Morgunblaðið - 22.10.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.10.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976 Garðbæingar á móti hrað- braut um bæinn í núverandi legu Hafnarfjarðarvegar IlUSIN tvö á myndinni hefur Breiðholt hf. reist milii Grensásvegar og Síðumúla. 1 neðra húsinu mun Alþýðubankinn og Aiþýðusamband lslands verða með starfsemi en I þvt efra munu Almennar tryggingar verða með sfna starfsemi. Flokksþing Alþýðu- flokksins hefet í kvöld ÞRITUGASTA og sjöunda fiokks- þing Alþýðuflokksins hefst f kvöld á Hðtel Loftleiðum og stendur það fram á sunnudags- kvöld. Um 150 fulltrúar vfðs veg- ar að af landinu eiga sæti á þing- inu, sem er æðsta stofnun flokks- ins og kýs stjórn hans, að þvf er segir f fréttatilkynningu frá Al- þýðuflokknum. I tilefni af 60 ára afmæli Al- þýðuflokksins á þessu ári hefur flokksstjórn kosið 9 heiðursfé- laga, en þeir eru þessir: Stefán Vínveitinga- hús hækka aðgangseyri VlNVEITINGAHUSUM hefur nýiega verið heimilað að hækka aðgangseyri um 25%, úr 200 krónum f 250 krónur. Jóhann Stefánsson, fyrrv. forsæt- isráðherra; Emil Jónsson, fyrrv. forsætisráðherra; Soffía Ingvars- dóttir, fyrrv. form. Kvenfélags Al- þýðuflokksins f Reykjavík; Jóna Guðjónsdóttir, fyrrv. form. Verkakvennafélagsins Framsókn- ar; Jón Axel Pétursson, fyrrv. bandastjóri; Guðmundur Oddsson forstjóri; Jón Sigurðsson, forseti Sjómannasambands Islands; Steindór Steindórsson, fyrrv. skólameistari, og Ragnar Guð- leifsson, fyrrv. form. Verkalýðsfé- lags Keflavíkur. Kjöri þessara heiðursfélaga verður lýst á flokksþinginu. Meðal verkefna flokksþingsins verður ný stefnuskrá, sem unnið hefur verið að síðustu tvö ár og væntanlega hlýtur endanlegt samþykki á þinginu. Þá verður fjallað um rekstur og starf flokks- ins, lagabreytingar og að sjálf- sögðu um þróun stjórnmála og kjaramála. Námsmenn vilja tvo milljarða kr. 1 KJÖLFAR nýrra reglugerða um námslán hefur mikill kurr verið meðal fslenzkra námsmanna. sem telja hlut sinn fyrir borð borinn með tilkomu nýju reglnanna. A fundi Stúdentaráðs Háskóla ls- lands sem haldinn var 14. okt. sl. var eftirfarandi tillaga samþykkt: „SHÍ fordæmir harðlega þá at- lögu, sem ríkisvaldið gerir að kjörum námsmanna, með þvi að ætla Lánasjóði fslenzkra náms- manna einungis einn milljarð í frumvarpi að fjárlögum fyrir árið 1977. Bent skal á, að til að halda óbreyttu horfi frá þvi í fyrra, þarf LÍN 2.064 milijarða kr. til ráðstöf- unar. Hér er því gert ráð fyrir 50% skerðingu á kjörum náms- manna, þrátt fyrir að gildandi lög mæli skýrt fyrir um, að stefnt skuli að fullri brúun umframfjár- þarfar. Stúdentaráð skorar þvf á Al- þingi að sjá til þess, að kjör náms- fólks verði ekki skert meira en orðið er.“ ' Tryggingar Eimskips: ísl. trygginga- félög fengu ekki ad gera tilboð SAMBAND islenzkra trygginga- félaga hefur komið eftirfarandi athugasemd á framfæri: iMorgunblaðinu 20. þ.m. er eftirfarandi haft eftir forstjóra Eimskipafélags tslands h.f. „Rannsókn, sem Eimskipafélag- ið hefði gert á því hvernig hag- kvæmast væri að tryggja skipin, hefði leitt f ljós að mestur sparn- aður væri fyrir Eimskip að tryggja beint hjá erlendum trygg- ingafélögum og hefði þessi ákvörðun mikinn gjaldeyris- sparnað f för með sér um leið.“ I tilefni þessara ummæla vill stjórn Sambands islenskra tryggingafélaga taka fram, að engu islensku trygginafélagi var Nafn mannsins sem drukknadi ISLENDINGURINN, sem fannst látinn í höfninni Flensborg í Þýzkalandi, hét Sigurður Eyjólfs- son, með lögheimili að Hrísateig 5, Reykjavfk. Sigurður hafði dval- ið langdvölum erlendis við vinnu. gefinn kostur á að bjóða f trygg- ingar á skipum Eimskipafélagsins f samkeppni við erlendan aðila. Var því ekki um neinn saman- burð að ræða við fslenskan tryggingamarkað. FYRIRHUGUÐ lagning hraðbrautar um Garða- bæ veldur íbúum kaup- staðarins töluverðum áhyggjum. Sú ætlun yfirvalda um að slá á ófyrirsjáanlegan frest framkvæmdum við þann hluta Reykjanes- brautar sem ólokið er, þ.e. milli Kaplakrika við Hafnarfjörð og Breiðholtsbrautar, en í stað þess að gera hrað- braut i núverandi stæði Hafnarfjarðar- vegar, var kröftuglega mótmælt á fjölmenn- Borgarafundur vill aö lokiö veröi viö Reykjanesbraut sem fyrst um borgarafundi í Garðabæ i fyrrakvöld. Það var bæjarstjórn Garðabæjar sem bauð til fundarins, „til að hreinsa andrúmsloftið' eins og for- seti bæjarstjórnar, Ólafur Einarsson alþingismaður, komst að orði i upp- hafi fundar. Voru þarna mættir, auk bæjarstjórnar, fulltrúar Vegagerðar- innar, Gestur Ólafsson arkitekt, en hann á um skipulagsuppdrætti að fyrirhuguðum framkvæmdum, emb- ættismenn i samgönguráðuneytinu, og þá var samgönguráðherra, Hall- dór E. Sigurðsson, einnig á fundin- um, en hann hefur búið i Garða- hreppi síðan hann tók við ráðherra- störfum. Fundurinn, sem fór fram i Gagn- fræðaskóla Garðabæjar, var mjög fjölmennur. og urðu margir frá að hverfa, því færri komust að en vildt emmning meðal fundargesta var Það var þröngt á þingi i Gagnfræðaskóla Garðabæjar og margir urðu frá að hverfa í upphafi fundar. ------------------------------------- leggja hraðbraut um Garðabæ Sagðist hann raunar persónulega vera andvigur allri stækkun og breytingum á núverandi Hafnarfjarð- arvegi. þar sem hann liti á þá leið sem þjónustubraut fyrir ibúa Garða- bæjar. Sagði Ólafur að leggja bæri þunga áherzlu á að efri braut, þ e hin eiginlega Reykjanesbraut, yrði lögð á undan breytingum og stækk- un á núverandi Hafnarfjarðarvegi Taldi hann i þvi sambandi að ekki yrði nauðsynlegt að byggja þau ógn- armannvirki, eins og hann nefndi þau, sem i bigerð væru, og tillögur væru uppi um. Persónulega sagðist Ólafur þvi aðeins geta sætt sig við stækkun og breytingu á núverandi Hafnarfjarðarvegi, þ e að frá Hraunslæk yrði honum stefnt niður í Arnarvoginn og þannig fram hjá megin byggðinni að Álftanesvegi, að 20—40 þúsund manna byggð ætti eftir að koma á Álftanesi. Hann ítrekaði þó að fyrst yrði að Ijúka Reykjanesbrautinni í þeirri mynd sem ætlunin væri Ólafur kom inn á að i raun væri það ekki einungis hagsmunamál Garðbæinga að Reykjanesbraut yrði lokið sem fyrst, því einnig mundi það skipta mjög miklu máli fyrir umferðina um gatnamót Miklubraut- ar og Kringlumýrarbrautar Þar væri nú verið að hefja framkvæmdir við nýtt þjónustusvæði og hlyti það að vera kappsmál Reykjavíkur að um- ferð um þessi gatnamót yrði alls ekki meiri en hún er nú þvi þar hlytu að verða mikil vandamál ef halda ætti áfram að beina umferð til Suð urnesja þar um, eins og nú vé gert í lokin vildi Ólafur leggja áherzlu á að það væri eindregin afstaða bæj- arstjórnarinnar að hraðbraut yrði ekki lögð um Garðabæ og strax yrði hafist handa við lúkningu Rekjanes brautar Sagði hann það einungis málstaðnum til ills þær hviksögur sem verið hefðu á kreiki um sundr ung bæjarstjórnar i málinu. Allmiklar umræður urðu á fundin um Tóku allir undir afstöðu bæjar- góð, en andrúmsloftið varð fljótt þungt vegna þess að engin loftræst- ing er til staðar í þessum salarkynn- um Þótt fundurinn hafi staðið i 3 klst. má segja að ólift hafi venð i salnum eftir 1 klst Það kom fram i ræðu Ólafs G Einarssonar, að það væri eindregin ósk bæjarstjórnannnar að ekki yrði lögð hraðbraut um Garðabæ á nú- verandi stæði Hafnarfjarðarvegar Taldi hann fráleitt að litið yrði á fyrirhugaðar vegarbætur á þeirri leið sem lausn samgöngumála milli höf- uðborgarinnar og Suðurnesja. Sagði hann afstöðu bæjarstjórnarinnar vera á þá leið að hraða bæri fram kvæmdum við þann hluta Reykja- nesbrautar sem ólokið væri, þ e þann spotta sem nær frá Breiðholts- braut í Kaplakrika Sagði Ólafur bæjaryfirvöld hafa sent yfirvöldum bréf um þessa afstöðu sina og fært ýmis rök að þvi að ekki bæri að Nokkrir bæjarfulltrúar Garðabæjar, ásamt Gesti Ólafssyni arkitekt, sem þarna útskýrir með aðstoð yfirlitskorts tillögur um legu fyrirhug- aðra hraðbrauta. Frá vinstri má sjá Ólaf G. Einarsson, Guðrúnu Erlendsdóttur, varaforseta bæjarstjórnar, og jafnframt fundarstjóra, þá Hilmar Ingólfsson, Guðmund Einarsson og loks bæjarritarann Rögn- vald Finnbogason. (Ijósm. RAX). stjórnarinnar að lúkningu Reykja nesbrautar bæri að hraða, og að ekki bæri að leggja hraðbraut um eða við Garðabæ Ólafur hafði drepið á hugmyndir Framhald á bís. 25 „Eigum lítiHa hagsmuna að gæta innan EBE- fiskveiðilögsögu nema hvað varðar síldveiði” EINS og kunnugt er af fréttum hafa Efnahagsbandalagsrfkin f huga að færa út fiskveiðilögsögu sfna á næstu mánuðum, þótt ýmis- legt sé enn ðljðst I þeim efnum. Morgunblaðið hafði þvf samband við Má Elfsson fiskimálastjóra og spurði hann hvaða fiskveiðihags- muni lslendingar ættu innan 200 mflna fiskveiðilögsögu EBE- landa. Már Elfsson sag,ði, að ís- lendingar ættu lítifla hagsmuna að gæta innan 200 mílna fiskveiði- lögsögu EBE-landa, nema hvað — segir Már Elísson fiskimálastjóri varðaði veiðar á síld. Reyndar hefðu Islendingar veitt lítilshátt- ar af kolmunna, brislingi og makril á þessum slóðum. Hvað varðaði veiði á brislingi og makríl gæti hún aldrei orðið mikil, en hins vegar væri kolmunninn óþekkt stærð. Már sagði að ef síldveiðar f Norðursjó yrðu bannaðar á næsta ári eins og lagt hefur verið til hefðu þessar þjóðir ekkert að bjóða Islendingum, en á þessu ári mættu Islendingar veiða um 15 þúsund lestir af Norðursjávar- sfld. Sagði Már, að enn væri ekkert hægt að fullyrða i þessum efnum, og væri hægt að taka undir orð utanríkisráðherra um að ekkert þýddi að ræða við EBE-þjóðirnar fyrr en þær hefðu komið sér saman um fiskveiðiiögsöguna. Hvað varðaði Grænland sagði Már, að það mál væri mjög óljóst enn. Ekki væri vitað hvort Is- lendingar myndu þurfa að taka upp tvíhliða viðræður við Dani varðandi grænlenzku fiskveiði- lögsöguna. Reyndar hefði danski sjávarútvegsráðherrann lýst þvi yfir að grænlenzka fiskveiðilög- sagan fylgdi ekki EBE- fiskveiðilögsögunni. en ýmsir ráðamenn EBE teldu að svo ætti að vera.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.