, en ekki
sist, þá segi ég söguna af honum
Bangsa minum, en það er hundur
minn sagði Höskuldur og
klappaði hvutta þeim er hann
hafði meðferðis. Bangsi þessi er
14 mánaða og hefur hann farið
víða um lönd með húsbónda sin-
um, og þykir hin mesta sæmdar-
skepna.
„Já þessar skemmtanir hafa
tekist vonum framar og þess-
vegna ætla ég að hafa á þeim
framhald, þvi það er mjög gaman
að skemmta börnum. Þau eru
sannir þátttakendur i skemmtun-
inni“ sagði Höskuldur að lokum.
STUÐMENIsí
EINSTÖK UPPLIFUN
Kynnist Frímanni ílugkappa,
íjallkonunni Ólínu, Hveitibirni og Svarta-Pétri.
Fariö í ævintýraferö í Tívolí meö Stuömönnum.
Ný sending
af hljómplötum og kassettum.
Stuðmannamerkin í öllum hljómplötuverslunum.
Hljómplötuútgáfan Steinar h.f. Dreifing um Kamabæ S-2 81 55.