Morgunblaðið - 14.12.1976, Side 18

Morgunblaðið - 14.12.1976, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBÉR 1976 Kjartan Gunnarsson: Er þetta hægt Matthías? — Félagsstofnun stúdenta gjaldþrota Félagsstofnun stúdenta gjaldþrota Það hefur ekki farið framhjá neinum, sem fylgist með fréttum, að undanfarna mánuði hafa stúdentar og aðrir nemendur framhaldsskóla, sem njóta opin- berrar fjárhagsaðstoðar, talið mjög að kjörum sínum vegið. Um- ræðurnar hafa einkum snúist um nýlega samþykkt lög um Lánasjóð íslenzkra námsmanna og enn nýrri úthlutunarreglur, sem sett- ar eru samkvæmt Iögunum. Helztu nýmæli þessara laga eru þau að öll lán sjóðsins verða fram- vegis verðtryggð að fullu. Náms- menn hafa mótmælt vísitölubind- ingunni ogþeim ákvæðum úthlut- unarreglnanna sem þeir telja að hrekji efnalítið fólk frá námi svo og fólk sem stofnað hefur fjöl- skyldur. Vegna hinnar miklu áherzlu sem lögð hefur verið á námslánin hefur því miður ekki verið vakin nægileg athygli á bágri stöðu Fé- lagsstofnunar stúdenta en hún rambar nú i raun og veru á barmi gjaldþrots. I eftirfarandi máli hyggst ég gera nokkra grein fyrir stöðu stofnunarinnar og þvi verkefni sem bíður Alþingis i þvi sam- bandi. Félagsstofnun Félagsstofnun stúdenta var stofnuð með sérstökum lögum í april 1968. Hlutverk stofnunar- innar er að annast rekstur og bera 1 ábyrgð á fyrirtækjum í þágu stúdenta og beita sér fyrir eflingu þeirra. Stofnunin er sjálfseignar- stofnun og eru aðilar hennar þess- ir: menntamálaráðuneytið, Há- Þetta hús var eitt af fyrstu verkefnum Fs. Það er byggt fyrir framlög rlkissjóðs, stúdenta, Háskólans og tékkasjóðs. 1 húsinu er mötuneyti, Bóksalan, skrifstofa stofnunarinnar o.fl. til húsa. Kjartan Gunnarsson skóli Islands og allir innritaðir háskólastúdentar. Stofnunin ann- ast margvislega félagslega þjón- ustu við stúdenta. Stofnunin rek- ur t.d. eftirtalin fyrirtæki: þrjá stúdentagarða, Félagsheimili stúdenta, Hótel Garð, fjórar kaffi- stofur, Matstofu stúdenta, tvö barnaheimili, Háskólafjölritun, Ferðaskrifstofu stúdenta og Bók- sölu stúdenta. Þessi fyrirtæki, að gömlu stúdentagörðunum tveim undanskildum, hafa flest verið byggð upp á undanförnum átta árum. öll eru þessi fyrirtæki stúdentum mikilvæg. Sennilega eru þó Bóksala stúdenta, sem flyt- ur inn og selur á lægsta mögulegu verði allar kennslubækur sem stúdentar þurfa að nota, mötu- neytið og stúdentagarðarnir að ógleymdum barnaheimilunum lang mikilvægust. Mikilvægi þeirrar félagslegu þjónustu, sem þessi fyrirtæki inna af höndum fyrir stúdenta liggur í augum uppa Hverjum heilvita manni ætti að vera auðsætt að lægsta mögulega bókaverð, ódýr en holl- ur matur og óbrotið og ódýrt leiguhúsnæði fyrir dreifbýlis- menn á stúdentagörðum eru at- riði sem hafa veruleg áhrif á fjár- þörf stúdenta. Tekjur Félagsstofnunar Þeim mætu forystumönnum is- lendinga sem stóðu að stofnun Félagsstofnunar stúdenta var mætavel ljóst mikilvægi þess, að allir ættu þess kost að njóta þeirra menntunar, sem geta Af þessum ívitnuðu orðum sést mætavel að framsýni og stórhug- ur ríkti í afstöðu Alþingis til fé- lagsstofnunar stúdenta. Á fyrstu árum stofnunarinnar stóð Alþingi fullkomlega við þessi fyrirheit sín. Nú er hins vegar svo komið að stúdentar leggja Félagsstofnun til mun meira fé af innritunargjöld- um sínum en Alþingi gerir á fjár- lögum. Til skýringar á þessu birti ég hér tvær töflur um tekjur Fé- lagsstofnunar (Fs) i þeim má sjá heildarupphæð framlaga Alþingis og stúdenta og hversu mikið greitt er pr. stúdent og hafa þær upphæðir (dálkur 6) allar verið færðar til verðlags 1969 til þess að auðvelda samanburðinn. Fært til verðlags 1969 visi- fjár- pr. fjár- pr. fjöldi tala vöru lög stúd- lög stúd- inn- og þús. ent þús. ent rit. þjón- Ár kr. kr. kr. stúd. ustu 1969 2.950 2.059 2.950 2.059 1.433 100 1970 6.430 3.794 5.640 3.328 1.695 114 1971 3.480 1.817 2.829 1.477 1.915 123 1972 4.080 1.877 2.914 1.341 2.179 140 1973 4.850 2.000 2.771 1.143 2.425 175 1974 6.850 2.661 2.751 1.069 2.574 249 1975 7.500 2.777 2.005 743 2.700 374 1976 7.600 2.533 1.564 521 3.0001 486 Heildarfjárhæð innritunargjalda Hluti Fs. og Stúdentaskiptasjóðs Fært til verðl. 1969 vísi- heild- heild- tala ar- pr. ar- pr. fjöldi vöru fjárh. stúd- fjárh. stúd- inn- og þús. ent þús. ent rit. þjón- ár kr. kr. kr. kr. stúd. ustu 1969 634 442 634 442 1.433 100 1970 740 437 649 383 1.695 114 1971 2.017 1.054 1.640 857 1.915 123 1972 2.265 1.039 1.618 742 2.179 140 1973 3.896 1.600 2.226 914 2.425 175 1974 6.947 2.700 2.790 1.084 2.574 249 1975 8.100 3.000 2.166 802 2.700 374 1976 10.800 3.600 2.222 741 3.000’ 486 Reiknað er með 30% hækkun milli ára 1975 og 1976. þeirra og áhugi stóðu til. Þeim var það ekki síður ljóst, að þessu marki yrði ekki náð nema til kæmi efnaleg aðstoð frá hinu op- inbera, sem tryggði að enginn þyrfti sökum fjárskorts að hverfa frá námi. Þessu marki var ætlun- in að ná með tvennum hætti. I fyrsta lagi með setningu laga um Lánasjóð islenzkra namsmanna árið 1967 og í öðru lagi með stofn- un Félagsstofunar stúdenta 1968. Frumkvöðlum Félagsstofunar stúdenta var ljóst að hún yrði all fjárfrekt fyrirtæki ef hún ætti að geta sinnt skyldum sinum af rausn og myndarskap. Af þeim sökum var ákveðið að stúdentar skyldu á hverju ári inna af hendi gjald til stofnunarinnar og auk þess var gert ráð fyrir þvi að ríkissjóður léti fé af hendi rakna til stofunarinnar. Stúdentar hafa ekki svikist um að standa við sinn hlut og hafa framlög þeirra pr. stúdent hækkað um 171% frá 1971 til 1975. Á þessum sama tíma hefur framlag ríkissjóðs pr. stúdent hækkað um 47%. í frum- varpi til laga um Félagsstofnun segir: „Gera verður ráð fyrir, að framlög rfkissjóðs til félagsmál- efna stúdenta fari hækkandi á næstu árum. 1 Noregi tfðkast t.d. að rfkið leggi fram fé f hlutfalli við framlag stúdenta. Greaði hver stúdent 500 kr. þá greiðir rfkis- sjóður 1.500 kr. á móti honum“. Af þessum töflum má sjá hversu mjög hefur sagið á ógæfu- hliðina um framlög Alþingis. En ef standa hefði átt við gefin fyrir- heit hefði framlag Alþingis 1976 átt að vera um 10 millj. f stað 7.6 Framhald á bls. 37 ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU \k;ia si\(i.\- SIMIW KH: 22480

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.