Morgunblaðið - 11.12.1976, Side 39

Morgunblaðið - 11.12.1976, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976 39 — Eiga sumir... Framhald af bls. 2 stjórninni eiga sæti auk Bjarna, þau Guðrún P. Helgadóttir og Vésteinn Ölafsson. Knútur Hallsson sagði að í reglugerðinni væri aðeins farið fram á að rithöfundar gæti verka sinna og þeírra, sem hann ynni að. — Það er ekki reglugerðar- brot þó farið sé fram á að greint sé frá tekjum, en hins vegar er það ekki í samræmi við álit nefndarinnar, sem samdi reglu- gerðina, sagði Knútur. — Per- sónulega finnst mér rithöfund- um í sjálfsvald sett hvort þeir svara þessari spurningu, eða ekki, sagði Knútur og lét þess getið að ráðuneytið væri í raun- inni aðeins afgreiðslustofnun fyrir sjóðsstjórnina í þessum efnum. — Rússar færa út í 200 . . . Framhald af bls. 1. sögu bandalagsríkjanna I 200 míl- ur 1. janúar þannig að þeir geti samið við bandalagið á jafnréttis- grundvelli. í tilskipuninni segir að hinar nýju takmarkanir verði í gildi þar til sett hafi verið ný sovézk lög þar sem „störf þriðju hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna verði tekin til greina." I formála segir Æðsta ráðið að ráðstöfunin sé gerð í framhaldi af því að mörg önnur lönd hafi tekið sér svipaða lögsögu, þar á meðal mörg lönd sem liggi að Sovét- rlkjunum. Skipstjórar sem verða teknir fyrir ólöglegar veiðar í nýju lög- sögunni eiga á hættu 100.000 rúblna sekt og hægt verður að gera afla og veiðarfæri upptæk. — Við skulum athuga . . . Framhald af bls. 2 erfiðara stigi til okkar og við eigum það á hættu að sjúkdóm- arnir verði krónískir fyrir vik- ið. — Þjónusta fyrir fólk sem á í sálrænum erfiðleikum þarf að vera miklu víðtækari en nú er. Ef fólk þarf á hjálp að halda þá þarf hún að vera fyrir hendi, en hefur engan veginn verið á landi okkar. Ég vil ítreka þá skoðun að Geðdeildin þarf sem allra fyrst að komast upp við Landspítalann. Að því hníga mörg rök og það vegur ekki hvað minnst að fólki finnst i mörgum tilfellum auðveldara að leggjast inn á sjúkrahús eins og Landspítalann, heldur en einangraðar stofnanir eins og Kleppsspítala, því þó fordóm- arnir séu smátt og smátt að víkja, þá eru þeir fyrir hendi ennþá. —• Fólk sem á við geðræna sjúkdóma að stríða á ekki leng- ur að gjalda þess að það hefur fengið þessa sjúkdóma. Sá tími er vonandi liðinn og þetta fólk fær vonandi í framtíðinni sömu þjónustu og aðrir sjúklingar. Fólk með geðræna sjúkdóma er ekki sá hópurinn, sem hrópar og heimtar, og þess vegna er aðstaða þeirra ef til vill eins léleg og raun ber vitni, sagði Guðrún Guðnadóttir að lokum. — Tilviljun Framhald af bls. 1. rannsóknir á smitsjúkdómum og prófessor Milton Friedman hlaut verðlaunin í hagfræði. Athöfnin fór fram í tónleika- salnum I Stokkhólmi sem var prýddur blómum frá San Remo á Italiu þar sem Alfred Nobel dvaldist siðustu æviár sín, og stóð í tvær klukkustundir. Fílharmóniuhljómsveit Stokk- hólms lék tónlist eftir Leonard Bernstein úr „West Side Story“ og „The Tender Land“ eftir Aaron Copland. Meðal gesta voru auk sænsku konungsfjölskyldunnar átta af sextán fóstursonum dr. Gajduseks frá Nýju Guineu, 15 ættingjar Saul Bellows og fjölskyldur hinna verðlaunahafaanna. Hver verðlaun um sig eru 681.000 sænskar krónur. Töluvert hefur verið um mót- mæli og blaðaskrif vegna veitingar hagfræðiverðlaunanna til dr. Miltons Friedmans i Stokk- hólmi. Að sögn fréttaratara Mbl., Ólafs Péturssonar hefur hann verið orðaður við samstarf við herforingjastjórnina í Chile, en aftur á móti hefur Friedman neit- að því í sjónvarpsviðtölum og tal- að um að hann hafi komið til Chile og rætt þar við ýmsa aðila án þess að gefa nokkrar ábyrgar ráðleggingar eða hafa einhver af- skipti af hagfræðilegum málefn- um þar í landi, skipulagningu eð áætlanagerð. Þegar verðlaunaathöfnin stóð sem hæst safnaðist sllstór hópur saman við konungshöllina og hafði uppi kröfuspjöld, þar sem látin var í ljós andúð á því að dr. Friedman fengi verðlaunin og var hann kallaður þar hinum ýmsum ónöfnum. Aftur á móti er ekki vitað að til neinna frekari tíðinda hefi dregið og öðrum verðlaunaaf- hendingum ver ekki mótmælt. — Skattalaga- frumvarpið Framhald af bls. 40 við formenn þingflokka ásamt með fjármálaraðherra hvort rétt- ara væri að hafa sérstakt samráð við fulltrúa flokkana um skatta- mál áður. Forsætisráðherra kvaðst þó telja, að það myndi ekki skaða þótt frumvarpið yrði nú lagt fram, alþingsmenn gæfu sér síðan góðan tíma til að kynna sér það I þinghléi og fjalla síðan urn það þegar þing kæmi samar. að nýju. — EBE ræðir... Framhald af bls. 1. á meðal Frakkland, Bretland og Vestur-Þýzkaland sem eiga aðild að Efnahagsbandalaginu. Þessir samningar falla ekki úr gildi fyrr en eftir að minnsta kosti eitt ár, sagði Jamieson. Auk þess sagði hann að aflakvótar hefðu nýlega verið ákveðnir í þessu samhengi. Norðvestur- Atlantshafsfiskveiðinefndin (ICNAF) ákvað þessa kvóta á fundi á Spáni á föstudag og Kanadamenn eru bundnir af þeim. — Ræða Matthíasar Framhald af bls. 14 þó voru forsenda allra lagabreyt- inga í þessu sambandi, en vegna þess voru sett bráðabirgðalög um kjör sjómanna, til þess meðal annars að þau sjómannafélög sem sömdu gengu ekki með skarðan hlut frá borði. I framhaldi af því sem ég hefi nú sagt tel ég rétt að fara með nokkrar athyglisverðar tölur frá Þjóðhagsstofnuninni, en þær eru allar byggðar á áætlunum um meðalverðlag ársins 1976. 60% aukning aflaverðmætis Talið er að aflaverðmæti milli áranna 1975 og 1976 vaxi úr 16.7 i 26.6 milljarða krónur, eða um 9.9 milljarða kr. sem gera tæp 60%. Skiptaverðmætið hækkar meira en aflaverðmætið eða um 68% og byggist á lækkun greiðslna í stofnfjársjóð. Aflahlutir hafa hinsvegar hækkað nokkru minna en aflaverðmætið, eða um 46% og er það vegna lækkunar á skipta- prósentunni. I skýrslu Þjóðhagsstofnunar segir orðrétt: „Eftir hækkun skiptaverðmætis um nálægt 68% og lækkun skipta- prósentu um 14.4% hækka afla- hlutir til sjómanna milli áranna 1975—1976 um 2.9 milljarða eða 46%. Ekki liggur ljóst fyrir, hver breyting hefur orðið á fjölda sjómanna og þar með tekjum á hvern sjómann. Hins vegar má geía þess til samanburðar, að kauptaxtar verkafólks og iðnaðar- manna hafa hækkað um 26—27% og meðal atvinnutekjur þeirra um 30% milli áranna 1975—’76. Ljóst virðist því, að tekjur sjómanna hafa hækkað um 12—13% umfram tekjur verkafólks og iðnaðarmanna. Horfur eru á því, að afkoma fiskiskipaflotans verði allmiklu skárriá árinu 1976 en á siðast liðnu ári en þá var hún afleit. Áætlað er, að af þrem megingreinum útgerðar þ.e. bát- um, minni skuttogurum og stærri skuttogurum, þá hafi miðað við meðaltal hvorki bátar né stærri skuttogarar neitt aflögu upp i afskriftir. Aætlað er hins vegar, að minni skuttogarar geti mætt nálægt þriðjungi afskriftanna. Við mat á afkomu fiskiskipa- flotans hefur flotanum verið reiknuð til tekna framlög úr sjóð- um sjávarútvegs samkvæmt gildandi reglum á hverjum tíma. Þótt rekstrarafkoma flotans sé þannig talsvert erfið ber þess þó að minnast, að greiðsluafkoman er nokkru betri vegna opinberra aðgerða til lengingar á stofnlán- um til togara og greiðslubyrðin af stofnlánum til báta er mun léttari en gjaldfærðum afskriftum nemur". Aflatryggingarsjóður greiddi til 446 báta Aflatryggingasjóður hefur sinnt sinu hlutverki sem fyrr og vil ég til fróðleiks upplýsa að greiðslur til 446 báta námu alls um 402 millj. króna frá 1. október 1975 til jafnlengdar í ár, móti 399 millj. kr. til 481 báts á sama tima- bili árið áður, og skiptust bæturn- ar sem hér greinir: millj. kr en árið áður Suðurland 53.1 56.0 Reykjanes 165.2 149.3 Reykjavík 38.1 32.8 Vesturland 75.2 54.1 Vestfirðir 5.0 11.4 Norðurland vestra 7.1 7.1 Norðurland eystra 24.8 44.0 Austurland 33.2 44.1 Eina vörnin aukin framleiðni Ég fer senn að ljúka máli minu, en get ekki stillt mig um að ræða litillega mál sem hefur verið mjög á dagskrá undanfarnar vikur — en ég hefi i huga áróðursherferð þá fyrir Islenskan iðnað sem enn virðist í fullum gangi. íslenskur iðnaður er góðra gjalda verður og fagna ég framtaki forystumanna iðnaðarins, og tel víst að við sem hér erum samankomnir munum ekki verða eftirbátar annarra í stuðningi við þessa atvinnugrein. En hvers vegna þennan enda- lausa samanburð á fyrirgreiðslu til sjávarútvegs og iðnaðar, eða eigum við að trúa þvi að iðnaðar- framleiðsla nágranna þjóða okkar sé niðurgreidd í samkeppni við islenskan iðnað, á sama hátt og þessar þjóðir greiða niður allar sjávarafurðir, sem þeir selja á erlendum mörkuðum i samkeppna við okkur. Gera þeir sér grein fyrir að nágrannar okkar Norð- menn greiddu tæpa 15 milljarða islenskra króna í beina styrki til norsks sjávarútvegs á árinu 1975 á sama tima sem allt afla- verðmæti íslenska fiskiskipa- flotans nam 16.7 milljörðum króna. Auk þess nam aukin lána- fyrirgreiðsla og ábyrgðir um 26 milljörðum króna, og gert ráð fyrir sambærilegri fyrirgreiðslu á þessu ári. Þessir fjármunir eru að sjálfsögðu sóttir til annarra at- vinnugreina, en islenskur sjávarútvegur getur ekki sótt neitt til annarra, hann hefur orðið að miðla öðrum greinum islensks atvinnulífs. Eina vörn hans er aukin framleiðni og aukinn afli á sóknareiningu. Ég hefi drepið hér á örfá atriði, sem efst hafa verið á baugi i íslenskum sjávarútvegi og vil að endingu aðeins nefna síldveiðarn- ar nú i haust og rekstrarlán til fiskiskipaflotans. Síldveiðarnar gengu vel, afli 50 herpinótabáta varð rétt liðlega 10 þús. tonn, eins og ákveðið hafði verið, og veit ég ekki annað en að nú hafi verið fylgt settum reglum. Talið er að liðlega 30 bátar hafi stundað veiðarnar með reknetum og varð aflinn um 7 þús. tonn, eða nokkru meiri en gert var ráð fyrir og mun afkoma þeirra báta er þær stunduðu vera góð. Það er von min að á næsta ári verði hægt að auka það magn sem leyft verð- ur að veiða, og að þá verði reglun- um um úthlutun leyfa til herpi- nótaskipa breytt eins og ég drap á fyrr í þessari ræðu. Frá í fyrra haust hefur hámark útgerðarlána hækkað um 130%, eða um 85% seint á siðasta ári og um 24% í marz s.l., og beitti sjávarútvegsráðuneytið sér fyrir þessum hækkunum. Nú er unnið að þvi að koma á föstum reglum um útgerðarlán fyrir stóru togar- ana, en í dag eru það einu skipin í fiskveiðiflotanum, sem ekki njóta slíkrar fyrirgreiðslu I banka- kerfinu. Ég vil þó geta þess, að frá þvi á miðju s.l. ári hafa þeir notið sérstakrar fyrirgreiðslu í banka- kerfinu, en sú fyrirgreiðsla var fjármögnuð af ráðuneytinu og fellur niður um næstu áramót. Ég hefði kosið að ræða öll þau atriði, sem ég hefi drepið á ítar- legar og mörg önnur, sem skipta okkur alla miklu máli, en ég hefi þegar eytt of miklu af ykkar dýrmæta tíma og læt því staðar numið. Siðar gefast tilefni til ítar- legri umræðna. Ég óska ykkur öllum velfarnað- ar i lifi og starfi og bið þess að heill og hamingja megi fylgja ykkur, sjómannastéttinni og þeim öðrum, sem vinna við íslenskan sjávarútveg — sem er undirstaða að efnahagslegu sjálfstæði ísl. þjóðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.