Morgunblaðið - 14.12.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976
7
LAUGAROAGUR 4 DESEMBIR
alþýóu-
tolaöiö
Sterk somstaða um stjórnorkjör á ASÍ-þingi:
Róttækari öflin sigruðu
Iiifttljorn \lþ>Au- lagsmnn
jmbandt ItUndt. um rinn
•llir tlrontf lundn- nhaftum
Vilja Alþýðu-
flokksmenn
samstarf við
kommúnista?
Fyrstu viSbrögð Alþýðu
blaðsins við lok ASÍ-þings
voru þau að birta
fyrirsogn yfir þvera for-
siðu blaðsins, sem var
svohljóðandi: „Róttækari
öflin sigruðu." Og i frétt-
inni, sem fylgdi, métti
lesa þessi orð: „Á þessum
úrslitum má sjé, að rót-
tækari öflin á þinginu
hafa staðið mjög saman í
þessari stjórnarkosningu
og er það vissulega
fagnaðarefni."
Þessi viðbrögð Alþýðu-
blaðsins eru óneitanlega
dálitið kyndug. þegar
nokkrar sögulegar stað-
reyndir i sambandi við
Alþýðuflokkinn og verka-
lýðshreyfinguna eru hafð-
ar i huga. Þannig er nefni-
lega mál með vexti, að
Alþýðuflokkurinn hefur í
fjóra áratugi verið á
undanhaldi sem áhrifaafl i
verkalýðssamtökunum. í
upphafi má segja. að
Alþýðuflokkur og Alþýðu-
samband hafi verið eitt og
hið sama. En smám
saman tókst kommúnist-
um að grafa undan áhrif-
um Alþýðuflokksins I
verkalýðsfélögunum.
Alþýðuflokkurinn varð
fyrir miklu áfalli i verka-
lýðssamtökunum. þegar
flokkurinn klofnaði fyrir
strið og Sósialistaflokkur-
inn var stofnaður og aftur
þegar Hannibal
Valdimarsson gekk til
samstarfs við
kommúnista í verkalýðs-
hreyfingunni og á ASÍ-
þingi.
Svo mjög hefur af Al-
þýðuflokknum dregið sem
verkalýðsflokk að siðustu
tvo áratugi má segja. að
áhrifastaða Alþýðuflokks-
ins i einstökum verkalýðs-
félögum hafi byggzt á
stuðningi sjálfstæðis-
manna i þessum sömu fé-
lögum og það vita kratar
bezt sjálfir. Enda er nú
svo komið, að hefði Björn
Jónsson, forseti ASÍ, ekki
gengíð i Alþýðuflokkinn
fyrir tveimur árum væri
erfitt að nefna nokkurn
Alþýðuflokksmann, sem
að kveður sem verkalýðs-
foringja.
Þégar það er haft i
huga. að áhrifastaða Al-
þýðuflokksins i verkalýðs-
félögunum hefur i a.m.k.
tvo áratugi byggzt á
stuðningi sjálfstæðis-
manna, er von að menn
brosi við, þegar Alþýðu-
blaðið talar digurbarka-
lega um, að „róttæku"
öflin hafi sigrað á ASÍ
þingi. Hins vegar var eðli-
legt að draga þá ályktun
af þessum fyrstu við-
brögðum Alþýðublaðsins,
að Alþýðuflokksmenn i
verkalýðshreyfingunni
hefðu ekki lengur áhuga á
þessum stuðningi sjálf-
stæðismanna en hygðust
þess i stað taka upp náið
samstarf við kommúnista
i einstökum verkalýðsfé-
lögum. Það væru tiðindi
út af fyrir sig, þótt mörg-
um mundi þá finnast, sem
komið væri að leikslokum
fyrir Alþýðuflokkinn sem
verkalýðsflokk og sjálf-
stætt stjórnmálaafl á is-
landi. Svo mörg eru dæm-
in um jafnaðarmanna-
flokka. sem gengið hafa
kommúnistum á hönd.
Alþýðublaðið
hugsar sig
tvisvar um
Þegar leið á siðustu
viku sýnast Alþýðuflokks-
menn hafa farið að hugsa
sig tvisvar um. Á föstudag
birti Alþýðublaðið forystu-
grein. sem rituð var af
Árna Gunnarssyni. rit-
stjóra, þar sem slegið er
úr og i. Þar er að finna
þessa réttu lýsingu á
athæfi kommúnista á ASÍ-
þingi: „Hjá kommúnistum
i hópi Alþýðubandalags-
manna helgar tilgangur-
inn meðalið. Það skal með
öllum ráðum koma flokks-
stimplinum á allar gerðir
Alþýðusambandsþings
. . . Alþýðubandalag-
ið eða nokkrir fulltrúar
þess gerðu þá kröfu að
verkalýðsflokkarnir tækju
ábyrgð á Alþýðusam-
bandinu og fældu jafn-
framt burtu alla fulltrúa
verkalýðshreyfingarinnar.
sem gætu talizt i hópi
sjálf stæðismanna.
Alþýðuflokkurinn sam-
þykkti sameiginlega
ábyrgð verkalýðsfiokk-
anna. en hafnaði með öllu
útilokunarstefnunni."
Hér eru kommúnistar
skammaðir en reynt að
bera kápuna á báðum öxl-
Framhald á bls. 47
AEG
BORVELAR
Vandið valið og notið sterk og vönduð verkfæri.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
KLAPPAHSTIG 44
SIMI 1 1 783
LOUHOLUM 2 — 6
SIMI75020
r
Langþráðu takmarki náð
Menningarsjódur
auglýsir: m
9 1 og Brunnum
VERÐLAUNALJÓÐ
ÓLAFSJÓHANNS
SIGURÐSSONAR
ný útgáfa í einu bindi
Spói
BARNABÓK ÓLAFSJÓHANNS
í nýrri útgáfu
Kvæði
GUTTORMS J GUTTORMSSONAR
úrval i útgáfu
Gils Guðmundssonar og
Þórodds Guðmundssonar
Byggðasaga
Austur-Skaftafellssýslu
3.
Öræfi og Hafnarhreppur
i
Nú loksins er öli byggða- |
sagan komin út. Ómetan-
legur gimsteinn í fjársjóð
minninganna. Þeir, sem
unna átthögum sínum,
eiga nú þess kost að fá
heitustu ósk sína upp-
fyllta, — sögu æsku-
stöðvanna á einum stað í
þremur glæsilegum bind-
um.
Öll þrjú bindin fáanleg í
takmörkuðu upplagi
BOKAUTGAFA GUÐJ0NS0,
LANGHOLTSVEGI 111,
REYKJAVÍK, SÍMI 85433