Morgunblaðið - 14.12.1976, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976
Ævisaga
kennimanns
Ásmundur Eirfksson: Skyggnzt
um af skapabrún. — Þriðja
bindi.
Merkileg var ævi Asmundar.
Rúmlega tvitugur að aldri og
kominn að því að stofna bú og
gerst bóndi í heimasveit sinni,
fær hann köllun um að gerast
lærisveinn Krists. Hann hlýddi,
og var þeirri köllun trúr til
æviloka.
Þessu hefir hann lýst í tveim-
ur fyrri bindum ævisogu
sinnar. Og nú er komið þriðja
bindið og fjallar það aðallega
um kennimannsstarf hans hér í
Reykjavik og hefst sú frásögn
með stofnum Fila-
delfíusafnaðarins.
Hann var stofnaður sumarið
1936. Hefir það varla þótt
merkilegur atburður þá, því að
stofnendur voru aðeins átta,
auk Asmundar og konu hans.
En þau hjónin voru ánægð, þvi
að talan 8 er heillatala og hefir
verið, langt aftan úr öldum.
Sögunni lýkur svo með þvi
vorið 1975, að hann hefir komið
hér upp mjög fjölmennum og
sannkristnum söfnuði og þessi
Saga frá
Skagfirð-
ingum
KOMIÐ er út fyrsta bindi
ritverksins Saga frá Skagfirðing-
um, sem er heimildarrit í ár-
bókarformi um tíðindi, menn og
aldarhátt i Skagafirði 1685—1847,
en jafnframt nær frásögnin i og
með til annarra héraða, einkum á
Norðurlandi. Jón Espólin sýslu-
maður er höfundur verksins allt
fram til ársins 1835, en siðan
Einar Bjarnason fræðimaður á
Mælifelli og gerist frásögnin þvf
fyllri og fjölbreyttari þvi nær sem
dregur I tima.
1 frétt frá útgefanda, sem er
Bókaútgáfan Iðunn, segir m.a.:
„Saga frá Skagfirðingum ber
öll sömu höfundareinkenni og
Árbækur Espólíns, jafnt um
efnistök sem mál og stil. Það
bindi verksins, sem nú birtist nær
til ársins 1786. Þar segir margt
frá fyrirmönnum í héraðinu, bæði
andlegar og veraldlegrar stéttar
t.d. Hólabiskupum öllum á tima-
bilanu og sýslumönnum, ekki sízt
Skúla Magnússyni siðar land-
fógeta. Jafnhliða er greint frá
helztu búendum og ættkvislum.
Af sögulegum atburðum má
nefna bruna Reynisstaðar, lika-
málið og hvarf sr. Odds á Mikla-
bæ.
Kristmundur Bjarnason
fræðimaður á Sjávarborg hefur
samið ýtarlegar skýringar og við-
auka við verkið sem færa söguna
nær nútimanum. Auk Krist-
mundar annast útgáfuna Hannes
Pétursson skáld og ögmundur
Helgason BA.“
söfnuður hefir með forgöngu
hans komið sér upp fögru guðs-
húsi, sem kostar um 130
milljónir króna. Hvort tveggja,
hinn stóri söfnuður og guðshús-
ið , voru kraftaverk, sem stað-
festu þessa kenningu Krists:
„Leitið fyrst guðsrikis og rétt-
lætis hans, þá mun allt annað
veitast yður að auki.“ En með
þessu var lokið hlutverki
Ásmundar i þessum heimi,
hann andaðist skömmu siðar.
Þar fór góður maður, sem
þjóðin stendur i þakkarskuld
við, og þó sérstaklega Reykja-
vík og Reykvíkingar. Þetta er
mörgum vel kunnugt og mér
varð það einnig ljóst, eftir að ég
kynntist manninum og
blessunarríku starfi hans um
40 ára skeið. Hann gerði mörg
kraftaverk önnur en þau sem
hér hafa verið talin. Trú hans
var hrein og óbifanleg og með
hinum dularfulla krafti bænar-
innar læknaði hann marga
sjúka og bjargaði þó enn fleiri
af villigötum og gerði þá að
nýtum og góðum mönnum. Fyr-
ir þetta stendur Reykjavík í
ævarandi þakkarskuld við
hann. Oft var það, þá er ég
frétti af slíkum kraftaverkum,
að mér kom I hug það, er
Magnús Noregskonungur sagði
við Jón prest ögmundsson (er
seinna varð biskup á Hólum og
helgur talinn): „Vel virðist mér
þitt formæli. Hefir þú :f guðs
hálfu talað. Vildi ég gjarna
vera undir þinum bænum, þvi
að þær munu mikið mega við
guð, því að ég trúi, að saman
fari guðsvilji og þinn.“
Ásmundur segir oft frá því í
ævisögu sinni, að hann hafi
aldrei ráðið fram úr neinum
vanda án þess að ráðfæra sig
við guð og biðja hann að blása
sér í brjóst hinni réttu lausn.
Og ætið fór svo, að honum
bárust hugskeyti um hvað hann
ætti að gera. Hann fór ætið
eftir þvi, og þannig fór saman
guðsvilji og hans.
1 hinni drottinlegu bæn, sem
allir kristnir menn fara með I
öllum kirkjum, er beðið um að
„guðsríki komi til vor“. Það get-
ur komið til vor eftir mörgum
brautum, og til Ásmundar kom
það beina braut, vegna þess að
hann var i sambandi við allífið
og kenndi öðrum að finna það
samband. Hann sýndi trú sina i
verkunum og verkin tala enn.
Komið á guðsþjónustu í Fila-
delfiu og þér munuð finna þar
nýtt og ferskt andrúmsloft,
magnað af trúaráhuga
safnaðarins.
Ég hefi farað fáum orðum um
þessa seinustu bók, en það sem
ég hefi hér ritað á við um allar
þrjár bækurnar. Þess má þó
geta, að aftan við sögulokin i
þessari seinustu bók eru prent-
aðar nokkrar ræður, sem As-
mundur flutti i útvarpi, og
mönnum geðjaðist vel að. En
þær verða ekki jafn lifandi á
prenti, eins og þær voru i
munni hans þegar hugur og
hjarta lögðu til áhugann.
Árni Óla
Nýr vegar-
kafli við
Kiðafell
Kiðafelli 5. desember.
A siðastliðnu sumri var hafizt
handa við lagningu vegar við hina
nýju brú yfir Kiðafellsá og er nú
komið að þvá, að umferð verði
hleypt á þann kafla, sem lokið er
við. Aðeins er eftir að bera slitlag
á hann. Þórisós h.f. hefir fram-
kvæmt verkið en vegna votviðr-
anna I sumar seinkaði verkinu
nokkuð.
Það mun vera mörgum bíl-
stjóranum ánægjuefni að þurfa
ekki lengur að aka yfri gömlu
brúna, sem talin hefur verið
hættulegasti kaflinn á leiðinni yf-
ir Hvalfjörð og hafa þar orðið
mörg alvarleg slys, þar á meðal
nokkur dauðaslys. Þegar nýi
vegarkaflinn verður opnaður
mun Eyrarfjallsvegurinn lengjast
nokkuð og þeir sem búa I Mýdaln-
um þurfa að leggja lykkju á leið
sina norður fyrir Kiðafell til að
komast á nýja veginn, sá krókur,
sem ibúar Mýdalsins verða að
taka á sag er l‘A til 2 km en erfitt
er að gera svo öllum líki.
Hjalti
Geróu kröfur
og þú velur
Philishave
Philishave — nafnið táknar
heimsfrægt rakhnífakerfi. Þrjá
hringlaga,fljótandi rakhausa. w
Þrisvar sinnum tólf fljótvirka
hnífa,sem tryggja fljótan, þægilegan
og snyrtilegan rakstur. Þrisvar sinnu
níutíu raufar,
sem grípa bæði
löngogstutt há
í sömu stroku.
Er ekki kominn
tími tilaðþú
tryggir þérsvo
frábæra rakvél?
Philishave 90-Super 12,hefur
stillanlega rakdýpt, sem
hentar hverri skeggrót.
Vegnahinna nýju 36 hnífa,
rakar hún hraðar og þægi-
legar. Níu dýptarstillingar
auka enn á þægindin.
Bartskerinn er til snyrtingar
á skeggtoppum og börtum.
Þægilegur rofi og auðvitað
gormasnúra. Vönduð gjafaaskja
(HP 1121).
Hleðsluvél með stillanlegri
rakdýpt. Á einni hleðslu
tryggir þessi Philishave 90-
Super 12,þér rakstur í tvær
vikur. Níu dýptarstillingar
og ein þeirra hentar þér
örugglega.Teljari sýnir hve
oft vélin hefur verið notuð
frá síðustu hleðslu. Bart-
skeri og gormasnúra
og í fallegri gjafaöskju
(HP 1308)
Philishave 90-Super‘12.
Hraður og mjúkur rakstur,
árangur 36 hnífa kerfisins.
Rennileg vél sem fer vel i
hendi. Bartskeri og
gormasnúra og í
fallegri gjafaöskju
(HP 1126).
Rafhlöðuvél.
Tilvalin í ferðalög,
i bátinn, bílnum,
og hjólhýsinu.
Viðurkenndir
rakstrareiginleikar.
Fórar rafhlöður,
tryggja fjölmarga
hraða og þægilega
rakstra. 1 þægilegri
ferðaöskju (HP 1207)
Philips kann
tökin á tækninni.
Nýja Philishave 90-Super 12
3x12 hnífa kerfið.
PHILiPS
F'ullkomin þjónusta
tryggir yðar hag.