Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976 37 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL 10— 11 FRÁ MANUDEGI hef haft í huga, en lítið hefur verið getið um þessa kynningu þeirra i fréttum. Það er kannski hugsanlegt að arkitektar geti staðið að svona málþingi í sam- vinnu við aðra. % Of margir milliliðir? En af hverju stafar allur þessi mikli byggingarkostnaður? Er það vegna þess að milliliðir eru of margir? Það er varla hægt að tala um að neinn einn aðili græði, það taka bara allir sinn skammt og kannski vel það. Fyrir vinnu iðnaðarmanna þarf að greiða svo og svo mikið og svo og svo mikið til viðbótar til sam- banda þeirra og félaga, meistara- álag og sambandsgjald og hvað þau heita nú öll. Er þetta ekki of langt gengið að það þurfi að halda uppi gífurlega stórum félögum og skrifstofum fyrir samtök iðnaðar- manna. Maur hefði haldið að félagsgjöld mannanna sjálfra ættu að nægja til að standa undir öllum kostnaði við félagsrekstur- inn. Ef þetta er misskilningur þá vona ég að einhver sjái sér fært að leiðrétta hann. Sú leiðinlega deila mun hafa komið upp i nokkrum fjöl- býlishúsum að byggingaraðilar hafa talið sig eiga húsnæði í sam- eignarhluta húsanna, sem væntanlegir íbúðareigendur hafa reknað sér sem húsnæði. Þetta mun þó fátítt en í sumum tilvik- um verður mönnum á að hugsa hvort ekki sé verið að ræna húseigendur hluta af þeí sem þeir hafa samið um. % Iðnaðarmenn láti í sér heyra Þetta hefur kannski verið of mikið í neikvæðum tón og það er rétt að minnast örlítið á það sem vel er gert. Það eru t.d. þær nýju íbúðir sem verið er að af- henda nú í fjölbýlishúsi við Haga- melinn og eru mjög ódýrar og ég veit ekki betur en að slik byggingarsamvinnufélög hafi oftast nær komizt að beztum samningum og því getað selt sínar íbúðir til félagsmanna við mjög hagstæðu verði. En þetta átti ekki að vera nöldur heldur aðeins að hugleiða ýmis atriði í sambandi við húsbyggingar. Það er vissu- lega margt sem aðeins hefur verið tæpt á og mætti fjalla meira um og ég vona að fleiri taki það upp. Mér finnst líka oft að iðnaðar- menn láti of lítið heyra í sér þegar verið er að tala um þeirra atvinnu og kannski bera á þá ýmislegt, sem þeir eiga ekki- skilið, Það getur svo sem verið að þeir eigi ýmislegt af þvi skilið. Tilboð Egg 390.— kg. Sykur 89.— kg. Smjörlíki 135.— stk. Kókósmjöl 100 gr. 69.— pk. Suðusúkkulaði 100 gr. 125.— pk. HLÍÐAKJÖR, Eskihlíð 10, sími 11780. 0 Jarðskjálfta- tryggingar? Húseigandi: — Mig fýsir að fá ein- hverjar upplýsingar um trygg- ingar við jarðskjálftum. Var ekki verið að ræða þetta á Alþingi mjög nýlega. Ef svo hefur ekki verið þyrfti að koma á einhverri tryggingu fyrir húseigendur og ekki sízt nú ef verið er að tala um að búast megi við stórskjálfta hér á Suðurlandsundirlendinu. Ég veit annars ekki hver hlutur tryggingafélaganna er í svona tilvikum, þau hafa urmul af smáletursgreinum, sem fólk hirðir oft ekkí um að kynna sér og fela í sér alls kyns undan- tekningar frá bótum fyrir tjón. Þessi mál þyrfti að athuga vel og það áður en kemur til einhverra stórviðburða, það er of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í. Við getum minnzt hörmunganna á Kópaskeri, það hefur í það minnsta tekið tölu- verðan tíma að fá bætur fyrir allt það tjón sem jarðskjálftar ollu. SKÁK ÍUMSJÁ MAR- GE/RS PÉTURSSONAR Á alþjóðlega skákmótinu í Arandsjelovazs í Ungverjalandi, fyrr á árinu, kom þessi staða upp i viðureign stórmeistaranna Adorjans, Ungverjalandi, og Velimirovic, Júgóslaviu. Adorjan sem hafði hvítt og átti leik var ekki seinn á sér að finna mát. 29. Bg8 + ! Kxg8 30. Re7+ Kh8 (Ef 31 .. . .Kh7 32. Df5 og mátar) 31. Df8 + ! og svartur gafst upp, því eftir 30 . . . .Kh8 31. Df5+ verður hann mát. þar og ég er ekki viss um að allir hafi fengið allt bætt sem þeir þurftu, innanstokksmuni og fleira sem erfitt er að meta. Það væri fróðlegt að heyra einhverja umfjöllum um þetta mál á ein- hverjum opinberum vettvangi, blöðum, útvarpi eða sjónvarpi. Segiö mér, maður minn. Hún átti bókstaflega að þola allt þessi? DRÁTTHAGI BLÝANTURINN OPIÐ TIL 6 Ný sending af loftljósum i böð og eldhús Ennfremur hentug i ganga, svef nherbergi, stofur og utan dyra LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL. SENDUM í PÓSTKRÖFU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.