Morgunblaðið - 01.10.1976, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1.OKT0BER 1976
19
30. ári Hess í
f angelsi lokið
Vestur-Berlln
30. september — Reuter.
RUDOLF Hess, sem kallaður hef-
ur verið mest einmana maður (
heiminum, iauk I dag afplánun
30. árs síns fyrir strfðsglæpi (
Spandaufangelsinu. Er hann eini
fanginn þar. Hann er nú 82 ára
gamall og var dæmdur 1. október
1946 f Nurnberg fyrir hlutverk
sitt sem helzti aðstoðarmaður
Hitlers ( upphafi heimsstyrjald-
arinnar sfðari.
Siðustu 10 ár hefur hann, eftir
að tveir aðrir fyrrverandi nasista-
foringjar hafa verið látnir lausir,
verið einn f fangelsinu, sem hefur
Króatarn-
ir ákærðir
fyrir morð
New York, 29. september. Reuter.
Króatarnir 5, sem rændu
TWA—þotunni á dögunum og
flugu henni til Parlt Nýfundna-
land og ísland voru i dag ákærðir
í New York fyrir morð af 2. gráðu
vegna láts lögreglumanns, sem
beið bana, er hann var að reyna
að gera óvirka sprengju, sem þeir
höfðu skilið eftir i New York.
Eiga fimmmenningarnir yfir
höfði sér 25 ára til ævilangt fang-
elsi. Þeir hafa þegar verið ákærð-
ir fyrir flugrán, sem varðar allt að
20 ára fangelsi.
600 klefa. Vesturlönd hafa hvað
eftir annað viljað látaHess lausan
af mannúðarástæðum en Sovét-
menn hafa ekki viljað fallast á
slíkt.
Fyrir Hess, sen> handtekinn var
eftir að hafa stokkið i fallhlif úr
flugvél yfir Skotlandi 1941 i þvi
skyni að semja um frið við Breta,
var afmælisdagurinn eins og allir
aðrir dagar i fangelsinu. Sagði
talsmaður bandarísku stjórnar-
innar í Vestur-Berlin að ekki yrði
á nokkurn hátt minnzt afmælis-
ins. Bandarikjamenn ásamt Bret-
um, Frökkum og Sovétmönnum
gæta Hess f fangelsinu.
Rudolf Hess.
Stúdentar undirbúa
verkfall á Spáni
Madrid 30. september — Reu-
ter.
LÖGREGLAN dreifði ( dag með
kyifum og táragasi stúdentum,
sem efndu til mótmælaaðgerða,
og nú undirbúa þeir almennt
verkfall á morgun vegna morðs á
21 ára gömlum stúdent. Það voru
hægri öfgamenn, sem skutu stú-
dentinn.
Stúdentarnir hrópuðu „niður
með kúgun lögreglunnar" og
söfnuðust saman á aðalgötu ná-
lægt háskólanum. Þeim var fljót-
lega dreift af lögreglunni.
Flugritum var dreift um
Madrid I dag og borgarbúar hvatt-
ir til að fara að dæmi Baska á
Norður-Spáni, sem á mánudag
efndu til víðtækasta verkfalls á
Spáni síðan i borgarastriðinu
1936—39.
Póstmenn, sem verið hafa í
verkfalli, sneru til vinnu í 37 af 50
Ottast
slæm áhrif
Manfredonia 30. september
— Reuter.
ÞEKKTUR (talskur mengunar-
sérfræðingur sagði f dag að annað
meiriháttar eiturslys gæti átt sér
stað á ttalfu innan þriggja vikna
ef ekki yrði þegar reynt að
hreinsa svæði, sem arsenik lagð-
ist yfir um sfðustu helgi. Gerðist
það þegar slys varð og gas lak út
úr efnaverksmiðju, sem er f eigu
rfkisins.
Mesta áhyggjumálið er hvort
eitrið muni hafa áhrif á fisk og
þvf alvarlegar afleiðingar fyrir
sjávarútveg á svæðinu, sem er á
póstumdæmum landsins , en eng-
inn póstburður var þó I Madrid
eða iðnaðarborgunum Barcelona
og Bilbao. Póstmannaverkfallið
byrjaði f Madrid fyrir viku siðan
og breiddist út eftir að tveir af
leiðtogum póstmanna voru hand-
Framhald á bls. 31
Austurlanda-
hradlestin
hættir í maí
Budva, J úgóslavíu
30. september — Reuter.
Austurlandahraðlestin, sem
áður flutti tignarfólk, njósnara
og glæstar konur á milli Istan-
búl og Parisar mun hætt að
ganga eftir 22. maf samkvæmt
ákvörðun, sem tekin var á
fundi evrópskra járnbrautar-
stjórna f Budva í dag.
Hraðlestin hóf ferðir sínar
árið 1883, þegar gljáandi eim-
vagn dró í fyrsta sinn nokkra
svefnvagna og veitingavagn ið-
andi af þjónum frá París f
gegnum keisaradæmi Evrópu
til marka hins austræna heims.
Lestin gat af sér það frægð-
arorð að fyrirmenni tóku hana
gjarnan ekki til að komast á
áfangastaði hennar heldur að-
eins til að upplifa þau lifsgæði,
sem boðið var upp á um borð I
henni. Orðstýr lestarinnar lifði
lengi eftir að bílar og flugvélar
höfðu tekið við hlutverki
hennar og rifhöfundar notuðu
þann dularljóma, sem af henni
stafaði til að gera hana að vett-
vangi njósna, ástar eða glæpa-
sagna sinna.
Suður-Italfu. Samkvæmt sumum
fréttum var mikið magn af arsen-
iki í sýnum, sem tekin voru úr sjó
I dag, og óttast menn að tfma-
bundið bann sem lagt var á fisk-
veiðar verði framlengt.
Bátar lögreglunnar gættu þess í
dag að bannið væri virt og her-
menn hafa verið kallaðir til að
gæta svæðis, sem girt hefur verið
af.
Sérfræðingar f hafréttarmálum.
Losnum vid Rússa
og Rúmena en fáum
allan EBE-flotann
Brezk blöd um fiskveiöistefnu EBE:
0 Mikillar óánægju hefur gætt f Bretlandi með tillögur fram-
kvæmdanefndar Efnahagsbandalags Evrópu um sameiginlega
stefnu bandalagsþjóðanna f fiskveiðimálum. Hafnaði nefndin f
tillögum sfnum óskum Breta um 50 sjómflna einkafiskveiðilög-
sögu við strendur sfnar innan 200 sjómflna sameiginlegrar fisk-
veiðilögsögu EBE-landana. Hafa brezk blöð gagnrýnt tillögur
framkvæmdanefndarinnar f greinum og leiðurum og samtök
aðila f sjávarútvegi hafa látið f Ijós mikla reiði yfir tillögunum.
Dálkahöfundar tveggja
brezkra blaða, The Guardian og
Daily Express, hafa meðal
annars gert tillögurnar að
umtalsefni nú í vikunni. Segir
dálkahöfundur síðarnefnda
blaðsins, George Gale, að nú
löngu á eftir tslandi, Kanada og
Bandaríkjunum og tilneyddir
af Norðmönnum hafi brezka
stjórnin loksins ákveðið að
færa fiskveiðilögsögu sína i 200
milur. Segir hann að það hafi
lengi verið hagsmunamál Breta
að gera það. En því miður hafi
brezka stjórnin ekki fengizt til
athafna fyrr en að undangengn-
um skærum við Islendinga og
það sem utanrikisráðherrann
kallar „uppaustur á miklu
magni" af makril á hugsanleg-
um brezkum miðum.
Síðan segir Gale: „Lofsverð
viðurkenning utanrikisráðu-
neytisins á því að hlutverk þess
sé að vernda og berjast fyrir
brezkum hagsmunum er líklega
að þakka því að Crosland er þar
orðinn æðsti maður. Hann segir
að 200 mílur séu „lifshags-
munamál" fyrir Breta, hvort
sem það er satt eða ekki. En ef
þær eru nú lífshagsmunamál,
þá voru þær ekki minna hags-
munamál áður.“
En Gale heldur því fram að í
raun og veru séu Bretar aðeins
að færa út fyrir Efnahags-
bandalagið og að yfirlýsingar
utanríkisráðherrans séu aðeins
til þess ætlaðar að fela þann
sannleik að ekkert samkomulag
er á milli Breta og annarra
EBE-landa um fiskveiðiréttindi
við Bretland. „Alveg eins og til
er sameiginleg stefna i land-
búnaðarmálum, sem gagnar
fyrst og fremst bændum (sér í
lagi frönskum) á kostnað neyt-
enda (sérstaklega brezkra og
vestur-þýzkra) á nú að taka upp
sameiginlega stefnu í fiskveiði-
málum.“
Samkvæmt þeirri stefnu seg-
ir Gale að öllum EBE-flotanum
verði leyft að veiða í allri lög-
sögu EBE-landanna, en meiri-
hluti þeirrar lögsögu er innan
brezku 200 mílnanna.
„Það sem við græðum," segir
Gale, „er að þann 1. janúar
losnum við við Rússa, Rúmena
og Búlgara en fáum i staðinn
allan togaraflota Efnahags-
bandalags Evrópu."
Richard Norton-Taylor tekur
mjög i sama streng í The
Guardian og segir að helmingur
þess afla, sem mun verða veidd-
ur innan 200 sjómílna efna-
hagslögsögu EBE, hefði verið
brezkur ef Bretar hefðu ekki
gengið í Efnahagsbandalagið.
Segir hann frá reiði brezkra og
sérstaklega skozkra sjómanna i
garð stjórnar sinnar og EBE, og
sem vilja að „Italir haldi áfram
að rækta appelsínur, Frakkar
vínber en þeir að veiða fisk“.
Telur Norton-Taylor það
undarlegt að Bretar, sem veiða
mest allra EBE-landa og sem
háðastir eru miðum utan 200
mílna lögsögu EBE, skuli hafa
svo veika samningsaðstöðu
gagnvart bandalaginu, sem
raun ber vitni. Kveður hann
brezku stjórnina verða að sýna
meiri hörku og úr því sem nú sé
komið geti ekkert bjargað
brezkum sjávarútvegi annað en
strangt kvótakerfi, sem veiti
brezkum sjómönnum sérrétt-
indi.
Svínainflúensan:
Hefði kostað
50.000 manns-
líf
Boston 30. september — AP
— ef ekki hefði ver-
ið bólusett í USA
NEFND á vegum Harvard-
háskóla, sem skipuð var til
að kanna hvort ekki hefði
nægilega vel verið undir-
búin sú ákvörðun að láta
fólk i Bandaríkjunum
gangast undir bólusetn-
ingu gegn svínainnflúensu,
segir í skýrslu sinni að
hefði ríkisstjórnin ekki lát-
ið fara fram bólusetningu á
þann hátt sem gert var
hefði mátt búast við því, að
inflúensan hefði orðið um
50.000 manns að bana í vet-
ur og að 56 milljónir
manna hefðu fengið veik-
ina. Segir i skýrslu nefnd-
arinnar að inflúensan
hefði getað kostað banda-
rísku þjóðina 6 milljarða
dollara vegna sjúkrahús-
kostnaðar og tapaðra
vinnudaga, ef víðtæk bólu-
setning hefði ekki farið
fram.
Unnið að þvf að útbúa sendingu
bóluefnis gegn svfnainflúensu til
Alaska, Hawaii og Kalifornfu.