Morgunblaðið - 26.11.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.11.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1976 j 17 Norrænar bækur kynntar A laugardaginn kemur, þ. 27. nóvember, kl. 16.00, verður kynn- ing á nýjum bókum frá Svíþjóð og Danmörku I umsjón sænsku og finnsku sendikennaranna Ingrid Westin og Ros-Mari Rosenberg og bókasafns Norræna hússins. Bókakynning þessi er liður í kynningu norrænu sendikennar- anna við Háskóla tslands i sam- vinnu við Norræna húsið. Seinni kynningin verður laugardaginn 4. des. I umsjón danska sendikenn- arans Peter Rasmussens og hins norska, Ingeborg Donali. Þar les danski rithöfundurinn Svend Age Madsen m.a. úr nýjustu bók sinni, Tugt og utugt í Mellemtiden. Svend Age Madsen heyrir til til- raunahöfundunum svonefndu, en hann er fæddur árið 1939. Oör- yggi og leitin að því varanlega gengur eins og rauður þráður i gegn um verk hans. Hann metur skoðanir og atburði frá ýmsum sjónhornum. Fyrsta bók Madsens kom út árið 1962, en siðan hefur hann sent frá sér smásögur, leik- rit, reyfara og barnabók. Tugt og utugt er önnur skáldsaga hans. Svend Age Madsen voru veitt stóru verðlaun dönsku akademi- unnar árið 1972. „í afahúsi,” ný bók eftir Guð- rúnu Helgadóttur BÓKAUTGAFAN Iðunn hefur gefið út nýja barnabók eftir Guðrúnu Helgadóttur. Nefnist hún „I afahúsi". I fréttatilkynningu f rá útgðf- unni segir m.a.: „Aðalsöguhetjan er Tóta litla, átta ára gömul, en óvenjulega greind og bráðþroska eftir aldri. Hún á heima I húsi afa sfns ásamt foreldrum sfnum og systkinum. Tóta þarf að mörgu að hyggja og ýmislegt óvænt skeður í lffi henn- ar og fólksins f afahúsi, og það skortir ekki skemmtileg atvik né hnyttin tilsvör fremur en f fyrri bókum Guðrúnar." Guðrún Helgadóttir í afahúsi Bókin er prýdd fjölda mynda eftir Mikael V. Karlsson. Fyrri bækur Guðrúnar tvær um Jón Odd og Jón Bjarna hafa báðar komið út f nýjum útgáfum á þessu ári. Örn og Örlygur: Tvær nýjar fléttimynda- bækur komnar BÖKAUTGÁFAN örn og Örlygur hefur gefið út tvær nýjar flétti- myndabækur, en i fyrra komu út tvær fyrstu bækurnar f þessum flokki. Nýju fléttimynda- bækurnar heita A ströndinni og I dýragarðinum. Fléttimynda- bækurnar eru ætlaðar 3—7 ára börnum. I bókunum er ekkert lesmál, heldur myndir sem hægt er að flétta og raða saman á 2400 vegu. Hugsunin er sú, að börnin og foreldrarnir semji sjálf sögur um leið og myndunum er flétt. Fléttimyndabókunum er ætlað að þroska börnin, auka orðaforða þeirra, hugmyndaflug og málbeit- ingu. Nýtt fískmeð- höndlun- arkerfi SVlAR hafa sett á markað nýtt ódýrt og einfalt meðhöndlunar- kerfi á fiski, sem þeir kalla „fiskur á linu“, og á það að geta haldið fiski ferskum i allnokk- urn tíma. Hægt er að nota helztu hluta kerfisins aftur og aftur en upphafsmaður þess er Göran Larson, uppfinninga- maður i Gautaborg. Mikilvægasti hluti kerfisins er sterkur plastbakki, sem er hannaður með það fyrir augum að vera auðveldur í meðförum. Bakkinn, getur tekið 30 kíló- grömm af fiski og stendur á fjórum stuttum fótum. Á botn- inum eru tennur, sem varna því að hann renni í ókyrrum sjó. Bakkinn er kallaður Ytterpack. Með honum er pallur, Aqua- pack, sem safnar upp vökva, og ýmisskonar auka pakkningar. Plastbökkunum má stafla innan i tjald, sem gert er úr ál-klæddu efni. Tjaldinu er lok- að með rennilás, og getur það haldið stöðugu hitastigi á fisk- inum. Aðventukvöld í Hafnarf jarð- arkirkju SUNNUDAGINN 28. nóvember verðu aðventukvöld i Hafnar- fjarðarkirkju og hefst það kl. 20:30. Dr. Vilhjálmur Skúlason prófessor flytur erindi, skóla- stjóri Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar, Páll Gröndal leikur ein- leik á selló og nemendur úr skól- anum leika einleik og samleik á blásturshljóðfæri. Þá syngur kvennakór kirkjunnar, sungnir verða aðventusálmar, organleik- ari kirkjunnar leikur einleik og prófasturinn sr. Garðar Þorsteins- son flytur ávarp. Ný flugstöð við Stokkhólm NÝ' flugstöð var tekin i notkun á Arlandaflugvelli við Stokkhólm 30. október sl. Bygging hennar hefur tekið 3 ár og á hún að geta annað 4Í4 milljón farþega á ári, en ekki er búist við að svo margir farþegar fari um völlinn fyrr en siðla næsta áratugar. Myndin sýnir nýju bygginguna en I henni eru öll þau þjónustutæki, sem eðlileg teljast á farþegaflugvöll- um. Þar munu um 1.500 manns starfa. Tveir ranar liggja út á flugvélastæðin, annar ætlaður áætlunarflugi en hinn leiguflugi. Hvor raninn annar umferð 1.000 farþega en öll byggingin getur tekið á móti 1.200 farþegum á hverjum 20 mínútum. AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 Það hefur enginn efni á að /ata efnamarkaðmn fram hjá sér fara EINNIG ERU TIL SÖLUNIARKAÐNUM | | Föt með vesti Terelyne buxur. lít Q Pils og pilsdragtir | | Stakir kvenjakkar □ Fermingardragtir □ Skór Q] 1 00% ullarflannel | | Tweed ullarefni Q Rifflað flauel ] Terelyne og ullarefni Einlit Dacron efni | | Burstað Denim Q Köflótt ullarefni OTRULEGA GÓÐ VERÐ TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR Utsölumarkaöurinn LAUGAVEG 66 SÍMI FRA SKIPTIBOROI 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.