Morgunblaðið - 22.10.1976, Page 34

Morgunblaðið - 22.10.1976, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÖBER 1976 t Eiginmaður minn og faðir SIGURJÓN JÓNSSON frá Djúpadal andaðist að Elliheimilinu Grund 2 1 október Ragnheiður Rógnvaldsdóttir. Júlíana Sigurjónsdóttir. t Bróðir okkar VALGEIR ÓLI GÍSLASON Suðurgotu 35 Hafnarfirði lést miðvikudaginn 20 október Systkini hins látna. t Eiginkona min og móðir okkar MARGRÉT HERTA FRIORIKSDÓTTIR FÆDD REIHS Þinghólsbraut 33 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju laugardaginn 23 október kl 1 ^ 30 Magnús Ingi Sigurðsson Sigríður Margrét Kristín Marfa Herta Maríanna t Útför INGIBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR frá Vegamótum, Stokkseyri fer fram laugardagmn 23 okt kl. 2 e h frá Stokkseyrarkirkju Börn hinnar látnu. Útför ""l1™ SIGURBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Hvarfi, Víðidal. sem andaðist 1 1 október hefur farið fram Þórdís Valdemarsdóttir, Kristján Steinsson, Guðrún Valdemarsdóttir, Agnar Guðmundsson, Ásgeir Valdemarsson, Jóna Marteinsdóttir, Erlingur Valdemarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Útför SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR bónda Vígholtsstöðum Dalasýslu er lézt 14 október, fer fram fra Hvammskirkju í Dölum, laugardaginn 23 október kl 14 Sigurborg Sigurbjörnsdóttir börn og aðrir aðstandendur. t Útför föður okkar og tengdaföður MAGNUSAR PÉTURSSONAR fyrrum kennara fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík laugardaginn 23 október kl 1 0 30 árdegis Sverrir H. Magnússon Erla Haraldsdóttir Bragi H. Magnússon Gail Magnússon Ingibjörg R. Magnúsdóttir Bjarni V. Magnússon Stefaníu Þ. Árnadóttir Ragnar M. Magnússon Þórunn Ingjaldsdóttir Gunnar V. Magnússon Jóhanna Haraldsdóttir. t Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát oq útför móður minnar, tengdamóður, ömu og systur, CAMILLU FRIÐBORGAR KRISTJÁNSDÓTTUR bókavarðar, Stykkishólmi Gunnfríður Olafsdóttir, Helgi Runólfsson. börn og bræður hinnar látnu. t Innilegar þakkír fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför MÖRTU BJARNÞÓRSDÓTTUR JÓNSSON Sigþrúður Friðriksdóttir Sturla Friðriksson Arinbjörn Kolbeinsson Sigrún Laxdal og barnabörn Minning: Þorsteinn Jónsson /yrrcerandi kmipfélags- stjóri, Reyðarfirði Fæddur 20/7 1889. Dáinn 13/10 1976. „Allra daga kemur kvöld“ Þorsteinn í Hermes, eins og hann var tíðast nefndur austur hér, er látinn. Einn litríkasti per- sónuleiki sinnar samtíðar á Austurlandi, enda stundum í fjar- lægð kallur „goðinn Austfirð- inga“. Hann lézt 13. þ.m. í Lang- legudeild Landspítalans í Reykja- vík, en verður í dag borinn tíl hinstu hvíldar i ættargrafreitnum á Egilsstöðum. Ég leit inn til hans fyrir tæpum mánuði síðan og duldist þá ekki, að óðum dró að leiðarlokum, svo fannst mér hann hafa látið á sjá. — Dauðinn, hinn ófrávíkjanlegi förunautur þessa undarlega jarð- lífs, kemur ekki alitaf sem óvinur, heldur miklu frémur sem vinur, er líkams- og sálarkraftar eru með öllu þrotnir, eins og mér sýndist þar. Samt sem áður setti mig hljóðan og sár söknuður fyllti huga minn, er útvarpið flutti dánarfregn Þorsteins Jónssonar og svo mun mörgum hafa farið, því hann var með fádæmum vin- margur austur hér, þó margt af samferðafólkinu sé óneitanlega horfið af sjónarsviðinu. Margt kom vafalaust til um vin- sældir Þorsteins, en ekki hvað sízt hans góða hjartalag því það fór ekki á milli mála, að þeir sem þekktu hann bezt, mátu hann mest og segir það meir en mörg orð. „Tilfinningin talar heit / talar margt sem engin veit.“ Lífsstarf sumra er þannig samansett, að þeirra eigin tilfinningar eru ekki alltaf augljósar. Starf Þorsteins Jónssonar var margþætt, á langri lifsleið og sem oddamaður og það var hann víðast, þar sem hann kom við sögu, varð hann vitanlega oft á tíðum að taka ákvarðanir, sem ekki voru að allra skapi. En allt um það, fundu menn, að hjartað var hlýtt er undir sló. Þorsteinn Jónsson var glæsi- menni i sjón. Hár vexti og sómdi sér vel. Léttur í spori og hinn fyrirmannlegasti í fasi og fram- göngu. Ræðinn og skemmtilegur, ósvikinn húmoristi, hvort heldur var í heimahúsum eða samkvæm- um. Söngmaður ágætur og hafði einstaklega gott lag á því að „hefja gleði hátt á loft“ þar sem hann var staddur á mannamótum og þetto var i svo góðu samræmi við sjálft mannlífið, að fyrir það var hann aufúsugestur alls staðar, enda tækifærisræður hans oft bráð snjallar. Hann var höfðingi heim að sækja og veitull í bezta lagi — frjálsmannlegur i allri um- gengni og lét þá óspart fjúka gamanmál. Hann var ferðagarpur mikill og náttúruskoðari. Átti góða og trausta hesta, sem hann ferðaðist á um fjöll og öræfi og var þá hvorki vega né veður vand- ur. Ég held honum hafi þótt hressingin bezt að lenda í nokkru slarki. Eins og hér að framan er að vikið, gegndi Þorsteinn mörgum störfum um ævina og leysti þau af hendi af mikilli röggsemi. En kunnastur mun hann þó sem einn af þeim öndvegismönnum t Jarðarför bróður okkar BJARNA JÓHANNESSONAR fer fram frá Þjóðkírkjunni í Hafnarfirði, laugardaginn 23 október kl 10 30 Blóm afþökk- uð Guðmundur Jóhannesson Sveinn Jóhannesson íslenzku þjóðarinnar, sem gengu samvinnustefnunni á hönd i ár- roða þessarar aldar, í beinu fram- haldi af sjálfstæðisbaráttu þjóðar- innar, en eru nú sem óðast að hverfa af sjónarsviðinu, með mikil og farsæl störf að baki, fyrir land og lýð. í bókinni íslenzkir samtíðar- menn er Þorsteinn kynntur á þessa leið: „Fæddur 20. júlí 1889 á Egilsstöðum á Völlum, S.-Múl. — Foreldrar Jón Bergsson bóndi þar og kona hans Margrét Péturs- dóttir. Nám í Gagnfræðaskólan- um á Akureyri 1905—7 og í verzl- unarskóla í Kaupmannahöfn 1909—10. Kaupfélagsstjóri Kaup- félags Héraðsbúa á Reyðarfirði 1917 til ársloka 1961. Áður starfs- maður félagsins i nokkur ár. — 1 hreppsnefnd Reyðarfjarðar- hrepps lengi og oddviti um árabil. — i stjórn Sambands ísl. sam- vinnufélaga 1923—64. Formaður Búnaðarfélags Reyðarfjarðar og fulltrúi þess á aðalfundum Búnaðarsambands Austurlands um langt skeið." Við Kaupfélag Héraðsbúa lágu leiðir okkar Þorsteins fyrst saman fyrir alvöru og er skemmst af því samstarfi að segja, að því lengur sem það varaði, því meir mat ég hann og virti, þó okkur greindi stundum á um einstök atriði, sem þó fóru aldrei út fyrir hreinskilin skoðanaskipti. Það sem hér verður minnst á, tengist því nær eingöngu kaup- félaginu og starfi Þorsteins fyrir það og viðskiptaheildina. Eins og hér að framan greinir, var Þorsteinn Jónsson kaup- félagsstjóri Kaupfélags Héraðs- búa samfellt hálfan fimmta ára- tug. Hann tók við því ungu og eignalausu og án tiltrúar fjöldans, þvi tilraunir þær sem áður höfðu verið gerðar hér á sviði samvinnu- mála höfðu mistekist. Mörg fyrirtæki sem ekki fóru illa á stað, „gengu fyrir björg fram“ á þessum árum. En Kaup- félag Héraðsbúa óx í höndum Þor- steins á órólegu tímabili í stórt og fjársterkt fyrirtæki, slungið mörgum starfsgreinum, er allir báru tiltrú til. — Auk þess sem það var um áratugi eins konar banki bændanna, á þessu við- lenda svæði og lyftistöng hvers konar menningarlegra og verk- legra framfara á félagssvæðinu, sem spannaði þá yfir 11 sveitar- félög að Reyðarfirði meðtöldum. Einn af mörgum erfiðleikum Kaupfélags Héraðsbúa og kannski ekki sá veigaminnsti var að vera í senn neitenda og fram- leiðslufélag og mætti margt um það segja. Það hefur alls staðar reynst þungt í vöfum og hér eng- an veginn auðvelt, fyrst og fremst vegna hinna dreifðu byggða og samgönguerfiðleika fram eftir öllu. — Tvimælalaust var þetta meira framfara og velgengnis timabil en nokkuð annað í sögu þjóðarinnar, svona í heild. Það valt þó á ýmsu í atvinnuvegunum til lands og sjávar og árferði breytilegt. Verzlunaróáran gekk yfir oftar en einu sinni og oftar en tvisvar og i atvinnuvegi okkar bændanna urðu erfiðleikarnir sízt minni en við sjávarsíðuna og margfallt örðugra að komast yfir þá, sökum hins takmarkaða fjár- magns, sem bændur höfðu yfir að ráða og aðgang að. — Til viðbótar þessum komu svo ýmsir fleiri staðbundnir, svo sem yfirgengi- legir óþurrkar 1950, harðindi og fjárpestir, sem þjörmuðu svo að fjölda bænda, að við hreina upp- lausn lá. Bændur urðu ,nær búlausir í heilum byggðarlógum og þar af leiðandi innleggslausir. — Þegar allt þetta er haft i huga, gegnir það furðu að félagið skyldi halda velli og eflast. Því það mun mála sannast að það var Kaup- félag Héraðsbúa og Þorsteinn Jónsson persónulega með dugnaði sinum og bjartsýni, þess- um andlega krafti, sem hann var svo ríkur af, sem bjargaði þessum málum á úrslitastund. Þorsteinn var I eðli sínu mikill bóndi og ræktunarmaður, alinn upp við stórbúskap, en þó skiln- ingsrikur I garð þeirra sem minna máttu sín og vildi efla þá til efna- legrar velgengni, bæði með hvatn- ingu og félagslegum stuðningi. Metnaður hans fyrir þróttmikilli bændastétt leyndi ekki á sér og sízt vildi hann hlut austfirzkra bænda minni en annarra. Sökum þess hve verzlunarsvæði Kaupélags Héraðsbúa er víðáttu- mikið borið saman við fólksfjölda og ólíka staðhætti, þótti hlýða að dreifa uppbyggingu og fram- kvæmdum þess á fleiri staði fólk- inu til hagræðis og fjárhagslegs stuðnings, svo sem á Reyðarfjörð, Egilsstaði og Fossvelli. Það var sjónarmið þeirra tíma. Þessu fylgdi auðvitað meiri reksturs- kostnaður og minni heildarreisn, en efni stóðu þó til. Þegar litið er yfir þessar línur, gætu ókunnugir ef til vill haldið, að á þessu timabili hefði litið verið gert, af hálfu félagsins, annað en berjast við harðindi og fjárpestir. En þvi fór víðs fjarri, ótrúlega mikið þokaðist áfram á öllum þessum stöðum þrátt fyrir „götu grjóti nokkru stráð." Og hefði verið gaman og í rauninni viðeigandi, að geta hins þelzta, en . rúmsins vegna verður það. ekki gert hér. Félagið stóð sig furðu vel, svo ekki séu of sterk orð notuð, komst aldrei i nein greiðsluvandræði né vanskil. — Þrautseigja bændanna, hæfni Þorsteins og hamingja góðrar ætt- ar forðaði því. — Ég held að megí með fullum rétti segja, að Kaup- félag Héraðsbúa hafi á hverjum tíma, viljað styðja og styrkja, eftir fremsta megni efnalega og menn- ingarlega þróun á félagssvæðinu, því varla hefur verið svo í meiri háttar framkvæmd ráðist, að ekki hafi verið leitað stuðnings K.H.B. Þegar þróunarsaga Austurlands verður skráð, mun hlutur Kaup- félags Héraðsbúa og Þorsteins Jónssonar verða ósmár. Það rýrir ekki hlut Þorsteins Jónssonar, þó stórvel hafi verið á málum haldið síðan hann lét af störfum, með því er í rauninni lífsstarf hans bezt þakkað. Sem aó líkum lætur var Þor- steini margvislegur sómi sýndur á langri og farsælli starfsævi. Meðal annars var hann gerður heiðursfélagi Kaupfélags Héraðs- búa og sæmdur ritarakrossi hinnar ísl. Fálkaorðu. Þorsteinn kvæntist 12. ágúst 1916 Sigríði Þorvarðardóttur læknis og alþingism. Kjerúlfs á Ormastöðum i Fellum, N-Múl., hinni ágætustu konu. Heimili þeirra var alla tið sannkallaður friðarreitur og hið glæsilegasta. Hún lézt árið 1973. Þau eignuðust fjögur börn: Margrét húsfr. Reykjavik, Þorvarður bæjarfógeti og sýslum. Isafirði, Jón yfirlækn- ir við Landspitalann í Reykjavík og Þorgeir Iögreglustjóri á Kefla- víkurflugvelli, einnig áttu þau tv.o fóstursyni, þá Ölaf Bjarnason skrifstofum. Reykjavík og Einar Þorvarðarson verkfræðíng Reyðarfirði. Sú mynd, sem hér hefur verið brugðið upp af hinum látna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.