Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976
viö Lækjartorg Simi 11595
Aðalstræti 4 Simi 15005 <
SÖGUSAFN HEIMILANNA
Fyrir 10 árum, 12. desember 1966, var
stofnuó sérstök Kvennadeild
Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, sem
grein af deildinni í Reykjavík með eigin
stjórn og reglur. Hefur kvennadeildin
síðan starfað mikið og hávaðalaust, og
sjúkravinirnir, eins og konurnar eru
kallaðar, unnið drjúgt sjálfboðaliðsstarf,
sem fer vaxandi. Nú nýlega opnuðu þær
t.d. nýja búð í Landspítalanum. Þær hafa
endurskipulagt heimsóknaþjónustu sína
til sjúkra og aldraðra. Og á þessu hausti
eru þær að leggja á þriðju milljón til
þarfra verkefna fyrir sjúka. Mbl. leitaði
frétta af starfsemi Kvennadeildarinnar í
tilefni af afmælinu hjá formanni henn-
ar, Katrínu ölafsdóttur Hjaltested.
Um tilganginn meó stofnun
þessarar sérdeildar sagði hún,
að komið hefði fram i rseðu
Ragnheiðar Guðmundsdóttur,
núverandi formanns
Reykjavíkurdeildarinnar, sem
hafði þá veg og vanda af stofn-
un kvennadeildar, að konurnar
skyldu taka að sér að reka sölu-
búðir í spitölunum og annast
heimsóknir til aldraðra og
einstæðra. En síðan hefðu fleiri
verkefni bætzt við. — Nú störf-
um við í bókasöfnum sjúkling-
anna í sjúkrahúsunum í
Reykjavík, i þremur búðum: í
Landspítala, á Landakoti og
Grensásdeild Borgarspítalans,
sagði Katrín. — Einnig í sjúkra-
hóteli Rauða krossins, eftir að
það var stofnað, og þá bæði við
útián á bókum og við að sinna
fólkinu sem þar dvelst. Einnig í
hjálpartækjabanka Rauða
krossins. Og hjá Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar við
þá þjónustu fyrir aldraða, sem
borgin rekur. Einnig höfum við
heinsóknaþjónustuna og dálitla
akstursþjónustu fyrir blinda.
— Og allt í sjálfboðavinnu?
— Já, allt i sjálfboðavinnu.
Starfandi sjúkravinir eru rúm-
lega 200 talsins. Miðað við að
þeir leggi fram a.m.k. 50
stundir á ári hver, en flestar
gefa miklu meira. T.d. mæðir
mikið á þeim, sem hafa umsjón
með sölubúðunum á sjúkra-
húsunum. Varla líður sá dagur
að þær þurfi ekki að mæta þar,
svo eitthvað sé nefnt. En þessar
búðir í anddyrum spítalanna
hafa reynst mjög vinsælar og
gagnlegar, bæði fyrir sjúkling
og starfsfólk, og einnig gesti
sem koma i heimsóknartímum.
— Jú, það er rétt, við erum
nýbúnar að endurskipuleggja
heimsóknaþjónustuna, sagði
Katrin. Hver kona hefur ákveð-
inn skjólstæðing, sem hún
. rHORVALDSENSFÉLAGSINS \Q
Jólamerki Thor-
valdsensfélagsins
EINN óbrigðulasti fyrirboði
jólanna er jafnan útgáfa jóla-
merkja Thorvaldsensfélagsins. —
Þau eru gjarnan sett á bréf og
jólakort, sem menn senda vinum
sfnum fyrir jólin og má með sanni
segja, að þau gefi bréfinu jóla-
legri svip en venjuleg bréf og kort
hafa. Margir safna þessum
merkjum, ekki síður en
frimerkjum, enda eru sum hver
þeirra komin i allhátt verð meðal
safnara. —
Thorvaldsensfélagið sem nú er
orðið rúmlega 100 ára gamalt, hóf
útgáfu jólamerkjanna árið 1913.
— Geta má þess, að þetta fyrsta
merki er fáanlegt ennþá hjá
félaginu og er verð þess nú kr.
eitt þúsund, en árið 1913 kostaði
það aðeins 2 aura. —
Þá má einnig geta þess að þessi
merki fást ekki aðeins fyrir jólin,
heldur allan ársins hring f
verzlun félagsins Thorvaldsens-
basarnum í Reykjavfk. — Fyrst
framan af voru merkin prentuð í
Danmörku, en sfðan hér heima
um skeið, en á árunum 1951 —
1960 voru þau prentuð í Englandi
og nú síðast, eða síðan 1960 hafa
þau verið prentuð hér heima t.d.
hjá „Litmyndum" í Hafnarfirði.
— Ágóðinn af sölu jólamerkjanna
hefur runnið f barnauppeldissjóð
félagsins, en sá sjóður hefur m.a.
staðið straum af byggingu
myndarlegrar vöggustofu við
Dyngjuveg f Reykjavík. Var hún
afhent Reykjavfkurborg 19. júní
1963.
Þetta jólamerki, sem nú er
nýlega útkomið mun vera hið 62. í
röðinni, ætti að réttu lagi að vera
hið 63. en vegna heamsstyrjaldar-
innar fyrri kom það ekki út eitt
Ekta skinnfrakki
Gædavara á adeins 33.950.-
Kvennadeild R.K. í Rvík 10 ára:
SOGUSAFN HEIMILANNA
I bókaflokknum SIGILDAR SKEMMTISOGUR
eru komnar þessar skáldsögur:
Ættareinkennið eftir Grant Allen. Sérkennileg og
spennandi saga, sem oft hefur verið spurt um og
óskað eftir að yrði gefin út aftur.
A vængjum morgunroðans eftir Louis Tracy,
viðburðarík og spennandi saga, sem notið hefur
mikilla vinsælda.
Rödd hjartans eftir Charles Garvice, ein afþessum
gömlu vinsælu ástarsögum.
ITTAREINKENNIÐ|r
CHMtLtt. i.ARvr,r
RÖDD
H3ARTANS
SÖOUSAFN HCIMILANNA
SÖGUSAFN HEIMILANNA
Þá hefur SÖGUSAFNIÐ gefíð út tvær skáldsögur
í bókaflokknum GRÆNU SKÁLDSÖGURNAR,
en sá flokkur hófst með hinum frægu skáldsögum
A hverfanda hveli eftir Margaret Mitchell og
Jane Eyre eftir Charlotte Bronte. í ár koma út:
Þetta allt og himinninn líka eftir Rachel Field.
Óviðjafnanleg saga byggð á sannsögulegu efni.
Heitar ástir eftir Joy Packer. Þessi saga hefur orðið
geysivinsæl erlendis og er ósvikin ástarsaga eins og
nafnið bendir til.
iAUNDOTTIRIN
Heitor
ó/tir
Joy Pockor
MDRTEN KDRCH
SÖGUSATN Ht :Vt[yVVAA
Fáir rithöfundar hafa orðið vinsælli í heimalandi sínu
en danski rithöfundurinn Morten Korch. Fyrir jólin
í fyrra gaf Sögusafnið út fyrstu skáldsöguna eftir
hann á íslensku og heitir hún Tvíburabræðurnir.
Henni var mjög vel tekið og er upplag hennar á
þrotum. Nú er komin út ný skáldsaga eftir sama
höfund, Laundóttirin, en það er bæði hugþekk og
spennandi saga, auk þess sem hún er saga mikilla
átaka og rómantískrar ástar.
BÓK FRÁ SÖGUSAFNIHEIMILANNA
ER VINSÆL OG GÓÐ JÓLAGJÖF.