Morgunblaðið - 01.10.1976, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1976
31
— Borgarráð
Framhald af bls. 29
skólastofnun, sem undir embætti
hans heyrir.
Albert Guðmundsson óskaði bók-
að:
Ég tel mig knúinn til þess að
gera eftirfarandi athugasemdir
við bókun borgarráðsfulltrúa
Framsóknarflokksins:
1. Rétt er að fram komu skipt-
ar skoðanir um hver hljóta hefði
átt stöðu aðstoðarskólastjóra við
Fjölbrautaskólann I Breiðholti. Á
framsóknarmáta var þessi skoð-
anamunur fimm af sjö umsagnar-
aði'lum gegn ráðstöfunum ráð-
herra. Fræðsluráð er eitt umsagn-
araðili, skv. samningi við mennta-
málaráðuneytið. Fræðslustjóri og
skólameistari eru ekki umsagnar-
aðilar.
2. Réttur ráðherra til að setja
þann aðstoðarskólameistara f
embætti, sem hann telur hæfast-
an, að fenginni umsögn fræðslu-
ráðs, er óvéfengjanlegur, eri ég
tel, að hann hafi ekki heimild eða
völd til að byggja ákvörðun sína á
umsögnum aðila, sem ekki eru
umsagnaraðilar skv. samningi, og
að því leyti er bókun Kristjáns
Benediktssonar villandi, þegar
hann vitnar í venjur eða hefð-
bundin vinnubrögð. Hér er vill-
andi að vitna f fræðslulög, þar
sem í gildi er sérsamningur milli
menntamálaráðuneytisins og
Reykjavíkurborgar um Fjöl-
brautaskólann I Breiðholti.
3. Kristján Benediktsson lýsir
furðu sinni á því, að undirritaður
telur það ámælisvert að leitað sé
umsagnar fræðslustjórans í
Reykjavfk, þegar velja á yfír-
mann í stærstu skólastofnun
borgarinnar. Ég vil svara þessari
ásökun með þvf að segja, að það
þarf enginn að förða sig á því, að
ég vilji, eins og flestir aðrir borg-
arfulltrúar, fara eftir þeim samn-
ingum, sem gerðir hafa verið
milli ríkis og borgar. Mig furðar
heldur ekkert á þvi, að fulltrúar
Framsóknarflokksins verji það,
að samningur sé brotinn, þegar
það hentar þeim herbúðum.
— Nú kostar...
Framhald af bls. 3
stöðvunarskyldu varða sekt að
upphæð 5 þúsund krónur og sama
er að segja um brot gegn ákvæð-
um um biðskyldu. Brot á fyrir-
mælum um aðalskoðun bifreiða
varðar 4 þúsund króna sekt og
brot á ákvæðum um stöðu og
stöðvun ökutækja varðar 3 þús-
und króna sekt. Brot gegn ákvæð-
um um gangandi vegfarendur
varðar sekt að upphæð 1.000 krón-
ur.
Lyftarar — Lyftarar
Getum afgreitt með stuttum fyrirvara hina
heimsþekktu Fenwick lyftara, bæði nýja og
endurbyggða. Rafknúna, gasknúna, með diesel-
vél eða bensínvél, eftir va/i.
Af sérstökum ástæðum getum við afgreitt af lager eitt
stk. rafknúinn lyftara. Lyftigeta 1500 kg.
Kristján Ó. Skagfjörð hf.
Hólmsgötu 4 - Simi 24120
Skrifstofuþjálfunin
Bókfærsla hefst á þriðjudag
Þetta sérnámskeið er ætlað skrifstofufólki og þeim sem
bókhaldsskyldir eru.
Útskrift reikninga. Sjóðsbók, Færsla viðskiptamannabók-
ar. Sundurliðunarbók. Vinnulaunaskýrslur. Eyðublaða-
form. Bankar. Skatteyðublöð. Bókhaldslög. Kynning á
lágmarkskröfum til þeirra sem bókhaldsskyldir eru. Tví-
hliða bókfærsla. Tæknilegaraðferðir. Reikningsskil.
Kennt er einn dag í viku. Þrjár kennslustundir hverju
sinni. 24 vikur alls til páska. Námskeiði lýkur með prófi
fyrir þá sem óska. Áætluð heimavinna: þrjár klukku-
stundir á viku.
Mímir,
Brautarholt 4
sími 10004 og
111 09 (kl. 1 — 7e.h.)
m^mmmmmmmmmmmmmmm
.P&O’
LLOYII
SKÓR
NÝ SENDING
Austurstræti 14
— Stúdentar
Framhald af bls. 19
teknir. Areiðanlegar heimildir
herma að ríkisstjórnin hafi verið
reiðubúin til að nota herinn til að
dreifa pósti en að herforingjar
hafi verið á móti því að kalla
póstmenn f herinn, en sú aðferð
var notuð til að binda enda á
verkfall í janúar.
Starfsfólk flugfélagsins Iberia,
sem vinnur á flugvöllum og skrif-
stofum, hefur lýst þvf yfir að það
muni fara sér hægt við vinnu á
morgun og eykur það á öngþveitið
á spænskum flugvöllum, sem staf-
ar af sjö vikna löngum aðgerðum
flugumferðarstjóra. Krefst starfs-
fólkið sameiginlegra kjarasamn-
inga með flugfólki og öðru starfs-
fólki flugfélagsins.
— Guðmundur
Framhald af bls. 40
haft hvltt á móti Sax og Sax
valið Sikileyjarvörn. „Ég valdi
þá hvasst afbrigði af þessari
vörn, og f miðtaflinu hugðist
Sax fórna manni sem hann og
gerði, en hann sá ekki nógu
langt og varð að gefa skákina f
21. leik, en hún var þá gjörtöp-
uð.“
Aðspurður sagðist Guð-
mundur vonast til að hann
héldi þessu góða formi, en allt
gæti gerzt, þar sem aðeins tvær
umferðir væru búnar á mót-
inu.
Hann sagði að aðbúnaður
skákmannanna væri góður.
Þeir byggju f gömlu virki á
bökkum Dónár, en inni f þvf
væri nýtfzku hótel. Taflstaður-
inn sjálfur kæmi sjálfsagt
mörgum einkennilega fyrir
sjónir, þvf keppnin færi fram
á járnbrautarstöðinni, en þar
væri Ifka ágætis aðstaða.
önnur úrslit i annarri um-
ferð mótsins urðu þau, að Bese
vann Smejkal, Vulovic og
G:rcia sömdu um jafntefli og
eins Velimirovic og Gligoric.
Aðrar skákir fóru I bið. Þeir
sem næstir koma Guðmundi að
vinningum eru með 1 Vt vinn-
ing. I dag teflir Guðmundur
við Smejkal og Friðrik við'
Garcia.
— Bylting . . . .
Framhald af bls. 40
tækni svo að nú er engum vand-
kvæðum bundið að röntgen-
mynda mikinn fjölda fisk-
blokka eða aðrar tegundir freð-
fiskframleiðslunnar á skömm-
um tíma, án þess að þurfa að
taka umbúðir utan af pökkun-
um,“ sagði Halldór.
Þá sagði hann, að i framhaldi
af þessum góða árangri hefði
stjórn SH ákveðiö að kaupa
röntgentæki og bau komið til
landsins snemma á þessu ári.
Umfangsmiklar tilraunir hefðu
þá verið gerðar með tækjunum
i Vestmannaeyjum við raunhæf
skilyrði í frystihúsunum þar.
Eftir góðan árangur þar hefði
stjórn SH ákveðið að kaupa
sjálfvirkan röntgenframkallara
til framköllunar á röntgenfilm-
unum, og ennfremur hefði ver-
ið keyptur nýr sendiferðabíll
undir tækin.
— Tugir íra
Framhald af bls. 1.
er 2.500 lestir og skráður i
Murmansk. „Rússneska skipið
neitar allri samvinnu," sagði
irskur talsmaður og bætti við
að þvi væri skylt að fara til
hafnar samkvæmt alþjóðalög-
um.
Talsmaður sovézka sendi-
ráðsins í Dyflini sagði að til-
raun hefði verið gerð í dag
eftir diplómatiskum leiðum til
að skýra ástandið. Hann kvað
skipstjóra togarans, Belo-
morye, hafa mótmælt atburð-
inum og haldið því fram að
hann hefði aldrei farið nær
landi en 13 milur.
Grainne tók búlgarskan tog-
ara á svipuðum slóðum I sið-
ustu viku og færði hann til
hafnar I Cork. Skipstjórinn var
dæmdur i sekt fyrir ólöglegar
veiðar f landhelpi
hittir beint i mark
rVESTUR-ÞÝZK GÆÐAFRAMLEIÐSLA
©Passat
stílhreinn og vandaður
VW Passat er meira en óvenjulega glæsilegur og þægilegur
fólksbíll. Hann er vestur-þýzk gæðaframleiðsla, frá Volkswagen-
verksmiðjunum. VW Passat er sparneytinn, öruggur í akstri og
býður upp á hina viðurkenndu Volkswagen varahluta- og viðgerðar-
þjónustu.
PASSAT — bíllinn sem hentar yöur
— FYRIRLIGGJANDI
TODDÝ sófasettið er snióiö
fyrir unga tolkiö
Verö aöeins kr. 109.000 -
Góöir greiðsluskilmálar.
Sendum hvert á land sem er.
er-
STIL-HÚSGÖGN
AUÐBREKKU 63 KÓPAVOGI SÍMI 44600
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — Simi 21240