Morgunblaðið - 14.12.1976, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976
SLAKUR FYRRI h
OG ÁRMENNING
EINAR Bollason á í höggi við Njarðvíkinga Þorsteinn Bjarnason og Jðnas Jðhannesson og það er
greinilegt að þeir ætla ekki að láta Einar komast upp að körfunni og eru til þess notuð ýmis konar
brögð og ekki öll lögleg.
NJARÐVÍKINGAR STYRKJA
STÖÐU SÍNA í 1. DEILDINNI
NJARÐVfKINGAR bættu stöðu
sína talsvert með góðum sigri, gegn
KR-ingum á sunnudaginn. Þetta var
mikill barátttuleikur, en Njarðvfk-
ingar höfðu, frumkvæðið lengst af,
en á 16 mínútu höfðu KR-ingar náð
forystunni, 64—60, en Njarðvíking-
um tókst að knýja fram sigur
70—66 eftir mikil læti og hama-
gang.
Gangur leiksins var annars sá að
Njarðvfkingar byrjuðu vel og
skoruðu hverja körfuna á eftir ann-
arri hjá afar slökum KR-ingum og á
12. mínútu fyrri hálfleiks var staðan
orðin 31—12, en þá fóru KR-ingar
að sækja sig og þéttu þeir vörnina
mikið, auk þess sem þeir fóru að
hitta betur og ná einstaka fráköst-
um, en þau höfðu Njarðvíkingar átt
að mestu þangað til. Þetta bætti leik
KR-inga mikið og í leikhléi var stað-
an orðin 39—29 UMFN i vil.
KR-ingar mættu síðan mun
ákveðnari til seinni hálfleiks og
söxuðu þeir jafnt og þétt á forskot
Njarðvíkinga og á 10. min. hálfleiks-
ins náðu þeir forystu, 51—50. Á
næstu mínútum var baráttan geysi-
leg og jafnt á flestum tölum upp i
58—58, en þá náðu KR-ingar
fjögurra stiga forystu, 62—58 og
höfðu þeir einnig yfir 64—60 á 16.
mfnútu, en eftir það skora þeir að-
eins 2 stig gegn 10 stigum Njarðvik-
inga, sem gerðu þannig út um leik-
inn og lauk honum eins og áður
sagði með 70—66 UMFN í vil.
Eftir að KR-ingum hafði tekist að
ná forystunni undir lok leiksins
voru þeir afar óheppnir að vinna
ekki leikinn, en sennilega hefur það
ráðið mjög miklu að bæði Birgir
Guðbjörnsson og Bjarni Jóhannes-
son höfðu orðið að yfirgefa völlinn
með 5 villur en Bjarni hafði átt
góðan leik fram að því, einnig virtist
sem Njarðvíkingar högnuðust nokk-
uð á dómgæzlu þeirra Harðar
Túliníusar og Marinós Sveinssonar,
sem voru óvenju slakir í þetta sinn.
Leikur Njarðvfkinga var nokkuð
góður framan af, en það var aöal-
lega vegna þess hve KR-ingar
byjuðu illa, en í heildina var leikur
þeirra ekkert sérstakur og virðist
engin ástæða fyrir hín fystu deildar
liðin að vera að hræðast þá, eða vera
með nokkra minnimáttarkennd
gagnvart þeim, eins og virðist hafa
verið.
Beztu menn þeirra voru Þorsteinn
Bjarnason og Geir Þorsteinsson, en
stigin fyrir Njarðvik skoruðu: Geir
Þorsteinsson 14, Kári Marfsson 13,
Þorsteinn Bjarnason og Jónas
Jóhannesson 10 hvor, Stefán
Bjarkason 9, Brynjar Sigmunds-
son,7, Gunnar Þorvarðarson 4 og
Sigurður Hafsteinson 3 stig.
KR-ingar áttu slakan leik í fyrri
hálfleik, en sóttu sig mikið í þeim
seinni og beztu menn þeirra voru
þeir Einar Bollason og Kolbeinn
Pálsson.
Stigin fyrir KR skoruðu: Einar
Bollason 20, Kolbeinn Pálsson 17,
Bjarni Jóhannesson 13, Gisli Gisla-
son 9, Eiríkur Jóhannesson 3 og þeir
Birgir Guðbjörnsson og Gunnar
Jóakimsson 2 hvor.
HG
ÁRMANNN er enn eina
ósigraða iiðið í fyrstu deild
og á laugardaginn unnu þeir
ÍR-inga með 83—79 og bættu
þannig við sig 2 góðum stig-
um. Annars var það aðallega
afar slakur fyrri hálfleikur
sem varð iR-ingum að falli,
en honum lauk með 49—30
Armanni í vil. Seinni hálf-
leikinn unnu ÍR-ingar hins
vegar með 49—34 svo að ekki
mátti miklu muna.
Gangur leiksins var svo þannig
að iR-ingar náðu forystunni, í upp-
hafi leiksins, komust i 8—4, en þá
tóku Ármenningar leikinn í sinar
hendur og um miðjan hálfleikinn
höfðu þeir náð 8 stiga forystu,
22—14 og hafði Björn Magnússon
þá átt mjög góðan leik og upp úr því
fór Jimmy Rogers svo í gang og réðu
ÍR-ingar þá ekki við neitt og
Armann náði yfirburða stöðu,
Roger kemur aftur
EINS og flestum mun kunnugt er
Jimmy Rogers leikmaður
Ármanns I 1. deildar keppninni I
körfuknattleik nú á förum til
Bandartkjanna og mun hann
dvelja þar að minnsta kosti eitt-
hvað fram yfir áramótin. Mikið
hefur verið um það raett og margir
álitið að hann kæmi ekki aftur svo
að blaðið snéri sér til Rogers og
spurði hann um þessi mál og sagð-
ist hann mundu koma aftur og að
hann myndi væntanlega leika með
Ármanni f fyrsta leiknum eftir ára-
mótin. „Ég þarf aðeins að fara til
Bandartkjanna til að sinna einka
málum og til að vinna þvi ég er
rétt nýbúinn að fá vinnu hér þvi
eru fjárráðin litil, en ég ætla að
koma aftur."
Það er ekki að efa það að
Jimmy Rogers hefur verið
Ármanns liðinu mikill styrkur og
þar sem hann mun koma aftur
ættu Ármenningar að standa mun
betur i baráttunni um islands-
meistara- og Bikarmeistaratitilinn.
en þeir eru ákveðnir f að halda
báðum titlunum áfram. en eins og
mönnum er kunnugt urðu þeir
bæði bikar- og fslandsmeistarar á
sfðasta ári. HG
JIMMY Rogers skorarr f leiknum g
Jón Pálsson koma engum vörnum
bezta leik í vetur og var tvfmælal
sinn.
komst mest i 20 stiga mun á 19.
mínútu og var staðan þá 48—28
Ármanni i vil, en staðan í leikhléi
var svo 49—30.
ÍR-ingar mættu svo mun ákveðn-
19 Akur-
eyrarmet
íkraft-
lyftingum
Á laugardag héldu hinir ungu og
áhugasömu lyftingamenn á
Akureyri Akureyrarmót f kraft-
lyftingum. fJrslit fengust f sjö
flokkum og voru sett Akureyrarmet
f samanlögðu í fjórum flokkum.
Akureyrarmetin á þessu móti urðu
þó fleiri eða alls 19 f hinum ein-
stöku greinum.
Áhugi þeirra sem lyftingar stunda
á Akureyri er annars afar eftir-
tektarverður, þvi allt eru þetta
kornungir menn sem þessa grein
Lítið blaks
EKKERT var leikið f fyrstu deild
karla I hlaki um þessa helgi vegna
þess að Vfkingar komust ekki til
Akureyrar til að leika við UMSE
eins og áætlað hafði verið, en lands-
liðið lék æfingarleik við lið af
Keflavfkur flugvelli og urðu banda-
rfsku hermennirnir tslendingum
auðveld bráð og lauk ieiknum með
sigri fslenzka landsliðsíns 3—0
STUDENTAR UNNU BLIKA
í HRÚTLEIÐINLEGUM LEIK
EFTIR talsverðan barning tókst stú-
dentum að hrista óvenju frfska
Breiðabliksmenn af sér og vinna
einhvern leiðinlegasta leik þessa
keppnistfmabils með 23 stiga mun,
94—71, eftir að Blikarnir höfðu
haft yfir fram undir miðjan fyrri
hálfleik og höfðu Blikarnir þá sýnt
sinn bezta leik í vetur, en stúdentar
sennilega sinn slakasta.
Gangur leiksins var annars sá að
Blikarnir voru mjög frískir í upp-
hafi leiksins, en hins vegar virtist
sem stúdentar héldu að þeir ynnu
leikinn án nokkurrar fyrirhafnar og
reyndu þeir hreinlega ekki að gera
nokkurn skapaðan hlut sem vit var
í, enda varð raunin sú að Blikarnir
höfðu forystu þar til á 8. mínútu að
stúdentar komust yfir, 19—18, og í
leikhléi var staðan 44—40, IS í vil.
Stúdentar voru svo heldur sterk-
ari í seinni hálfleik, en það var þó
ekki fyrr en á 9. mínútu hálfleiksins
sem leakurinn fór að snúast þeim
verulega I hag, því að þá varð Gutt-
ormur Olafsson, bezti maður Blik-
anna, að yfirgefa völlinn með 5 vill-
ur og við það riðlaðist leikur þeirra
allmikið og náðu stúdentar þá
nokkru forskoti og unnu öruggan
sigur, 94—71.
Sigur stúdentanna virtist reyndar
aldrei f neanni hættu þrátt fyrir
lélegan leik þeirra en hins vegar
kom frammistaða Blikanna nokkuð
á óvart og var þetta greinilega
þeirra bezti leikur i vetur og fer
þeim fram með hverjum leiknum.
Það var aðallega vörnin sem var
léleg hjá stúdentunum og var eins
og þeir héldu að Blikarnir gætu alls
ekki skorað hjá þeim og þvf þyrfti
ekkert að leika neina vörn gegn
þeim. Beztu menn stúdentanna voru
þeir Bjarni Gunnar Sveinsson, sem
ailtaf er drjúgur við að skora og Jón
Héðinsson, sem er þeirra bezti
varnarmaður.
Eins og áður sagði var þetta bezti
leikur Blikanna í vetur og er greini-
legt að þeim fer fram með vaxandi
sjálfstrausti og leikreynslu. Beztu
menn þeirra voru Guttormur Ölafs-
son, Agúst Lindal og Rafn Thorar-
ensen.
Stigin fyrir stúdenta skoruðu:
Bjarni Gunnar Sveinsson 34, Ingi
Stefánsson 23, Ingvar Jónsson 3,
Jón Héðinsson 11, Guðni Kolbeins-
son 6, Steinn Sveinsson 5 og Jón
Öskarsson 2 stig.
Fyrir Breiðablik skoruðu: Gutt-
ormur Ólafsson 18, Rafn Thoraren-
sen og Agúst Líndal 14 hvor, Ómar
Gunnarsson 10, Þórarinn Gunnars-
son 7, Arni Gunnarsson 4 og Krist-
inn Arnason og Pétur Eýsteinsson 2
stig hvor. HG