Morgunblaðið - 11.12.1976, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976
11
Afraksturinn af basar kvennadeildarinnar f haust var hálf milljón, sem sjúkravinirnir kaupa fyrir
bœkur i sjúkrahúsin. En allan veturinn eru þær að útbúa basarmuni
Maður veitir sjálfum sér ánægju
um leið og sjúkum er veitt hjálp
sjúkrabíl, sem Reykjavíkur-
deildin hefur fest kaup á, en
hún rekur sem kunnugt er
sjúkrabila Reykjavíkur.
Þá hefur hálfri milljón króna
verið varið til bókakaupa fyrir
sjúkrahúsin. En það fé var
afraksturinn af föndur- og
kökubasar, sem kvennadeildin
segir form. Katrín Hjaltested
heimsækir reglulega. Og að-
stoðin er yfirleitt fólgin í því að
lesa upp fyrir hinn sjúka eða
aldraða, fara í gönguferð með
skjólstæðingnum eða bara að
sitja hjá honum og tala við
hann. Á sex vikna fresti koma
konurnar svo saman, bera
saman bækur sinar og gefa
skýrslu um störf sín. Af
svipuðu tagi er reglubundin
þjónusta, sem leyst er af hendi
i sjúkra hóteli Rauða krossins.
Þar koma 1—2 sjúkravinir
reglulega tvisvar sinnum í viku
og aðstoða fólk, sem þar dvelur.
Oft er það utanbæjarfólk, sem
er langt frá sínum vinum og
ættingjum. Þar fer lika fram
bókaútlán, eins og á sjúkra-
húsunum og hefur Kvenna-
deildin Iagt þar fram 100
þúsund krónur til bókakaupa.
Einnig koma sjúkravinir þrjá
morgna i viku og aðstoða við
afgreiðslu hjálpartækja i
hjálpartækjabanka Rauða
krossins, sem nýlega var
stofnaður. Við skiptum þannig
með okkur verkum, og hver
deild ber ábyrgð á sínu. En
nauðsynlegt er að mjög gott og
reglulegt skipulag sé á þessari
þjónustu.
Konurnar i kvennadeildinni
leggja ekki aðeins fram tíma
sinn endurgjaldslaust, heldur
lika fé til þarfra verkefna. Á
þessu hausti gáfu þær eina
milljón króna í sjóð til kaupa á
Sjúkravinir reka búðir f anddyrum spitalanna f Reykjavík. 1 haust
var opnuð ný búð f Landspftalanum og voru myndirnar teknar við
það tækifæri. Fyrir miðju (dökkklædd) má sjá formanndeildar-
innar, Katrfnu H jaltested.
vessi mynd var tekin f sjúkra-
hóteli Rauða krossins f Reykja-
vfk, þar sem sjúkravinir koma
og veita dvalargestum, sem oft
eru utanbæjarfólk, ýmiskonar
aðstoð
efndi til í nóvember sl. Allan
veturinn hittast sjúkravinirnir
einu sinni í viku og útbúa muni
þá, sem síðan eru seldir á hin-
um árlega basar.
Þá var samþykkt á siðasta
stjórnarfundi að gefa fé til
kaupa á hjartagæslutæki fyrir
hjartadeild Landspítalans og er
nú verið að ganga frá þvi. En
þessi gjöf er m.a. gefin í tilefni
10 ára afmælisins.
Sjúkravinirnir ætla sjálfir að'
gera sér glaðan dag I tilefni
afmælisins, aðfangakvöld af-
mælisdagsins. Fyrsti formaður
deildarinnar var Sigríður
Thoroddsen. En núverandi
stjórn skipa: Katrin Ólafsdóttir
Hjaltested formaður, Helga
Einarsdóttir varaformaður,
Sigriður Thoroddsen gjaldkeri,
Edda Lövdal ritari og
meðstjórnendur Ingunn Gisla-
son, Guðrún Holt og Sigriður
Helgadóttir. Varastjórn skipa
Kristin Matthiasdóttir, Sigurlin
Framhald á bls. 26