Morgunblaðið - 22.10.1976, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.10.1976, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÖBER 1976 „Gott er góðu að hrósa" stendur einhvers staðar, og þau orð komu I huga blm. þegar hann ásamt Friðþjófi ljósmyndara heimsótti Garðaskóla í Garðabæ s.l. föstu- dagskvöld og fylgdist með tóm- stundastarfinu sem þar er unnið. Þar hefur um nokkurra ára skeið, eða síðan í janúar ’73, verið starfrækt svonefnt „Opið hús“ við miklar vinsældir ungu kynslóðar- innar. Við náðuní tali af Herði Rögn- valdssyni, tómstundaleiðtoga við skólann, en hann hefur séð um framkvæmd „Opna hússins” frá upphafi, ásamt Helga Eggerts- syni, kennara, og Karli Rafnssyni, kennaranema. „Húsið er opið á föstudags- kvöldum frá 8—11.30“, sagði Hörður, „og þá er hér diskótek, skemmtíatriði og ýmis leiktæki. Á miðvikudögum starfa svo ýmsir klúbbar, eins og ljósmynda-, skák- , kvikmynda-, vélhjóla-, borðtenn- is-, sauma-, bridge- og svonefndur ástvinaklúbbur. Þessi klúbbstarf- semi verður sifellt meiri og fjöl- breyttari og nú stendur til að stofna tvo nýja, radíóamtörklúbb og frímerkjaklúbb. Auk okkar þriggja, sem hér vinnum, starfa leiðbeinendur með klúbbunum og námskeið eru haldin, t.d. í dansi og snyrtingu." „Það voru ekki allir, sem spáðu þessu starfi langra lífdaga," hélt „Opna húsið” æ vinsælla... Ljósmynd Friðþjófur við höfum minnstu ástæðu til að ætla að unglingur hafi bragðað áfengi, er það athugað og ef það er staðfest, höfum við samand við foreldrana. Það ríkir mikill skilningur hjá foreldrum á þessari starfsemi og foreldraráð hefur skipulagt sín mál þannig, að hingað koma 2—3 úr hópi foreldra á hverjum föstu- degi til að fylgjast með og vera f tengslum við starfsemina. Ég verð að segja að árangurinn af þessu starfi er geysigóður þótt hér vanti ýmislegt, en ég vonast til að í vetur verði hægt að kaupa fleiri leiktæki fyrir „Opna húsið.” Það gefur auga leið að þörfin er mikil fyrir hátt á 4. hundrað ung- linga, enda hafa góð tómstunda- tæki mikið uppeldislegt gildi. „Nú er allt miklu lýðræðislegra“. I diskótekinu hittum við 2 unga herramenn, sem báðir standa framarlega í félagslífinu. Það eru þeir Dagur Jónsson, formaður Stöllurnar Hólmfrfður, Signhild og Bylgja döns- uðu af hjartans lyst, en gáfu sér þó örlítínn tfma til að Ifta framan f myndavélina um leið og þær sögðu að mesta f jör- ið væri f diskótekinu. Dagur Jónsson og Kristinn E. Sigurþórsson. Hörður áfram, „en reynslan sýnir annað. Það eru sífellt fleiri, sem sækja „Opna húsið“ og í vetur er enn aukning frá því í fyrra. Sið- asta föstudag voru hér t.d. um 350 manns, en í skólanum eru um 500 nemendur. Reyndar er yfirleitt heldur færra á klúbbakvöldun- um, enda eru þau annars eðlis. Hér er líka nokkur aldursskipting eftir kvöldum. Á föstudögum eru krakkar úr 7. og 8. bekk fjölmenn- astir, en á miðvikudögum eru eldri nemendurnir í meiri hluta. Annars er þetta blandað og hing- að koma unglingar og ungt fólk allt að 20 ára aldri. I tengslum við þessa starfsemi eru haldin félagsmálanámskeið og þar er kennt allt mögulegt í sambandi við félagsmál. Það er sífellt meiri áhugi á þessum nám- skeiðum og þeir, sem standa fremst i félagslífinu í þessum skóla, hafa flestir fengið undir- stöðumenntun á þessum nám- skeiðum. Það er bæjarfélagið, sem ber kostnað af þessari starfsemi að mestum hluta, en skólanefnd og stjórn styðja starfsemina með ráð- um og dáð. Það er siðan fram- kvæmdaráð, sem sér um alla framkvæmd „Opna hússins”, en í þvf ráði eiga sæti: 1 fulltrui frá skólastjórn, 1 frá foreldraráði, 2 frá nemendum og síðan ég. Einn- ig höfum við á að skipa sterkri leiðbeinenda sveit, bæði fyrrver- andi og núverandi nemanda. Fundir hjá framkvæmdaráði eru einu sinni í viku og þar eru öll mál viðkomandi starfseminni rædd, s.s. fjárveitingar, skipulag og vandamál, er upp koma, sem vel að merkja eru bæði fá og lítilf jörleg. Hér er algjört tóbaks- og áfeng- isbann, en aðeins í örfáum tilvik- um höfum við átt í vandræðum með unglinga vegna áfengis- neyzlu. Við erum mjög strangír á að bindindi sé í heiðri haft og ef Höróur Rögnvaldsson, tóm- stundaleiðtogi. Og dansinn dunar. Þeir voru að spila Olsen, ólsen. Einar Pálsson, plötusnúður með meiru. Þetta eru þær Hafdfs og Ragnhildur, sem báðar eru 13 ára. Þær voru mjög ánægðar með fyrirkomulag- ið á „Opna húsinu". „Það sem mætti kannski einna helzt bæta,“ sögðu þær, „er að fá fleiri leiktæki." Nemendafélagsins og Kristinn E. Sigurþórsson, ritstjóri skólablaðs- ins. Þeir voru mjög áhugasamir um þessa starfsemi og sögðu okkur að félagslífið hefði tekið mikinn fjörkipp þegar skipulaginu á félagsstarfinu var breytt í fyrra. „Áður voru það örfáir menn sem réðu öllu,“ sögðu þeir, „en nú er búið að breyta fyrirkomulaginu þannig að kosin er 3ja manna nefnd til að sjá um hvert einstakt mál. Með þessu geta miklu fleiri starfað og allt er miklu lýðræðis- legra. Þetta skipulag á örugglega makinn þátt í að svo mikill áhugi er á félagslífinu hér, sem raun ber vitni,” sögðu þeir að lokum. Fjörið fer eftir músfkinni.. Einar Pálsson er einn fjögurra plötusnúða í „Opna húsinu”, jafn- framt því að vera formaður skemmtinefndar. Hann var önn- um kafinn við að velja plötur og það var greinilegt að hann kunni sitt fag, þvf mikið f jör var á dans- gólfinu: — Er góð aðstaða hér í diskó- tekinu? spurðum við. „Nei, hún er ekki nógu góð. Fónarnir eru lélegir og magnar- inn I slæmu ástandi. En það stendur nú til að við fáum nýjar græjur þegar við flytjum í nýja skólann." — Hvaða lög eru vinsælust? „Það eru t.d. lög með Tinu Charles, Bítlunum, Donnu Summ- er, Bee Gees og Elton John.“ — Er skemmtilegt að vera plötusnúóur? „Já, nema maður fær svo mikla innilokunarkennd í þessum litla klefa.“ — Verðið þið ekki að fylgjast vel með öllum nýjum og vinsæl- um lögum? „Það kemur bara með starfinu, maður fylgist ósjálfrátt með.“ — Er alltaf svona mikið fjör hérna? „Það fer alveg eftir músíkinni." Framhald á bls. 28

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.