Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976 3 Þjóðhátíðarsjóður stofnaður af hagnaði myntsláttu: Sjóðuriim stuðli að varðveizlu og vemd lands og menningar BANKARÁÐ Seðlabanka tslands hefur að tillögu bankastjórnar- innar ákveðið að stofna sérstakan sjóð af ágóða af útgáfu þjóð- hátíðarmyntar. Nefnist hann Þjóðhátíðarsjóður og er stofnfé hans 300 milljónir króna. Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, sem hafa það verkefni að vinna að varðveizlu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið f arf. Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri afhenti Geir Hallgrfmssyni forsætisráðherra f gær tillögur að stofnskrá sjóðsins. Forsætisráðherra þakkaði Seðlabankanum og kvað vel við eigandi, að þessu framlagi yrði varið til varðveizlu og verndar þeirra menningarverðmæta, sem kynslóð okkar hefði fengið í arf frá forfeðrunum. Viðstaddir athöfnina í Seðla- bankanum, sem fram fór í gær, voru forseti Islands, herra Kristján Eldjárn og flestir ráð- herrar ríkisstjórnarinnar, æðstu embættismenn Alþingis og annarra stofnana, auk þjóðhátíðarnefdar 1974 og Þrastar Magnússonar, sem teiknaði myntina. Jóhannes Nordal, sem hafði orð fyrir yfir- stjórn Seðlabankans, skýrði frá þvf að hreinn hagnaður af sölu þjóðhátíðarmyntarinnar hefði verið 337 milljónir króna miðað við uppgjörsdag, 31. desember 1975. Með tilliti til þess að ein- hver frekari kostnaður getur orðið vegna innlausnar á mynt og fleiru, og bankinn hefur fall- izt á að taka þátt í ýmsum óupp- gerðum kostnaði vegna þjóðhátíðarinnar eftir nánara samkomulagi við ríkisstjórnina, var stofnfjárhæð sjóðsins ákveðin 300 milljónir króna. Sjóðurinn verður í vörzlu Seðlabanka íslands og til frek- ari ráðstöfunar samkvæmt nánari ákvörðun ríkisstjórnar- innar. Seðlabankinn mun leitast við að ávaxta sjóðinn með sem hag- kvæmustum kjörum og heimilt er að ráðstafa öllum árlegum tekjum sjóðsins til styrkveit- inga í samræmi við hlutverk hans eins og það verður ákvarð- að i stofnskrá. Einnig skal heimilt ef stjórn sjóðsins telur það æskilegt, að ganga á höfuð- stól sjóðsins, en þó aldrei meira en nemur einum tíunda árlega af upphaflegu stofnfé. Jóhannes Nordal kvað seðla- bankastjórnina óska eftir þvi við rikisstjórnina, að hún setti sjóðnum stofnskrá, þar sem kveðið verði á um hlutverk hans og stjórn. Seðlabanka- stjórnin gerir þó ákveðnar til- lögur, þær er forsætisráðherra voru afhentar, þar sem m.a. er sagt að i stofnskrá eigi að kveða á um að ákveðinn hluti af ár- legu ráðstöfunarfé sjóðsins gangi til Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruverndarráðs, en annar fastur hluti til varðveizlu forn- minja, gamalla bygginga og annarra menningarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns. Að öðru leyti ráðstafi stjórn sjóðs- ins fjármunum hans til styrk- veitinga i samræma við megin- tilgang sjóðsins og komi þar einnig til greina viðbótar- styrkir til áðurnefndra þarfá. Lagt er til að stjórn sjóðsins skipi þrir menn. Einn verði til- nefndur af ríkisstjórn tslands. einn af Háskóla Islands, en hinn þriðji af Seðlabankanum. Forsætisráðherra skipi for- mann sjóðsstjórnar. Hlutverk sjóðsstjórnar á að verða sam- kvæmt tillögum Seðlabankans að ákveða hversu miklu fé skuli verja til styrkveitinga á ára hverju innan þeirra marka, sem áður greinir. Einnig ráðstafi hún fé sjóðsins til styrkveitinga, en ákvarðanir sjóðsstjórnarinnar um það efni taki þó ekki gildi nema að feng- inni staðfestingu menntamála- ráðherra. Þá segir í tillögum Seðlabankans að leitazt verði við að tryggja, að styrkir úr Þjóðhátíðarsjóði verði viðbótar- framlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. Jóhannes Nordal sagði f ræðu sinni að vissulega hefði verið unnt að verja fjármununum til margra hluta, en hér væri þó ekki um svo mikið fé að ræða, að það gæti komið að gagni, nema notkun þess sé tak- mörkuð við tiltölulega þröngt svið. Þar sem þessar tekjur hefðu orðið til f beinu tilefni þjóðhátiðar til minningar um 1100 ára búsetu forfeðra okkar í landinu, hátíðar, sem fyrst og fremst var til þess að minna núlifandi kynslóð á þann arf, sem hún hefði hlotið, kvað hann ekki úr vegi að nota þær til þess að hvetja til ræktarsemi við þann menningararf, sem væri undirstaða sjálfstæðis Islendinga f dag. Það hafi ein- mitt verið slík ræktarsemi, sem Alþingi sýndi með samþykkt Framhald á bls. 28 Geir HALLGRlMSSON forsætisráðherra tekur við tillögum Seðlabanka tslands að stofnskrá Þjóðhátfðarsjóðs úr hendi Jóhannesar Nordal seðlahankast jóra í Seðlabanka íslands í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.