Morgunblaðið - 22.10.1976, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÖBER 1976
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI — EFNAHAGSIVIAL — ATHAFNALÍF.
h
Norsk Hydro hagn-
ast af sölu olíu
TEKJUR af olíu frá Ekofisk-
olíulindunum norsku áttu mikinn
þátt í auknum hagnaði Norsk
Hydro í fyrra og bættu upp lélega
afkomu annarra framleiðslu-
greina fyrirtækisins, þar á meðal
áls og áburðarframleiðslu.
Olía var ekki nema 20% af sölu
fyrirtækisins en samt sem áður
kom rúmur þriðjungur af tekjum
þess frá þeirri sölu og er búizt við,
að olian eigi eftir að verða enn
stærri tekjuliður hjá fyrirtækinu.
Olíuframleiðslan í fyrra var
800.000 lestir, sem er 2.5 sinnum
meira en árið áður og er búizt við
að þessi framleiðsla aukist um
50% 1976—77.
Þá er búizt við að sala á jarðgasi
frá Frigg-svæðinu í Norðursjó
verði á þar næsta ári stór tekjulið-
ur Norsk Hydro.
Markaður hefur batnað veru-
lega fyrir alla framleiðsluþætti
Norsk Hydro á þessu ári, að und-
anteknum tilbúnum áburði. Eru
uppi áform hjá fyrirtækinu um að
auka álframleiðslu sína, en á
henni var tap á síðasta ári. Ætlar
fyrirtækið að stækka álverk-
smiðju sína á Karmey í Noregi
þannig að framleiðslugeta aukist
um 75.000 lestir. Þá er uppi áætl-
un um að byggja nýja álverk-
smiðjju í grennd við áburðarverk-
smiðju fyrirtækisins við Glom-
fjörð, en sú bygging mun bfða þar
til ný vatnsvirkjun verður tekin i
notkun á svæðinu.
Þessar upplýsingar komu fram
í ræðu, sem Johan Holte, forstjóri
Norsk Hydro, héit i síðustu viku i
London. Skýrði hann einnig frá
því í ræðu sinni að viðræður
stæðu yfir um hugsanlega oygg-
ingu álverksmiðju á íslandi.
Hagnaður Norsk Hydro að
ógreiddum skatti var á síðasta ári
499 milljónir norskra króna.
r t
Dregur úr aukningu
áleftirspurnar
AÐ undanförnu hefur dregið
nokkuð úr eftirspurn eftir áli,
samkvæmt sfðustu tölum frá sam-
tökum álframleiðenda.
Aluminium Federation. A
þriggja mánaða tfmabilinu jún'
—ágúst voru afhentar 46.744 lest-
ir af nýunnuáli miðað við 56.427
lestir næsta þriggja mánaða tíma-
bil á undan og 36.416 lestir á
tímabilinu júnf-ágúst í fyrra.
Kinnig dró úr eftirspurn eftir
endurunnu áli á tfmabilinu júnf-
ágúst miðað við þriggja mánaða
tfmabilið á undan.
Þessi minnkun stafar að hluta
af minni atvinnustarfsemi yfir
sumarmánuðina en einnig er
talið Ifklegt að eftirspurn sé að
færast f eðlilegt horf eftir miklar
enduruppbyggingar birgða fyrr á
þessu ári. Sendingar á völsuðu áli
eru þó enn fyrstu 8 mánuði ársins
um það bil 18% meiri en þær
voru á sama tfmahili f fyrra og á
steyptu áli eru þær 15% meiri en
f fyrra.
Innflutningsgjöld af hráefni:
Vörugjald óbreytt —
tollar í endurskodun
MIKIL óánægja er meðal forráða-
manna ýmissa iðngreina með þau
aðflutningsgjöld, sem iðnaðurinn
þarf að greiða af mörgum aðföng-
um sinum. Eins og kom fram hér
á viðskiptasfðunni sl. sunnudag,
er það ekki óalgengt, að málm-
iðnaðurinn þurfi að greiða allt a
35% tolla auk 18% vörugjalds af
hráefnum á meðan tollur af er-
lendum samkeppnisvörum flutt-
um inn tilbúnum er aðeins 2% og
fellur alvég niður um áramót.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið aflaði hjá fjár-
mála- og viðskiptaráðuneytinu er
ekki búizt við þvf að vörugjaldið
verði fellt niður enn um sinn.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu
skal það vera óbreytt til áramóta
77—78 og er það á valdi Alþingis
hvort því verður breytt.
Hvað tolla snertir þá er verið að
endurskoða tollalöggjöfina en ný
tollskrárlög eiga að taka gildi um
næstu áramót. Samkvæmt
upplýsingum Valgeirs Ársæls-
sonar, í viðskiptaáðuneytinu, eru
tollar í endurskoðun vegna frum-
varpsins, sem væntanlega verður
lagt fyrir Alþingi í næsta mánuði,
en unnið hefur verið að þessari
endurskOðun í tvo mánuði.
Hann benti á að þegar hafa
verið felldir niður tollar af bein-
um hráefnum og vélum til iðn-
aðar en oft væri erfitt að gera sér
grein fyrir hvort innfluttar vörur
ættu að teljast til hrávöru eða
fjárfestingarvöru. Þá er aðeins
greiddur hálfur söluskattur af
beinum hráefnum.
Iðnaðurinn fær núendurgreidd
aðflutningsgjöld af hráefnum, en
þar sem oft vill verða dráttur á
þessari endurgreiðslu eiga fslenzk
iðnfyrirtæki oft í erfiðleikum
með að láta kostnaðaráætlanir
standast. Auk þess skapa inn-
flutníngsgjöldin erfiðleika við út-
vegun fjármagns, til kaupa á inn-
lendri framleiðslu þar sem þau
geta upp undir tvöfaldað verð
vörunnar.
ÞAÐ er lítill vafi á þvf, að mörg-
um almennum borgaranum er
það umhugsunarefni hvernig bezt
sé að koma fyrir fé, sem sparast
hefur, án þess að það tapi verð-
gildi sfnu en beri um leið nokk-
urn ávöxt. Geysileg sala á spari-
skfrteinum rfkissjóðs og happ-
drættisskuldabréfum á undan-
förnum árum sýnir að almenning-
ur vill gjarnan fjárfesta en ef til
vill einnig að hann er leitandi
eftir fjárfestingartækifærum.
Þar sem ætla má að mörgum sé
ekki fullljóst hvaða f járfestingar-
möguleikar eru fyrir hendi og
hvaða ábata eða áhættu þeir geta
haft f för með sér fékk Morgun-
blaðið Gunnar Hálfdánarson,
starfsmann verðbréfamarkaðs
Fjárfestingafélags tslands, f lið
með sér til að skýra helztu fjár-
festingartækifæri, sem fyrir
hendi eru og hugsanlegan ábata
eða áhættu. Gert er ráð fyrir að
fjárfestir hafi þegar fest kaup á
fasteign eða bfl og þvf sé ekki um
slfkar fjárfestingar að ræða. Við
gerð skýringa sinna gerði Gunnar
ráð fyrir að fjárfestirinn hefði
nokkra upphæð til ráðstöfunar,
t.d. eina milljón króna. Fara skýr-
ingar hans hér á eftir:
Ekki er hægt að gefa einhlitar
leiðbeiningar um hvernig ráð-
stafa eigi ákveðinni upphæð, þar
Gunnar Hálfdánarson, starfsmaður Verðbréfamarkaðjins, og nokkur
f járfestingartækifæri.
Ljósm. Mbl. Kristinn Ölafsson.
Hvernig á
að fjárfesta?
— Nokkur f járfestingartækifæri útskýrð
sem er um að ræða samverkun
margra þátta, svo eem hvaða fjár-
festingar fjárfestirinn hefur gert
áður, aldur hans og heilsa, hversu
stórri fjölskyldu hann þarf að sjá
fyrir, hvaða skatt hann þarf að
greiða af viðbótartekjum slnum,
til hve langs tíma festa má pen-
ingana og hver afstaða fjárfestis-
ins er til áhættu og fleira.
Ég tel, að það sé hyggileg stefna
hjá fjárfestum að láta ekki fram-
tlð sína eða fjölskyldu sinnar
hvíla á neinni einni tegund fjár-
festingar, heldur eigi sérhver
fjárfestir að velja saman fjárfest-
ingar með tilliti til allra þeirra
þátta, sem ég nefndi I upphafi.
Ég mun telja upp nokkur atriði,
sem ég tel hyggilegt að hafa í
huga, þegar taka skal ákvörðun
um ráðstöfun ákveðinnaf pen-
ingaupphæðar. Upptalningin er
þannig, að hafi fjárfestir íhugað
lið 1 og ákveðið hvernig hann
skuli vera, eigi að athuga lið 2, en
ekki fyrr o.s.frv.
Liðir 1 til 4 lúta að vernd, en
liðir 5 til 6 lúta að mögulegum
leiðum til fjárhagslegs ávinnings.
Fjárfestar haldnir áhættufíkn
leggja litla áherslu á liði 1 til 4, en
þeir sem eru varkárari vilja
gjarnan íhuga liði 1 til 4 vandlega
áður en þeir leggja út f áhættu-
samar f járfestingar.
1. Llftrygging
fjárfestis
og maka hans
Dauðsfall getur átt sér stað,
hvenær sem er, vegna slyss eða
skyndilegs heilsubrests. Það væri
I hæsta máta kaldhæðnislegt, ef
allar fjárfestingar viðkomandi
fjárfestis væru þannig, að von-
laust væri fyrir þá, sem voru á
framfæri hans, að losa fé í náinni
framtíð til að mæta brýnustu út-
gjöldum.
Tryggingarupphæð gæti miðast
við t.d. tekjur viðkomandi, stærð
fjölskyldunnar, aldur barna og
þarfir þeirra til framfærslu, aldur
og heils.u þeirra, sem tryggja á.
Áhrif á þessa tryggingu geta og
haft hugsanleg hlunnindi frá
vinnuveitanda, ef dauðsfall ætti
sér stað. Trygging þessi er frá-
dráttarbær til skatts.
2. Slysa- og sjúkratrygging
Bætur þær, sem fást frá Trygg-
ingastofnun ríkisins eru það lág-
ar, að heppilegt kann að vera að
fá sér þessa tryggingu hjá trygg-
ingafélögunum, en þau bjóða m.a.
tryggingu, sem gildir allan sólar-
hringinn. Sömu atriði hafa áhrif á
upphæð þessarar tryggingar og
upphæð líftryggingarinnar, sem
áður var nefnd. Trygging þessi er
ekki frádráttarbær til skatts.
3. Lífeyrissjóður
Lífeyrissjóðir tryggja mönnum
eftirlaunagreiðslur á elliárunum
og veita rétt til lántöku. Lífeyris-
sjóðsgreiðslur eru frádráttarbær-
ar til skatts.
4. Sparisjóðsbækur
Fólk verður að hafa einhverja
lausa peninga til að mæta óvænt-
um neyðartilvikum, t.d. vegna
slysa, veikinda, missis atvinnu
o.s.frv. Gott er að hafa einhverja
upphæð inni á sparisjóðsbók til
öryggis, en þessa upphæð er hins
vegar hægt að minnka talsvert, ef
líf-, slysa- og sjúkratrygging er í
lagi. í þessu sambandi getur verið
varasamt að láta peninga slna I
bundnar innlánsbækur, þar sem
t.d. getur tekið 6 mánuði að leysa
út úr. Einnig vil ég benda fólki á
að vera ekki með meira en nemur
máðaðarútgjöldum sínum inni á
ávísanareikningi slnum, þar sem
vextir hans eru mjög lágir, þ.e.
3%, en sparisjóðsbækur gefa þó
13% á ári. Það leiðir af sér óþarfa
vaxtatap að vera með of miklar
upphæðir inni á ávísanareikn-
ingnum.
5. Verðbréf
Þegar fjárfestir er búinn að
ihuga vel liði 1 til 4 og á enn
einhverja upphæð afgangs, er
eðlilegt að álykta, að hann vilji
fjárfesta I einhverju, sem gefur
meiri arðsemi. Til að geta notið
hennar verður hann að vilja og
geta bundið peninga sfna til
ákveðins langs tlma og/eða tekið
á sig áhættu.
Hér á Islandi er ekki um marga
fjárfestingarvalkosti að" ræða.
Þeir helstu eru verðtryggð spari-
sklrteini Ríkissjóðs, happdrættis-
bréf Ríkissjóðs, veðskuldabréf,
innlán á vaxtaaukareikning hjá
bönkum og hlutabréf.
Aður en fjárfestar fara út I ein-
hVerjar þessara fjárfestinga, er
gott fyrir þá að hlýða sér yfir með
tilliti til eftirfarandi atriða.
a. Heildarmarkmið með
fjárfestingunni
Það er algengt að fólk leggi út I
fjárfestingar með þeim orðum
einum að það ætli sér að hagnast,
en gerir sér um leið ekki ljóst, I
hve langan tíma það geti bundið
fé og hvaða áhættu það sé tilbúið
að taka. Persónuleikaeinkenni
viðkomandi fjárfestis ráða því,
hversu mikla áhættu hann tekur.
Fjárfestar ættu einungis að
setja sér takmark, sem þeir hafa
góðar líkur á að ná. Fjárfestar
tapa oft stórfé á því að ætla sér að
verða ríkir á skömmum tfma, og
fara þvf út I mjög áhættusamar
fjárfestingar. Betra er að setja
markið lægra og hafa þá góðar
líkur á að ná því, þ.e. á lengri
tíma.
b. Lengd
fjárfestingartímans
Þegar fjárfestar eru að íhuga til
hve langs tlma þeir eigi að fjár-
festa, er einkum tvennt, sem þeir
verða að hafa I huga.
1. Hvenær á að nota féð I annað,
t.d. að foreldrar, sem ætla að
hjálpa barni slnu i dýru námi
eftir 3 ár festa ekki fé sitt til 6
ára.
2. Áhættan er meiri eftir þvf,
sem fjárfest er til lengri tfma, þar
sem spár um framtíðina verða
ætíð óöruggari því fleiri ár sem
eru með I dæminu, m.ö.o. óvissan
um framtíðina eykst.
Þegar búið er að íhuga liði 1—3
og 4a—4c, er kominn tími til að
íhuga fjárfestingar I fleiru en því,
sem ég nefndi I upphafi.
Verðtryggð spari-
skírteini Ríkissjóðs
Fjárfestar ættu ætlð að hafa
hluta eigna sinna verndaðan gegn
skyndilegri aukningu verðbólg-
unnar. Spariskírteini Ríkissjóðs
eru verðtryggð með vísitölu bygg-
ingarkostnaðar. Þau veita góða
vernd gegn verðbólgunni, en gefa