Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1976 18 Berklavarnardag- urinn á sunnudag SAMBAND íslenzkra berkla- og brjóstholssjúklinga heldur sinn árlega Berklavarnardag n.k. sunnudag 3. október. Dagur þessi er ekki eingöngu merkja- og blað- söludagur sambandsins og i fréttatilkynningu frá S.f.B.S. seg- ir að dagurinn verði einnig notað- ur til að minna þjóðina á nauðsyn þess að halda vöku sinni f barátt- unni gegn verklaveikinni og fyrir bættum kjörum allra þeirra, sem um sárt eiga að binda vegna veik- inda og slysa. Blað sambandsins, Reykjalund- ur, kemur að þessu sinni út í 30. sinn og meðal efnis i blaðinu að þessu sinni er grein um astma eftir Davlð S. Gislason lækni, Gottskálk Björnsson læknir skrif- ar um gamlar og nýjar aðferðir við rannsóknir á lungum og birt er smásagan Lif og list eftir Gíla J. Ástþórsson, blaðamann. Á endurhæfingarstofnun sam- bandsins i Reykjalundi njóta að staðaldri 150 sjúklingar læknis- meðferðar og þjálfunar eftir veik- Sýnikennsla hjá skógræktarmönnum í Hafnarfirði SKÓGRÆKTARFÉLAG Hafnar- fjarðar efnir til sýnikennslu i hauststörfum í græðireit félags- ins við Hvaleyrarvatn laugardag- inn 2. október n.k. milli kl. 13.30 — 16.00, mánudag og þriðjudag milii kl. 17.00 og 19.00 bæði kvöld- in. Jón Magnússon leiðbeinir og er þetta framhald af sýnikennslu félagsíns frá því í vor en öllum er heimil þátttaka. I fréttatilkynn- ingu frá félaginu er greint frá þvi að jafnframt verði unnið dálitið að sjálfboðastarfi i græðireitinum og minnt er á að nú er rétti tíminn til að safna birkifræi og greiða skuldina við landið. indi eða slys. Sjúklingarnir eru alls staðar að af landinu og kom- ast færri en óska og þurfa. Hlutavelta hjá Kvenna- deild SVFÍ ÁRLEG hlutavelta Kvennadeild- ar Slysavarnafélags Islands í Reykjavík verður haldin næst- komandi sunnudag 3. október i Iðnaðarmannahúsinu við Hall- veigarstig og hefst kl. 2 e.h. Rúm 40 ár eru nú liðin síðan Kvenna- deildin hélt sína fyrstu hlutaveltu og hafa þær jafnan notið vin- sælda hjá bæjarbúum. Margir vel- unnarar deildarinnar hafa sýnt velvilja og áhuga með þvf að gefa félagskonum alla þá muni, sem á hlutaveltunni eru en þar kennir margra grasa, t.d. eru þarna á boðstólum stólar, rúmteppi, flug- ferð, eldhúsklukkur og margir fleiri góðir og veglegir hlutir. Fýlupokarnir Fyrsta bók Valdís- ar Oskarsdóttur FYLUPOKARNIR nefnist ný barnabók eftir Valdísi Óskars- dóttur og er það fyrsta bók hennar. Höfundur hefur teiknað margar myndir með sögunni, sem prýða bókina. Valdis hefur áður birt sögur i blöðum og tfmaritum. Sagan um Fýlupokana var lesin í útvarpinu á sl. sumri. Höfundur gefur sjálfur út bók- ina, sem var fjölrituð i Letri sf. Fylgst með radarmælingum lögreglunnar. 10 bflar tekn- ir á hálftíma LÖGREGLAN beitir ýmsum aó- ferðum til að halda niðri öku- hraða og er einn mikilvægasti þátturinn radarmælingar, sem framkvæmdar eru nær dag hvern I höfuðborginni. Þeir sem reynast vera yfir leyfileg- um mörkum eru sektaðir um 3—10 þúsund krónur, allt eftir því hve alvarlegt brotið er, og þessar sektir munu á næstunni stórhækka, eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu. Sekt- argreiðslurnar koma við pyngju fólks, og það gætir sín þá betur framvegis og þá er tilganginum náð. Morgunblaðsmenn fengu að vera viðstaddir hraðamælingu á Háaleitisbraut í Reykjavík á miðvikudaginn. Staldrað var við i hálftima hjá lögregluþjón- inum Þorsteini Ragnarssyni, Sigurði Sigurðssyni og Karli Gislasyni á bíl 8. Þeir félagar voru nýbúnir að setja upp tæk- in þegar blaðamenn bar að og var lítið að gera. Á Háaleitis- brautinni er hámarkshraði 45 km og var meginþorri bifreiða á þeim hraða. Einn og einn bill fór yfir þau mörk og sumir verulega og voru þeir bilar hik- laust teknir, sem radarinn mældi yfir 60 km hraða, en ef hann sýndi minna voru bílar ekki stöðvaðir, þvf gera verður ráð fyrir mögulegum skekkj- um. Þann hálftíma sem Morgun- blaðsmenn voru á staðnum voru 10 bilar stöðvaðir. Þar af reyndust 6 bflar vera á bilinu 62—70 km hraða en 4 bilar mældust á 70—74 km hraða, sem er verulega aðfinnsluvert, þar sem hámarkshraðinn er 45 km og gangbraut I nágrenninu. 7 bilanna voru úr Reykjavfk, tveir úr Kópavogi og einn frá Isafirði, en hann var einmitt einn þeirra, sem fór yfir 70 km mörkin. Þorsteinn Ragnarsson, sem hefur verið við slfkar mælingar af og til í 9 ár, sagði að umferð- arhraðinn núna virtist vera svipaður og undanfarin ár. Þor- steinn sagði það athyglisvert, að svo virtist sem hraðinn væri meiri þegar slæmar aðstæður væru, t.d. rigning og slæmt skyggni. Þorsteinn sagði að lok- um, að nauðsynlegt væri að fara að athuga með kaup á nýj- um hraðamælingatækjum, rad- ararnir væru orðnir 12 ára gamlir. Umferðin fyrstu 8 mánuði ársins: 156 hlutu alvarleg meiðsl — 157 í fyrra — 12 létust FRÁ ársbyrjun til ágústloka ( ár urðu samtals 254 umferðarslys þar sem um var að ræða meiðsl eða dauða. 1 þeim slösuðust 327 manns og 12 iétust. Á sama tima- biii árið 1975 urðu 330 slys með meiðsium eða dauða þar sem 317 manns slösuðust og 13 létust. Kemur þetta fram í bráða- birgðaskráningu Umferðarráðs um umferðarslys 1976. Þar kemur einnig fram að alvarlegum umferðarslysum hefur ekki fækkað miðað við sama tfma í fyrra. Árið 1975 hlutu 157 meiri háttar meiðsii fyrstu 8 mánuðina og 156 á sama tíma I ár. Hins vegar hefur þeim fækkað veru- lega, sem hlutu minni háttar meiðsli eða úr 295 árið 1975 í 171 i ár. 1 þéttbýli urðu samtals 193 umferðarslys og I dreifbýli 61. Samsvarandi tölur árið 1975 eru 261 slys á móti 69. Flest slysanna urðu við árekstur bifreiða, sam- tals 110, í 67 tilfellum var ekið á gangandi og í 67 tilfellum ekið út af vegi. 268 ökumenn og farþegar slösuðust í umferðarslysum til ágústloka í ár, þar af 105 öku- menn bifreiða, aðrir ökumenn 43 og farþegar 120. Samtals gerir þetta 79% allra slasaðra. Fótgang- andi sem slösuðust í umferðinni urðu 71. 1 fréttatilkynningu Umferðar- ráðs er vakin á því athygli að þrátt fyrir verulega fækkun þeirra, sem slasazt hafa í umferðarslysum á þessu ári miðað við siðasta ár hefur ekki fækkað þeim slysum sem hafa haft f för með sér alvarleg meiðsli. Vert er að hafa þetta i huga einmitt nú, þegar framund- an er samdegið með breytilegum akstursskilyrðum og aukinni slysahættu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.