Morgunblaðið - 22.10.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976
r r a jm. ___ Umsjón
a aratugnum_____________________________________________________ ________Björg Einarsdóttir
Sunnudaginn 10 okt s.l. fóru tvennar prestskosningar fram í Reykjavík
Kjörnir voru tveir prestar, í Háteigssókn og í Dómkrikjusókn Það vekur
ævinlega athygli borgarbúa og áhuga, þegar val á presti stendur fyrir dyrum.
Þennan dag beindust sjónir mann einkum að kosningunum í Háteigssókn
fyrir þær sakir, að nú bauð sig fram til prestþjónustu í höfuðborginni eina
íslenska konan, sem tekið hefur vígslu
Á kjörskrá voru 5518 manns — um 31 00 konur og 2400 karlar — þar
af kusu 3327 Samkvæmt lauslegri könnun, er gerð var þegar eftir að
kosningu lauk, munu vera álíka margir karlar og konur, sem ekki neyttu
kosningaréttar síns.
Úrslit kosningahna voru eins og kunnugt er þau, að séra Tómas Sveinsson
hlaut flest atkvæði eða 1304, séra Auður Eir fékk 1018 atkvæði og sér
Magnús Guðjónsson 961
Áleitið gerist að spyrja séra Auði Eir hvernig henni sé innanbrjósts að
loknum kosningum og hún svarar:
„Mér er efst í huga þakklæti til þeirra, sem hafa kosið mig og stutt
bæði fyrr og nú."
Vitað er að margir utan sóknar biðu úrslita kosninganna með nokkurri
eftirvæntingu og er forvitnilegt að heyra, hvort menn telji nú fullreynt fyrir
konu að komast í preststarf hér á landi. Eftirfarandi spurning var lögð fyrir
nokkra aðila: „í prestskosningunum í Háteigssókn 10. okt. s.l. áttu
Reykvíkingar þess kost í fyrsta sinn að velja konu sem þjónandi prest.
Hvaða ályktun dregur þú af úrslitum kosninganna?"
Anna Sigurðardóttir:
Úrslitin komu mér ánægjulega á
óvart Ef satt skal segja, bjóst ég tæp-
lega voð, að svo margir í sókninni væru
búmð að varpa frá sér að fullu þeirri
æva fornu kennmgu, að karlar einir
mættu flytja kristna trú í skrúða mnan
veggja kirkjunnar, enda þótt konur hafi
átt þann rétt að íslenskum lögum frá
1911
Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir:
Ég bjóst ekki við að svo margir gætu
losað sig við margra alda fordóma Og
ég spyr sjálfa mig — hefði þetta getað
gerst fyrir ári? Ég hefi góð a von um að
ekki verði langt þar til fyrsta konan
verði kosin prestur á íslandi
Guðrún Erlendsdóttir:
Ég varð óneitanlega fyrir vonbrigð-
um með úrslitin í prestskosningunum í
Háteigssókn Þarna var tilvalið tæki-
færi fyrir íslenskar konur að sýna í
verki að jafnréttistal undanfarinna ára
væri meira en orðin tóm Ef konur
hefðu staðið saman í prestskosning-
unni hefði það stuðlað að kosningu
fyrsta kvenprests á íslandi og það orðið
stórt skref í jafnréttisbaráttu íslenskra
kvenna Ég vonast til að íslenskar kon-
ur í guðfræðingastétt láti þennan ósig-
ur ekki verða þess valdandi að þær
leggi árar í bát heldur haldi ótrauðar
áfram. Úrslit kosninganna benda ein-
dregið til þess að fordómar gegn kon-
um í preststarf sé á undanhaldi
Anna Sigurðardóttir
Séra Ólafur Skúlason:
Kosið var í tveimur prestaköllum í
Reykjavík sunnudaginn 10 október
s I Aðeins er beðið um það, að ég
dragi ályktanir af úrslitum annarrar
kosningarinnar Þrátt fyrir það get ég
ekki stillt mig um það að benda á, að í
Dómkirkjunni var munurinn á atkvæöa-
magni umsækjenda mjög mikill (hvað
m a á sínar forsendur í því, að annar
umsækjenda vann ekkert að kosningu
sinni), en í Háteigskirkju var munur
hinna þriggja umsækjenda furðulega
lítill Með hlíðsjón af þessu, er því
hægt að fullyrða, að hlutur allra hinna
þriggja umsækjenda í Háteigssókn var
góður
Ástæðan fyrir því, að nú er verið að
leita að skýringum úrslita, er sú, að
einn umsækjenda um Háteigssókn
hafði sérstöðu, og var því veitt meiri
athygli utan sóknarmarkanna og nú er
bollalagt um það, hvort hér hafi verið
kveðinn upp dómur um hlut kvenna í
prestastétt íslenzkrar kirkju í framtíð-
inni, þar sem þessi umsækjandi, kon-
an, hlaut ekki kosningu, þrátt fyrir
mikið atkvæðamagn
Ég gæti einfaldlega svarað þessu án
bollalegginga og sagt: Nei Hér var
enginn algildur dómur uppkveðinn Og
vera má jafnvel, að þeir, sem eingöngu
meta viðkomandi eftir því, hvort um er
að ræða karl eða konu, hafi haft öfug
áhrif við það, sem ætlunin var í þess-
um kosningum Hér átti einfaldlega að
meta þrjá umsækjendur, sem áttu það
sameiginlegt að vera hæfir í bezta máta
til starfs þess, sem þeir höfðu hug á
Guðrún Erlendsdóttir
Og einhver ofuráherzla á það, að hér
væri eini kvenpresturinn að sækja var í
þessu tilfelli upphafin í þeirri stað-
reynd, að eiginkona þess umsækjenda,
sem hlaut kosningu, er fyrsta og eina
safnaðarsystirin í íslenzku kirkjunni
Og þar sem viðurkennt er af ríkulegri
reynslu, að eiginkonan er hægri hönd
prestsins í starfinu, þá hlaut sérstök
áherzla á kynferði eins umsækjendans
umfram allt annað að verða harla létt-
væg, þegar hægt var að benda til
menntunar, starfs og áhuga eiginkonu
annars umsækjanda
Á lyktun mín af þessari ákveðnu
kosningu er því sú, að kvenprestar
muna i framtíðinni njóta réttar síns í
kirkjunni, en verði að standa í kosning-
um, meðan þær verða við lýði, á
nákvæmlega sama hátt og þeir prestar,
sem eru karlmenn
Ragnar Jónsson:
Úrslitin segja mér ótvírætt að kven-
þjóðin sé i sókn og — guði sé lof —
að vakna til nýs og viðari skilnings á
hlutverki sínu og ábyrgð Síðustu
prestkosningar eru mikill sigur fyrir
konur og sérstaklega séra Auði Eir,
sem brotið hefur isinn með hugrekki
og heiðarleika
Sólveig Ólafsdóttir:
Ég get ekki sagt að úrslitin hafi
komið mér mjög á óvart en hins vegar
ollu þau mér vonbrigðum. Við vitum
hversu erfiðlega gengur fyrir konur að
hasla sér völl, þar sem karlmenn hafa
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
Sólveig Ólafsdóttir
Ragnar ! Smára
Séra Olafur Skúlason
Leitað
svara
að
loknu
1 • •• •
kion
Séra Auður Eir ásamt eiginmanni slnum. Þórði Erni Sigurðssyni. og Yrsu
dóttur þeirra.
verið einir um hituna, og þeir jafnvel
reynt að telja fólki trú um, að konur
eigi ekki erindi inn á þeirra starfsvett-
vang, eins og ýmsir úr prestastétt hafa
gert, jafnvel opinberlega
Atkvæðatölur I umræddum prests-
kosningum sýna þó, að heldur þokast I
rétta átt, og ég vona, að séra Auður Ear
gefist ekki upp, né heldur muni þær
konur, sem nú stunda nám I guðfræði,
láta deigan siga Og að lokum: Getur
það verið, að heyja þurfi jafnréttisbar-
áttu til að mega boða orð Guðs? Eru
ekki allir jafnir fyrir augliti hans?
í einu svaranna hér að fram-
an felst hvatning til annarra
kvenna, sem eru guðfræðing-
ar, að láta ekki undan síga þótt
baráttan geti verið hörð. Bein-
ast liggur við að leita álits
þeirra kvenna, sem nú eru \að
nám I guðfræðideild háskólans.
Nokkrar stúlkur eru í deildinni
og tvær þeirra svara spurning-
unni: „Munu úrslitin í
Háteigssókn hafa áhrif á vi8-
horf þín til starfa a8 námi
loknu?"
Agnes Sigurðardóttir:
Sem betur fer virðist fólk hafa kosið
á jafnréttisgrundvelli Úrslitatölur sýna
að söfnuðurinn hafnaði ekki konu sem
presti þó hún hafi ekki orðið hlutskörp-
ust Sú litla reynsla, sem þjóðin hefur
af konu i prestþjónustu er jákvæð og
frá mínum bæjardyrum séð á hæfni
manna en ekki kynferði að ráða við val
I starf
Svar mitt er því neitandi.
Þórhildur Ólafs:
Eins og málum er háttað í dag held
ég að svo verði ekki Enn þykir mikil
nýlunda hér að landi að kona gegni
hlutverki prestsins og er það að von-
um, þar sem einungis ein íslensfc kona
hefur hlotið prestsvígslu. Af úrslitum í
Háteigssókn að dæma tel ég, að þrátt
fyrir þessa nýlundu hafi kjósendur ekki
sett það fyrir sig á nokkurn hátt, þó að
svo hafi viljað til að einn umsækjenda
væri kona Talar fjöldi atkvæða þar
sinu máli Persónulega vil ég ekki líta á
stöðu kvenprestsins sem kvenréttinda-
baráttu þvi að kristna menn greinir
ekki á um jafna stöðu kvenna —
mannlega og trúarlega séð. Engu að
síður þykja mér þessi úrslit fremur
hvetjandi en letjandi