Morgunblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976 39 Kristín Pétursdótt- ir—Minningarorð Kristin Pétursdóttir frá Berserkjahrauni i Helgafellssveit lést á Borgarspitalanum hinn 6. desember s.l. og fer minningarat- höfn um hana fram í Fossvogs- kirkju í dag en jarðsett verður að Helgafelli n.k. föstudag. Með Kristínu er gengin mikil- hæf og merk kona, sem var stór- brotin til orðs og æðis eins og hún átta kyn til. Kristín var fædd í Svefneyjum á Breiðafirði 24. ágúst 1887 og hefði orðið níræð næsta sumar ef hún hefði lifað. Kristin var af svonefndri Svefn- eyjaætt en faðir hennar Pétur Hafliðason, Eyjólfssonar eyja- jarls i Svefneujum. Móðir Kristin- ar var Sveinsina Sveinsdóttir úr Flatey á Breiðafirða Kristin ólst upp í Svefneyjum með foreldrum sinum og tvíbura- systur Ölinu, sem býr nú í Reykja- vik. Þær systur urðu snemma efnilegar til starfa, sem til féllu á stóru eyjaheimili, og gengu að öll- um störfum inni en þó meir útivið er þær komust á legg. Þessar syst- ur urðu brátt eftirsóttar til sjó- róðra og heyflutninga en-það er merkileg saga og óvenjuleg. Saga þessi er rakin skilmerkilega er Matthías ritstjóri Jóhannessen hafði viðtal við þær systur, sem birtist í Morgunblaðinu fyrir nokkrum árum. FRÁ LEHBEIHINGASTÖfl HÚSMÆflRA Leikföng Fyrir jólin er mikið keypt af leik- föngum en eru öll leikföng þannig úr garði gerð að þau geti ekki valdið slysum? Vesturevrópsk stöðlunarsamtök, CEN (Comité, Européen de Normalisation), hefur samið tillögur um öryggiskröfur í leikfangagerð og frágangi á leik- föngum. Fyrir nokkru var sagt frá þeim kröfum i grein sem birtist í „Rád og Resultater", málgagni Statens Husholdningsrád í Dan- mörku. og verður hér sagt frá helst- um atriðum. Efnisval og frágangur Leikföngin mega ekki vera með hvössum brúnum eða oddum sem barnið getur skorið sig á. Leikföng úr tré mega ekki vera með rifum, lausum kvistum eða flísum og yfir- borðið má ekki vera hrjúft. Á leikföngum úr pjátri verður að brjóta inn af öllum brúnum eða ganga frá þeim á annan hátt svo að börnin geta ekki skorið sig á þeim. Fylling í tauleikföngum má ekki vera með gler- eða málmbrotum eða með örðum oddhvössum hlut- um. Ef fyllingin er gerð úr plastkúl- um (t.d. polystyren) sem eru minni en 3 mm í þvermáli verður hylkið að vera tvöfalt, ella er hætt við að börnin geti kroppað gat á leikfangið og þá geta kúlurnar hæglega sog- ast upp i nefið á barninu og niður í lungu Oddurinn á nöglum, skrúfum o.þ.h. verður að vera alveg hulinn og hvergi mega vera nagla- eða skrúfuhausar sem geta meitt barn- ið Þótt leikfangið detti í gólfið má það ekki detta í sundur svo að naglaoddar o.þ.h standi út úr þeim. Ef leikfangið er þanið með stál- þræði má hann ekki brotna þótt leikfanginu sé vöðlað saman Leikfangavopn eins og t d hníf- ar, sverð og axir mega ekki vera oddhvöss og örvar ekki úr málmi. Á örvarendum verður að vera a m.k 20 mm þykk doppa úr mjúku efni (t d. úr plasti eða gúmmíi). Lamir á hurðum og lokum á t.d brúðuhúsgögnum verða að vera festar þannig að rifan á milli brún- anna verði annaðhvort mjórri en 5 mm eða breiðari en 12 mm (hvort sem hurðin er opin eða lokuð). svo að engin hætta sé á að börnin geta klemmt fingurna þar á milli. Á leikföngum sem eru dregin upp þarf „mótorinn" að vera svo vel varinn, að fingurnar komist ekki í klemmu. Það þarf að ganga svo vel frá þeim að þau þoli harkale^a meðferð án þess að fara í sundur og „mótorinn" verði þar með óvar- inn. Á flautum, lúðrum o.þ.h. mega ekki vera lausir smáhlutir sem geta sogast upp í munninn. Leikföng handa litlum börnum Börn innan við þriggja ára setja gjarnan leikföngin sin upp í munn- inn og hætt er við að þau gleypi smáa hluti. Áfastir smáhlutir verða þvi að veia minni en 1 7 mm eða stæry en 32 mm. Sama máli gegn- ir um púsluspil, kubba o.þ.h. Hlutir sem eru minni en 1 7 mm geta varla festst i hálsi barnsins. Ef hluturinn er stærri en 32 mm getur barnið ekki gleypt hann. Að sjálf- sögðu verða augun i bangsa og í brúðunni að vera svo vel fest, að barnið geti ekki togað þau úr. Leikföng til að festa við barna- vagn eða rúm mega ekki vera með lausum snúruendum sem eru lengri en 30 cm. Ef leikfangið er fest við báðar hliðar rúmsins eða barna- vagnsins má ekki vera unnt að þenja teygjuna meira en 75 cm, svo að öruggt sé. að ungbarnið geti ekki snúið því um hálsinn á sér. Hringlur þurfa að vera svo sterk- ar að þær brotni ekki, jafnvel þótt þeim sé lamið í gólfið eða stigið sé ofan á þær. Smáhlutir innan í hringlunni verða að vera sléttir. Þurrkaðar baunir o.þ.h. inn i hringlunni mega ekki geta bólgnað upp í vatni ef barnið skyldi gleypa þær. Aðrar hættur Það ætti að banna að nota efni i leikföng sem brenna með skærum loga ef kviknar i þvi. i leikföngum ætti ekki heldur að vera efni sem eru skaðleg fyrir heilsu barna Það ætti að vera tak- mörk fyrir þvi hve mikið blý, cadmium og önnur efni með eitur- verkunum mætti vera i þeim litum sem börn nota (krít. málning oþ.h). I leikföngum úr plasti og í máluðum leikföngum sem hætt er við að börn setji upp í munninn mega ekki heldur vera slik efni. Að sjálfsögðu ætti að fylgja hverju leikfangi upplýsingar um framleiðanda eða innflytjanda, einnig ætti að merkja þau leikföng sem geta verið hættuleg fyrir litil börn með eftirfarandi viðvörunar- orðum: „Ekki handa börnum innan við þriggja ára aldur" Þegar þessir staðlar verða sam- þykktir er von til þess að hættuleg leikföng verði ekki lengur á boðstól- um en þangað til verða neytendur að skoða vel þau leikföng sem þeir kaupa, og hafa til hliðsjónar þær reglur sem hér hafa verið settar fram S.H. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Kristin giftist Guðmundi Sig- urðssyni frá Berserkjahrauni 1912 og bjuggu þau fyrst i Hraunsfirði eitt ár, en siðan að Hrauni allan sinn búskap. Þau eignuðust 11 börn sem öll eru á lífi og búa flest I Reykjavik en tvær systur búa með mönnum sín- um í sveit en ein er búsett í Ameríku. Börn þeirra eru Halldór verslunarmaður, Sigurður hús- vörður, Ingvi starfar á Ölafsfirði, Guðrún húsmóðir í Ameríku, Sig- rfður, Marfa og Andrea giftar í Reykjavik, Pétur skipstjóri, Jón verkstjóri í Kópavogi, Sveinsina og Guðlaug búsettar i Gaulverja- bæjarhreppi og Grundarfirði. Bcrnin eru öll mesta dugnaðar og myndarfólk og eftirsótt til hvers- konar starfa. Það er talið landgott að Bers- erkjahrauni og var bú þeirra Guð- mundar og Kristinar ekki stórt en afurðagott og vel farið með allar skepnur. Mikið þurfti til að metta alla munnana en allir fengu nóg enda vel á öllu haldið og ráðdeild og sparsemi I fyrirrúmi. Guð- mundur lést 1946 og bjó Kristin þá i nokkur ár áfram með yngstu börnum sínum. Síðan hefir Kristin dvalið með börnum sínum á góðu atlæti og ávallt verið heilsuhraust, þar til nú að hún var flutt á sjúkrahús 4 dögum fyrir andlát sitt. Mun það vera eina dvölin sem hún átti sem sjúklingur á spitala í lifinu. Kristín er nú öll og hinn stóri hópur afkomenda minnist hennar með þakklæti, eftir langt og gæfu- samt æfistarf. Við frændfólkið vottum samúð og henni þökkum við allt gamalt og gott ena var þessi kona öllum minnisstæð sem kynntust henni. Hún var barn síns tíma, ólst upp við kjarngott viðurværi en ströng kjör og mót- aðist af þeim. Hún skilaði þjóð sinni dýrum arfi og fer nú á vit almættisins með hreinan skjöld. Minningin lifir. J.M.G. 12861 13008 13303 laugavegi 37 laugavegi 89 hafnarstr. 17 DÖMUR Buxnapils, samfestingar og kjólar úr fínflauel. Glæsilegt úrval af peysum. Blússur einlitar, mislitar. Stutterma hermannaskyrtur. HERRAR Terelyneföt með vgsti. Rifluð flauelsföt. Loðfóðraðar mittiskuldajakkar. Stakar terelynebuxur Peysur, skyrtur og bindi. Ný sending kúrekastígvél.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.