Morgunblaðið - 26.11.1976, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÖVEMBER 1976
Alþingi í gær;
Bundið
vegaslit-
lag og 18
ára kosn-
ingaaldur
FUNDUR var i sameinuðu
þingi í gær. Ákveðin var máls-
meðferð (ein umræða) á þrem-
ur tiliögum til þingsályktunar:
um kosningarétt, um fiskmjöls-
verksmiðju i Grindavík og
fræðslu iþágu áfengisvarna.
Tillögum um rannsókn á út-
breiðslu atvinnusjúkdóma og
um málefni þroskaheftra var
visað til 2. umræðu og allsherj-
arnefndar deildarinnar.
Eyjólfur Sigurðsson (A)
mælti fyrir tillögu til þings-
ályktunar um 18 ára kosninga-
aldur, sem nokkrir þingmenn
Alþýðuflokks flytja. Lúðvfk
Jósepsson (Abl) tjáði sig sam-
þykkan efnisatriði tillögunnar.
Miklar umræður urðu hins
vegar um tillögu um „lagningu
bundins slitlags á þjóðvegi".
Til máls tóku Ólafur G. Ein-
arsson, Halldór E. Sigurðsson,
Jón Helgason, Ingi Tryggvason,
Páll Pétursson og Karvel
Pálmason.
Alþýðubandalag:
Nefnd rannsaki inn-
kaupsverð á vörum
FJORIR þingmcnn Alþýðu-
bandalagsins flylja eflirfar-
andi tillögu til þingsályktunar
um skipun i annsóknarnefndar,
samkvæmt 29. grein stjórnar-
skrárinnar, til að rannsaka inn-
kaupsverð á viirum o.f I.:
„Neðri dcild Alþingis ályktar
að kjósa 5 manna rannsóknar-
nefnd samkv. ákva'ðum í 39. gr.
st jórnarskrárinnar.
Verkefni nefndarinnar séu:
1. Að rannsaka hvort innkaup
á vörum til landsins séu með
eðlilegum hætti og í samræmi
við þjóðarhagsmuni eða hvort
brögð séu að þvi, að vörur séu
keyptar til landsins á óhag-
kvæmu verði, sem leiði til
hærra vöruverðs i landinu en
ætti að vera.
2. Að rannsaka sérstaklega
áhrif umboðslauna i vöruverði,
gjaldeyrisskil á umboðslaunum
og hversu öruggt eftirlit sé nú
með gjaideyrisnotkun til vöru-
kaupa.
Nefndin rannsaki aðra þætti
þeirra mála, sem hér um ræðir,
eftir þvi sem henni þykir
ástæða til.
Hún skal i störfum sinum
hafa fullan rétt til allra upplýs-
inga frá opinberum aðilum, ein-
staklingum og fyrirtækjum eft-
ir því sem nauðsynlegt reynist.
Nefndin skili skýrslu til Al-
þingis um rannsóknir sínar,
eigi síðar en 2 mánuðum eftir
að ályktun þessi er gerð.
Kostnaður við störf nefndar-
innar greiðist úr ríkissjóði.
Þingfréttir í stuttu máli:
Frumvörp til barnalaga og
ættleiðingarlaga. — Iðnþró-
unarstofnun á Austurlandi
FRAM vóru lögð í gær tvö stjórn-
arfrumvörp: til ættleiðingarlaga
og til barnalaga. Frumvörp þessi,
sem samin eru af sifjalaganefnd,
eru yfirgripsmikil og athyglis-
verð. Þau vóru bæði lögð fram á
sfðasta þingi til kynningar, en eru
nú endurflutt.
Réttur
óskilgetinna barna
Frumvarp til barnalaga er sam-
ið út frá þvl grunnsjónarmiði að
gera óskilgetin börn jafn sett skil-
getnum börnum að lögum.
I 1. gr. 2. málsgrein er lagt til,
að mælt sé berum orðum svo, að
réttarstaða óskilgetins barns sé
hin sama og skilgetins barns,
nema lög mæli annan veg. Er það
stefnuyfirlýsing, sem ætlað er
einnig að hafa lagagildi, og m.a.
gæti hún haft áhrif á lögskýringu
i einstökum tilvikum sem og túlk-
un löggerninga.
Kaflafyrirsagnir frumvarpsins,
sem bera með sér efnislegt inni-
hald, eru þessar: Gildissvið lag-
anna, Faðerni skilgetins barns,
Faðerni óskilgetins barns, Fram-
færsla barna og uppeldi, Barns-
fararkostnaður o.fl., Greiðsla
framfærslueyris og innheimtuúr-
ræði, Lögsaga íslenzkra dómstóla
um faðerni barna, Forsjá barna
(foreldravald) og umgengnisrétt-
ur, Mál til faðernis barns, Gildis-
taka og brottfallin lög (en þar eru
talin þau lög, er nú gilda um þetta
efni, en falla úr gildi, ef frum-
varpið verður samþykkt).
Ný ættleiðingarlög
Frumvarpinu er skipt i fjóra
meginkafla: 1) um veitingu ætt-
leiðingarleyfa og lagaskilyrði fyr-
ir þeim, 2) lagaáhrif ættleiðingar,
3) niðurfellingu ættleiðingar og
4) ýmis ákvæði, þ.á.m. um ætt-
leiðingar erlendis á fslenzkum
börnum og ættleiðingu hérlendis
á erlendum börnum. Engin leið er
að rekja í stuttri fréttafrásögn
efnisatriði svo umfangsmikilla
lagafrumvarpa sem hér um ræðir.
Þeim, sem hafa sérstakan áhuga á
að kynna sér þau, skal bent á að
lagafrumvörp er hægt að fá í
skrifstofu Alþingis.
Iðnþróunarstofnun
Austurlands
Lúðvfk Jósepsson (Abl) hefur
lagt fram frumvarp til laga um
Iðnþróunarstofnun Austurlands.
Hún skal vinna að eflingu iðnaðar
á Austurlandi m.a. með þvi að: 1)
hafa forgöngu um að koma á fót
nýjum iðnfyrirtækjum og efla
þau, sem fyrir eru 2) að koma á
sem hagkvæmustu sölufyrir-
komulagi á iðnaðarframleiðslu
fjórðungsins og 3) að veita fjár-
hagslegan stuðning og fyrir-
greiðslu til stofnunar nýrra iðn-
fyrirtækja þar sem sérstaklega
verði leitazt við að koma upp sam-
rekstri nokkurra byggðarlaga um
iðnaðarframleiðslu.
Stjórn stofnunarinnar skal
skipuð 5 mönnum: tveimur skip-
uðum af rikisstjórn en 3 af Sam-
bandi sveitarfélaga í Austur
landskjördæmi. Stjórnin skal
skipuð til 3ja ára.
Ríkissjóður leggur stofnuninni
til 20 m.kr. á ári i þrjú ár — og
sveitarfélög eystra 10 m.kr. Fram-
lögin skulu óafturkræf. Iðnaðar-
ráðherra setur stofnuninni reglu-
gerð um störf hennar, þ.ám.
reikningshald og endurskoðun.
Vörugjald 18% til
áramóta 1977—78
Stjórnarfrumvarp er fram kom-
ið þ.ess efnis, að vörugjald skuli
áfram vera 18% til 31. desember
1977, af sömu vöruflokkum og áð-
ur.
Söluskattur áfram 20%
Þá er fram komið stjórnarfrum-
varp þess efnis, að „af andvirði
seldrar vöru og verðmæta, endur-
gjaldi fyrir hvers konar starfsemi
og þjónustu, úttekt til eigin nota
og innfluttum vörum til eigin
neyzlu eða nota innflytjenda skuli
greiða 18% söluskatt auk 2%
söluskattsauka, eftir því sem nán-
ar verður á kveðið í lögum. Sölu-
skattur verður því áfram óbreytt-
ur. Hins vegar fellur niður 1 %
framlag til niðurgr. olíu til hús-
hitunar, sem tekið er beint inn á
fjárlög skv. fjárlagafrumvarpi.
Flugsamgöngur
við Vestfirði
Sigurlaug Bjarnadóttir (S) hef-
ur borið fram eftirfarandi fyrir-
spurnir til samgönguráðherra:
1. Eru einhver áform á döfinni
um það, hvernig stuðlað verði að
tryggari flugsamgöngum við Vest-
firði?
2. Hafa verið athugaðir möguleik-
ar á lengingu og endurbótum
flugbrauta við Holt í Önundar-
firði og í Bolungarvik með tilliti
til hinna sérstöku aðflugserfið-
leika við Isafjarðarflugvöll?
Bundið slitlag á þjóðvegi:
Landsbyggðarvegir
MORGUNBLAÐIÐ hefur nýverið birt framsögu Ólafs 'G.
Einarssonar (S) fyrir tillögu til þingsályktunar um bundið
slitlag á þjóðvegi, sem gerir ráð fyrir lagningu varanlegs
slitlags á þá kafla þjóðvegakerfis, sem ekki þarf að undir-
byggja sérstaklega til þess verks, í áföngum á nokkrum árum,
án skerðingar á öðrum verkþáttum vegagerðar. Hér fer á eftir
ræða Sigurlaugar Bjarnadóttur (S), er hún flutti um sama mál,
þar sem hún telur að forgangsverkefni í vegagerð sé að byggja
upp þá landsbygðarvegi, er teppist í fyrstu snjóum á haustin.
Hér liggur frammi til umr till um
lagnmgu bundins slitlags á þjóðvegi
Þessan till hefur verið fylgt úr hlaði
með mjog skörulegum málflutnmgi
enda er till í sjálfu sér góð á því leyti,
að þarna er talað um markmið sem við
öll að sjálfsogðu viljum keppa að. að
gera aðalakvegakerfi landsins sæmi-
lega úr garði. sem er meira en sagt
verður um ástand þjóðvega almennt í
dag Ég vil taka fram strax, að ég er
hjartanlega sammála 1 flm . Ólafi G
Emarssyni, um það atriði. að mikill
vandi okkar vegamála hljóti að leysast
með þeim hætti að auka tekjur vega
sjóðs. auka hlutdeild vegasjóðs i
bensmskatti. sem nú er óeðlilega litill,
eins og hann færði töluleg rök fyrir Ég
mmnist þess líka að hæstv samgrh
við afgr vegaáætlunar i vor benti á
alltof naum fjárráð vegasjóðs og hann
benti sömuleiðis á, að lánsfé til vega-
mála myndi aukast úr 1000 millj árið
áður upp í 1 600 millj á þessu ári, sem
er alldrjúgjr skildmgur og þar stað-
næmist ég nú einmitt við eitt af þeim
atriðum sem ég tel hæpið f till flutn-
ingi þeirra Ólafs G Einarssonar og
Jóns Helgasonar, að þar er gert ráð
fyrir innlendum eða erlendum lántök
um Ég hef oft og ítrekað látið það i
Ijós á Aiþ hér upp á síðkastið að mér
fellur illa þeg.’r ég sé koma frá
stjórnarþm þingmál sem fela í sér
auknar erlendar lántokur Ég heyri ekki
betur og ég fæ ekki betur skilið okkar
efnahagsstöðu nú, en að erl skuldirnar
séu það, sem okkur stafar hvað mest
hættan af og við þurfum að hafa meiri
hemil á en við höfum haft á undanförn-
um árum Þess vegna tel ég, að þó að
gott mál sé annars vegar þar sem bætt
végakerfi er þá réttlætir það ekki till.
um auknar erlendar lántökur
Það sem Páll Pétursson sagði um
stefnumörkun þessarar till. og kom
raunar greinilega fram í máli flm þá vil
ég segja það, að ég er hlynntari stefnu
þeirri sem kom fram hjá Páli, enda er
ég flm ásamt honum að annarri till
um vegamál, sem gengur nokkuð i
öfuga átt við þessa að því er stefnu-
mörkun varðar Þó vil ég segja það
strax, að ef ég hefði samið þá till . sem
ég vitnaði í, um byggingu vega upp úr
snjó þá hefði ég ekki vogað mér að
minnast á erlendar lántökur, en þar er
það gert einnig Við höfum steypt
okkur út í feiknarlegar erlendar lántök-
ur fyrst og fremst vegna þess mála
flokks, sem við höfum yfirlýst sem
forgangamálaflokk og það eru orku-
málin Og það er að minu áliti fyllilega
réttlætanlegt vegna þess hve við erum
að stefna til aukins sparnaðar i
brennslu erlendra orkugjafa Þess
vegna getum við réttlætt fyrir okkur
þessar risavöxnu erlendu lántökur,
sem ganga til orkumála Ég held, að
við hljótum að takmarka okkur við einn
málaflokk i einu og sjá, að ég ekki segi
fyrir endann á orkumálunum, heldur
kannski fyrir erfiðasta hjalla orkumál-
anna áður en við steypum okkur út I
sérstakar stórframkvæmdir í vegamál
um
Það var talað um það af hálfu flm ,
ef ég hef náð því rétt niður, að að því
er varðaði fjármögnun þessarar till þá
væri um þrjár leiðir að ræða
1 Að draga úr öðrum fram-
kvæmdum
2 Meira lánsfé
3 Auknar fjárveitingar
Ég þykist nokkurn veginn viss um
það, eins og hv þm Páll Pétursson, að
raunin yrði sú, að fyrsta leiðin yrði
framkvæmd, þ.e.a s að það yrði
dregið úr öðrum framkvæmdum og
eftir að hafa heyrt álit manna sem til
þekkja út um byggðir landsins og einn-
ig manna, sem vinna að okkar vega-
gerðarmálum hér hjá Vegagerð ríkisins
þá lýsi ég áhyggjum minum yfir þvi, ef
það á að dragast öllu lengur, að bætt
sé um þá vegi, sem allra verst eru settir
í byggðum landsins Páll Pétursson
IÞinGI AlÞinGI
IÞinGI AlÞinGI
og snjóalög
Sigurlaug Bjarnadóttir.
benti réttilega á það, að i fjölmörgum
tilvikum er svo statt nú, að bændur
koma ekki frá sér afurðum sinum né
aðdrætti sinum heim til sfn aftur nema
með óhæfilegri fyrirhöfn Ég held ég
hafi vitnað í það, að ég veit að sumir
vestfirskir bændur þurfa að taka allt að
því heilan dag í það að berjast í snjó-
sköflum með mjólkina sína niður að
næstu ferjubryggju, þar sem flutningar
fara fram á sjó. Ég hygg, að það sé
langtum ódýrara verkefni þó ég viti að
það muni kosta mikla fjármuni, að taka
fyrir með skipulegum hætti þessa
verstu farartálma í byggðum landsins.
sem ár eftir ár leggjast undir snjó,
sömu spottarnir, sem þarf að byggja
upp Það er eina leiðin til þess að koma
málum þessara sveitarbyggðarlaga í
viðunandi horf Ég hef spurt vega-
gerðarmenn um þetta atriði Þeir hafa
að sjálfsögðu sagt, að þarna væri fjár-
frekt verkefni líka annars vegar, en það
fer auðvitað allt eftir þvi hvað víðtækt
við gerum verkefnið Ég tel. að áætlun
næstu 4—5 árin um að afnema þessa
verstu snjóþungu vegartálma sé verk-
efni, sem hljóti að koma á undan
bundnu slitlagi um hringveginn Og ég
er ekki komin til með að viðurkenna,
að umferðin sé meiri á hringveginum
almennt nema þá kannski þrjá — fjóra
mán. ársins, heldur en á þeim vegum.
þar sem sveitabyggðir þurfa að hafa
samband við næstu þjónustumiðstöð
Aðliggjandi sveitahérað við næsta
kaupstað og útgerðarpláss, sem hvort
þarf á öðru að halda, þar er umferðin
býsna stöðug og að ég hygg eins mikil
eins og um suma hverja þá kafla af
hringveginum, sem mundi koma inn i
þessa áætlun till manna Ég er sem
sagt ekki á móti þessari till, ég vil taka
það fram Ég er ekki á móti þessu
verkefni Að sjálfsögðu viljum við öll fá
bætt ástand á hringveginum og aðal
þjóðvegum landsins, en ég vil aðeins
benda á verkefni, sem hafa verið van-
rækt árum saman Vegagerðarmenn
hvar sem er af landinu ber saman um,
að viðhaldsvegafé hafi verið stillt svo í
hóf, að það hafi verið skorið svo við
nögl, að til vandræða horfi um almennt
viðhald veganna Veit ég vel, að
bundið slitlag mundi létta á viðhaldinu
en það bara nær ekki til þeirra vega,
sem ég er að tala um — þessi áætlun
um hringveginn og helstu vegi út frá
honum Á sama tíma tölum við um.
um leið og við viðurkennum, að við-
hald veganna út um sveitir landsins er
óviðunandi, og gerum meira en að tala
um, við verjum 1800 millj kr í eina
brú yfir Borgarfjörð, sem ég hef raunar
verið hlynnt, að því að það er fram-
kvæmd sem kemur mörgum að gagni
og nú er talað um að byggð skuli brú
yfir Ölfusá á milli Þorlákshafnar og
sveitanna þar fyrir austan Það munu
verða að ég hygg ekki undir 2—3
milljörðum Ef við höfum næga pen-
inga til að framkvæma þetta allt, þá
segi ég gott og vel Þá óska ég okkur til
hamingju, en ég er hrædd um, að það
verði enn sem fyrr þessir niðurgröfnu
troðningar, sem ár eftir ár valda mönn-
um ólýsanlegum erfiðleikum Ég er
hrædd um, að það verði þeir enn sem
fyrr, sem fá að biða á meðan þetta
verkefm, sem ég tel að yrði forgangs-
verkefni, nyti þeirra fjármuna sem við
yfirleitt getum lagt til vegamála