Morgunblaðið - 26.11.1976, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 26.11.1976, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1976 Skozka úrvalsdeildin: Celtic sigraði Rangers og Aberdeen tók forystuna CELTIC vann mikilvægan sigur I skozku úrvalsdeildinni í fyrra- kvöld er liðið bar sigurorð af höfuðandstæðing slnum gegnum árin, Glasgow Rangers, og það á heimavelli Rangers, Ibrox Park. Eina markið sem skorað var I þessum leik gerði Joe Craig seint í fyrri hálfleiknum, en allan fyrri hálfleikinn átti Celtic meira í Mislitir bad- mintonbúningar HINGAÐ til hafa alhvítir búning- ar verið allsráðandi i badminton- íþróttinni, en svo kann að fara að breyting verði á þvi áður en langt um liður. A Norðurlandaþingi badmintonleiðtoga sem haldið var hérlendis í tengslum við Norður- landamótið um helgina, kom þetta mál til umræðu og fékk sú uppástunga að taka upp notkun mislitra búninga á badminton- mótum góðar undirtektir hjá þingfulltrúum. Var ákveðið að Svíar kæmu þessu máli á fram- færi á næsta alþjóðaþingi, sem haidið verður í Malmö á næsta ári. Á þinginu var einnig rætt all- mikið um niðurröðun opinna móta á Norðurlöndunum í hinum ýmsu aldursflokkum, svo og um ódýrustu ferðamöguleika innan Norðurlandanna í þeim tilgangi að-geta aukið iþróttaleg samskipti landanna á þessu sviði. leiknum og lék betri knattspyrnu. t seinni hálfleik snerist dæmið svo við, Rangers sótti meira, en vörn Celtic var vel á verði og tókst að halda hreinu. Jóhannes Eðvaldsson lék ekki með Celtic-liðinu að þessu sinni, en svo virðist sem hann sé að færast nær því takmarki að kom- ast í aðalliðið, þar sem hann var á varamannabekknum. Tveir aðrir leikir í skozku úr- valsdeildinni fóru fram í fyrra- kvöld. Aberdeen sigraði Ayr Utd. á heimavelli sínum 1—0, en Hibernian tapaði fyrir Mother- well 0—2. Eftir leikina í fyrrakvöld hefur Aberdeen náð forystu í skozku úrvalsdeildinni, er með 17 stig eftir 12 leiki. Dundee United hef- ur einnig hlotið 17 stig eftir 12 leiki, en er með óhagstæðara markahlutfali en Aberdeen. Celtic er nú í þriðja sæti með 15 stig eftir 11 leiki, og á þvi mögu- leika á að ná Dundee United og Aberdeen að stigum, vinni liðið leikinn sem það á inni. Rangers og Motherwell hafa hlotið 13 stig, Hearts, Hibernian og Partick eru með 9 stig og á botninum eru svo Ayr United með 7 stig og Kilmarnock með 5 stig. I 1. deildinni skozku er svo mikil barátta mílli Clydebank sem er með 27 stig og St. Mirren sem er með 26 stig. Þykja þessi tvö lið skera sig nokkuð úr í deild- inni og likleg til þess að vinna sig upp í úrvalsdeildina. Hörður Sigmarsson — markakóngurinn f 1. deild leikur með pressuliðinu gegn landsliðinu á laugardag- inn. Fjórir „nýliðar" í pressuliðinu IÞRÓTTAFRÉTTAMENN hafa nú valið iið það, pressuliðið, sem mun mæta íslenzka handknatt- leikslandsliðinu f leik I Laugar- dalshöllinni n.k. laugardag. Er liðið að mestu skipað gamalkunn- um köppum, en þó eru í því fjórir leikmenn, sem þarna munu leika sinn fyrsta úrvalsleik. Eru það þeir örn Guðmundsson, ÍR, Jón Pétur Jónsson, Val, Ingi Steinn Björgvinsson, KR, og Sfmon Unn- dórsson, KR. Pressuliðið þannig skipað: verður annars BÆÐI VESTUR-ÞYZKU LIÐIN TÖPUÐU I UEFA-KEPPNINNI Dr. Ingimar Jónsson QUEENS Park Rangers tókst í fyrra- kvöld að bera sigurorð af hinu sterka þýzka liði FC Köln í UEFA- bikarkeppninni I knattspyrnu, er lið in mættustá heimavelli Q.P.R. Úrslit leiksins urðu 3:0, og má mikið vera ef Þjóðverjunum tekst að vinna upp þann markamun er liðin mætast öðru sinni og þá í Köln. Leikurinn í Lundúnum i fyrrakvöld þótti hinn skemmtilegasti. en athygli vakti að áhorfendur voru ekki nema 25 þúsund talsins, eða litið fleiri en á venjulegum fyrstu deildar leik hjá QPR Mörk enska liðsins í leiknum skoruðu þeir Don Givens, David Webb og Stan Bowles Gangur leiksins var í stuttu máli sá, að Q P R hafði góð tök á leiknum í fyrri hálfleik og skoraði þá tvö marka sinna, en í seinni hálfleikn- um sótti þýzka liðið mun meira, en án árangurs. Q.P.R. átti hins vegar af og til góðar sóknarlotur og tókst að skora úr einni þeirra Stærsta sigurinn i keppninni í fyrra- kvöld vann austur þýzka liðið Magde- burg sem hreinlega burstaði mótherja sina, Videoton frá Ungverjalandi. enda léku tveir beztu leikmenn ungverska liðsins af einhverjum ástæðum ekki með því. Úrslit leiksins urðu 5:0 fyrir Magdeburg og skoruðu þeir Streich, Mawes, Pommerenke og Tyll (2) mörk liðsins Áhorfendur voru um 1 5 000 Barcelona vann Öster Spánska liðið Barcelona fór í heim- Uppsláttarrít um íþróttir - tvö ný bindi í Alfræði Menningarsjóðs MENNINGASJÖÐUR kynnti í gær tvær nýjar bækur f bóka- flokki sínum „Alfræði Menn- ingarsjóðs“. Fjalla þessar bækur um fþróttir, en áður hafa komið út f bókaflokki þessum bækur um hagfræði, skáldatal, lslandssaga og fl. Hinar nýju bækur eru sam- tals rösklega 300 blaðsfður að stærð, og eru fyrst og fremst upp- sláttarrit um hinar ýmsu greinar fþrótta, sögu þeirra og um íþrótta- menn. Dr. Ingimar Jónsson tók bækur þessar saman og kom fram á blaðamannafundi er Menningar- sjóður efndi til í gær, að hann hefði unnið að bókunum þrjú undanfarin ár, en hann sagði jafnframt að þegar hann tók verkið að sér hefði hann gert sér vonir um að ljúka því á tiltölulega stuttum tima. Verkið hefði hins vegar verið mun viðameira en hann átti von á, enda Var svo að ætlunin var I fyrstu að þarna yrði aðeins um eina bók að ræða. 1 formála sínum að bókunum segirdr. Ingimar Jónsson m.a.: í ritinu er nær allra íþrótta- greina getið, sem iðkaðar eru í heiminum að nokkru ráði. Aðeins fáeinar þeirra urðu útundan (t.d. biljarð, keiluspil, fjallganga) af ýmsum ástæðum, þó einkum þeirri, að of mikið rúm hefði þurft til þess að gera þeim nægi- leg skil vegna þess að þær eru lftt þekktar hérlendis. Vitaskuld lagði ég talsvert kapp á að gera sem ítarlegast grein fyrir helztu og vinsælustu íþróttagreinunum, þótt ég yrði að sjálfsögðu að stikla á stóru. Einnig eru í ritinu all- mörg orð og hugtök úr íþrótta- fræðum. Þótti mér rétt að taka þau upp vegna þess að hér á landi eru skilgreiningar á fræðiheitum í íþróttum mjög á reiki. Margar skilgreininganna í ritinu eru frumsmíði, og geri ég mér vel ljóst, að margar þeirra muni tæp- ast standast tfmans tönn fyrir. 'Þetta á lika við um þau mörgu nýyrði sem vfða koma. Það varð úr að geta aðeins stutt- lega nokkurra einstaklinga, bæði innlendra og erlendra, sem hlotið hafa frægð fyrir iþróttaafrek eða eru kunnir fyrir störf að fþrótta- málum eða innan íþróttahreyfing- arinnar á Islandi. Það skai skýrt tekið fram, að þessir einstakling- ar eru ekki valdir samkvæmt einhverju óskeikulu mati, heldur þess gætt, að sem flestar íþrótta- greinar og sem flest svið líkams- menningar og íþrótta ættu full- trúa f ritinu og að nefna þá sem geta státað af löngum og sigursæl- um íþróttaferli eða afrekum á alþjóðavettvangi. Jafnframt þótti mér meiri ástæða til þess að geta þeirra íþróttamanna og iþrótta- frömuða, sem gengnir eru eða hættir þátttöku í íþróttum. Ég vona, að „val“ mitt á einstakling- Framhald á bls. 25 sókn til sænska liðsins Öster og urðu úrslit í þeim leik þau að Barcelona sigraði 3:0 Neeskens og Clares gerðu mörk spánska liðsins Áhorfendur voru tæplega 1 5 þúsund Junventus— Donetzk Sovézka liðið Schahtor Donetzk sótti ítalska liðið Juventus heim og var þar aldrei spurníng um hvort liðið myndi sigra, heldur aðeins um hve stór sigur Juventus yrði. ítalska liðið sýndí mjög góða knattspyrnu. og átti fjölmörg góð marktækifæri sem ekki nýttust utttutan þriigja Mörkin skoruðu Bettega, Tard- elli og Boninsegna Má ætla að ftalska liðið sé nokkuð öruggt áfram i keppn- inni Espanol — Feyenoord Spánska liðið Espanol varð að bita i það súra epli að tapa á heimavelli sinum fyrir hollenzka liðinu Feyenoord 0:1 Spánska liðið var meira I sókn i þessum leik, en Hollendingarnir vörð ust vel og gáfu sjaldan færi á marki sinu. Undir lok leiksins náðu þeir svo að skora með aðstoð eins varnarleik manna Espanol. og verður þvi að telj- ast sennilegt að Hollendingarnir kom- ist áfram í keppninni Molenbeek — Schalke 04 Ein tvisýnasta viðureign þessarar umferðar var milli belgiska liðsins Molenbeek og vestur-þýzka liðsins Schalke 04 Fóru leikar svo að Belgiu- menn sigruðu 1 — 0 með marki Lafont Schalke er þekkt fyrir að vera erfitt lið á heimavelli og hefur t d i vetur burstað Bayern Múnchen þannig að von Belgiumannanna um að þetta eina mark nægi þeim til að komast áfram i keppninni er ekki mikil AEK — Rauða stjarnan í Aþenu bar griska liðið AEK sigur- orð af Rauðu-stjörnunni frá Júgóslaviu með tveimur mörkum gegn engu Bæði mörkin voru skoruð i fyrri hálf- leik. Atletico Bilbao— AC Milan í Bilbao á Spáni sigraði heimaliðið ítalska liðið AC Milan í mjög skemmit- legum leik með fjórum mörkum gegn tveimur eftir að staðan hafði verið 1-— 1 í hálfleik Þrátt fyrir að sex mörk væru skoruð í þessum leik fóru bæði liðin illa með góð marktækifæri sem gáfust. Markverðir: örn Guðmundsson, IR Kristján Sigmundsson, Þrótti Aðrir leikmenn: Steindór Gunnarsson, Val Jóhannes Stefánsson, Val Árni Indriðason, Gróttu Hörður Sigmarsson, Haukum Stefán Jónsson, Haukum Jón Pétur Jónsson, Val Brynjólfur Markússon, IR Elías Jónasson, Þór Ingi Steinn Björgvinss., KR Simon Unndórsson, KR Eins og sjá má af upptalning- unni er lið þetta skipað mjög sterkum handknattleiksmönnum, og ættu þeir að geta veitt landslið- inu harða og skemmtilega keppni. Þrir leikmanna pressuliðsins, er höfðu verið valdir í landsliðshóp- inn, en tveir þeirra, Hörður Sig- marsson og Árni Indriðason, gáfu ekki kost á sér til æfinga lands- liðsins. Þriðji leikmaðurinn sem er í landsliðshópnum er annar markvörðurinn, Kristján Sig- mundsson, Þrótti. FREDERICA TAPAÐI í UNGVERJALANDI DANSKA liðið Fredericia KFUM og ungverska liðið Dozsa Debrechen iéku fyrri leik sinn I annarri umferð Evrópubikar- keppni meistaraliða I handknatt- leik f Debrechen I Ungverjalandi nýlega. Urðu úrslit f leiknum þau, að ungverska liðið sigraði með 28 mörkum gegn 23, eftir að hafa haft eins marks forystu, 12—11, f hálfleik. Var leikurinn mjög jafn f fyrri hálfleik en f byrjun seinni hálfleiksins náðu Ungverjarnir undirtökunum og komust um tfma f 8 marka for- ystu er staðan var 23—15. Sá leikmaður, sem vakti mesta athygli í þessum leik, var Daninn Flemming. Hansen, sem skoraði 11 mörk í 17 skottilraunum sinum I leiknum. Var hann vitanlega markhæstur í liði sínu, en aðrir sem skoruðu fyrir það voru: Anders-Dahl Nielsen 7, Jesper Petersen 2, Sören Andersen, Heine Sörensen og Rene Jungland 1. I ungverska liðinu var hinn 33 ára Istvan Varga langmarkhæstur en hann skoraði 12 mörk. Aðrir sem skoruðu fyrir liðið voru Laszio Lukas 6, Ferenc Molnar 4, Laszlo Serkösi 3, Mihaly Suvoltos 2, Janus Kormos 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.