Morgunblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14, DESEMBER 1976 19 „Helgi skoðar heiminn” KOMIN er út ný barnabók með teikningum eftir Halidór Peturs- son en sögu eftir Njörð P. Njarð- vlk. 1 fréttatilkynningu frá Iðunni, sem gefur bókina út, segir m.a.: „Á yfirlitssýningu Halldórs Péturssonar iistmálara á sl. hausti varð hinum fjölmörgu sýningargestum starsýnt á röð lit- mynda, sem sýndu ungan dreng, hestinn hans og hundinn við ýms- ar aðstæður og harla ævintýraleg- ar, enda voru myndir þessar bæði skemmtilegar og listavel gerðar. Nokkrum mánuðum áður en sýningin var haldin hafði það orð- ið að ráði milli Halldórs og bóka- útgáfunnar Iðunnar að leita eftir því við Njörð P. Njarðvík lektor að hann semdi sögu, er felli að þessum myndum. Féllst hann á að takast það verk á hendur, en Hall- dór jók við litmyndum á spjöld bókarinnar og saurblöð, svo og mörgum svarthvítum teikningum í samræmi við texta Njarðar." DENISE ROBINS SÝNINGAR STÚLKAN Ægisútgáfan; Sýningar- stúlkan ÆGISUTGÁFAN hefur sent frá sér nýja skáldsögu eftir Denise Robins sem ber titilinn Sýningar- stúlkan. Bókin fjallar um unga og fallega stúlku af efnuðu foreldri, sem missir móður sína á barns- aldri. Faðir hennar kvænist aftur en milli stjúpmæðgnanna tekst ekki ástúðlegt samband. Faðir hennar verður eignalaus og stúlk- an þá tvítug verður að vinna fyrir sér. Kemst hún að sem sýningar- stúlka hjá þekktu fyrirtæki. Hún vekur athygli og aðdáun í starfi en öfund starfssystra, sem reyna að koma á hana höggi. Biðla skort- ir ekki en hún verður ástfanginn af forstjóra fyrirtækisins, sem er lofaður yfirsíettarstúlku. Málið fer í hnút en leysist þó. AUGLYSINGASIMINN ER: 22480 JHor0unI>Iabit> „Jón Elías” eftir Jennu og Hreiðar KOMIN er út bókin Jón Elfas eftir Jennu og Hreiðar. Þetta er önnur útgáfa aukin og endurbætt. En fysta útgáfa af Jóni Elfasi kom út fyrir 18 árum og nefndist þá Snjallir snáðar. Þetta er bók fyrir yngstu lesendurnar. Jón Elías er rauð- hærður og freknóttur, lítill og grannvaxinn en fullur af tápi og f jöri — Jenna og Hreiðar hafa sent frá sér 26 barna- og unglingabækur. Auk þess kom á sl. ári barnabókin Blómin blið eftir Hreiðar og ljóða- bókin Engispretturnar hafa eng- an konung eftir Jennu. Kjós: Lömbin rýrari en á síðustu árum Kaðafelli 5. desember EFTIR einstaklega votviðrasamt sumar stytti upp f september og úr þvf hefir verið mjög gott haust og vetrarveður um vestanvert landið, og hefur það verið vel þegið af bændum á þessu svæði. Hafa þeir getað beitt sauðfé fram á þennan dag, en eru þó farnir að hýsa sums staðar. Það var jólalegt um að litast á jólafundi Hvatar sfðastliðið þriðjudags- kvöld, enda höfðu margar á orði að þessi árlega samkoma væri þeim fyrsta áþreifanlega sönnunan um nálægð hátfðarinnar. Á fundinum voru samankomnar um 150 konur á öllum aldri, og jólahappdrættið vakti ekki sfzt fögnuð þeirra yngstu eins og sjá má. (Ljósm. Ól. K. Magn.) Hið góða tíðarfar hefur sparað mjög hey, sem ekki var vanþörf á eftir alla rigninguna í sumar, en hey eru yfirleitt mjög léleg og ekki vitað hver nýting þeirra verður þegar lfður fram á vetur- inn. Hér í Kjós sem annars staðar á suðvestanverðu landinu voru lömb heldur rýrari til frálags en á siðasta ári, svo að segja má, að allt hjálpist að við að skerða afkomu bænda. Hjalti. Gi G. Hagalin FKKT F/FDDTIR T F /FR sjálfsævisaga Guðmundar G. Hagalíns. Gerist á Seyðis- firði og í Heykjavík á árunum 1920—25. Saga verðandi skáids sem er að gefa út sínar fyrstu bækur. Sjóður frábærra mannlýsinga — frægra manna og ekki frægra. LJÓSMYNDIR SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR Um 100 Ijósmyndir af húsum, mannvirkjum og mann- lífi í Reykjavík og út um land. Heillandi fróðleikur í vönduöum myndum um horfið menningarskeið áður en vélöldin gekk í garð. ÞJÓÐMÁLAÞÆTTIR eftir Jóhann Hafstein. Mikilsverð heímild um megin- þætti ísienzkrar þjóðmálasögu síðustu 35 ára — mesta umbrotaskeiðs í atvinnu- og efnahagsmáium sem yfir iandið hefur gengið. LJÓÐ JÓNS FRÁ LJÁRSKÓGUM Skáldið sem bæði orti sig og söng sig inn í hjörtu íslendinga, þó að æviár hans yrðu ekki mörg.Steinþór Gestsson, einn af félögum Jóns í MA-kvertettinum, hefur gert þetta úrval. GJafír erujður gefnar Greinasíifh jóliannesar Uekja GJAFIR ERU YÐUR GEFNAR eftir Jóhannes Helga. Greinasafn skapríks höfundar sem aldrei hefur skirrzt við að láta skoðanir sínar í ijós tæpitungulaust. Greinar hispursieysis og rökfimi. Almenna Bókafélagi Austurstræti 18. Bolholti 6, simi 19707 sími 32620

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.