Morgunblaðið - 11.12.1976, Side 29

Morgunblaðið - 11.12.1976, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976 29 Brúðkaup Fígarós í Nýja bíói í dag KVIKMYNDASVNING á vegum félagsin Germanfu og Tónleika- nefndar háskólans verður 1 Nýja bíói í dag og hefst kl. 13.30. Þar verður sýnd fyrsta óperukvik- myndin á vegum þessara aðila 1 vetur. Er það Brúðkaup Ffgarós eftir Mozart. Eftir áramót verða sýndar Töfraskyttan eftir Carl Maria von Weber, og Meistarasöngvararnir frá Nurnberg, en sú ópera verður sýnd I tveimur hlutum. Allar eru myndirnar gerðar 1 Hamborgar- óperunni undir stjórn Rolf Liebermanns. Mjög er til mynd- anna vandað og hefur vestur- þýzka sendiráðið haft milligöngu um að fá þær hingað til sýninga. Brúðkaup Figarós hefur jafnan verið ein vinsælasta ópera Moz- arts. I myndinni fer Tom Krause með hlutverk greifans, greifynjan er Arlene Aunders, en aðrir söngvarar 1 aðalhlutverkum eru Heinz Blankenburg, Edith Mathis og Elizabeth Steiner. Eins og fyrr segir hefst sýning- in kl. 13.30 og er aðgangur ókeypis J ólasvemar nir birtast vid Aust- urvöll á MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatil- kynnirrg frá Æskulýðsráði Reykjavíkur um komu jóla- sveina, sem birtast við Austurvöll á morgun að lok- inni athöfninni við jólatréð frá Óslóarborg. Tilkynningin er svohljóðandi: „Oss hefur tjáð Ketill Larsen, sér- legur umboðsmaður jólasveina hér I borg. að hann hafi nú umboð til morgun þess að upplýsa komu jólasvein- anna. Þeir birtast við Austurvöll. á þökum ísafoldarhúsanna við hornið á Landsímahúsinu, strax þegar lokið er athöfn við jólatré frá Óslóarborg sunnudaginn 12: desember Leiðtogi þeirra, Askasleikir. mun stjórna þar á þakinu athöfnum þeirra kumpána Sunnudaginn 19 desem- ber koma þeir fram á sama stað kl. 16 00 Sem áður er umboðsmanninum þökkuð árvekni og umhyggja vegna komu þessara desembergesta ” Ballett- flokkurinn 1 Njardvík BALLETTFLOKKUR Þjóðleikhússins heimsækir Njarðvík laugardag 11. desember nk. með sýningu í félagsheimilinu Stapa kl. 3 eftir hádegi. Stjórnandi flokksins er Natalja Konj- us frá Sovétríkjunum. Allir eru velkomnir á sýning- una. Njarðvíkingar eru sérstak- lega hvattir til að fjölmenna og sýna með því hug sinn til þessara sérstæðu heimsóknar. Foreldrar hvetjið börn ykkar til að mæta. Frumkvæðið að þessari heimsókn hafa foreldrar og kennarafélag grunnskóla Njarðvfkur ásamt félagsheimilinu Stapa. Seljum út: Franskar kartöflur og okkar vinsæla hrásalat og sósur, Ennfremur okkar vinsæli gamaldags rjómaís. ásamt fjölda smárétta. Sendum heim. Suöurveri Stigahlíð 45 sími 38890 Prentvillu- púkinn og „al- þýdukvöldin” f VIÐTALI við Magnús L. Sveins- son, sem birtist I Morgunblaðinu f gær, féll niður hluti setningar framarlega 1 viðtalinu. Þvf verður hér endurtekinn Iftill hluti sam- talsins, en feitletrað er það, sem féll niður: „En þeir, sem sátu Alþýðusam- bandsþing upplifðu sannarlega að sjá og heyra, að hér er hópur manna, sem telur það fyrstu skyldu slna að ná undir sig verka- lýðshreyfingunni og nota hana sem valdatæki fyrir pólitiskum sjónarmiðum kommúnista eins og allir þekkja meðal einræðisrikja, þar sem kommúnistar hafa náð undirtökunum. Það eru þau „alþýðuvöld", sem kommúnistar hér berjast nú fyrir á Islandi," sagði Magnús L. Sveinsson...“. Leidrétting SKÚLI Jón Sigurðsson, fulltrúi hjá Loftferðaeftirlitinu. hafði samband við Morgunblaðið í gær og bað um að eftirfarandi leiðréttingu yrði komið áleiðis: Flugneminn, sem slasaðist í flugslysinu þann 3. desember og Mbl. átti samtal við á föstudag, heitir Sig- urður Ingvarsson en ekki Sigurður Ingibjartsson. Það mun vera annar nemandi hjá Flugtaki hf. með því nafni. Eru hlutaðeigandi aðilar beðnir velvirðingar á þessum mistökum. PIFFLRO FLRUEL buxur °9. ve/ti PANTANIR Í SÍMA 17650

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.