Morgunblaðið - 24.10.1976, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÖBER 1976
37
Anna Sigurbjörg
Helgadóttir—Minning
Mótmæli
í Moskvu
Moskvu 21. okt. — Reuter
UM 25 sovézkir Gyingar tóku f
dag þátt f mótmælaaðgerðum við
móttökusal f húsi Æðstaráðs
Sovétrfkjanna, fjórða daginn f
röð. Eftir lokun hússins sátu
Gyðingarnir eftir, og kom þá fJöl-
mennt lögreglulið á vettvang og
flutti mennina á brott. Voru þeir
fluttir f þremur bifreiðum, en
ekki vitað hvert.
Gyðingarnir kröfðust þess með
aðgerðum sfnum að fá að vita
hvers vegna þeir fengju ekki
heimild til að flytjast til tsraels,
og að fá skýringar á þvf hvað gert
yrði við iögreglumenn þá sem
talsmenn Gyðinga segja hafa mis-
þyrmt 12 öðrum Gyðingum, er
þátt tóku f samskonár mótmælum
s.i. þriðjudag.
Fyrr f dag höfðu þrfr talsmenn
Gyðinganna fengið að ræða við
Nikolai Shchelokov innanrfkis-
ráðherra en þeir sögðust hafa
gengið af fundinum eftir að ráð-
herrann neitaði að ræða aðgerðir
gegn lögreglumönnunum.
AUGLÝStNCASÍMINN ER:
^22480
I Jhorounötoöiö
F. 20. maf 1913
D. 15 október 1976.
Anna Sigurbjörg Helgadóttir
var gift Guðmundi Ölafssyni frá
Miklabæ og bjuggu þau að Skíða-
stöðum i Skagafirði til 1959, er
hann þurfti að leita lækninga til
Reykjavíkur og þau fluttu þang-
að. Hann var starfsmaður Slátur-
fél. Suðurlands meðan heilsa og
kraftar entust, en lézt fyrir rúml.
tveim árum. Frú Anna réðst strax
og hún kom til Reykjavíkur á
Þvottahús Hrafnistu, Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna og
vann þar öllum til hjálpar og gleði
allt til síðustu áramóta.
Höfðinglega yfirbragðs reisn
bar þessi hægláta kona með sér
enda mjög vel gefin, fjöl-lesin og
fróð, svo ekki leyndi sér að notið
hafði hún í uppeldi óvenjulega
góðrar menntunar, sem henni
notaðist vel af og hún kunni vel
að láta aðra njóta og gætti þess
vel, að aldrei væri fræðsla hennar
og gamansemi á kostnað neinna
annarra.
Við urðum ekki aðeins sam-
starfskonur, heldur einnig sannar
vinkonur, enda hún óvenjulega
þýð kona með aðlaðandi fagurt
bros, að eftirtekt vakti.
Það var unun að sjá hana hjálpa
barni til að njóta gleði starfs, og
eignaðist þar fyrir aðdáun þess
uppfrá því. Allir á sama máli.
A fjölmennum vinnustöðum,
lánast ekki nema fáum að njóta
vinsælda allra, en það vann Anna
sér léttilega þau 16 ár er hún
vann hér, enda vildi hún öllum
hjálpa og alla gleðja, ávallt með
tilbúna hjálparhönd, sem að von-
um oft reyndi á, í þvottahúsi elli-
heimilis, en öllum var ljúft til
Önnu að leita, þar var ávallt ljúfu
brosi að mæta.
Hún var rík að þeim sterka eig-
inleika að vera ávallt tilbúin að
gefa, en virðast sjaldan þurfa að
þiggja af öðrum.
A siðasta ári, var önnu vel ljóst,
að hverju stefndi með heilsu
hennar og sagði mér með sinni
fögru ró, að sér fyndist hún vel
viðbúan og kvíðalaus.
Anna lézt í Landspítalanum 15.
þ.m. og verður jarðsett mánud.
25. október frá Fossvogskirkju kl.
3 e.h.
Ég er þakklát fyrir' að hafa not-
ið þess, að vinna með konu eins og
önnu, og má örugglega mæla fyr-
ir munn okkar allra, yngri sem
eldri, okkar innilegustu þakkir
fyrir ógleymanlega samvinnu
þessarar góðu konu sem ekki
mátti vamm sitt vita í neinu.
Ég, og við allar, vottum börnum
hennar, tengdabörnum, tengda-
móður og niðjum heilshugar sam-
úð okkar. Ég veit hvað þar var
mikið misst og bið góðan guð, að
styrkja þau öll og leiða.
Kristjana Þorsteinsdóttir
Stjórn og starfsmenn Landssambands fsl. barnaverndarfélaga. 1 fremstu röð eru Eirfkur Ragnarsson
og Regfna Höskuldsdóttir, sem veita heimilinu að Kleifarvegi 15, forstöðu og til hægri Margrét
Sæmundsdóttir fóstra. 1 aftari röð eru talið frá vinstri Ingi Karl Jóhannesson, Pálfna Jónsdóttir
gjaldkeri, dr. Sigurjón Björnsson, Kristinn Björnsson, form. LlB. Stefán Júlfusson rithöfundur og
Sigrfður Sumarliðadóttir.
Velferd barna og
bættur hagur þeirra
Átta f élög í Landssambandi
íslenzkra bamavemdarfélaga
1 gær fyrsta vetrardag, var hinn
árlegi f jársöfnunardagur
fslenzkra barnaverndarfélaga
og voru þá seld merki dagsíns
sem að þessu sinni er alþjóða-
merki barnaverndarfélaga og
hefur á islenzku verið valið
heitið „Byrgjum brunninn'*.
Einnig var seld barnabókin
Sólhvörf, sem að þessu sinni er
gerð af Barnaverndarfélagi
Hafnarfjarðar. Landssamband
fslenzkra barnaverndarfélaga
er nú skipað átta félögum, vfðs
vegar að af landinu, þ.e. á
Akureyri, Akranesi, Hafn-
arfirði, Húsavfk, tsafirði,
Keflavfk, Reykjavík og Vest-
mannaeyjum.
Stjórn LfB boðaði til blaða-
mannafundar eigi alls fyrir
löngu, en stjórnina skipa
Kristinn Björnsson sálfr. sem
er formaður LfB, dr. Sigurjón
Björnsson, form. Reykjavfkur-
deildarinnar, Stefán Júlfusson
rithöf., sem að þessu sinni
samdi svo til allt efnið í Sól-
hvörf, Ingi K. Jóhannesson og
Pálfna Jónsdóttir sem er gjald-
keri.
Á fundinum kom m.a. fram
að markmið allra félaganna
innan LlB er eitt og hið sama,
það er að stuðla að velferð
barna og bættum hag þeirra.
LlB var stofnað 1949 og er hlut-
verk þess að halda við sam-
bandt þeirra átta félaga sem
starfa innan þess. Er Reykja-
víkurdeildin stærst þeirra með
um þrjú hundruð félaga.
Lengst af hefur starfsemi
landssambandsins einskorðast
við landsfund á tveggja ára
fresti, þar sem félögin hafa
reynt að samræma aðgerðir
sfnar. Hefur þetta nú breyst,
þar sem landssambandið er að
hefja starfsemi, sem getur, að
sögn forráðamanna, orðið all
umfangsmikil. I vetur starfa á
vegum LlB þrfr þriggja manna
starfshópar sem taka fyrir og
kynna sér vendilega megin-
málefnin og gera grein fyrir
niðurstöðum sfnum.
Sá hópur sem lengst er
kominn f starfi sínu hefur tekið
fyrir efnið slys og slysavarnir
hjá börnum og hafa greinar þvf
viðvíkjandi þegar birst í fjöl-
miðlum.
Þann rúma aldarfjórðung,
er þörfin fyrir þessi athvörf
gífurleg.
Að sögn Kristins Björnsson-
ar, formanns LlB, hefur hin
mikla starfsemi sambandsins f
för með sér stofn- og rekstar-
kostnað, sem gerir því kleift að
halda áfram að veita fé til
stofnana og styrkja einstakl-
inga til sérnáms erlendis. Nú
eru t.d. tveir kennarar frá
öskjuhliðaskólanum á styrkj-
um við sérnám í meðferð og
uppeldi vanheilla barna. Það
kom einnig fram að barna-
sem barnaverndarfélögin hafa
verið starfrækt hafa þau rekið
fræðslustarfsemi sína með út-
gáfu fjögurra fræðslurita um
uppeldismál svo og útvarps-
erindum.
Félögin hafa verið með fjár-
styrki til ýmissa stofnana, þá
sérstaklega Reykjavíkur-
félagið, sem átti rfkan þátt í
uppbyggingu Skálatúns-
heimilisins. A sfðastl. ári var
öllu söfnunarfé Reykjavfkurfé-
lagsins varið til barnaheimilis-
ins f Kumbaravogi og 1974 lagði
það ásamt Kvenfélagi Hvíta-
bandsins til helming andvirðis f
kaup á Kleifarvegi 15. Þar rek-
ur fræðsludeild Reykjavfkur f
samvinnu við sálfræðideild
skóla nú heimili fyrir sex börn,
sem eiga við hegðunar- eða geð-
ræn vandkvæði að stríða. Eirík-
ur Ragnarsson félagsráðgjafi
og Regfna Höskuldsdóttir sér-
kennari veita heimilinu for-
stöðu. I Reykjavík eru nú af
hálfu Reykjavíkurfélagsins
rekin svonefnd athvörf í fjór-
um skólum — fyrir börn sem
einhverra hluta vegna hafa
ekki athvarf heima hjá sér. Að
sögn Dr. Sigurjóns Bjornssonar
verndarfélag Reykjavíkur á
stærstan þátt f þessum f járveit-
ingum.
Landssambandið hefur tekið
upp náið samstarf við hliðstæð
samtök á Norðurlöndum, sem
Dera heitið „Redd Barnet". En
þau samtök gáfu þrjátíu millj-
ónir króna til viðlagasjóðs
vegna eldgossins í Eyjum, 1973,
og fyrir það fé var reist dag-
heimili í Keflavfk.
Að lokum gátu forráðamenn
LlB þess, að almennur skilning-
ur á störfum sambandsins og
hinna einstöku félaga hefði
aukist mikið og viðhorfin
breyst, sérstaklega f sambandi
við þroskaheft börn, en fyrir
aldarfjórðungi sfðan var aldrei
minnst á kennslu f þvf sam-
bandi og meðferðin var öll önn-
ur, eins og dr. Sigurjón Björns-
son komst að orði. Einnig gátu
þeir þess að grundvöllur væri
fyrir miklu meiri hjálparstarf-
semi á vegum LlB.
Ætlunin er að tvfskipta
merkjasölunni f dag, þannig að
skólabörn selji fyrri hluta dags,
en fullorðnir félagar selji
merkið við samkomustaði í
kvöld.
HLIRVGGIIIG
bœtir nónast
allt!
j
Það er hræðilegt að missa málninguna ofan í
nýja teppið, — en ALTRYGGINGIN bjargar
málinu og borgar tjónið!
Veljií UTBTHINUU
fyrir beimilii og fjölskylduna!
ÁBYRGDP
TRY9GINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN
Skúlagölu 63 * Reykjavík • Sími 26122