Morgunblaðið - 22.10.1976, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson
Þorbjörn Guðmundsson
Bjorn Jóhannsson
Árii Garðar Kristinsson
Aðalstræti 6, sími 10100
Aðalstræti 6, simi 22480
Áskriftargjald 1 100.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasolu 60.00 kr. eintakið
VÍSINDALEGAR
RANNSÓKNIR
OG VEIÐISÓKN
Gildi rannsóknastarfa,
sem byggjast á vísinda-
legum grunni, hefur komið
glögglega í Ijós a undanförnum
áratugum Flest þjóðfélög, sem
lengst hafa náð í velmegun og
traustleika atvinnu- og efna-
hagsmála, hafa varið veruleg-
um fjármi'oum til alhliða
rarannsóknastarfa Þetta hefur
verið gert i Ijósi þeirrar reynslu,
að kostnaður við vísindalegar
rannsóknir hefur skilað sér rif-
lega i viðkomandi þjóðarbú
Þekking á þeim auðlindum,
sem afkoma okkar byggist á,
vinnslumöguleikum og mark-
aðsstaðreyndum, er beinlinis
forsenda skynsamlegrar
ákvörðunartöku og framtiðarör-
yggis. Ef til vill á engin þjóð
jafn mikið undir vísindalegum
rannsóknum og við Islending-
ar Nefna má rannsóknirá nátt-
úru landsins, bæði með tilliti til
nýtingar tiltækra auðlinda,
gróður moldar, jarðvarma og
fallvatna — og athuganir á eðlí,
orsökum og afleiðingum jarð-
hræringa, eldgosa og snjó-
flóða Ftannsóknir á auðlindum
sjávar, veiðiþoli fiskstofna og
öllu því, er að viðkomu þeirra
lýtur, skipta okkur ekki síður
máli Á þessum tveimur svið-
um, sem hér hafa verið nefnd,
jarðfræði hvers konar og fiski-
fræði, eigum við sérhæfðum
mönnum á að skipa, sem tvi-
mælalaust eru á heimsmæli-
kvarða, ef nota má það orð
Nefna mætti fjölmörg dæmi
um hreina arðsemi starfs
þeirra, þó hér verði látið nægja
að minna á verndun og vöxt
sildarstofnsins og margþættan
árangur í orkuöflun
Morgunblaðið hefur margoft
áréttað nauðsyn aðhalds i ríkis-
útgjöldum við ríkjandi aðstæð-
ur i efnahagsmálum þjóðarinn-
ar, en jafnframt mmnt á þá
staðreynd, að engin þróuð þjóð
ver jafn litlum hluta af þjóðar-
tekjum sínum í rannsóknastörf
og við í þessu efni hefur ekki
verið hyggilega að málum
staðið, þó rétt sé að viður-
kenna, að núverandi ríkisstjórn
hefur sýnt þessum málum auk
ínn skilning og stuðning, bæði
varðandi fiskirannsóknir og
orkuoflun
Niðurstöður fiskifræðilegra
rannsókna hafa mjög sett svip
sinn á þróun mála hér á landi
Þær vóru meginröksemdir og
forsendur útfærslu fiskveiði-
landhelginnar, ákvarðanatöku
um friðunarsvæði, reglugerðar-
ákvæða um veiðarfæri, rann-
sókna á fiskstofnum, sem van-
nýttir hafa verið, tilraunaveiða
og tilraunavinnslu. Engu að
siður þykir sumum sem ekki
hafi nægilega verið gengið
fram í því að takmarka veiði-
sókn okkar, einkum í þorsk-
stofninn
Ákvarðanir um veiðisókn
hljóta að grundvallast á tveim-
ur meginforsendum: fiskifræði-
legum og efnahagslegum Ekki
þótti fært að takmarka veiði-
sókn okkar frekar en gert hefur
verið sökum þess, að frekari
takmarkanir hefðu ekki sam-
ræmzt efnahagslegum aðstæð-
um þjóðarinnar í dag og jafnvel
stuðlað að atvinnuleysi í sjávar-
plássum landsins Þá hefur og
verið haft í huga, að veiðisam.i
ingar við Breta renna út 1
desember nk , og þá muni
verulega hægt að draga úr
heildarsókn í þorskstofninn,
sem þeir hafa aðallega sótt í.
Veiðar V-Þjóðverja beinast
einkum að ufsa og karfa og
veiðiheimildir Norðmanna og
Belga eru óverulegar Auk
Breta eru það einkum Færey-
ingar, sem sækja í þorskstofn-
inn. Þeir eiga jafnvel enn meira
undir fiskveiðum en við og hafa
notið sérstöðu í takmörkuðum
veiðiheimildum annarra þjóða
á Islandsmiðum
Þegar mál eru skoðuð frá
öllum hliðum er Ijósara en ella,
að stefna sú, sem mörkuð hef-
ur verið um veiðisókn íslend-
inga a þessu ári, gat naumast
orðið með öðrum hætti en verið
hefur. í þessu efni er eftirtekt-
arvert að helztur talsmaður
stjórnarandstöðunnar á þingi i
fiskveiði- og landhelgismálum,
Lúðvík Jósepsson, fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, hefur
lýst samþykki sínu við mótaða
stefnu um íslenzka veiðisókn.
Hann sagði á Alþingi í fyrra-
dag, efnislega að sjávarútvegs-
ráðherra og rikisstjórn hefðu
ekki getað gengið lengra en
gert var til að draga úr veiði-
sókn íslenzka fiskiskipaflotans
Hann bætti þvi við, að þær
ráðstafanir, sem gerðar hefðu
verið til veiðitakmarkana,
hefðu verið verulegar, og að
hvorki hefði verið rétt né auð-
velt að ganga lengra Þannig
hefur talsmaður stærsta stjórn-
arandstöðuflokksins tjáð sig
fylgjandi gjörðum núverandi
sjávarútvegsráðherra í þessu
efni Það út af fyrir sig segir
sina sögu, sem óþarfi er að
tíunda frekar Þessi samstaða
stjórnar og stjórnarandstöðu
dregur hins vegar ekki úr gildi
fiskifræðilegra niðurstaðna
Þær eru eftir sem áður fyrir
hendi, jafnógnvekjaridi og áð-
ur Þær eru og rauði þráðurinn
i stjórnunaraðgerðum á þess-
um vettvangi, þó að ekið hafi
verið hægar eftir ójöfnum efna-
hagsvegi þjóðarinnar en gert
hefði verið, ef vegurinn hefði
leyft meiri hraða
r
Eyjólfur Konrád Jónsson alþir
Vegna hmnar miklu og að sumu leyti
villandi umræðu. sem orðið hefur um
málefm Slátursamlags Skagfirðinga
mun ég hér á eftir rekja i eins fáum
orðum og unnt er gang mála f h
stjórnar félagsins
Liklega gefa tvö bréf. sem send voru
forsætisráðherra. landbúnaðarráð-
herra, dómsmálaráðherra. yfirdýra-
lækm og héraðsdýralækm 4 þ m
bezta mnsýn i aðdraganda mála, og
birtast þau þvi hér á eftir
,,Haustið 1 973 tók fyrst að brydda
á alvarlegri tregðu við að veita
Slátursamlagi Skagfirðinga leyfi til
sauðfjárslátrunar Leyfið var þó veitt
um siðir, enda bárust áskoranir þorra
bænda i héraðinu þess efnis ráðu-
neytinu. En haustið 1974 var neitað
um leyfi til sauðfjárslátrunar á þeim
forsendum, að sláturhús félagsins
uppfyllti ekki heilbrigðisreglur, og á
sama veg fór á s.l. hausti. Hinsv^gar
var slátrun stórgripa heimiluð bæði
haustin
Þegar hér var komið, eða nánar
tiltekið 30. okt. 1974 ritaði stjórn
Slátursamlagsins Kaupfélagi Skag-
firðinga bréf þar sem boðið var upp á
samvinnu um slátrun i einhverju
formi t.d. þannig að Kaupfélag Skag-
firðinga tæki að sér slátrun sauðfjár
fyrir SS, en hús þess yrði hagnýtt til
slátrunar stórgripa. Þessu tilboði
svaraði K.S afdráttarlaust neitandi
vorið 1 975, sbr. fylgiskjal 1.
Tók þá stjórn SS að vinna að
undirbúningi þess að lagfæra slátur-
húsið þannig að það uppfyllti allar
kröfur um aðbúnað og hreinlæti og
skylt væri að veita leyfi til slátrunar
sbr. 14 gr. 1. 101/1966, þar sem
segir:
,,Leyfi til slátrunar skal veita öll-
um félögum og einstaklingum, sem
slátrunarleyfi höfðu haustið 1965,
svo og þeim, sem eignazt hafa
sláturhús þessara aðila og tekið við
rekstri þeirra."
Fullt samráð var að sjálfsögðu haft
við yfirdýralækni, sbr. fskj. 2, enda
benti hann á arkitektinn, sem verkið
annaðist. Þá höfðu forsvarsmenn
fyrirtækisins margsinnis samráð við
Stein Þ. Steinsson héraðsdýra-
lækni, og voru allar ábendingar og
athugasemdir dýralæknanna teknar
til greina, enda urðu teikningarnar
þrjár talsins og hin síðasta ekki ein-
ungis samþykkt af yfirdýralækni,
heldur beinlinis gerð eftir hans tillög-
um.
Sveinbirni Dagfinnssyni ráðu-
neytisstjóra var jafnharðan greint frá
gangi mála, enda skipta samtöl við
hann um mál þetta tugum, ef ekki
hundruðum og skýrt skal tekið fram,
að viðskiptin við hann hafa í einu og
öllu verið ánægjuleg.
Með hliðsjón af framanrituðu er
furðulegt að yfirdýralæknir skuli I
bréfi dags 21. sept. s.l. levfa sér að
segja:
„Erfitt er að átta sig á hvers vegna
hafnar eru kostnaðarsamar breyting
ar á þessu húsi án þess að fyrir liggi
samþykktar teikningar eins og lög
mæla fyrir um."
Vonandi er þó að ekki þurfi til þess
að koma að dómsrannsókn skeri úr
um það, hvað hér sé á ferðinni.
Páll A. Pálsson yfirdýralæknir kom
í gær til Sauðárkróks og ,,tók húsið
út" Skilst forsvarsmönnum Slátur
samlagsins, að hann muni láta af
andstöðu gegn því að húsið verði
löggilt, þannig að nú megi vænta
sláturleyfisins. Þess vegna verður
málið ekki rakið frekar að þessu
sinni, þótt af nægu sé að taka.
Nauðsynlegt er þó að taka fram,
að fyrra laugardag fórum við Ólafur
Sigurðsson, arkitekt, að Keldum og
náðum yfirdýral óvörum, en hann
stundar þann leik að láta ekki ná til
sin. Þar taldi hann upp nokkur atriði,
sem gera þyrfti. Ég spurði hann,
hvort þetta væri tæmandi talið og
svaraði hann þvi afdráttarlaust ját-
andi. Allt, sem hann fór fram á hefur
nú verið uppfyllt.
Virðingarfyllst,
f.h. Slátursamlags Skagfirðinga
Ey. Kon. Jónsson.
Greinargerð v/Slátursamlags
Skagfirðinga Sauðárkróki
Að áliðnu sumri 1975 var ég beð-
inn um að gera tillögu að endurbót-
um á sláturhúsi Slátursamlags Skag-
firðinga, Sauðárkróki. Þessi beiðni
var tilkomin vegna ábendingar Páls
A. Pálssonar, yfirdýralæknis. Hann
hafði tjáð forsvarsmönnum slátur-
samlagsins að ég væri eini aðilinn,
utan starfsmanna SIS, sem hefði
fengist við byggingar sláturhúsa að
einhverju ráði.
V_________________________________________
Áður en ég tók verkið að mér
ræddi ég við yfirdýralækni um málið
og studdi hann beiðni slátursamlags-
manna mjög.
Um miðjan ágúst 1975 skoðaði ég
síðan sláturhúsið, lýsti ástandi þess,
teiknaði upp tillögu að endurbótum
og lýsti þeim. Þessar tillögur voru
skoðaðar bæði af heimamönnum og
yf irdýralækni og var óskað eftir
nokkrum breytingum.
Þar sem ekki varð úr framkvæmd-
um þetta haust, dróst frekari teikni-
vinna fram í febrúar 1976. Þá er
gerð teikning með umbeðnum breyt-
ingum (teikn. nr. 2). Þessi teikning
fer til umsagnar og skoðunar sömu
aðila og áður. Heimamenn gerðu
engar athugasemdir, en athuga-
semdir yfirdýralæknis berast í bréfi
til Landbúnaðarráðuneytisins dags.
18 júni 1976.
Strax og þessar athugasemdir ber-
ast er gerð ný teikning (teikn. nr. 3)
þar sem reynt er að uppfylla allar
óskir yfirdýralæknis Þessi teikning
er send sömu leið og fyrri teikningar.
Engar athugasemdir bárust við
þessa teikningu fyrr en 25. sept. sl.
þegar ég talaði siðast við yfirdýra-
lækni. Gerði hann þá fjórar óveruleg
ar athugasemdir, sem auðvelt var að
lagfæra i snatri og eina sem erfitt
var að framkvæma á skömmum
tima, en hefur þó tekist. Þessi sið-
búna krafa var um að sett yrði upp
s.k. bakkaborð, með tilheyrandi, við
innanúrtöku.
Nú hefur öllum athugasemdum,
sem kunnar eru, verið fullnægt og
ætti því ekkert að vera til fyrirstöðu
um sláturleyfi.
Ólafur Sigurðsson
Meðfylgjandi:
teikningar nr. 1,2 og 3
afrit af athugun dags. 22.8 1 975
Fjör f ærist
í leikinn
Þegar við Ólafur Sigurðsson arki-
tekt kvöddum yfirdýralækni að Keld-
um skömmu fyrir hádegi laugardaginn
25 september eftir ánægjulegar við-
ræður. þar sem þeir kunnáttumennirn-
ir höfðu farið rækilega yfir fjölmarga
liði, vorum við sannfærðir um, að nú
yrði mælt með löggildingu hússins, ef
tækist að uppfylla öll fimm skilyrði
yfirdýralæknis, en vissum ekki hvort
unnt yrði að fá „bakkaborðið" smíðað
svo timanlega, að slátrun gæti nokkru
numið, en miðað hafði verið vi5 að
slátra 8 þús fjár Var nú tekið til
óspilltra málanna, og með ærnum til-
kostnaði tókst að koma borðinu i húsið
viku síðar, eða aðfararnótt sunnudags-
ins 3 þ.m og setja það upp þann dag
Þá hafði öllum athugasemdum yfir-
dýralæknis verið fullnægt, og hefði því
mátt ætla, að meðmæli með löggild-
ingu fengist greiðlega En enginn
treysti því þó, þegar hér var komið,
þvi að margt hafði gerzt heldur óhugn-
anlegt, en hér verður þó aðeins rakið
það, sem skjalfest er eða á vitorði
margra
Eftirfarandi skeyti sendi ég yfirdýra-
lækni þriðjudaginn 28 september, þvi
að mér tókst ekki venju fremur að ná
símasambandi við hann (Þó skal tekið
fram, að elskuleg símastúlka kom
margsinnis boðum til hans, en án
árangurs):
28 9 1976
Páll A. Pálsson,
yfirdýralæknir
Keldum,
Reykjavík
í framhaldi af viðræðum okkar Ól-
afs Sigurðssonar, arkitekts, við yður
s.l. laugardag leyfi ég mér hér með
að skýra yður frá þvi f.h. Slátursaml.
Skagfirðinga að tekizt hefur að út-
vega öll þau tæki og áhöld, sem þér
annars vegar og héraðsdýralæknir
hins vegar hafið óskað, að i slátur
húsinu verði og er unnið að uppsetn-
ingu. Síðasti hluturinn, borðið, sem
smiða þurfti, verður settur upp um
næstu helgi.
Stjórn Samlagsins óskar að fá leyfi
til slátrunar hið allra bráðasta, helzt
frá n.k. fimmtudegi að þvi áskildu að
lagfæringum verði lokið n.k. sunnu-
dag en i öllu falli að slátrun verði
unnt að hefja n.k. mánudagsmorgun.
Með kærri kveðju,
Eyjólfur Konráð Jónsson
Lögmenn E.K. Jónsson o.fl.
Vesturgötu 1 7, R.
11164
Dýralæknir týndur
Þegar mér tekst enn ekki næsta dag.
miðvikudaginn 29 sept . að ná sam-
bandi við yfirdýralækni á starfsstöð
hans og engar upplýsingar þar að fá
um dvalarstað hans, spyrst ég fyrir um
hann á heimili hans og fæ þar þær
einu upplýsingar, að hann sé utanbæj-
ar og ekki vitað til að hann muni fara
norður. Hef ég þá samband við Stein
Steinsson, héraðsdýralækni, um há-
degisbilið og tjáir hann mér, að yfir-
dýralæknir muni koma á Sauðárkrók
næsta dag, að mér skildist m.a. til að
„taka út" hús Slátursamlagsins. Sömu
upplýsingar fékk einn stjórnarmanna
SS, sbr útdrátt úr gerðabók SS Þenn-
an miðvikudag flaug ég norður, og
vorum v.ð nú bjartsýnir á að fá a m k
að sjá framan i embættismanninn
Hann kom síðan um miðjan dag,
fimmtudaginn 30. sept. og renndi sér
beint í sláturhús kaupfélagsins, eins og
„lög' gera ráð fyrir. Beið ég, ásamt
stjórnarmönnum SS á þriðja klukku-
tíma í litla húsinu þar til tveir þeirra
röltu yfir i stóra sláturhúsið til að afla
frétta, en var meinað allt samband við
dýralækna Hringdi ég þá í sláturhús
K S og bað fyrir skilaboð til yfirdýra-
læknis að hringja til mín, þar sem við
hefðum beðið hans lengi dags
Skömmu fyrir kl 7 upplýsti síma-
stúlkan i K S -húsinu, að yfirdýralækn-
ir hefði fengið boðin frá mér, en sagt,
að hann talaði ekkert við mig. Var
hann þá fyrir skömmu farinn út i fylgd
kaupfélagsstjórans Um kl. 7 hringdi
ég heim til kaupfélagsstjórans, sem
svaraði Ég kynnti mig og bað um að fá
að tala við yfirdýralækni, sem ég þá
vissi að þar var staddur „Hann er að
borða var svarið, — e1<kert meir, en
hvor skildi annan, enda alllöng þögn