Morgunblaðið - 01.10.1976, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1976
FYRSTITITILLINN
I HOFN
FH-INGAR urðu Reykjanes-
meistarar f handknattleik f ár.
Sigruðu þeir nágrannalið sitt,
Hauka, f úrslitaleik um titilinn
sem fram fðr f lþróttahúsinu f
Hafnarfirði f fyrrakvöld. Urslit
leiksins urðu 17—16 fyrir FH,
þannig að naumari gat sigurinn
ekki orðið, og máttu FH-ingar
raunar þakka fyrir hann, þrátt
fyrir að þeir væru lengst af betra
liðið f þessum leik og væru um
tfma búnir að tryggja sér yfir-
burðastöðu f leiknum. Þar með
hafa FH-ingar hreppt aftur fyrsta
titilinn af þremur sem þeir unnu
til f fyrra, en þá varð liðið, svo
sem kunnugt er, f senn Reykja-
nesmeistari, Islandsmeistari og
bikarmeistari.
FH-ingar byrjuðu leikinn mjög
vel í fyrrakvöld, eða ef til vill má
fremur segja að Haukarnir hafi
verið lengi að finna formið. Stað-
HJA FH
an i hálfleik var 9—4 fyrir FH og
þegar nokkrar minútur voru liðn-
ar af seinni hálfleik var staðan
orðin 11—5 þeim í vil og stórsigur
blasti við. En þá tóku Haukarnir
heldur betur við sér og þegar
rúmlega þrjár mínútur voru til
leiksloka höfðu þeir jafnað
16—16. Léku Haukarnir ágætan
handknattleik á þessu tímabili og
tókst algjörlega að sjá við sóknar-
leik FH-inga. FH-ingar skoruðu
svo fljótlega sautjánda mark sitt,
og því tókst Haukunum ekki að
svara, þrátt fyrir harðar aðgerðir
íþá átt.
Markhæstu menn FH-liðsins í
þessum leik voru þeir Þórarinn
Ragnarsson sem skoraði 6 mörk
og Sæmundur Stefánsson sem
skoraði 4, en markhæstu Hauk-
arnir voru Hörður Sigmarsson
með 5 mörk og Sigurgeir Mart-
einsson sem einnig skoraði fimm
mörk.
ÞORSTEIMN VAR MAÐUR LEIKSINS
Jafntefli Keflvlkinga við vestur-
þýzka liðið Hamburger SV I leik lið
anna I Evrópubikarkeppni bikarhafa
á Laugarsalsvellinum I fyrrakvöld er
einn bezti árangur sem Islenzkt lið
hefur náð I Evrópubikarkeppni til
þessa, þar sem hið þýzka lið er nafn-
togað fyrir árangur sinn á knatt-
spyrnuvöllunum á undanförnum ár-
um og þýzk knattspyrna er álitin
mjög góð um þessar mundir. t.d.
mun betri en I Englandi. Maður leiks-
ins I fyrrakvöld var tvlmælalaust
Þorsteinn Olafsson, markvörður
Keflvlkinganna, sem varði oft
snilldarlega og þessi mynd Friðþjófs
sýnir hann bjarga með þvl að slá
kvöttinn yfir eftir skot eins leik-
manna Hamburger SV. Þorsteinn
kom frá Svlþjóð til þess að leika
þennan leik með félögum sfnum, en
þar er hann nú að hefja nám. Er þvl
óvlst hvort hann getur leikið með
ÍBK næsta sumar.
Landsliðið enn hornreka
Mynd úr leik Þróttar og KR I Reykjavlkurmótinu á dögunum. Konráð
Jónsson, einn markhæsti leikmaður mótsins sendir þarna knöttinn að marki
KR-inga og virðist svo sem Hilmar Bjömsson fyrrum landsliðsþjálfari hafi
ekki notað réttu vörnina að þessu sinni. í kvöld leikur Konráð með félögum
slnum gegn ÍR til úrslita um Reykjavlkurmeistaratitilinn, en Fram og Valur
keppa um 5. sætið I mótinu.
— VIÐ erum satt að segja agn-
dofa yfir þvf að þeirri beiðni
okkar að fá aukinn æfingatfma
fyrir landsliðið var svarað með
þvf að skera tfmann enn niður,
sagði Sigurður Jðnsson, formaður
Handknattleikssambands tslands
á fundi með fréttamönnum f gær,
þegar rætt var um aðstöðu
fslenzka handknattleikslandsliðs-
ins sem f vetur mun taka þátt f
B-heimsmeistarakeppninni f
handknattleik. Kom fram á
fundinum að HSt hafði sðtt um
tfma fyrir landsliðið f Laugar-
dalshöllinni frá kl. 17.00—19.00
þrjá daga f viku, en niðurstaðan
varð sú að liðið hefur einungis
tvo fimmtfu mfnútna æfingatfma
f Höllinni á fimmtudögum. Sá
tfmi er ekki bara fyrir fslenzka
karlalandsliðið, heldur og öll
fslenzku landsliðin f handknatt-
leik, þ.e. kvennalandsliðið og
unglingalandsliðið að auki.
Víkingur hreppti þriðja
sætið í Reyíqavíkurmótinu
_ ® ™ PPtíi sknrai’i cvn com bnrhorom
- OG ARMAMN SJOUNDA SÆTIÐ
A miðvikudagskvöldið voru
leiknir tveir leikir í úrslitakeppni
Reykjavíkurmótsins. Ármann og
Fylkir léku um 7.—8. sæti og var
það fremur tilþrifalftill leikur,
fastir liðir eins og venjulega.
Fylkir stóð í Ármenningum fram
í seinni hálfleik, en þá var úthald-
ið búið og Ármenningar sigu fram
úr, en leiknum lauk með öruggum
sigri Armanns 21—15. Flest mörk
Ármanns gerðu þeir Pétur Ing-
ólfsson, Vilberg Sigtryggsson og
Hörður Harðarson 4. Flest mörk
Fylkis gerðu Einar Agústsson 5
og Gunnar Baldvinsson 5.
Seinni leikur kvöldsins var svo
á milli Víkings og KR, en þessi lið
léku um 3.—4. sætið f mótinu.
Leiknum lauk með sigri Vfkings
30—24. Þetta var þokkalegur leik-
ur, sem bauð upp á smá spennu
þegar líða tók á seinni hálfleik, en
þá tókst KR-ingum að jafna upp
það forskot, sem Víkingar höfðu
náð í upphafi og haldið fram í
seinni hálfleik. KR-ingar komust
yfir 24—22 þegar rúmlega 10 mfn-
útur voru eftir af leiknum og
höfðu þeir þá sýnt góðan leik,
bæði f vörn og sókn. En þá skall
allt f baklás og þeim tókst ekki að
gera mark það sem eftir var, á
meðan Víkingar bættu við 8
mörkum og unnu stórsigur, í raun
og veru mun stærri en þeir áttu
skilið. Flest mörk Víkings gerðu
Ólafur Einarsson 8, Björgvin
Björgvinsson 5 og Þorbergur Að-
alsteinsson 4. Mér finnst Víking-
arnir spila allt of mikið upp á
Ólaf, það eru fleiri en hann sem
— Ætli við verðum ekki að hafa
þann hátt á, sem hafður var í
gamla daga, að fara með lands-
liðið til Keflavíkurflugvallar til
æfinga, sagði Sigurður — en hvað
sem verður erum við ákveðnir að
fá æfingatíma fyrir liðið og okkur
finnst það satt að segja hart að
vera ýtt til hliðar vegna félaga
sem eru að auglýsa eftir fólki
opinberlega til þess að taka þátt í
æfingum hjá sér gegn gjaldi.
Fram kom á blaðamanna-
fundinum hjá formanni móta-
nefndar HSÍ, Ólafi A. Jónssyni,
að nú hefði gengið betur en oftast
áður samstarfið við forráðamenn
fþróttahúsa og þeir hefðu verið
fúsir að gera hvað þeir gátu til
þess að greiða úr þeim vandamál-
um sem voru við niðurröðun
mótsins. Það er því aðeins lands-
liðið sem er hornreka við æfingar
sinar, sem eru áformaðar meiri I
vetur en oftast áður.
— Við verðum á grænni grein
þegar fþróttahúsið f Mosfellssveit
verður opnað, en þar munu okkur
allar dyr standa opnar, sagði Sig-
urður Jónsson, en því miður
verður það hús ekki tilbúið fyrr
en eftir áramót.
Á fundinum kom fram, að eftir
er að leggja gólfið á íþróttahúsið f
Mosfellssveit. Þegar upphafleg
áætlun var gerð um kostnað við
að leggja gólfið í húsið hljóðaði
hún upp á tæpar fjórar milljónir,
en málið var síðan tafið fyrir Mos-
fellssveitungum, og þegar að
framkvæmdum kom hafði
kostnaðurinn hækkað upp í um
átta milljónir króna.
Pólski landsliðsþjálfarinn
Janus Cerwinski mun koma
hingað til starfa um miðjan októ-
ber n.k. og gefur aug leið að það
mun þrengja mjög starfsmögu-
leika hans, ef ekki fæst meiri tími
fyrir fslenzka landsliðið til æfinga
en þeir tveir tlmar sem HSI er
búió að fá loforð fyrir f Laugar-
dalshöllinni.
— Ég hef grun um að koma
Cerwinskis eigi eftir að hafa jafn-
vel meiri áhrif á fslenzkan hand-
knattleik en okkur grunar, sagði
Sigurður Jónsson á fundinum f
gær. — Ég tel, að það hafi sýnt sig
á þeim litlu afskiptum er hann
hafði af okkar málum þegar hann
kom hinað um daginn. Við mun-
um reyna að leggja áherzlu á að
Cerwinski verði kominn hingað
fyrir leik islenzka landsliðsins við
þýzka liðið Dankersen, sem kem-
ur hingað í heimsókn f október,
en þar gæfist honum kostur á að
sjá og fylgjast með þeim Ólafi H.
Jónssyni og Axel Axelssyni f leik.
VETRARSTARF VIKVERJA
geta skorað, svo sem Þorbergur
og Viggó að ótöldum öllum línu-
mönnunum, sem þeir hafa. Það
sýndi sig í leiknum á móti IR um
daginn að ef Ólafur er tekinn úr
umferð, þá vita hinir ekkert hvað
þeir eiga að gera, þeir eru of
vanir þvf að Ólafur sjái um mörk-
in.
KR-ingar léku þennan leik
nokkuð vel, sérstaklega þegar
þeir voru að vinna upp forskot
Vfkings og að komast yfir. I liði
KR eru nokkrir ungir menn, sem
vert er að minnast á, en það eru
þeir Friðrik Þorbjörnsson, sem er
þeirra bezti varnarmaður og auk
þess örugg vítaskytta, en hann
gerði 6 mörk f þessum leik þar af
4 úr vftum. Ingi Steinn Björgvins-
son er snöggur og laginn horna-
maður og gerði hann 3 mörk. Þá
gerði Ólafur Lárusson 3 mörk, en
hann er bæði sterkur og skotharð-
ur. H.G.
U.M.F. Vfkverji er að hefja
vetrarstarf sitt, en það hefur fram
að þessu verið bundið við glfmu
eingöngu, en nú verður verður
starfrækt frjálsíþróttadeild og
skák til viðbótar glímunni.
Glímt verður tvisvar í viku,
mánudaga og fimmtudaga frá
18.50 til 20.30 hvort kvöldið f leik-
Bændaglíma GS
Bændagllma Golfklúbbs Suður-
nesja fer fram n.k. laugardag. og
vonast GS-menn eftir mikilli þátt-
töku I mótinu. Bændur I keppninni
verða þeir Jóhann Einvarðsson,
bæjarstjóri I Keflavlk og Albert Sand-
ers. bæjarstjóri I Njarðvlk Um kvöld-
ið verður svo sameiginleg uppskeru-
hátlð þriggja golfklúbba, Nesklúbbs-
ins. Golfskúbbsins Keilis og Golf-
'úbbs Suðurnesja I Félagsheimilinu
á öeltjarnarnesi.
fimisal undir áhorfendastúkunni
inn af Baldurhaga á Laugardals-
velli. Þjálfari í glimunni verður
hinn landskunni glímumaður
Hjálmar Sigurðsson.
Frjálsíþróttir verða í Baldurs-
haga á fimmtudögum frá kl. 21.20
til 23.00. Þjálfari verðdur Águst
Ásgeirsson hinn landskunni
hlaupari.
Teflt verður f Hólabrekkuskóla
til að byrja með á miðvikudags-
kvöldum frá kl. 20.00 — 22.00.
Leiðbeinandi í skák verður Jónas
Þorvaldsson, skákmaður. Ef ein-
hverjir vilja láta skrá sig þá er
hægt að snúa sér til skrifstofu
U.M. F. I, Klapparstíg, f sfma
12546.
Æfingar hefjast í byrjun októ-
ber. Ungmennafélagar utan af
landi eru hvattir til að láta vita
um sig, er þeir koma til náms í
borginni.
(Frétt frá Vfkverja).