Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR l.OKTÖBER 1976 Sinfónfuhljðmsveitin ð æfingu Sinfóníuhljómsveit íslands í tónleikaferð til Norðurlands A LAUGARDAG fer Sinfónfu- hljómsveit tslands I tónleikaferð til Raufarhafnar og Húsavfkur og er ferðin farin f samvinnu við menningarsjóð félagsheimilanna. Verður fiogið tii Raufarhafnar og haldnir tónleikar þar kl. 13.30 og flogið til Húsavfkur og þar verða tónleikar kl. 18. Hljómsveitar- stjóri er Páll P. Pálsson og ein- leikarar Sigurður f. Snorrason klarinettuleikari og Bjarni Guð- mundsson túbuleikari. Það nýmæli verður tekið upp I þessari ferð að nemendum tónlist- arskólanna á Raufarhöfn og Húsavfk er boðið á tónleikana eft- ir hlé og verkefni síðari hluta tónleikanna valin með tilliti til þess og i samráði við skólana. Þeir ásamt hreppsnefnd Raufarhafn- ar, bæjarstjórn Húsavikur og fleiri sjá um allan undirbúning og móttökur. Á efnisskránni verða m.a. verk eftir Bizet, Carmen- svfta, Tsjaikovsky, Blómavalsinn og Kleinsinger, Tobbi Túba og er þar þulur Helga Stephensen. Ný vetraráætlun SVR gengur í gildi í dag 1 DAG tekur vetraráætlun SVR gildi. Helzta breytingin frá sum- arðætluninni er fólgin f breyttri og aukinni þjónustu við nýju hverfin f Breiðholti (Selin). Hér er um að ræða tvær nýjar leiðir, nr. 14 Hringleið-Breiðholt, og nr.15 lllemmur-Flúðasel. Báðum þessum leiðum er ætlað að tengja hverfin f Breiðholti, hinni fyrri (nr. 14) innbyrðis með akstri milii hverfanna þriggja ein- göngu, en hinni sfðari með akstri milli Selja og Hlemms. Leið 14 gengur þó aðeins á virkum dögum fram til kl. 19, en á kvöldin og um helgar er ieið 15 lengd f staðinn til að mæta þörfum hverfisins í heild. Önnur atriði, sem vert er að athuga f sambandi við gildistöku vetraráætlunarinnar, eru: Akstur á laugardögum og helgidögum verður óbreyttur frá sumaráætl- un, þ.e. á 30 mín. fresti á öllum leiðum nr. 1—12. Akstur á leið 7 mánud.-föstud. fram til kl. 19 er færður f sama horf og var fyrir sumaráætlun 1976, þ.e. brottför frá Lækjartorgi er flýtt um 4 mín. Ætti þar með að vera tryggt, að farþegar með leið 7 geti náð leið 11 á Bústaðavegi áleiðis í Breið- holt (brottfarartími frá Stjörnu- gróf óbreyttur). Leiðir 8 og 9 verða eins og áður var, þ.e. ekið verður um Háaleitis- braut og Miklubraut. Akstur á kvöldin og um helgar verður þó eins og var í sumaráætlun. Á leið 10 verður aftur ekið um Hraunbæ-Rofabæ, nema á mánud.-föstud. í ferðunum frá Hlemmi kl. 07.25, 07.40, 15.40, 16.40 og 17.40. Þá er ekið af Rofa- bæ um Lónsbraut og Bæjarháls á leið að Selási. Á leið 13 verða fyrst um sinn felldar niður þær ferðir sem lftt hafa verið notaðar. Ekið verður því aðeins frá Suðurhólum kl. 07.30 og 8.30 að morgni, og úr Lækjargötu kl. 17.10 og 18.10 og 19.10. Aðrar leiðir eru óbreyttar. Enginn afsláttur af af- notagjöldum sjónvarpsins? FORMLEGA hefur ekki verið tekin afstaða tii þess, hvort yfir- stjórn Rikisútvarpsins þiggur það boð starfsmanna sjónvarpsins að vinna kauplaust næstu 6 fimmtu- daga til þess að vinna upp það, sem ð vantar að fólkið hafi fyllt vinnutfma sinn vegna hins ólög- lega verkfalls, sem það fór i i fyrri viku. Þegar starfsfólkið bauð þetta, benti það á, að þetta mál snerti annað — þær kröfur, sem hafðar hefðu verið uppi um að dregið skyldi af afnotagjöldunum, sem næmi 6 sjónvarpsdögum. Bentu starfsmennirnir á að um leið og sjónvarpið þæði þessa 6 fimmtu- daga væri það vandamál úr sög- unni, en mikil vinna mun vera að reikna út og veita hverjum og einum sjónvarpsnotanda afslátt, er nemur sex dögum. Afnotagjald sjónvarpsins er nú á ári miðað við janúar til desem- ber 12 þúsund krónur. Afnota- gjaldið var nokkuð hækkað um mitt árið, en 12 þúsund krónurnar eru jafnaðarverð allt árið, sem þýðir að þeir dagar, sem sjón- varpsrekstur féll niður, eru dýr- ari en meðaldagar. Morgunblaðinu er kunnugt um það að ýmsir yfirmenn Rfkisút- varpsins hafa þá skoðun, að ekki eigi að veita heimild til frádráttar á afnotagjöldum, þrátt fyrir það að útsending hafi fallið niður f 6 daga. Þessi skoðun er byggð á þvf, að Ríkisútvarpið hafi ekki skuld- bundið sig til þess fyrirfram, að það skili dagskránni hvernig sem á stendur eða á hverju sem veltur. Þrátt fyrir þetta skili stofnunin dagskránni 98% og sé það allgott. Ennfremur sé það ljóst að hluti landsbyggðarinnar verður ávallt einhvern tíma án sjónvarps, m.a. vegna þess að tæki og stöðvar bila, rafmagn bilar o.s.frv. Telur Rfkisútvarpið sig ekki ábyrgt í þeim tilfellum fremur en þessu, sem hér hefur verið gert að um- ræðuefni. Því taki viðskiptavinur- inn á sig þá áhættu að dagskráin komist ekki til skila. Afnotagjöld- in eru miðuð við nokkurn vegin meðaiskil á dagskránni og verða þau að kallast það, þótt 1 til 2% detti út. Þá má geta þess að enn mun ekki hafa verið skipað f nefndina, sem menntamálaráðherra ætlar að beita sér fyrir að komið verði á fót til þess að kanna stöðu og starfskjör sjónvarpsstarfsmanna innan kerfis opinjierra starfs- manna miðað við stbðu starfsfé- laga fólksins á öðrum Norður- löndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.