Morgunblaðið - 22.10.1976, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.10.1976, Blaðsíða 44
Al'CiLVSINííA- SIMINM KH: 22480 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1796 Lits j ón varpssmyglið: 3 menn teknir í gaer og tvö tæki fundust ÞRlR menn voru teknir til vióbót- ar f gær f tengslum við rannsókn þá sem nú fer fram á smygli á iitsjónvarpstækjum til landsins, og auk þess komu tvö tæki f leitirnar. Mikið kapp er nú lagt á rann- sókn þessa máls bæði af hálfu sakadóms Reykjavfkur og rann- sóknarlögrej lunnar f Hafnarfirði og unnið fram á nótt dag hvern. Þórir Oddsson, sakadómsfulltrúi, annast þessa rannsókn ásamt tveimur rannsóknarlögreglu mönnum úr Reykjavfk, þeim Magnúsi Magnússyni og Hannesi Thorarensen, og Sveini Björns- syni, rannsóknarlögreglumanni f Hafnarfirði. I gær voru handteknir tveir menn i Reykjavík vegna þessa máls og í Hafnarfirði var einn maður úrskurðaður í allt að 20 daga gæzluvarðhald af sömu ástæðu. Þá höfðu rannsóknarlög- reglumenn upp á tveimur smygl- uðum litsjónvarpstækjum til við- Kramhald á bls. 24 Hrauneyjarfossvirkjun: Taka þarf ákvörð- un um útboð strax 3 seldu fyrir8,8 mfflj.kr. ÞRJO sfldveiðiskip seldu síld f Hirtshals í Danmörku í gær fyrir um 8.8 milljónir króna. Skfrnir AK seldi 62 lestir fyrir 5.2 millj. kr., meðalverð pr. kg. 84 kr. Óskar Halldórsson AK seldi 29 lestir fyrir 2.4 millj. kr., meðalverð kr. 83 og Dagfari ÞH seldi 14 lestir fyrir 1.2 millj. kr., meðalverð kr. 85. * Fékk 136 kr. fyr- ir kílóið af neta- 'fiski í Cuxhaven VÉLBATURINN Jón Þórðarson frá Patreksfirði seldi 60 lestir af . netafiski í Cuxhaven f V- Þýzkalandi í gær. Fyrir aflann fékk báturinn 8.1 millj. kr. og var meðalverð pr. kíló kr. 136, sem er i það hæsta sem fengist hefur í Þýzkalandi í haust. Haust — og brosmild hnáta gælir við fölnað lauf. Ljósm. Friðþjófur SAMKVÆMT upplýsing- um Jóhannesar Nordal, formanns stjórnar Lands- virkjunar, er Hrauneyjar- fossvirkjun nú þegar til- búin til útboðs, en ákvörð- 500 þúsund kr. afrakstur eins manns eftir tíu tíma róður Siglufirði 21. október. Á dögunum gerðist það hér að Sverrir Björnsson fór sem oftar í róður á bát sínum mb. Viggó, sem er 8—9 tonn að stærð. Hann lagði linuna hér frammi í firðinum og eftir 10 tíma var hann kominn með 4 og '/i tonn af vænum þorski. Er þetta einhver mesti afli sem um getur að einn maður hafi fengið í róðri hér um slóðir. Sverrir hefur þann háttinn á að hann saltar fiskinn sjálfur og lætur nærri að heildarverð- mæti þessa afla sé um og yfir 500 þúsund krónur. un um að auglýsa eftir til- boðum hefur enn ekki ver- ið tekin. Er það ráðuneytið, sem slíka ákvörðun á að taka. Jóhannes sagði að fyrir lægi beiðni um virkjunarleyfi. Jóhannes Nordal sagði að það færi nú að verða mjög brýnt að taka ákvörðun um útboð fram- kvæmda við virkjunina, ef hún ætti að verða tilbúin á þeim tíma, sem talið væri nauðsynlegt — 1 siðasta lagi 1981. Gert er ráð fyrir að virkjunin verði i upphafi 140 megawött, tvær 70 megawatta túr- bínur, en síðan er unnt að stækka hana í 210 megawött. Yrði Hraun- eyjarfossvirkjun því önnur stærsta virkjun iandsins, næst á eftir Búrfellsvirkjun, sem er um 240 megawött. Engir jarðskjálft- ar - en landið rís SÁRALITIL jarðskjálftavirkni er á Kröflusvæðinu um þessar mundir og hefur verið svo undan- farið. Hins vegar er nú land tekið að risa að nýju og hefur risið undanfarnar tvær vikur með svip- uðum hraða og var áður meðan jarðskjálftatíðni fór vaxandi. íslenzki fanginn á Spáni: Hlaut 1,9 millj. í sekt eða 4ra ára fangelsi Dómur á eftir um alvarlegri að ganga í hin- lið ákærunnar SPÆNSKUR dómstóll hef- ur fyrir nokkru fellt dóm f öðrum af tveimur ákæru- liðum gegn Matthíasi Einarssyni, sem handtek- inn var þar í sumar er hann reyndi að smygla fíkniefnum inn í landið frá Marokkó og hefur setið í fangelsi þar síðan. Dómur er genginn í þeim lið ákærunnar er varðar sjálfa smygltilraunina og Reykjavík: Aukin atvinnutækifæri nær öll í viðskiptum og þjónustu GÖGN, sem birt eru I nýútkom- inni Arbók Reykjavfkur 1976, um vinnuafIsnotkun f helztu atvinnu- greinum, sem stundaðar eru f landinu. leiða f Ijós, að nær öll aukning atvinnutækifæra f Reykjavfk á sfðasta áratug átti sér stað f þjónustu- og viðskipta- greinum. Vinnuaflsnotkun f öðr- um greinum dróst ýmist saman eða stóð að mestu leyti f stað. I heild jókst vinnuaflsnotkun í Reykjavík um 6.600 mannár á tímabilinu 1965—74 og gert er ráð fyrir áþekkri aukningu á ára- tugunum 1975—1984, segir borg- arhagfræðingur i inngangi að tölulegum upplýsingum um at- vinnugreinar og tekjur, En hann tekur fram, að það verði af ýms- um sökum hæpnara með ári hverju að leggja fjölda mannára að jöfnu við fjölda starfandi fólks f hverri atvinnugrein. Upplýsing- ar um fjölda mannára gefi að vfsu til kynna, hve mikilli vinnu er skilað á tilteknu ári, en af þeim verði hvorki ráðið, hvernig vinnu- aflsnotkun dreifist á einstakar árstíðir, né hve margir séu við störf á hverjum tíma. Atvinnuskiptingin í Reykjavík í fjölda mannára er 1974 þannig: landbúnaður 68, sjávarútvegur 1.352, vörugreinar iðnaðar sam- tals 5.405, viðgerðargreinar sam- tals 2667, byggingarstarfsemi samtals 4.915, rekstur veitustofn- ana 444, viðskipti samtals 9.726, samgöngur samtals 5.347 og þjón- usta samtals 12.663. var Matthías dæmdur í 681.820 peseta sekt (Um 1.9 milljónir ísl. króna) ell- egar komi 4 ára fangelsi í þess stað. Hinn liður ákær- unnar varðar tilræði við heilbrigði manna, og er það atriði talið öllu alvarlegra athæfi en sjálft smyglið samkvæmt spænsku réttar- fari. Er búist við að dómur gangi í þessum lið ákær- unnar einhvern tíma fyrir lok þessa mánaðar. Útflutningsverð- mæti saltsíldar- innar yfir 2000 milljónir króna? CJTFLUTNINGSVERÐMÆTI þeirrar saltsfldar, sem verkuð hefur verið til þessa í haust, mun nú nema á milli 1100 og 1200 milljónum króna, að þv( er Gunn- ar Flóvenz, framkvæmdastjóri Sfldarútvegsnefndar, tjáði Morg- unblaðinu f gær. Heildarsöltunin er nú f kring- um 60 þúsund tunnur, en á sama tfma f fyrra var ekki búið að salta f 30 þúsund tunnur, þannig að nú er heildarsöltunin meira en helmingi meiri en þá. Ekki er ólfklegt að heildarútflutnings- verðmæti saltsfldarinnar á allrf vertfðinni geti orðið yfir 2000 milljónir króna að sögn Gunnars. Á s.l. ári var heildarstöltunin 94 þúsund tunnur. Eins og kunnugt er er leyfilegt að veiða 10 þúsund lestir af síld I hringnót, en veiðar í reknet eru ekki takmarkaðar — Gert er ráð fyrir að reknetaaflinn geti orðið 5000 tonn. Venjulega tekur það um 2 mán- uði að verka síldina og mun elzta reknetasfldin brátt verða full- verkuð og er Síldarútvegsnefnd nú að undirbúa afskipanir á fyrstu saltsíldarförmunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.