Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976 31 Sigurbjörn Guðnason Keflavík — Minning Hinn fyrsta desember lést Sig- urbjörn Líndal Guðnason Faxa- braut 9 Keflavík. Hann hafði far- ið til vinnu sinnar þá um morgun- inn, en fannst örendur í vörubif- reið sinni skammt fyrir utan bæ- inn. Banamein hans var hjarta- slag. Sigurbjörn var fæddur í Kefla- vik 6. október 1913 og ól þar allan sinn aldur. Foreldrar hans voru Sigurbjörg Jónsdóttir, sem ættuð var úr Húnavatnssýslu og Guðni Jónsson úr Landeyjum. Sigur- björn var yngstur sex systkina, en af þeim eru nú tvö á lífi, Ólafía og Ragnar Jón. Suður með sjó tengjast flestir útvegi með einum eða öðrum hætti. Sigurbjörn vann og við báta sem landmaður árum saman. Þá var hann eitt ár lögregluþjónn, enda vel að manni, hann hafði reyndar verið í því liði vaskra Keflvíkinga sem unnu sjálft höf- uðborgarliðið í þeirri þjóðlegu aflraun, reiptogi. En lengst af stafsævinnar eða síðastliðin þrjá- tiu ár ók Sigurbjörn vörubifreið. Sigurbjörn Guðnason kvæntist árið 1935 Svövu Árnadóttur frá Veghúsum. Þau áttu tvö börn. Sigríður hét dóttir þeirra sem var vanheil alla ævi. Naut hún fá- gætrar umhyggju foreldra sinna þar til hún lézt tuttugu og fjög- urra ára að aldri. Sonur þeirra er Guðni, rafvirki að iðn. Mikil ein- drægni hefur jafnan ríkt í þeirri fjölskyldu og þeir feðgar einstak- lega samrýndir, mér er nær að halda að þar við Faxabraut hafi aldrei verið fitjað upp á þvi bili milli kynslóða sem svo margt er um skrafað á siðari árum. Miðaldaskáld eitt taldi, að þeim yrði vistin daufleg í öðrum heimi, sem hefðu i þessum veriö daprir og hnuggnir, einnig þegar sólin blið við þeim brosti. Sé þetta rétt, þá mundi Bjössi Guðna engu hafa að kvíða. Hvort sem með blés eða í móti var hann hress og glað- sinna, góður og hjálpsamur granni. Hann hafði jafnan gott hljóð i hópi vina og ættingja, þvi hann bar gott skyn á það frá- sagnarverða og um leið kímilega á atvikum hversdagsleikans og kunni vel með það að fara. Við kveðjum góðan dreng, sem láuk sínu verki heima og að heim- an með þeirri prýði að ekki verð- ur um bætt, og sendum innileg- ustu samúðarkveðjur Svövu og Guðna í þeim harmi sem kvaddi dyra með skjótum og óvæntum hætti. Árni Bergmann. Þorleifur Sigurðs- son — Minningarorð Fæddur 20. maf 1903 Dáinn 4. desember 1976 Hann var fæddur að Einholtum i Hraunhreppi i Mýrasýslu, ólst upp hjá foreldrum sinum: Sesselju Davíðsdóttur og Sigriði Jósefssyni fram undir fermingu, en 1915 fór hann að Dalsmynni í Eyjahreppi til hinna ágætu heiðurshjóna Kristjáns Eggerts- sonar og Guðnýjar Guðnadóttur og var þar til 17 ára aldurs. Það kom snemma í ljós að Þorleifur var mjög lagtækur til allra verka. Snemma árs 1920 fór hann í Borgarnes að læra söðlasmíði hjá Magnúsi Þorbjarnarsyni þar. Prófskírteini Þorleifs er dagsett i Borgarnesi þann 29. apríl 1922. Vorið 1925 fluttist hann frá Borgarnesi til Reykjavikur og vann þar við iðn sína hjá Þorkeli Ólafssyni söðlasmiði á Vesturgötu 26B unz hann í febrúarmánuði 1927 gerðist sjómaður, fyrst á fiskiskipum, siðar á varðskipinu Óðni g siðast hjá Ríkisskip, á Esju og Súðinni, hann var sjómaður í alls 27 ár. Árið 1937 hætti hann sjómennsku að sinni og vann það ár við skipasmíði ofl. hjá Slipp- félaginu í Reykjavík. Því næst hóf hann vinnu við steinslipun hjá Magnúsi Guðnasyni stein- smiði, slipaði m.a. steinplöturnar sem notaðar voru I Háskóla- bygginguna f Reykjsvík. Árið 1940 fór hann aftur á sjóinn, var þá á Esju, Kötlu, Lagarfossi og síðast á m/s Skeljungi. Hann hætti sjómennsku 2. október 1947 og hóf þá störf hjá Mjólkursam- sölunni f Reykjavík og vann þar til ársloka 1974, að hann hætti störfum vegna aldurs. Þorleifur var ágætur verk- maður vann öll sfn störf framúr- skarandi vel, enda með fádæmum lagtækur, allar smiðar og viðgerðir voru sem leikur í höndum hans, handbragð fagurt, hafði og fallega rithönd. Hann var mikið prúðmenni f framkomu, en Iét þó ekki hlut sinn. Dulur í skapi, en viðmótsþýður og skemmtilegur í viðræðum. Traustur og tryggur, ágætur heimilis- og fjölskyldufaðir. Þegar hann kom til Reykjavíkur gekk hann í Alþýðuflokkinn og var flokksbundinn þar til dánar- dags. Hann var vel greindur og las mikið góðar bækur. Hann kvæntist 6. júní 1931 eftirlifandi konu sinni, Sigríði Guðrúnu Benjaminsdóttur, F. 21. maí 1911 á tsafirði. Börn þeirra: Hjördís kennari, býr f Kópavogi; Þráinn gjaldkeri, kvæntur Hrefnu Pétursdóttur frá Hellis- sandi, búa i Kópavogi; Trausti bifreiðasm.m., kvæntur Fríði Guðmundsdóttur frá Höfða i Dýrafirði, búa í Hafnarfirði. Ég undirritaður og kona mín, Steinunn, vorum nágrannar Þor- leifs um 15 ára skeið, við þökkum honum samveruna og góð kynni, um leið og við sendum konu hans, afkomendum, frændum og vinum samúðarkveðjur okkar. Aðalsteinn Halldórsson Rafland s.f. heitir ný verzl- un sem opnuð hefur verið ( Miðbæ, Háaleitisbraut 58—60. Eigendur verzlunar- innar eru tveir rafvirkja- meistarar, Böðvar Valtýsson og Tryggvi Þ. Jónsson. Munu þeir annast allar raf- lagnir, viðgerðir og selja f verzluninni allar rafmagns- vörur, lampa, smá heimilis- tæki. Myndin er úr hinni nýju verzlun. 12861 13008 13303 laugavegi 37 laugavegi 89 hafnarstr. 17 DÖMUR Buxnapils, samfestingar og kjólar úr fínflauel. Glæsilegt úrval af peysum. Blússur einlitar, mislitar. Stutterma hermannaskyrtur. HERRAR Terelyneföt með vesti. Rifluð flauelsföt. Loðfóðraðar mittiskuldajakkar. Stakar terelynebuxur Peysur, skyrtur og bindi. Ný sending kúrekastígvél.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.