Morgunblaðið - 22.10.1976, Blaðsíða 42
42
AUKIN SAM-
SKIPTI
NORÐUR-
LANDANNAI
FRJÁLSUM
ÍÞRÓTTUM
— VIÐ erum mjóg ánægðir með
niðurstöður fundarins og þann vilja
sem greinilega er nú á þvi að efla
norræna samvinnu í frjálsum iþrótt
um, sagði Örn Eiðsson, formaður
Frjálsiþróttasambands íslands, i við-
tali við Morgunblaðið i gær, en Örn
sat fyrir skommu þing norrænna
frjálsiþróttaleiðtoga, en auk hans
sóttu fund þennan af íslands hálfu
þeir Sigurður Helgason og Einar
Frimannsson.
— Á fundinum náðist að okkar
mati merkur áfangi, er ákveðið var
að íslendingar kæmu meira inn i
unglingasamskipti Norðurlandanna i
frjálsum iþróttum en verið hefur til
þessa Sannast sagna hefur gengið
nokkuð erfiðlega að útvega ungl-
ingunum verkefni við hæfi, en úr
þessu rætist verulega með þeim
samningum sem gerðir voru á
Norðurlandaþinginu
Örn sagði að ákveðið hefði verið
að Danir og íslendingar sendu sam-
eiginlegt lið i unglingalandskeppni
við Norðmenn, Svia og Finna en slik
keppni fer fram árlega. Verður lið
íslands og Danmerkur með i fyrsta
sinn árið 1 978. Þarna er um að ræða
landslið karla 20 ára og yngri. í
keppni pilta 18 ára og yngri og
stúlkna 16 ára og yngri, var ákveðið
að ísland, Noregur og Danmork
sendu framvegis sameiginlegt lið í
keppni sem fram hefur farið árlega
milli Svíþjóðar og Finnlands.
— Með þessu er tryggt að okkar
beztu unglingar fá verkefni við hæfi,
sagði Örn Eiðsson
Örn sagði að ennfremur hefði
verið gengið frá þvt að landskeppni I
kastgreinum færi . jm næsta sumar
milli islendinga og Dana, og verður
sú keppni í Reykjavik
Þá voru á þinginu ákveðnir
keppnisdagar næstu Kalott keppnj.
Verður hún í Finnlandi dagana 23
og 24. júlí. Síðast er Kalott keppni
fór fram í Finnlandi dagana 23. og
24. júli Siðast er Kalott keppni fór
fram i Finnlandi treystu Finnar sér
ekki til þess að bjóða íslendingum að
vera þar með, en eftir Kalott-
keppnina i Reykjavik í fyrrasumar,
breyttust viðhorf þeirra en fáir voru
ánægðari með íslandsferðina en
finnska iþróttafólkið.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976
I ~ Wt \
LAUGARDAGINN 9. október útskrifaði Þjálfaraskóli KSI 23 1. stigs
þjálfara, en kennsla þeirra er aðallega miðuð við yngri aldursflokka
knattspyrnunnar. Mikil áherzla er lögð á tækniatriði, leikaðferðir og
líkamsþjálfun með sérstöku tilliti til knattspyrnu og aldurs (vaxtar-
skeiðanna). Kennarar voru átta á hinum ýmsu kennsluþáttum, en
skólastjóri Þjálfaraskólans er Karl Guðmundsson. Svo skemmtilega
vildi til að nú útskrifaðist fyrsta stúlkan, en það er Guðrún Á
Kristjánsdóttir frá Akranesi.
Myndin hér að ofan er af hópnum sem útskrifaðist af 1. stigs þjálfaranám-
skeiði KSÍ á dögunum. Má þar sjá marga kunna knattspyrnukappa víðs vegar
að af landinu og tvo af kennurum skólans, Anton Bjarnason og Sölva
Óskarsson. Myndin hér til vinstri er svo af Bjarna Jóhannssyni frá Neskaup-
stað og myndin til hægri af Guðrúnu A. Kristjánsdóttur frá Akranesi.
23 útskrifu ðust
úr þjálfaraskóia
þar af ein kona
Undirritaður heimsótti skólann
þegar honum var slitið og rabbaði
við nemendur og skólastjóra
skólans og voru allir mjög
ánægðir með námskeiðið en hér á
eftir fara viðtöl sem tekin voru:
Fyrst var rætt við Guðrúnu. Hún
sagðist hafa farið á námskeiðið
vegna mikils áhuga á öllu sem
viðkemur knattspyrnu og þjálfun
og sagðist hún hafa mikinn áhuga
á því að þjálfa í framtíðinni og þá
bæði pilta og stúlkur, en Guðrún
hefur leikið í kvennaliði Skaga-
manna í fimm ár. Guðrún sagði að
sig langaði til að halda áfram í
Þjálfaraskólanum en var þó ekki
viss um ð úr því yrði, sagði að það
ylti á ýmsu. Hún sagði að skólinn
væri mjög skemmtilegur og hún
hefði lært ótrúlega mikið og að
menn ættu ekki að leggja fyrir sig
þjálfun nema þeir hefðu farið í
skólann. Að lokum sagði hún að
það hefði verið mjög gaman að
vera með strákunum þó að það
hefði verið dálítið skrítið í fyrstu
og þeir hefðu litið hana hornauga
til að byrja með.
Þá var rætt við Bjarna Jóhanns-
son frá Neskaupstað en hann
hefur leikið með Þrótti og þjálfað
yngri flokkana síðastliðin þrjú ár,
þótt ungur sé. Bjarni sagðist vera
mjög ánægður með skólann og
sagði að það hefði opnast nýr
heimur fyrir sér. Sérstaklega var
hann ánægður með hve mikil
áherzla var lögð á uppbyggingu
og þrek og hve mikið var kennt í
líffræði og lífeðlisfræði. Bjarni
taldi að menn ættu alls ekki að
þjálfa án þess að fara á þennan
skóla, eða einhvern hliðstæðan
þessum. Þá sagði Bjarni að hann
hefði áhuga á því að halda áfram í
þjálfaraskólanum og vonaðist
hann til þess að úr því gæti orðið.
Hann sagði einnig að framtak KSl
væri lofsvert og að hann vonaðist
til að önnur sérsambönd fylgdu
fordæmi KSI. Að lokum sagði
Bjarni að fyrirkomulag nám-
skeiðsins hefði verið afar óhag-
stætt fyrir þátttakendur utan af
landi, þar sem það stæði frá
klukkan 17 og fram eftir kvöldi,
hefði ekkert verið fyrir utan-
bæjarmennina að gera mestan
hlut dagsins. Að lokum var Karl
Guðmundsson skólastjóri þjálf-
araskólans spurður nokkurra
spurninga. Karl sagði að inntöku-
skilyrði skólans væru þau að
menn þyrftu að vera orðnir 18 ára
að hafa leikið knattspyrnu eða
hafa einhverja reynslu á því sviði
og þá þurftu menn að hafa með-
mæli frá íþróttafélagi. Þetta eru
inntökuskilyrði á 1. stigs nám-
skeiðið en á hin það er 2., 3., og 4.
stig taka menn með árs millibili
og þurfa þá að hafa þjálfað á því
ári. Þá sagði Karl að fjölga þyrfti
kennslustundum námskeiðsins
um helming og að líklega þyrfti
að hafa sérnámskeið fyrir utan-
bæjarmenn þar sem tími þeirra
væri betur nýttur, það er kennt
allan daginn I eina viku og svo
annað fyrir menn af höfuðborgar-
svæðinu sem fram færi á kvöldin
og um helgar. Þá sagði Karl að
það væri sin skoðun að Islenzkir
þjálfarar væru framtiðartak-
markið, þeir þjálfarar sem lokið
hafa þjálfaraskóla KSI eru alls
ekki verri þjálfarar en þeir er-
lendu enda hefði það sýnt sig að
þeir erlendu hefðu ekki alltaf
reynst eins og skyldi. Þetta er
geysileg gjaldeyrissóun og ef
Islenzkir þjálfarar fengju svipuð
laun og sömu aðstæður og fyrir-
greiðslur og þeir erlendu yrði
árangurinn ekki siðri. HG.
LIÐ Red Boys sem keppir við Val í Evrópubikarkeppni bikarhafa í hand-
knattleik. Lið þetta hefur stöðugt verið að sækja f sig veðrið að undanförnu, og er
sagt leika sléttan og skemmtilegan handknattleik. Er því Ifklegt að Valsmenn þurfi
á „mulningsvélar“ vörn að halda f leikjunum við það á laugardaginn og sunnudag-
inn.
VALUR Á GÓÐA MÖGULEIKA
Á AÐ KOMAST í 2. UMFERÐ
UM HELGINA leikur Valur við
Luxemburgarliðið Red Boys Differ
dange frá Luxemburg í Evrópubikar
keppni bikarhafa í handknattleik,.en
báðir leikir þessara liða verða hér-
lendis, og fara fram í Laugardalshöll-
inni. Fyrri leikurinn verður kl. 15.00
á laugardag og seinni leikurinn kl.
20.30 á sunnudag. i
Þetta er i annað sinn sem Valur tekur
þátt í Evrópubikarkeppni í handknatt-
leik. 1973 tók liðið þátt í keppni
meistaraliða og mætti þá vestur-þýzku
meisturunum Gummersbach Töpuðu
Valsmenn báðum þeim leikjum, hér
heima 11:12 og ? Þýzkalandi 8:1 6
Nú ættu Valsmenn htns vegar að
eiga góða möguleika á því að komast i
aðra umferð keppninnar Reyndar er
mjög lítið vitað um getu leikmanna
Red Boys, en hingað til hefur hand-
knattleikur á íslandi verið töluvert betri
en i Luxemburg, svo sem sjá má af
úrslitum í landsleikjum þjóðanna
Handknattleiksfélagið Red Boys
Differdange var stofnað árið 1938 og
var gullöld félagsins á árunum
1955—1959, en þá varð félagið
Luxemburgarmeistari öll árin og náði
auk þess jafnan i úrslit i bikarkeppn-
inni. Enduruppbygging félagsins hófst
fyrir 5 árum er Camille Dimmer, núver-
andi forseti Handknattleikssambands-
sins i Luxemburg, varð formaður
félagsins Hann réð nýjan þjálfara til
félagsins, Antoine Halsdorf frá Dude-
lange, sem átti eftir að breyta gangi
mála á skömmum tima Halsdorf var á
sínum tíma snjallasti handknattleiks-
maðurinn í Luxemburg og hefur leikið
yfir 70 landsleiki fyrir land sitt Hann
er aðeins 33 ára og leikur enn með
liðinu og reynsla hans hefur oftsinnis
komið yngri leikmönnum liðsins til
góða
Á fimm árum breytti Halsdorf mjög
leik Red Boys. Liðið varð í þriðja sæti í
meistarakeppninni 1974—1975 og
einnig 1975—1 976 og var i úrslitum
bikarkeppninnar 1974, 1975 og loks
árið 1 976 tókst liðinu i fyrsta skipti að
tryggja sér sigur i þeirri keppni Reynd
ar keppti liðið i Evrópubikarkeppni
bikarmeistara í fyrra, þar sem liðið
Eschois-Fola sigraði bæði í deildar-
keppninni og i bikarkeppninni 1975
Árangur liðsins i Evrópubikarkeppni
bikarmeistara i fyrra varð ekki sem
beztur þvi liðið tapaði I fyrstu umferð
fyrir AHC Amsterdam