Morgunblaðið - 26.11.1976, Qupperneq 40
AlííLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
At/antica&J
lceland Review
Látiö gjafaáskrift 1977 fylgja jóia-
og nýárskveöjum til vina og viðskipta-
manna erlendis. Gjöf, sem endist í
heilt ár og allir kunna vel aö meta.
Sími 81590, Pósthólf 93,Reykjavík
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1976
. —Ljósm. HAX.
VIÐ upphaf viðræðufundanna í gær. Fyrir miðri mynd eru Gundelach og Matthías
Bjarnason ' g Einar Ágústson lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru embættis-
menn í viðræðunefndum aðila.
Könnunarvidræd-
urnar vid EBE:
Áfram
ræðzt við í dag
Gundelach ræðir við Geir Hall-
grímsson í forsætisráðuneytinu
ÉG get ekki skýrt frá þvl sem
fram hefur farið á fundunum I
dag, sagði Matthfas Bjarnason,
Framkvæmdir á Grundartanga og Norræni fjárfestingarbankinn:
Rætt um 7,3 mill-
iarða króna lán
FYRSTU lánunum verður úthlut-
að innan skamms úr Norræna
fjárfestingabankanum og eftir
þvi sem Morgunblaðið hefur
fregnað mun Járnblendiverk-
smiðjan á Grundartanga, eða ts-
lenzka járnblendifélagið og
norska fyrirtækið Elkem Spiegel-
verket, fá annað lánið, sem veitt
verður. t viðtali við dr. Gunnar
Sigurðsson st jórnarformann
Járnblendifélagsins I gær sagði
hann að samningaviðræður stæðu
yfir um lánakjor, en um það hefði
verið rætt að bankinn veitti 200
milljónir krónur norskar til
framkvæmdanna við Grundar-
tanga. Samsvarar það um 7.26
milljörðum fslenzkra króna.
Gunnar Sigurðsson sagði að á
Framhald á bls. 25
upp sogdadu f sanddælu skipið, er
þjóna átti þeim tilgangi að hraða
mjög losun skipsins eða í um það
bil eina klukkustund í stað 5—6
klukkustunda, sem losunin hafði
áður tekið. Búnað þennan hafði
hollenzka fyrirtækið hannað og
var siðan skipinu siglt til Hol-
lands til þessara endurbóta.
Fyrir þessu verki var sett 515
þúsund florína ábyrgð eða sem
Framhald á bls. 25
Krafla:
Enn rísa deilur vegna „Grjótjötuns”:
Lögbann sett á greiðslur Lands-
bankans til hollenzks fyrirtækis
NÁMAN HF., eigandi sanddælu-
skipsins Perlu eða Grjótjötuns,
eins og skipið nefndist áður, hef-
ur látið setja lögbann á að Lands-
bankinn inni af hendi tæplega 40
milljóna greiðslu til hollenzks
verktakafyrirtækis, sem annaðist
uppsetningu á tilteknum dælu-
búnaði I skipinu, en forraðamenn
Námunnar telja að um veruleg
vinnusvik hafi verið að ræða af
hálfu hollenzka fyrirtækisins.
Leitað verður staðfestingar á lög-
banninu fyrir dómi i dag.
Nánari tildrög eru þau, að Nám-
an gerði fyrr á þessu ári samning
við hollenzk fyrirtæki um að setja
Kaffi, smjör-
líki og fisk-
bollur hækka
RÍKISSTJORNIN staðfesti á
fundi I gær ákvörðun verðlags-
nefndar um hækkanir á kaffi,
smjörllki, fiskbollum og fiskbúð-
ingi. Kaffi hækkar um 6,5%,
smjörlfki um 4,5%, en meðaltals-
hækkunin á fiskbollum og fisk-
búðingi er 8%.
Samkvæmt upplýsingum
Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra
Framhald á bls. 25
Uppvíst um
smygl á
nokkrum
kg af hassi
til viðbótar
STARFSMÖNNUM ffkniefna-
dómstólsins og ffkniefnadeild-
ar lögreglunnar hefur á allra
slðustu dögum tekizt að upp-
lýsa smygl á nokkrum kflóum
af hassi til viðbótar þeim lið-
lega 20 kg, sem gefin voru upp
I tilkynningu þessara aðila um
daginn. Var hassinu smyglað
til landsins I haust. Þetta fékk
Mbl. staðfest I gærkvöldi hjá
Arnari Guðmundssyni full-
trúa, en hann sagði að ekkert
frekar væri hægt að segja um
þetta nýja hasssmygl, þar sem
rannsókn væri á frumstigi.
Morgunblaðið fékk í gær
uppgefið það magn fíkniefna,
sem búið er að staðfesta inn-
flutning á nú í haust og i sum-
ar en allt er þetta eitt og sama
málið, og hefur það verið í
rannsókn undanfarna mánuði.
Tugir ungmenna eru tengdir
þessu máli og hátt á annan tug
ungmenna hefur setið í gæzlu-
varðhaldi vegna rannsóknar-
innar, eins og rækilega hefur
komið fram í fréttum. Sam-
kvæmt þeim tölum, sem Mbl.
fékk í gær, lætur nærri að
söluverðmæti þessara fíkni-
efna allra sé á ólöglegum
markaði hér innanlands ná-
lægt 50 milljónum íslenzkra
króna.
Samkvæmt upplýsingum Ás-
geirs Friðjónssonar fíkniefna-
dómara, hefur tekizt að upp-
Framhald á bls. 25
sjávarútvegsráðherra, I gær, eftir
að fundum lauk. „Aðilar hafa
skýrt sjónarmið hvors annars og
margvlsleg vandræði og erfið-
leikamál, sem báðir aðilar hafa
við að glfma,“ sagði ráðherrann
og ftrekaði, sem hann hafði áður
sagt, að ekki væri um samingavið-
ræður að ræða, heldur einungis
könnunarviðræður. Fundur hófst
I gær klukkan 10,30 og stóð til að
ganga 15. Þá var fundum nefnd-
anna frestað til klukkan 11 I dag.
Hins vegar munu ráðherrarnir
Einar Ágústsson og Matthías
Bjarnason hafa hitt Gundelach
síðdegis I gær án þess að em-
bættismenn væru viðstaddir.
Finn Olav Gundelach vildi ekk-
ert segja um viðræðurnar eftir
fundinn i gær, en boðaði að
hugsanlega myndi hann eftir
fundina i dag ræða við fjölmiðla.
Hið sama létu islenzku ráð-
herrarnir i skina. Fundirnir í dag
hefjast klukkan 11 i Ráðherrabú-
staðnum, en tveimur tímur fyrr
Framhald á bls. 25
Óska eftir
þriggja kr.
hækkun á
bensínverði
OLlUFÉLÖGIN hafa sent beiðni
til verðlagsyfirvalda um hækkun
á benzfni, gasolfu og svartolfu.
Hækkun á svartolíu hefur þegar
hlotið afgreiðslu, en aðrar hækk-
unarbeiðnir ekki. Hafa olfufélög-
in óskað eftir þriggja krónu
hækkun á benzlni, úr 76 krónum
lftrinn I 79 krónur, og svipaðri
hækkun á gasolfu. Ilækkunin er
tilkomin vegna erlendra verð-
hækkana og slæmrar stöðu svo-
kallaðs innkaupajöfnunarreikn-
ings olfuvara gagnvart olfufélög-
unum, en reikningurinn skuldaði
olfufélögunum 431 milljón króna
hinn 1. október s.l.
Ragnar Kjartansson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Skeljungs hf.
veitti Morgunblaðinu þær uoplýs-
Framhald á bls. 25
Horft vonaraugum á holu 9
AUKINNAR bjartsýni gætir
nú meðal ýmissa forsvars-
manna virkunarframkvæmd-
anna f Kröflu varðandi öflun
virkjanlegrar orku á svæðinu,
enda þótt þeir séu varkárir f
yfirlýsingum og segi að ekki
verði unnt að gera sér glögga
grein fyrir árangri borunar á
svæðinu fyrr en kemur fram f
næsta mánuð. Þó liggur fyrir að
hola nr. 10 er þegar komin með
háan þrýsting sem þykir gefa
ástæðu til nokkurrar bjartsýni
og töluverðar vonir eru einnig
bundnar við holu nr. 11. Þá var
hola nr. 3 kæfð, eins og það er
kallað, f fyrradag og við það
hvarf „Hræðsluvfti" eða leir-
hver sá sem myndaðist skyndi-
lega fyrir nokkrum vikum og
„Hræðsluvíti” hvarf
þegar hola 3 var kæfð
ýmsir töldu f fyrstu vera upp-
haf goss. Nú þykir hins vegar
sýnt, að leirhverinn hefur orðið
til út frá gati f fóðringu holu 3.
Guðmundur Pálmason hjá
Orkustofnun sagði, að segja
mætti að það gætti vissrar
bjartsýni með holu 10, en hins
vegar væri varasamt að segja
nokkuð ákveðið i þessu efni
fyrr en holan hefði verið mæld.
Væri stefnt að því að mæla hol-
una eins fljótt og auðið væri
eða strax upp úr helginni, en
þegar væri kominn hár þrýst-
ingur I holuna. Guðmundur
kvað hins vegar einnig of
snemmt að segja nokkuð um
það í hvaða formi sú orka væri,
sem úr holunni fengist, ef til
kæmi. Hola 10 er skammt frá
holu 4 eða Sjálfskaparvíti, eins
og hún var nefnd eftir að hún
reif allar lokur af sér en áður
en tii þess kom hafði hún gefið
af sér rennsli.
Þá hefur Morgunblaðið
fregnað, að verulegar vonir séu
bundnar við holu 11, en af
hálfu Orkustofnunar er þvi til
svarað að of snemmt sé að spá
nokkru um árangurinn af
þeirri holu. Ekkert verður átt
við holu 5 að sinni, en eins og
komið hefur fram, hefur komið
í ljós hlykkur á þeirri holu sem
hefur f för með sér að ekki er
hægt að koma borstöngum nið-
ur í hana. Fyrirstaða hefur
einnig komið fram í holu 7 en
hún blæs þó eftir sem áður og
er ekki unnt að gera við holu í
blæstri. Þarf því að kæfa hol-
una með þvl að dæla í hana
köldu vatni en því eru ýmis
vandkvæði samfara og verður
ekki gert nema að vel athuguðu
máli, að þvi er Jakob Björns-
Framhald á bls. 22