Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÖBER 1976 — Túlkun Framhald af bls. 1. ráðherra. Forsetar Zambiu, Tanz- aníu, Botzwana, Angóla og Mosambique hafa slðan neitað að fallast á þessa tillögu þar sem það jafngildi viðurkenningu á ný- lendu- og kynþáttastjórn. Þeir vilja ekki að hvltir menn fái ein mikilvægustu embætti í stjórn- inni. Jafnframt ræddi Kissinger við Ivor Richard, fastafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum, sem Anthony Crosland hefur falið að vera I forsæti hvftra manna og svartra um Rhódesíu. Fundar- staðurinn hefur ekki verið ákveð- inn en Bandarfkjamenn hafa stungið upp á Zambfu. I Salisbury var sagt að Ian Smith yrði i forsæti nefndar Rhódesíustjórnar en ekki mætti lita svo á að um algera stjórnlaga- ráðstefnu yrði að ræða. Þetta er talin fyrsta tilraun Rhódesíu- stjórnar til að draga f land. Um Ieið var haft eftir góðum heimildum f Salisbury að Smith kynni að hitta brezka ráðherrann Ted Rowlands i Suður-Afriku í næstu viku. Bretar hafa ekki vilj- að senda Rowland til Salisbury en hann er nú í Botswana vegna 10 ára sjálfstæðisafmælis landsins. Tanzaniustjórn gagnrýndi I dag tillögur Breta um ráðstefnuna. Hún sagði að þeir reyndu að leika hlutverk sem samrýmdist ekki hlutverki þeirra sem nýlendu- veldis og létu Smith eftir aðal- hlutverkið. Fulltrúi Abel Muzorewa biskups sagði að hann yrði leið- togi stuðningsmanna sinna úr Afrfska þjóðarráðinu (ANC) á ráðstefnunni. Biskupinn hefur verið í útlegð f rúmt ár og er væntanlegur til Rhódesfu eftir hálfan mánuð. I ræðu sinni á Allsherjarþing- inu sagði Kissinger að þjóðir Rhó- desfu og grannríkjanna stæðu andspænis mikilli prófraun sem skæri úr um hvort þær gætu leyst Rhódesíumálið f sameiningu. Hann sagði að Bandarikin hefðu gert alvarlega tilraun til að leysa málið og myndu halda því áfram. Sumar þjóðir kynnu að sjá sér hag f því að blása að glæðum kynþáttahaturs en þær bæru ekki hag þjóða Afrfku fyrir brjósti. — Sex nýir Framhald af bls. 2 sr. Björn Björnsson, sr. Pétur Ingjaldsson, sr. Sigurður Kristjánsson og sr. Stefán Snævarr. Einn hinna nývfgðu presta, Gunnþór Ingason, mun predika og verður vígslan eins og fyrr segir f Dómkirkjunni og hefst kl. 11 f.h. — Ford kveðst.. Framhald af bls. 1. farið í þessar golfferðir fyrir mörgum árum í boði fyrirtækj- anna og að þær hefðu á engan hátt verið ósamrýmanlegar siðareglum þingmanna. Hann kvaðst óefað hafa rætt stjórn- mál við kaupsýslumenn í þess- um ferðum en hann sæi ekkert athugavert við það. Hann væri mikill golfáhugamaður og þetta hefðu veriðgamlir vinir hans. Ford hefur fyrirskípað rann- sókn f málinu og leit að öllum persónulegum skjölum svo að ganga megi úr skugga um hve oft hann fór frá Washington í boði bandarískra fyrirtækja áður en hann varð forseti. Jimmy Carter sagði þegar Ford hafði fyrirskipað rann- sóknina að hann teldi ekki að forsetinn hefði gerzt brotlegur við iög, en aðalatriðið væri alger hreinskilni hvenær sem eitthvaó benti til þess að hags- munir rækjust á. Sjálfur varð Carter að svara nærgöngulum spurningum um ár sin í rikisstjóraembætti í Gerogfu og viðurkenndi að erlendar ríkisstjórnir hefðu tekið þátt í að kosta viðskipta- ferðir hans til útianda. Hann kvaðst ekki sjá neitt athugavert við það þar sem Georgiuríki hefði tekið þátt i kostnaði af dvöl erlendra viðskiptanefnda og enginn hefði hagnazt per- sónulega af þessu fyrirkomu- lagi. Stjórnmálasérfræðingar segja að golfmálið geti haft alvarleg áhrif á kosningabar- áttu Fords þótt bilið milli hans og Carters hafi mjókkað sam- kvæmt siðustu skoðanakönnun- um en það fari eftir því hvað^ skjöl um ferðirnar sýni og hve mikinn mat Carter geri sér úr málinu. — Stjórn Schmidt Framhald af bls. 1. hefur játað að hafa þegið 100.000 mörk af umdeildum fjármála- manni. Jafnframt var þess krafizt I dag að borgarstjóri sósfaldemókrata f Frankfurt, Rudi Arndt, segði af sér vegna ásakana um að borgar- stjórnin hefði þegið mútur fyrir að veita vissa aðstöðu á Frank- furt-flugvelli. Arndt svaraði með ásökun um að leiðtogi kristilegra demókrata í Hessen, Alfred Dregger, hefði boðið hægriflokki eina milljón marka ef hann byði ekki fram og dreifði atkvæðum hægrikjósenda. — Ávísanamálið Framhald af bls. 2 og einnig hvort ávfsanirnar virt- ust eitthvað vafasamar. Þannig kæmi það oft fyrir, að gjaldkeri hringdi f reikningsbanka út af t.d. 10000 kr. ávísun, en f öðrum til- vikum væri ekki hringt út af hærri ávísun. Gjaldkeri Landsbankans sagði við yfirheyrslur, að þrátt fyrir viðskiptalegan kunnugleika væri það algengt að ávísanir sem væru lægri en 100 þúsund krónur væru athugaðar, og örugglega allar ávfsanir sem væru að upphæð 500 þúsund eða meira. Þá ber að geta þess að allar umræddar ávfsanir sem Ásgeir H. Eiríksson kom með var hann að leggja inn á reikninga f viðkom- andi bankastofnun, en ekki var um að ræða að hann væri að leysa út peninga. Þegar ávísanirnar komu f þann banka, sem þær voru gefnar út á, virðist innstæða hafa verið fyrir hendi, þar sem engin var endursend. — Jafnréttisráð Framhald af bls. 2 um reglum. Ráðið hefur þó ekki enn komizt að niðurstöðu um hvort auglýsandinn, fjölmiðillinn eða hvorir tveggja verði gerðir ábyrgir fyrir slíku broti. Þá telur ráðið mjög mikilvægt það ákvæði laganna, sem segir fyrir um fræðslu um jafnrétti kvenna og karla f skólum og öðrum mennta— og uppeldis- stofnunum. í þessu sambandi hafa farið fram viðræður við skólarannsóknir menntamála- ráðuneytisins um samvinnu og er vonazt til að hægt verði að hefja þessa kennslu á næsta ári. Til þessarar kennslu vantar þó til- finnanlega grundvallar kennslu- bók í slfkum fræðum, en ráðið hefur beðið um að leitað verði gagna frá Norðurlöndum um slfka fræðslu. Þá leggur ráðið einnig áherzlu á að við endurnýjun námsbóka verði þær endurskoð- aðar með þessa lagagrein f huga, en ráðið hefur hug á að gera lang- tfmaáætlun um útgáfu námsbóka. Nefndamenn álitu að heimilin væru kannski sá vettvangur, sem áhrifarfkast væri að starfa á, því þar gætti misréttis e.t.v. hvað mest. Hins vegar var bent á að fjölskyldan og heimilið væru það svið, sem ákaflega illa væri fallið til að setja ákveðnar lagareglur um og flestir væru sammála um að löggjafinn ætti að skipta sér sem minnst af, en þó mætti með fræðslu í jafnréttismálum fara óbeint inn á heimilin. Hingað til hefur ráðið eingöngu fengizt við mál, er snerta launa- misrétti og má gera ráð fyrir að mest reyni á slík mál. Fram að þessu hefur aðeins einn karlmað- ur snúið sér til ráðsins, hitt eru allt konur, sem starfa hjá ríkinu. Á vegum ráðsins hafa farið fram, rannskóknir á viðhorfi fólks til útivinnandi kvenna, svo og rannsókn á auglýsingum f dag- blöðum en niðurstöður liggja enn ekki fyrir. Jafnréttisráð er skipað fimm mönnum, en það eru: Guðrún Er- lendsdóttir, formaður, skipuð af Hæstarétti (varamaður Jón Finnsson, hrl.), Geirþrúður Bern- höft, skipuð af félagsmálaráð- herra (varamaður Sigurlaug Bjarnadóttir), Áslaug Thorlacius, skipuð af Bandalagi starfsmanna rfkis og bæja (varamaður Björg Einarsdóttir), Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir, skipuð af ASI (vara- maður Auður Torfadóttir) og Ólafur Jónsson, skipaður af Vinnuveitendasambandi Islands (varamaður Barði Friðriksson.) — Skæruliðar Framhald af bls. 1. Palestfnumanna f suðurhluta landsins. Áður en fundurinn hófst sagði skæruliðaforingi að Sýrlendingar fengju ekkert án fórna. Sýrlendingar hafa hins vegar náð mörgum stöðvum skæruliða norður af Beirút á sitt valda eftir tveggja daga sókn. Þeir treystu vfgstöðu sfna I dag og héldu áfram að þjarma að skæruliðum með skriðdreka- og stórskotaliðs- árásum. Að lokum neyddust skæruliðaforingjarnir til að fara til Beirút þar sem þeir halda áfram fundum sfnum. Um leið og Sýrlendingar sóttu úr austri hermdu fréttir að kristn- ar liðssveitir væru að búast til árása á Aley úr norðri. Utvarps- stöð falangista sagði að ef skæru- liðar hörfuðu ekki jafngilti það þvf að þeir fremdu sjálfsmorð. Kristnir menn krefjast þess að Palestínumenn hætti að styðja vinstrimenn í borgarastrfðinu. Svokallaðar dúfur f hópi skæru- liða óttast að hreyfing þeirra verði algerlega brotin á bak aftur ef þeir semja ekki. Haukarnir segja að ef látið verði undan leiði það til sýrlenzkra yfirráða og að möguleikar séu á þvf að neyða Sýrlendinga til tilslakana ef áfram verði barizt. — „Við öllu búnir Framhald af bls. 40 erfitt að draga ákveðnar ályktan- ir. Guðjón Petersen hjá Almanna- vörnum tjáði Morgunblaðinu f gærkvöldi að niðurstaðan af fundi jarðfræðinga og annarra sérfræð- inga í gær hefði verið sú að rétt væri að vera við öllu búnir á Kröflusvæðinu. ,,Þeir lfta svo á,“ sagði Guðjón," að þetta séu svo snöggar breytingar að ekki sé um það að ræða að jarðhræringar þarna séu hreinlega að fjara út, heldur sé fremur um hegðunar- breytingu að ræða sem gæti boðað eitthvað meira. Mikið af gögnum frá jarðeldasvæðum jarðarinnar sýna að oft kemur snögglega hlé á jarðskjálftum fyrir gos. Eysteinn Tryggvason er farinn norður til mælinga á svæðinu og mun hann sérstaklega kanna hvort aukinn þrýstingur sé á einhverjum af- mörkuðum blettum, en að öðru leyti er ekkert að gera nema að sjá hverju fram vindur. Almanna- varnir hafa marga undanfarna mánuði haft allt i viðbragðsstöðu á þessu svæði ef eitthvað kæmi til og þannig er það enn, náið sam- band er haft við menn nyrðra." Páll Einarsson jarðeðlisfræð- ingur tjáði Morgunblaðinu að hrapið á jarðskjálftatfðninni sfð- ustu þrjá sólarhringa þætti svolft- ið grunsamlegt á svo stuttum tfma en tfðnin var 16 skjálftar f gær, 50 í fyrradag, og þar áður 78, 118 og 130 fyrir 5 dögum. „Þetta er satt að segja allt f lausu lofti," sagði Páll, „og því ekki hægt að draga neinar ákveðnar ályktanir fyrr en eftir niðurstöður mælinga á næstu dög- um en greinileg breyting er mjög afgerandi þarna, hvað svo sem verður." Til skamms tíma hefur norður- endi stöðvarhússins við Kröflu risið um einhverja millimetra, en nú er suðurendi hússins farinn að rfsa. Það munar þó ekki nema 1/10 úr millimetra ef eitthvað er sagði Páll, frá öðrum enda húss- ins til hins. Þá liggur fyrir að sprunga við Leirhnjúk hefur gliðnað um nokkra sentimetra sfð- ustu mánuði. Við höfðum samband við jarð- skjálftavaktina á Kröflu seint f gærkvöldi, en þar hafði þá aðeins orðið vart við 1 jarðskjálfta frá þvf kl. 5 um daginn, þannig að enn var að draga úr skjálftatfðn- inni. — Healey ræðst Framhald af bls. 1. semja við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn á grundvelli núverandi stefnu stjórnarinnar og að hún hefði í för með sér niðurskurð ríkisút- gjalda hófust reiðiöskur og hróp um að hann segði af sér. Þó var ályktunin um stuðning við stefnu Healeys samþykkt, en jafnframt var stjórnin hvött til þess að draga ekki meir úr ríkis- útgjöldum til að tryggja sér lánið. Stjórnin hefur þegar skuldbundið sig til að skera niður árleg rfkisút- gjöld um 1000 milljón pund. Kröfum vinstrisinnans Norman Atkinsons um innflutningseftirlit svaraði Healey á þá leið að toll- múrar mundu hafa í för með sér mesta viðskiptastríð heimsins frá því á árunum eftir 1930. Áður en Healey flutti ræðu sína hafði þingið samþykkt með miklu lófataki tillögu frá vinstrisinnan- um Ian Mikardo um þjóðnýtingu helztu banka og tryggingafyrir- tækja Bretlands þótt James Call- aghan forsætisráðherra fordæmdi tillöguna og segði að hún yrði Verkamannaflokknum til bölvun- ar í næstu kosningum. Jafnframt voru samþykktar ályktanir um að kaup og sala á pundum og erlendum gjaldeyri yrðu tekin úr höndum einkafyrir- tækja í fjármálahverfi Lundúna. I Vestur-Þýzkalandi leiddi mik- il eftirspurn eftir mörkum vegna orðróms um gengishækkun til lækkunar allra vestrænna gjald- miðla í dag. Á ítalíu hélt liran áfram að lækka gangvart dollar. Pundið átti alls staðar í vök að verjazt, en var þó á uppleið i dag á erlendum gjaldeyrismörkuðum. — Kostnaðar- áætlun Framhald af bls. 40 samningaviðræður milli iðnaðar- ráðuneytisins og Laxárvirkjunar- stjórnar um yfirtöku hins sfðar- nefnda á rekstri Kröfluvirkjunar tif bráðabirgða. Sagði Karl að hann teldi engin vandkvæði á því að Laxárvirkjun gæti rekið Kröfluvirkjun, en hann benti á að Gunnar Thoroddsen iðnaðarráð- herra hefði nýlega lýst þvf yfir, að hann hygðist í þingbyrjun leggja fram frumvarp um Norðurlands- virkjun og að jafnframt hefði ráð- herrann talað um að hugsanlega gæti það fyrirtæki tekið við rekstri virkjunarinnar þegar f upphafi. Framleiðsla Kröfluvirkjunar getur orðið við gangsetningu fyrri samstæðunnar — fáist nægilegt gufuafl — allt að 30 megawött. Um það, hvort nægilegur markað- ur sé fyrir allt það rafmagn til viðbótar rafmagni Laxárvirkjun- ar sagði Karl að allir væru ekki á einu máli. Hann kvaðst búast við þvf að markaður væri ekki nægi- lega stór þegar f fyrstu lotu, en ætla mætti að þessi 30 megawött yrðu fullnýtt strax á árinu 1977. Morgunblaðið spurði . Karl Ragnars, hvort hugsanlegt væri að rafmagn frá Kröflu yrði selt til Austurlands. Hann sagði: „Það er nú ekkert endanlegt komið um það, en hins vegar er það f öllum framtfðaráformum, að svokölluð norðurffna komi til með að heita hringlfna og að hún nái þá áfram frá Kröflu austur á land og síðan suður fyrir Vatnajökul og yrðu þá raforkusvæði landsins öll orðin samtengd. Myndi rafmagn þá væntanlega fara frá Kröflu og austur á land og þá einnig öfugt, ef þörf væri á. Varnargarðarnir, sem Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra skýrði frá f viðtali við Morgun- blaðið fyrir nokkrum dögum, verða tveir. Samkvæmt upplýs- ingum Karls Ragnars er það í fyrsta lagi garður, sem liggur austan við Leirhnúk og myndi beina hrauni, sem hugsanfega kæmi frá Leirhnúk og rynni í austurrátt með garðinum, til suð- urs, þannig að hraun myndi þá renna annaðhvort niður f svo- kallaðan Þrfhyrningadal eða hreinlega vestur fyrir Dalfjall. Hins vegar er um að ræða skarð úr þessum Þrfhyrningadal, sem stendur vestan við stöðvarhúsið og niður f Hlfðardalinn, þar sem stöðvarhúsið stendur. I þetta skarð þarf að fylla til þess að ekki rynni þar niður hraun. Yrði hola númer 8 rétt austan megin við garðinn, þannig að þessi garður austan Leirhnúks myndi skýla borholusvæðinu einnig. Enn er ekki ákveðið hvenær hafizt verður handa um gerð garð- anna. Orkustofnun er alveg nýbúin að leggja fram áætlun um gerð þeirra. Áætlunin var lögð fram f gær (fimmtudag) og sfðan á eftir að taka afstöðu til þess hvort þeir yfirleitt verða byggðir. Hefur það ekki verið endanlega ákveðið, enda kemur inn f þá ákvarðantöku mat á öllum að- stæðum. Þarf síðan að útvega það fjármagn, sem garðarnir kosta. Eru þeir nokkuð mikil mannvirki með kostnaðaráætlun upp á 60 milljónir króna. Morgunblaðið spurði Karl Ragnars, hvort ljóst væri hvað kílówattstundin kæmi til með að kosta frá Kröfluvirkjun um leið og hún gæti hafið framleiðslu. Hann kvað það ekki vera einfalt reikningsdæmi, en hann kvað það hafa komið fram frá aðilum, sem hefðu möguleika á að reikna slíkt, að raforkuverðið, þegar það er reiknað á sama hátt og gert hefur verið í sambandi við Sigölduvirkj- un — yrði það sama frá þessum tveimur virkjunum. Er það einhvers staðar á bilinu 2 til 3 krónur. Morgunblaðið spurði Karl, hvort menn við Kröflu væru nokkuð uggandi vegna þessarar kyrrðar, sem færzt hefði yfir virkni hræringa á svæðinu. Hann sagði: „Nei, ekki vil ég nú segja að menn séu uggandi, en þarna verður skyndileg breyting og auð- vitað hugsa menn um það hvað veldur skyndilegri breytingu. Og þar sem breytingin er á þennan veginn — að allt verður kyrrt — þá velta sumir þvf fyrir sér, hvort þetta sé ef til vill logn á undan stormi. Það eru kannski bara til- gátur og það veit enginn," sagði Karl Ragnars og bætti því við að á Kröflusvæðinu liði öllum vel og menn yndu glaðir við sitt. — Kartöflur Framhald af bls. 40 flokksins verði eðlileg, þannig að ekki lendi saman f pokum ein- göngu smáar kartöflur. Fram kom hjá Guðmundi að þessi ákvörðun var tekin að fengnum álitsgerðum kaup- manna, Neytendasamtakanna og stjórnar Grænmetisverzlunarinn- ar. Að lokum tók Guðmundur fram að þessi ákvörðun gilti að- eins um framleiðsluna í haust og væri tekin i ljósi yfirvofandi skorts á kartöflum i vetur. Yngvi Markússon, kartöflu- bóndi f Oddsparti f Þykkvabæ og formaður Félags kartöflufram- leiðenda á Suðurlandi, sagði f gærkvöldi að vissulega hefði þarna náðst áfangi, þó ekki væri hægt að segja að þetta væri fram- tfðarlausn. — Ef ég á að tala fyrir sjálfan mig þá er ég ánægður með þessa breytingu en ég er hræddur um að það sé samt almenn óánægja meðal kartöfluframleið- enda. Þetta breytir miklu fyrir okkur og þá einkum að við fáum betri nýtingu á uppskeruna, sem var yfir höfuð smá, sagði Yngvi. Aðspurður um hvort kartöflu- framleiðendur ætluðu að senda kartöflur á markað eftir þessar breytingar, sagðist Yngvi ekki eiga von á öðru og sennilega færu þær fyrstu frá þeim um helgina. Frá þvf að kartöfluframleiðend- ur á Suðurlandi hættu að senda frá sér nýjar íslenzkar kartöflur um 20. september, hefur Græn- metisverzlunin aðeins haft á boð- stólum örlftið af fslenzkum kart- öflum og síðustu daga hefur hún eingöngu selt erlendar kartöflur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.