Morgunblaðið - 11.12.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976
13
Ennþá
eru þrír
dagar til
stefnu
ENN minnum við á jólasund-
mót öryrkja og nú eru aðeins
þrfr dagar eftir af mótinu. 1
gær luku margir öryrkjar þátt-
töku sinni i mótinu og af
Kleppsspftalanum komu
hvorki meira né minna en um
40 þátttakendur. Var þeim ekið
f einum af strætisvögnum
Reykjavfkurborgar á sundstað-
inn og var mikið fjör í mann-
skapnum þangað og ekki sfður
á bakaleiðinni. Sungið var dátt
alla leiðina og höfðu menn hið
mesta gaman af þessari ferð til
þátttöku f jólasundmóti
öryrkja. Það var Jósteinn
Kristjánsson, sem skipulagði
ferð þessa og stjórnaði.
I fyrrakvöld var margt um
manninn i sundlauginni við Ár-
bæjarskólann, en þar voru
mættir margir fbúar blindra-
heimilisins við Hamrahlíð og
luku 20 þeirra þátttöku í jóla-
sundmótinu þá. Þá ver einnig
formlega tekin í notkun stól-
lyfta fyrir þá öryrkja sem ekki
komast án hjálpar ofan í laug-
ina. Var sagt frá þessu f mynda-
texta með baksíðumynd í
Morgunblaðinu f gær, en þar
var sagt að lyftan væri í Sund-
höllinni. Hið rétta er að lyftan
er í Árbæjarlauginni og er beð-
ist velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Á Akureyri hafa margir
öryrkjar tekið þátt í sundmót-
inu og á miðvikudaginn var 25
öryrkjum á Akureyri veitt við-
ur kenning fyrir þátttöku í í
mótinu. Það var ánægt fólk,
sem þar tók við viðurkenning-
um sfnum. Á morgun verða
birtar myndir frá jólasundmóti
öryrkja á Akureyri.
Síðasti dagurinn f jólasund-
mótinu er á mánudaginn og fer
þvf hver að verða síðastur með
þátttöku í mótinu. Iþróttafélag
STIGAR og aftur stigar. Mynd-
ir þessar eru teknar f Sundlaug
Vesturbæjar og eins og sjá má
er hönnun hússins ekki til að
auðvelda mikið fötluðu fólki að
komast f sund. Sundlaug
Vesturbæjar er ekki einsdæmi
f þessu tilviki — þvf miður.
fatlaðra hefur fengið sundlaug-
ina við Arbæjarskóla á mánu-
dagskvöldið frá 19.30—22. Bif-
reið Öryrkjabandalagsins, sem
sérstaklega er innréttuð fyrir
flutninga með fatlað fólk, verð-
ur notuð á mánudaginn og geta
þeir sem vilja láta hann sækja
sig pantað bflinn í síma 85850.
Einnig verða fleiri bilar f för-
um með fólk sem ekki á auðvelt
mað að komast sjálft á sund-
staðinn.
Á mynd með þessum lfnum
sést hve aðstaða er erfið fyrir
mikið bæklað fólk f Vestur-
bæjarlauginni í Reykjavík. Þar
er ekki auðvelt fyrir fólk t.d. í
hjólastól að komast ferða sinna,
en þvi miður eru flestir al-
mennir sundstaðir á landinu
eins hannaðir. Skábrautir vant-
ar alveg, en tröppur eru hið
algenga. Or þessu þarf að bæta
því það er ekki nóg að efna til
herferðar og fá öryrkja til að
taka þátt í sundmóti ákveðið
timabil á hverju ári, ef þeir
geta sfðan ekki komist í sund
þess á milli.
Jólasundmót öryrkja 1976
25. nóv. — 13. des.
(nafn)
(aldur)
(heimilisfang)
Sundstaður: _
Örorka vegna:.
Sendist
tíl Í.S.Í. \
Box 884. ReykjavHL
(tilgreinid t.d. lömun. fotlun, blinda. vangefni o.s.frv.
Þátttoku stadfestir
BARNAREIÐHJÓL-ÞRÍHJÓL ;
Mesta úrval landsins af reiðhjólum og þríhjólum,
fæst hjá okkur.
Góð varahluta- og viðgerðaþjónusta.
FÁLKIN N*
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
markadurinn
í Hallarmúla og allar Pennabúöirnar
opnar til kl. 6 í dag
HAFNARSTRÆTI 8, HALLARMULA 2, LAUGAVEGI 84
■ * V'.-fVnBHni
h\ msm
S. H