Morgunblaðið - 24.10.1976, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÖBER 1976
Frá undankeppni
Reykjavíkurmótsins
í tvímenning.
Tveimur kvöldum af þremuf
er nú lokið i undankeppninni
og taka 52 pör þátt í keppninni.
Spilað er í fjórum 13 para riðl-
um og er staða efstu para nú
þessi: Stig
Guðmundur Pétursson
—Óli Már Guðmundsson 365
Símon Simonarson
—Stefán Guðjohnsen 360
Jón Stefánsson
— Þorsteinn Laufdal 355
Bragi Hauksson
—Óskar Þórðarson 349
Magnús Aspelund
—Steingrimur Jónasson 348
27 pör komast áfram í aðal-
keppnina ásamt núverandi
R vikurmeisturum, Herði
Blöndal og Þóri Sigurðssyni.
Síðasta umferðin verður spil-
uð á miðvikudaginn kemur.
X XX
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Aðalhluti meistarakeppninn-
ar er nú hafinn og er einu
kvöldi lokið af fjórum. Spilað
er í tveimur flokkum, meistara-
og fyrsta flokki.
Staðan f meistaraflokki:
Stig
Benedikt Jóhannsson
—Hannes Jónsson 30
Örn Arnþórsson
—Guðlaugur R. Jóhannsson 26
Jón Baldursson
—Guðmundur Arnarson 25
Staðan f fyrsta flokki:
Stig
Halldór Hallgrímsson
—Stefán Öskarsson 48
Bragi Hauksson —Óskar Þórðarson 42
Sveinbjörn Guðmundsson —Viðar Jónsson 25
Meðalskor í báðum flokkum
0.
Þess má að lokum geta að tvö
efstu pörin i fyrsta flokki eru
kornungir spilarar og mjög
efnilegir.
Önnur umferð verður spiluð
á fimmtudaginn kemur.
XXX
Frá Tafl- og bridge-
klúbbnum.
Fjórum umferðum er nú lok-
ið í tvímenningskeppninni —
en úrslit síðustu umferðar urðu
þessi:
Sigurjón—Gestur 254
Bernharður — Július 253
Erlingur — Sverrir 242
Hilmar—Ingólfur 232
Sigfús — Sigurjón 232
Gunnlaugur — Sigurður
227
Meðalskor 210.
Hæstu pör eftir fjórar um-
ferðir eru þessi:
Sigurjón—Gestur 1022
Bernharður—Júlíus 1004
Gunnlaugur — Sigurð-
ur 918
Ingvar — Orvelle 916
Ragnar —Sigurður 904
Hilmar — Ingólfur 896
Erlingur — Sverrir 896
Kristján — Þorhallur 895
Albert — Kjartan 894
Meðalskor 840
Síðasta umferðin verður spil-
uð á fimmtudaginn kemur en
næsta keppni verður hrað-
sveitakeppni.
XXX
Frá Bridgedeild
Húnvetninga-
félagsins.
Lokið er þremur umferðum
af fimm i tvímenningskeppni
deildarinnar. Spilað er í
tveimur 10 para riðlum. Aðsókn
hefir verið mjög góð. Sigþór og
Haukur hafa þegar fengið 27
stigaforskot, en þeir fengu
mjög góða skor siðast eða 144
stig, en þar áður 134 stig.
Staða efstu para er nú þessi:
Sigþór—Haukur 402
Inga —Ólafur 375
Dóra — Kári 368
Jakob — Jón 364
Valdimar — Þörarinn 346
Guðmundur — Sigurður 339
Zöphónias — Arnar 336
Haukur—Ólafur 335
Sigríður—Sigurður 335
Pálmi — Kristinn 327
Næsta keppni félagsins
verður hraðsveitakeppni.
XXX
Frá Ásunum:
Staða efstu para að 6 um-
ferðum loknum:
stig
Guðmundur Pétursson
— Sigtryggur Sigurðsson 35
Ármann J. Lárusson
— Sverrir Ármannsson 34
Sverrir Kristinsson
— Erlingur Jónsson 34
Garðar Þórðarson
— Jón Andrésson 32
Krístján Blöndal
— Valgarð Blöndal 31
Jón Hilmarsson
— Þorfinnur Karlsson 30
Guðmundur Pálsson
— Sigmundur Stefánsson 29
Ester Jakobsdóttir
— Ragna Ólafsdóttir 28
Meðalskor er 24 stig.
AUs tekur 31 par þátt í
keppninni, og verður spiluð 31
umferð. Þetta fyrirkomulag nú
hjá Ásunum kallast „Butler“-
keppni.
XXX
Nýlega var haldinn fundur
hjá Bridgesamhandsst jórn
Reykjanessumdæmis (BRU)
en hana skipa þetta árið:
Formaður: Þorgeir Eyjólfs-
son Hafnarfirði, Ritari: Ólafur
Lárusson, Kópavogi. Gjaldkeri:
Gestur Auðunsson, Keflavík.
Meðstj: Guðmundur Pálsson,
Kópavogi.
Á fundínum var samþykkt að
hefja starfsemina á tví-
menningsundankeppni fyrir
Reykjanesmöt, þann 6. nóv.
n.k., og spilað verði í Festi,
Grindavík. Skráning fer fram í
félögunum. Núverandi
meistarar eru þeir Hermann
Lárusson og Ólafur Lárusson,
BÁK. Undankeppni í sveita-
keppni mun síðan hefjast
sunnudaginn 14. nóv., og spilað
verður að venju i Skiphól.
Spilað verður um silfurstig í
úrslitum beggja keppnanna.
Öllum félögum á svæðinu er
heimil þátttaka og eru menn
beðnir um að skrá sig hjá
stjórnarmeðlimum BRU.
XXX
Frétt frá
Bridgefélagi
Hafnarf jarðar
Staða efstu para í haust-
tvímenningskeppni Bridge-
félags Hafnarfjarðar þegar
einni umferð er ólokið:
Stig
Árni Þorvaldsson
— Sævar Magnússon 416
Halldór Bjarnason
— Hörður Þórarinsson 394
Albert Þorsteinsson
— Kjartan Markúss. 349
Dröfn Guðmundsdóttir
— Einar Sigurðsson 341
Ágúst Helgason
— Ólafur Ingimundarson 336
A.G.R.
Jóhann
Hjálmarsson:
SKÁLDSAGNAHÖFUNDAR af
gyðingaættum virðast nær alls-
ráðandi í bandarfskum bók-
menntum um þessar mundir.
Nægir að nefna Norman Mailer
sem lengi var talinn líklegur
Nóbelsverðlaunahafi en hefur
nú beðið lægri hlut fyrir Saul
Bellow. Bernard Malamud og
Philip Roth mætti einnig nefna
og ekki síst Joseph Heller sem
er sá skáldsagnahöfundur í
Bandaríkjunum sem vakið
hefur hvað mesta athygli að
undanförnu. Menn hafa velt
fyrir sér hvað valdi því að
þessir höfundar virðast öðrum
fremur höfða til vandlátra
lesenda en skýringin gæti verið
sú að glöggskyggni gestsins ráði
nokkru. Gyðinglegur uppruni
þeirra leynir sér ekki. Þeir eru
næmir fyrir því sem er að
gerast í kringum þá, í þeirra
eigin umhverfi og þeir gera sér
ljóst að þeir eru fulltrúar
minnihlutahóps.
Leiksoppurinn —
eða leit mannsins
að sjálfum sér
Um hvað skrifar Saul Bellow? 1 Herzog verða árekstrar
milli gyðingsins og kaldrifjaðs
þjóðfélags óheilinda. Barna-
skapur og trúgirni Herzogs
gera hann að utangarðsmanni.
Hann verður leiksoppur um-
hverfis sem er honum
framandi. Gagnrýnendur hafa
sumir hverjir ásakað Bellow
fyrir sjálfsmeðaumkun og það
er að vissu leyti rétt að hennar
gætir víða í bókum hans. En til
að hafa gagn af verkum
Bellows er heillavænlegra að
lesa þær með það í huga að
hinn gyðinglegi einstaklingur
Bellows varðar alla menn, lýs-
ing hans er könnun á hinum
ómennsku öflum sem hvar-
vetna verða á vegi fólks.
I Humboldt’s Gift segir frá
þekktum menntamanni af
gyðingaættum, Charlie Citrine,
sem er á flæðiskeri staddur
fjárhagslega. Hann hefur þó
engar áhyggjur af veraldlegum
gæðum, telur sig hafinn yfir
hið jarðneska og dýrkar vin
sinn, skáldið Humboldt sem
lifir frjálsu og óháðu lífi. Ást-
kona Citrines fer frá honum.
Hún giftist kaupsýslumanni og
skilur eftir bréf þar sem hún
gerir lítið úr þeirri tilhneigingu
hans að þykjast meiri en aðrir,
fyrirlíta menn viðskiptalífsins
og samkeppninnar. Citrine
verður fyrir enn einu áfallinu
eftir dauða Humboldts þegar
hann kemst að þvf að boð-
skapur skáldsins til eftirlifenda
er næstum því sá sami og ást-
konunnar. En hann hverfur að
nýju inn f heim óraunveru-
leikans við jarðarför
Humboldts. Fundin hefur verið
upp ný greftrunaraðferð sem er
í þvf fólgin að vél eys steypu
yfir kistuna og þjappar henni
saman og einangrar hana
þannig frá jörðinni.
Bent hefur verið á að Bellow
sé f þessari skáldsögu að
skopast að löngun mennta-
manna eftir einhverju skáld-
legu f talveru sem æ meir
mótast af hinu vélræna og
venjubundna. Vfst er um það
að f Humboldt’s Gift hefur Saul
Bellow aftur beint skáldskap
sfnum inn á brautir sem
kunnar eru úr fyrstu skáld-
sögum hans. I miskunnarlausu
háði hans örlar á dálftilli von
þrátt fyrir hina ógnvænlegu
firringu. _
Ég held að erfitt sé að gera
upp á milli fyrrnefndra skáld-
sagnahöfunda, en meðan hallað
hefur á Norman Mailer, m.a.
vegna drykkjuskapar hans og
ögrandi hegðunar við ýmis
tækifæri hefur Saul Bellow
unnið á. Það er ekki óalgengt
að bókmenntamenn kalli hann
mesta núlifandi skáldsagna-
höfund Bandarfkjanna svo að
ekki kemur á óvart að sænska
akademían skuli hafa valið
hann úr hópnum. Beilow hefur
áður hlotið mörg eftirsótt bók-
menntaverðlaun. Nýlega fékk
hann til dæmis Pulitzerverð-
launin fyrir skáldsöguna
Humboldt’s Gift.
Saul Bellow fæddist f
Lachine í Quebeck f Kanada 10.
júlí 1915. Foreldrar hans voru
rússneskir gyðingar og settust
að f Chicago 1924. Bellow gekk
menntaveginn og hefur kennt
þjóðfélagsvísindi við háskólann
f Chicago frá 1964. I fyrstu
skáldsögum sinum er hann
undir áhrifum frá Kafka. I
þeim ber meira á tilraunum I
formi en í síðari sögunum.
Balzac og Tolstoj eru höfundar
sem hann minnir á með hlið-
sjón af evrópskri raunsæishefð
sem hann er að vissu marki
trúr. Lýsingar eru nákvæmar.
Efni sagnanna er leit mannsins
að sjálfum sér. Þær fjalla um
einkaheim, baráttu ein-
staklings við það sem er honum
yfirleitt fjandsamlegt. Firring
stórborgalífs er hér á dagskrá
eins og hjá svo mörgum öðrum
höfundum. I skáldsögum eins
og The Adventures of Augie
March (1953) og Henderson
the Rain King (1959) er Bellow
úthverfur. Þessar sögur eru f
anda prakkarasagna fyrri tíma.
Augie March er ævintýra-
maður, Henderson auðmaður
sem fer til Afríku og verður
höfðingi negrakynstofns þar.
En í Herzog (1964), kunnustu
bók sinni, er Bellow inn-
hverfari en áður og sögu-
þráðurinn og sögusviðið minna
á lff hans sjálfs.
Gyðingurinn Moses Herzog
elst upp í fátækrahverfi
Chicago. Hann er sonur
rússneskra innflytjenda og
aflar sér menntunar þrátt fyrir
erfiðar aðstæður heima fyrir.
Þegar sagan hefst er hann um
fimmtugt hefur verið háskóla-
kennari og samið bók sem
nefnist Rómantfska og kristni.
Herzog þráir að lifa eðlilegu
heimilislífi og ástin er ríkur
þáttur f lífi hans. Hjónabönd
hans eru aftur á móti dæmd til
að misheppnast.
Fyrsta hjónabandið ein-
kennast af smámunasemi, þar
sem sú áhersla sem lögð er á að
allt sé í föstum skorðum, fyrir-
fram ákveðið, gerir það að víti.
Næst verður Herzog bráð sefa-
sjúkrar konu sem vill sífellt
leika aðalhlutverkið. Hún fær
hann til að snúa baki við störf-
um sfnum og þau flytja á af-
skekktan stað til að lifa í næði í
heimi óraunveruleika. En
þegar hún fer að halda framhjá
honum með besta vini hans er
það hjónaband úr sögunni.
Eftir skilnað sem hefur gert
Herzog að rekaldi leitar hann
sér huggunar í bréfaskriftum.
Þessi bréf eru aldrei send, en
þau eru til fólks sem Herzog
þekkir og líka til þeirra sem
hann hefur aldrei kynnst nema
af afspurn. Sumir hugsanlegra
viðtakenda eru lifandi, aðrir
látnir. Herzog verður með
þessu móti eiginn læknir og
minnir á það sem haft er eftir
Bellow þegar ha'nn f tilefni
Nóbelsverðlauna var spurður
um ritstörf sín: „Hingað til
hafa þau komið í veg fyrir að ég
yrði 'brjálaður.” Með bréfum
Herzogs fær Bellow tækifæri til
að segja hug sinn um ólfkustu
efni og notar það óspart.
Hin sefasjúka Madeleine
vinnur fullnaðarsigur á Herzog.
Hún upphefur sjálfa sig á
kostnað hans. Hann er sviptur
börnum sfnum sem eru honum
mikils virði. Madeleine hefur
sannfært dómstólana um sekt
Herzogs að hann hafi vanmetið
hana og traðkað á henni. Hann
hrífst af spænsku blómasölu-
stúlkunni Ramonu, en hræðsla
hans við konur, nýja ósigra
verður til þess að hann fær ekki
að njóta hennar. Aftur á móti
einsetur hann sér að átta sig
betur á tilverunni, leitast við að
skilja vandamál samfélagsins
og vinna að umbótum. Banda-
rfskt þjóðfélag vekur honum
hrylling.