Morgunblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976 Tollskrárfrumvarpið miðar að jöfnun samkeppnisaðstöðu innlends iðnaðar við erlendan FRUMVARP það til laga um tollskrá o fl , sem hér er til 1 umræðu markar að mörgu leyti timamót í íslenskri tolla- sögu Ber þar fyrst og fremst til, að með frumvarpinu er stigið siðasta stóra skrefið i þeirri aðlögun að breyttri verslunar- og viðskiptastefnu, sem mörkuð var þegar ísland gekk til frf- verslunarsamstarfs við Vestur-Evrópu í ársbyrjun 1970, og sem ætlað var að ryðja braut fyrir fjölbreyttara atvinnu- og efnahagslífi á íslandi. Frumvarp þetta er samið af embættismönnum í tolladeild fjármála- ráðuneytisins Drögin að þeim breyt- ingum, sem frumvarpið felur í sér eiga sér tvær rætur í fyrsta lagi skuldbind- ingar íslands, sem gengið var i, þegar aðildin að EFTA var ráðin I öðru lagi óskir og kröfur talsmanna iðnaðarins, sem EFTA-aðildin snertir mest Frum- varpið hefur síðan verið rætt siðustu daga og vikur við þá fulltrúa atvinnu- lífsins, sem helst hafa hagsmuna að gæta í þessu sambandi Frumvarpið er þannig fram sett, að það sýnir í fyrsta lagi núgildandi tolla og í öðru lagi tolla og tollbreytingar frá 1 jan 1977 til 1 jan 1 980 AÐFLUTNINGSGJÖLD FYRST LÖGO ÁÁFENGA DRYKKI1871 Ekki er úr vegi, þar sem hér er um meiri háttar tollabreytingar að ræða, að rifja upp stuttlega helstu áfanga í þró- un íslenskrar tollalöggjafar frá upphafi Þær vörur, sem aðflutningsgjöld voru fyrst lögð á, voru alls konar vín, brennivín og ..þessháttar” tilbúið úr áfengum drykkjum Frumvarp til til- skipunar um þetta efni var samþykkt á Alþingi 1871 Áfengistollurinn var síðan hækkaður nokkrum sinnum og tollar lagðir á nokkrar aðrar vörur en afar varlega var farið í sakirnar allt fram yfir fyrri heim- styrjöldina Með tollalögum fyrir island frá árinu 1 901 voru fyrstu heildartollalögin sett. Áiagning tolla var þó enn takmörkuð við örfáar vörutegundir Með lögum frá 1912 um vörutoll, er í fyrsta sinn lagður á almennur vöru- magnstollur Þessi fyrsti almenni tollur var síðan hækkaður nokkrum sinnum og stóð svo til ársins 1926, en þá var með lögum nr 47/ 1 926 um verðtoll í fyrsta sinn lagðurá verðtollur. Vörutollar almennir og sérstakir voru siðan innheimtir hlið við hlið eftir ýms- um lögum. þar til sett voru lög um tollskrá nr 62 30 des 1939. Tollskrá þessi var samin eftir alþjóðlegu frum- varpi, er Þjóðabandalagið hafði lagt fram 1 928, en frumvarp þetta varð til í framhaldi af alþjóðlegri ráðstefnu um fjármál og viðskipti, sem haldin var í Genf í maímánuði 1 927. Tollskráin frá 1 939 var mikil framför frá tollalögum sem áður giltu Með lögum þessum var sérstök tollskrá í lög tekin og dregin saman í eina heild, öll hin dreifðu ákvæði tollalöggjafarinnar um aðflutningsgjöld, sem í gildi voru. Báru flestar vörur samkvæmt henni bæði vörumagns- og verðtoll En brátt knúði fjárþörf ríkissjóðs á að nýju Voru því aðflutningsgjöld á árunum 1947 til 1960 innheimt með álagi og tekin upp ýmis ný innflutn- ingsgjöld af innfluttum vörum Af ráð- stöfunum þessum leiddi. að aðflutn- ingsgjöld í heild af ýmsum vörum voru orðin geigvænlega há og buðu heim ólöglegum innflutningi, og samræmi það f tollaálagningu. sem náðist með tollskrárlögunum frá 1939, var ger- samlega farið út um þúfur og toll- ákvæðin voru orðin alltof margbrotin og erfið f framkvæmd í árslok 1 959 var skipuð nefnd til að endurskoða öll gildandi lög um að- flutningsgjöld og semja frumvarp að nýrri tollskrá eftir hinni alþjóðlegu toll- skrárfyrirmynd, Brússelskránni svo- nefndu. en frumvarp þetta varð að lögum nr 7/ 1 963 um tollskrá o.fl. Með þessari tollskrá voru enn á ný dregin saman í eina heild hin ýmsu dreifðu ákvæði löggjafarinnar, tollar á mjög mörgum vörum lækkaðir stórlega og miklu meira samræmi en áður var komið á tolla af skyldum vörum og vörum til sams konar eða svipaðrar notkunar Með lögfestingu hinnar nýju toll- skrár var emnig að öðru leyti stigið stórt framfaraspor Eftir síðari heimsstyrjöldina hófst á ný alþjóðleg samvinna í mörgum greinum, þar á meðal um tollamál Árangur þeirrar samvinnu varð m a sá, að 15 des 1950 var í Brussel undirrituð samþykkt um vöruflokkun í tollskrá Með þeirri samþykkt var stefnt að því, að tollskrár hinna ýmsu landa, skyldu samræmdar að formi til, og samin var tollskrárfyrirmynd. sem nefnd var Brússel-skráin Var talið, að yfir 50 þjóðir hafi komið þessari toll- skrá á hjá sér 1963, þar á meðal öll lönd Vestur-Evrópu, en nú munu um 1 30 þjóðir byggja tollalöggjöf sína á Brússel-skránni. Á tímabilinu 1963—1970 var toll- skránni breytt á hverju ári og ávallt til lækkunar á aðflutningsgjöldum Með lögum nr 3 15 febrúar 1968 voru tollar m a lækkaðir á ýmsum vörum í samræmi við skuldbindingar, sem leiddi af niðurstöðum hinna svo- nefndu Kennedy-viðræðna á vegum GATT. þ.e hinu almenna samkomu- lagi um tolla og viðskipti Nefna má og breytingu á tollskrárlögum, sem gerð var með lögum nr 80 31 desember 1968, þegar leiðréttingar voru gerðar á gildandi lögum vegna breytinga, sem orðið höfðu á Brússeltollskránni og lögfest voru ákvæði um eðlisverðsskýr- greiningu verðmætis vara skv alþjóð- legu samkomulagi. sem ísland fylgir í reynd ÍSLENSKAR VÖRUR NJÓTA TOLLFRELSIS í LÖNDUM EBE FRÁ 1. JÚLÝ 1977 Eins og fyrr er að vikið verða straum- hvörf í þróun íslenskrar tollalöggjafar frá og með ársbyrjun 19 70 vegna aðildar íslands að EFTA og síðar frí- verslunarsamnings íslands og Efna- hagsbandalags Evrópu, sem kom í kjölfar þess að Danmörk og Bretland gengu úr EFTA og gerðust aðilar að Efnahagsbandalagi Evrópu Þótt skammt sé liðið er ekki úr vegi að rifja upp helstu ákvæði EFTA- samningsins án þess þó að farið sé nánar út í forsendur aðildarinnar eða rædd þau markmið, sem að var stefnt með aðildinni enda er háttvirtum alþingismönnum fullkunnugt um þá hlið málsins. Svo var um samið, að aðildarlönd EFTA, þe Danmörk, Svíþjóð, Finn- land, Noregur, Bretland, Sviss, Austur- ríki og Portugal skyldu þegar frá byrjun, eða 1 mars 19 70 fella að fullu niður tolla við innflutning til viðkom- andi landa á íslenskum iðnvarningi og nokkrum þýðmgarmiklum sjávar- afurðum, sem EFTA-samkomulagið tók til Jafnframt var í sambandi við aðild- ina samið um við frændþjóðir okkar á Norðurlöndum, að þær veittu sérstakar viðskiptaívilnanir til handa islending- um hvað snerti útflutning á dilkakjöti. Auk þess var stofnaður svokallaður norrænn iðnþróunarsjóður. sem Norðurlöndin fjármögnuðu, til eflingar íslenskum útflutningsiðnaði Þannig hefur útflutningur íslenskra vara notið fulls tollfrelsis í EFTA- löndum frá ársbyrjun 1970 og sam- kvæmt ákvæðum fríverslunarsamnings íslands við EBE munu íslenskar vörur njóta tollfrelsis í aðildarríkjum banda- lagsins frá og með 1. júlí 197 7, líkt og útflutningur annarra EFTA-landa til EBE, en EFTA-löndin gerðu hliðstæða fríverslunarsamninga við Efnahags- bandalagið í kjölfar úrsagnar Breta og Dana úr EFTA og íslendingar gerðu og tóku allir þessir samningar gildi hinn 1. apríl 1973. Frá og með miðju næsta ári verður því komin á full fríverslun með iðnaðarvörur milli 16 ríkja Vestur-Evrópu og einnig að því er okkur snertir tollfrjáls aðgangur fyrir flestar þýðingarmestu sjávarafurðir okkar á þessum mörkuðum. Á móti þessum tollaívilnunum íslenskum útflutningi til handa skuld bundu íslendingar sig til að fella á ákveðnu árabili, þe á árunum 1970—1980 að fullu niður tolla á innflutningi iðnaðarvara frá löndum EFTA og EBE, sem jafnframt eru fram- leiddar hér á landi. Svo dæmi sé tekið falla þannig niður tollar á fatnaði ýmiss konar við innflutning frá EFTA eða EBE-löndum en hins vegar ekki á bif- reiðum, þar sem þær eru ekki fram- leiddar hér á landi. Á það skal þó bent að gefnu tilefni, að vörusvið fríverslunarsamninganna eins og það snýr að innflutningi til íslands er í stórum dráttum takmarkað við iðnaðarvörur í tollskrárköflum 25—99, en tekur svo dæmi sé tekið, ekki til landbúnaðarvara Því er þetta ftrekað hér, að við mat á nauðsynleg- um lagfæringum á tollakjörum fslenskra atvinnuvega í kjölfar EFTA- samkomulagsins, hefur reynst nauð- synlegt til að firra ríkissjóð sem mestu tolltekjutapi að gera skýran greinar- mun á þeim atvinnu- og framleiðslu- greinum annars vegar, sem EFTA- samkomulagið og síðar EBE- samningurinn hafa bein samkeppnis- áhrif á vegna minnkandi tollverndar innlendrar framleiðslu og hins vegar þeirra þar sem engin breyting af þessu tagi hefur orðið svo sem í mjólkur- iðnaði og fiskiðnaði Hafa orðin samkeppnisiðnaður eða verndarvöruiðnaður verið notuð um þær iðngreinar. sem orðið hafa fyrir aukinni samkeppni enda þótt þau séu engan veginn nógu nákvæm til að ná fram fyrrgreindum aðgreiningi Svo nánar sé vikið að lækkunum tolla við innflutning frá EFTA og EBE var svo um samið, að tollar á verndar- vörum yrðu lækkaðir um 30% í árs- byrjun 19 70 en yrðu síðan óbreyttir fram til ársins 1974 er þeir voru lækkaðir um 10% af þeim grunntolli, er f gildi var í ársbyrjun 1 970 og síðan áframhaldandi um 10% árlega fram til ársins 1980, er tollvernd fslenskra verndarvöruiðnaðar verður afnumin. HLUTUR TOLLTEKNA RÍKISSJÓÐS LÆKKI ÚR 31,9% 1969 í 11,2% 1980 Af samningsákvæðum þeim, sem hér hefur verið lýst, leiddi að nauðsyn- legt reyndist að gera verulegar breyt- ingar á tollum á aðföngum íslensks verndarvöruiðnaðar Hafa þær breyt- ingar verið gerðar í áföngum, fyrst með breytingum f tollskrárlögum 1970. þá 1974 og með þessu frum- varpi eru enn frekari breytingar ráð- gerðar Þannig voru árið 1970 tollar á hrá- efni til iðnaðar almennt lækkaðir um 50%, og tollar á vélum lækkaðir í 7%. Árið 1 974 voru tollar á vélum að fullu felldir niður, tollar á hráefnum lækkað- ir um helming frá því sem þeir höfðu verið í árslok 1973 en þeir síðan að fullu felldir niður f byrjun þessa árs. Má því segja, að frá þessum tíma hafi íslenskur verndarvöruiðnaður f stórum dráttum búið við tollfrelsi á beinum hráefnum og vélum til fram- leiðslu sinnar. Þessi almenna regla hefur þó ekki verið án undantekninga og er með þessu frumvarpi stefnt að lausn þeirra vandamála, sem eftir voru skil á því tollalækkunartímabili, sem hér hefur verið lýst Áður en vikið er að helstu breyt- ingum, sem frumvarp þetta felur f sér, þykir mér rétt að fara nokkrum orðum um hlut tolltekna hins opinbera sem hlutfall af heildartekjum ríkissjóðs, en þá er ekki tekið tillit til markaðra skatta á innflutning til sérþar'a. Hlutur tolltekna frá árinu 1969 til ársins 1976 hefur lækkað úr 31,9% í 18.3% á þessu tfmabili, og skv áætlunartölum fjárlagafrumvarpsins 1 977 og fyrirhuguðum lækkunum skv þessu frumvarpi, mun þetta hlut- fall lækka í 15,5% á árinu 1977, 13,9% 1978, 12,6% 1979 og 1 1.2% 1980. Þegar litið er nánar á tölur um hlut tolltekna í heildarríkissjóðstekjum er það athugunarefni, að þrátt fyrir þessa hlutfallslegu lækkun hefur fslenska tollakerfið enn sérstöðu f samanburði við önnur lönd f V-Evrópu. þar sem tolltekjur eru yfirleitt ekki hærri en 1 — 3% af rfkissjóðstekjum viðkom- andi landa Er þá enn athugunarefni, hvort og að hvaða leyti þessi sérstaða valdi því, að fslenskum verndarvöru- iðnaði séu búin önnur og verri skilyrði hvað snertir gjöld á ýmiss konar aðföngum en keppinautum innan þeirra fríverslunarsvæða, sem ísland tengist. GJÖLD FJÁRFESTINGARVÖRUM SEM HLUTI AF SAMKEPPNISAÐSTÖÐUNNI Fyrst verður fyrir að tollar á öðrum fjárfestingarvörum en vélum og tækj- um hafa yfirleitt ekki lækkað og eru alménnt á bilinu 18—35% Auk þess- ara háu gjalda er lagður 20% sölu- skattur á flestar vörur. en sambærileg- an skatt fá erlendir samkeppnisaðilar endurgreiddan í virðisaukaskattkerfi viðkomandi landa Þá greiðist þessi misseri 18% vörugjald af ýmsum fjár- festingarvörum, sem ekki er lagt á í nágrannalöndum. Meðal annars með hliðsjón af þessum þætti í samanburði á gjöldum innlends verndarvöru- iðnaðar annars vegar og erlendra sam- keppnisaðila hins vegar gerir frum- varpið ráð fyrir þvf, að tollar á helstu fjárfestingarvörum verði lækkaðir i áföngum frá og með ársbyrjun 1978 til ársbyrjunar 1 980 En önnur sjónarmið hafa jafnframt ýtt undir þá stefnubreytingu um tolla á fjárfestingarvörum sem frumvarpið fel- ur í sér. Má nefna, að Alþingi hefur oft á undanförnum árum látið í Ijósi vilja til lækkunar byggingarkostnaðar Þessi breyting gengur eins langt og við verður komið á þessu stigi til móts við þær óskir. Hún mun að öðru jöfnu jafnt koma húsbyggjendum sem at- vinnurekstrinum til góða í lægra efnis- verði til húsbygginga. Það er viðbótar- röksemd fyrir þessari lækkun tolla á fjárfestingarvörum, að á undanförnum árum hefuraukist veiulega innflutning- ur á einingahúsum alls konar svo og stálgrindahúsum. Smíði innlendra húsa úr strengjasteypu og smíði inn- lendra einingahúsa á í samkeppni við þennan innflutning, sem er á leiðinni að verða tollfrjáls skv. EFTA-reglunum. Eins og ég hef hér lýst í stórum dráttum er meginstefna þessa frum- varps. að í lok þess tollalækkunartíma- bils, sem frumvarpið spannar yfir, þ.e. fram til 1 980, verði álögur á aðföng íslensks samkeppnisiðnaðar að mestu horfnar Að því er varðar verksmiðju- iðnað hverfa þessar álögur nær alveg frá og með 1977 að öðru leyti en tekur til bygginga, en ýmsar aðrar veigamikl- ar álögur er ráðgert að hverfi smám saman á tlmabilinu. Ég vil nú í framhaldi af þessum almenna inngangi fara nokkrum orðum um helstu ákvæði frumvarps þess, sem hér er til umræðu Má skipta helstu breytingum frumvarpsins frá gildandi lögum I 9 flokka, sem ég mun nú gera grein fyrir lið fyrir lið SAMNINGSBUNDNAR TOLLA LÆKKANIR VERNDARVARA í fyrsta lagi felur frumvarpið I sér samningsbundnar tollalækkanir á verndarvörum frá löndum EFTA og EBE, en skv. innflutningstölum frá miðju ári 1 975 til miðs árs 1976 nam innflutningur verndarvara alls 17,1 milljarði króna, af heildarinnflutningi um 73,4 milljarða króna eða 23,2%. Þar af nam innflutningur frá EFTA og EBE löndum 14,9 milljörðum en 2,2 milljörðum frá löndum utan EFTA og EBE. Tolltekjur ríkissjóðs af þessum sama innflutningi nam á sama tímabili um 2,5 milljörðum króna og þaraf 2,0 milljörðum króna frá EFTA og EBE Ríkissjóður verður af þessum tekjum á næstu árum og sýnir frumvarpið hvernig tollar af innflutningi frá lönd- um EFTA og EBE munu fara lækkandi stig af stigi á þessu tímabili, sbr. fskj. 1 með frumvarpinu. Séu fyrrgreindar tölur um tekjutap ríkissjóðs af þessum innflutningi færðar yfir á tekjugrunn fjárlagafrum- varps 1977 má ætla, að það nemi samtals um 2,3 milljörðum króna á næstu fjórum árum. Nokkur frávik er að finna í frumvarp- inu frá þeim tollalækkunarferli, sem um var samið við inngönguna í EFTA og ber það helst til að samningsbundn- um tollalækkunum á nokkrum verndar- vörum er hraða vegna eindreginna til- mæla samtaka iðnaðarins. Vörur þær, sem hér um ræðir, fengu á sfnum tíma sérstakan E-toll, en þar sem þær eru islenskum iðnaði mun mikilvægari sem hráefni en sem verndarvara og innlend framleiðsla þeirra er mjög takmörkuð, eru tollar á vörum þessum felldir niður að fullu frá löndum EFTA og EBE frá 1. jarí. 19 77. TOLLUR Á VERNDARVÖRUM FRÁ LÖNDUM UTAN EFTA OG EBE Annar þáttur endurskoðunar gild- andi tollskrárlaga sem frumiarp þetta nær til er lækkun tolla á verndarvörum innfluttum frá löndum utan EFTA og EBE. Til að koma i veg fyrir óeðlilegan tollamun á innflutningi frá þessum löndum annars vegar og EFTA og EBE löndin hins vegar er gert ráð fyrir að tollar verði einnig lækkaðir á vörum frá þessum löndum og er nánari útlistun á tollalækkunum þessum að finna í greinargerð með frumvarpinu. Rétt þykir þó að taka fram í þessu sambandi til að forðast misskilning sem nokkurs hefur gætt, að samningarnir við EFTA og EBE byggjast á því, að samnings- aðilar veiti hver öðrum gagnkvæm toll- friðindi. Getur þvi ekki orðið um það að ræða að innflutningur frá löndum utan Vestur-Evrópu njóti almennt sömu tollakjara við innflutning til ís- lands og innflutningur frá EFTA eða EBE, nema samið væri um gagnkvæm tollfríðindi við viðkomandi aðila á grundvelli GATT-samkomulagsins um fríverslunarsvæði Áætlað er að tekjutap rikissjóðs skv. þessum þætti muni nema um 90 m kr. á ári fram til 1 980. TOLLAR Á VÉLUM, HRÁEFNUM OG REKSTRARVÖRUM Þriðji þðttur endurskoðunar gild- andi tollskrárlaga beinist að lækkun tolla á þeim vélum, hráefnum og rekstrarvörum til iðnaðar, sem gjöld höfðu enn ekki verið lækkuð af. Má segja, að af þessum þremur tegundum aðfanga sé rekstrarvöruþátturinn hvað mikilvægastur þvi að i langflestum til- vikum höfðu gjöld þegar verið felld niður að fullu af vélum og hráefnum Má gera ráð fyrir að lækkun tolla á Ræða Matthíasar A. Mathiesen fjármálaráðherra er hann mælti fyrir frumvarpi til laga um tollskrá o.fl. Tollvernd íslenzks iðnaðar lýkur í ársbyrjun 1980

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.