Morgunblaðið - 22.10.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976
5
Frá þingi Sjálfsbjargar:
1300 virkir félagar -
900 styrktarfélagar
SJALFSBJÖRG, landssamband
fatlaðra, hélt sitt 18. þing dag-
ana 8.—10. oktðber s.l. Þingið
sátu 54 fulltrúar, en nú eru 13
félög innan sambandsins, tæp-
lega 1300 virkir félagar og yfir
900 styrktarfélagar.
t skýrslu stjðrnar og fram-
kvæmdastjðra yfir starfsárið
1975—1976 kom m.a. fram, að á
árinu voru flutt inn hjálpar-
tæki fyrir rúmlega 5 milljðnir
krðna. Þá hefur verið unnið að
framgangi samþykkta sfðasta
þings um tryggingamál og toll-
skrár og hefur fjármálaráðu-
neytið nú tilkynnt landssam-
bandinu, að tillögur þess I þess-
um málum verði efnislega
teknar til athugunar og endur-
skoðunar. Samtökin veittu tvo
námsstyrki á árinu, annan til
sjúkraþjálfara hinn til iðju-
þjálfara.
Þá hefur Sjálfsbjörg haft
samband við ýmsa aðila til þess
vinnumál, farartækjamál og
félagsmál. Varðandi atvinnu-
mál, álltur þing Sjálfsbjargar
að leysa þurfi atvinnumál
fatlaðra hið bráðasta og leggur
áherzlu á að fötluðum verði
gert kleift að komast út f at-
vinnulífið og leggja sitt af
mörkum f uppbyggingu þjóð-
félagsins og þjóðarbúsins.
Þingið skorar á rfki og sveitar-
félög að taka upp samþykkt
borgarráðs Reykjavíkur um
skipulagða, sérhæfða vinnu-
miðlun fyrir öryrkja.
Samþykktir þingsins um
farartækjamál fela m.a. annars
f sér ályktun um að á næsta ári
verði úthlutað eftirgjöf
aðflutningsgjalda af fimm
hundruð bifreiðum til öryrkja
og að aukin verði aðstoð við það
þá öryrkja sem ekki komast
ferða sinna án farartækis.
Þingið leggur áherzlu á að
settar verði sem allra fyrst tal-
að auðvelda fötluðu fólki
aðgang að byggingum og hefur
t.d. flugstöðvarbyggingunni f
Keflavík og Hótel Loftleiðum
verið breytt með hagsmuni
fatlaðra f huga.
Þá var á árinu unnið við múr-
vek og loftræstikerfi í íbúða-
álmu og er hún nú tilbúin undir
tréverk. Húsnæði fyrir vinnu-
stofur er fullgert svo og endur-
hæfingarstöðin. Er vonast til að
unnt verði að taka fólk utan
dvalarheimilisins til æfinga-
meðferðar síðar á árinu.
Dvalarheimilið er fullskipað og
margir á biðlista.
Á árinu tók til starfa Hjálpar-
tækjabanki Rauða kross
Islands og Sjálfsbjargar og
hefur hann tekað við útvegun
allra hjálpartækja.
Á þinginu voru gerðar
margar ályktanir varðandi
málaflokkana tryggingamál, at-
stöðvar í bifreiðar fatlaðra, að
ökukennsla fari fram á vegum
Endurhæfingarráðs ríkisins, að
reksturskostnaður og afskriftir
bifreiða öryrkja verði
frádráttarbærar við álagningu
tekjuútsvars og tekjuskatts.
Fjölmargar ályktanir voru
gerðar varðandi tryggingamál
öryrkja, m.a. um lágmarks-
reglur um örorkulífeyri, um
greiðslur fyrir læknishjálp líf-
eyrisþega, sem dvelja i heima-
húsum, um endurskoðun
örorkumats svo eitthvað sé
nefnt. Einnig er bent á það sem
nefnt er herfileg afturför að
lífeyrisþegar þurfi að greiða
sjúkratrygginagjöld og telur
þingið að bráðabirgðalögin
varðandi þau nr. 95/1976 séu
mistök sem beri að leiðrétta.
Varðandi félagsmál voru
einnig gerðar fjölmargar sam-
Framhald á bls. 26
Dagur iðnaðarins
á Akureyri í dag
DAGUR iðnaðarins verður á
Akureyri I dag. Iðnaðarráðherra,
dr. Gunnar Thoroddsen, og frú
munu sækja Akureyringa heim.
Fyrri hluta dags munu þau skoða
nokkur fyrirtæki. Siðan munu
þau sitja boð bæjarstjðrnar, I
hádeginu að Hðtel KEA, en þar
verður sérstaklega kynnt mat-
vælaframleiðsla fyrirtækjanna K.
Jðnssonar og Co. og Kjötiðnaðar-
stöðvar KEA.
Slippstödin hf.
- leiðrétting
SU leiða villa skaut sér inn I grein
um Slippstöðina á Akureyri í gær,
að sagt var að Pétur Jónsson væri
fyrsta skip sem stöðin byggði yfir
og lengdi. Það rétta er að áður
hafa verið framkvæmd svona
verk þar, t.d. á Hilmi SU og
Súlunni-EA. Pétur Jónsson var
tekinn sem eitt dæmi um þær
lánafyrirgreiðslur sem tiðkast
erlendis, en ekki hérlendas, þegar
á svona verki stendur.
Fundur um iðnaðinn hefst kl.
14 í Sjálfstæðishúsinu og er hann
opinn öllum. Þar mun ráðherra
flytja ræðu sem nefnist „Framtið
iðnaðar á Islandi". Hjörtur
Eiriksson, frkvstj. Iðnaðardeidar
SlS, mun einnig halda þarna
ræðu og verður hún um iðnað á
Akureyri í nútið og framtlð. Þing-
mönnum kjördæmisins, ásamt
fulltrúum fjölmiðla, iðnverka-
fólks, iðnaðarmanna og iðn-
rekenda, hefur verið sérstaklega
boðið tal fundarins.
I móttöku ráðherra þennan
sama dag verða aðilar I akur-
eyrskum iðnaði sérstaklega heiðr-
aðir fyrir störf og framlag til
íslensks iðnaðar.
1 morgun hófst sýning I Hafnar-
strætinu á ýmsum stórum og
fyrirferðarmiklum hlutum. Þar
má sjá heilt Haga-eldhús, radar-
mastur á skip með öllu tilheyr-
andi, ljóskastaramastur frá Sand-
blástur og málmhúðun og gos-
drykkjablöndunarvél. frá Sana,
svo að eitthvað sé hefnt. Þarna
verður fólki boðið upp á kaffiveit-
ingar.
þessum
frábæru *
kjörum:
Herrajakkaföt m/vesti . kr
Dömuterelyn dragtir.... kr
Dömu velúr pilsdragtir kr
Stakir dömujakkar frá kr
—4.000.
í Kjólar ......frá kr. 1.000.
□ Pils úr velúr terelyn og
bómull ............... kr
Smekkbuxur ........... kr
Dömuterelyn buxur .... kr
Herra terelyn buxur
Dömublússur.....
F ; Herraskyrtur ......... kr
□ Dömujakkapeysur ...... kr
Stuttermadömupeysur ..kr
Herrasportjakkar ......kr
[ Herrapeysur, stutterma kr
□ Bindi ................ kr
j Urval af skinni
frákr. 2.500.
Látið ekki happ úr hendi sleppa
LAUGAVEG 66 SlMI FRÁ SKIPTIBOROI 28155