Morgunblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976
— Bókmenntir
Framhald af bls. 10
á það, að hann hafni mey-
fæðingarkenningunni, og hvað
fær lfka gefið hrjáðu mannkyni
fyrirheit um þann þroska sem
leiði til friðar og bræðralags á
jörðu ef ekki kenning og
kraftaverk mannsins Jesú
Krists sem opinberaði óafmáan-
lega með lífi sínu guðlegt eðli
mannanna, og gæddi með
dauða sfnum, upprisu helför og
uppstigningu sinn dásamlega
boðskap þvf undursamlega
andans seiðmagni, sem dæmin
sanna allt frá fyrstu dögum
kristninnar til vorra daga — og
frá er runnið eftir margvísleg-
um leiðum velflest það
fegursta, bezta og heillavæn-
legasta f menningar- og mann-
félagsmálum hins vestræna
heims og i samskiptum þeirra
þjóða, sem þessa veröld
byggja?
í upphafi lokakaflans vitnar
séra Jón til þess fyrirheits sem
hið yngsta af guðspjöllunum
kveður Jesú Krist hafa gefið
skömmu áður en hann vaf
pfndur á krossi: „Þegar ég verð
hafinn frá jörðu, mun ég draga
alla til mín.“ Nú er það
NÝ BÓK í ÚRVALI ÍSLENZKRA SAM-
TÍMALJÓÐA.
íslenzk Ijóð 1964-1973
eftir 61 höfund
L -J
RITGERÐAURVAL EFTIR
19 ÞJÓÐKUNNA
MENN
íslenzkar úrvalsgreinar
■m ÁfíSR/m TVÖ:
Almanak
CZZ__m _ MEÐ
=r~JgS ÁRBÓK
ÍSLANDS
m. og
Andvari
Menningarsjóður og Þjóðvinafélagið
AI.MANAK
Belgískir frotte og velúrsloppar
frá Sancolux
fyrir jól í fyrra se/dust þeir upp á 2 dögum
Nú er ad grípa tækifærid
KÓRÖNA “ N. jj 1 IL
BÚÐIRNAR \R^LsiS)Aðalstræti 4 vjð Lækjartorg
ik 1
óhagganleg staðreynd, að með
hverju árinu sem liður verður
hinn kristni hundraðshluti
mannkyns minni. Er það svo
ekki með ólfkindum, að fyrir-
heitið dásamlega muni verða að
veruleika. Svo mætti það
virðast skammsýnum manni.
En séra Jón er svo hugfanginn
af Jesú Kristi og boðskap hans,
sem aftur og aftur f sögu okkar
og annarra þjóða hefur sýnt sig
að vera ómótstæðilegur að hann
fær ekki sætt sig við þá hugsun,
að fyrirheitið eigi ekki eftir að
rætast. Kristnin er ekki ennþá
orðin fullra tvö þúsund ára, en
mennirnir hafa lifað á jörðu
hér að minnsta kosti í tvö
þúsund aldir. Og vfsindin telja
að jarðarhróið muni enn
reynast óralengi byggileg. Séra
Jón leyfir sér svo að treysta því
að sá, sem er öllum öðrum lang-
sýnni f tíma og rúmi, hafi séð
fyrirheit sitt rætast í fjarlægri
framtíð. Hrakspáin um heims-
endi af völdum hinnar ógn-
þrungnu atómorku f höndum
ofstækistrylltra heimsvalda-
sinna muni þvi ekki rætast
frekar en aðrar hinar fjöl-
mörgu slíkar spár, og minnir
þetta mig á það, sem hinn
grandvari guðsmaður, séra Sig-
tryggur Guðlaugsson, sagði við
mig þegar ég lét í ljós f samtali
við hann ugg um, að nasisminn
.kynni að sigra f hinni ægilegu
heimsstyrjöld. Hann mælti:
Verksmidju
útsala
Álafoss
Opiö þriójudaga 14-19
fimmtudaga 14—18
á útsolunm:
Flækjulopi
Hespulopi
Flækjuband
Endaband
Prjónaband
Vefnaðarbútar
Bílateppabútar
Teppabútar
Teppamottur
Á
ALAFOSS HF
MOSFELLSSVEIT
CASIO-LC ÚR
Verð frá kr. 22.755 -
CASIO-LC armbandsúr
býður uppá:
0 Klukkust., min., 10 sek., 5
sek., 1 sek.
0 Fyrir hádegi / eftir hádegi.
0 Mánuður, dagur vikudagur.
0 Sjálfvirk dagatalsleíðrétting
um mánaðamót.
^ Nákvæmni + + 12 sek. á
mánuði.
£ Ljóshnappur til aflestrar i
myrkri. ,
0 Rafhlaða sem endist ca. 15
mán.
ð 15 sek. verk að skipta um
rafhlöðu.
£ Ryðfritt stál.
^ 1 árs ábyrgð og viðgerða-
þjónusta.
STÁLTÆKI Vesturveri-
Sími 27510
„Guð almáttugur leyfir það
ekki.“
Lokaorð séra Jóns eru þessi:
„Ég lofaði þvf er ég lét að
þeirri beiðni að skrifa þessa
bók, að segja frá lffi mfnu og
lffsviðhorfum. Um lff mitt var
auðvelt að skrifa, Þar var ekki
frá svo mörgu að segja. Um
lffsviðhorf mfn gegndi öðru
máli, og sérstaklega vegna þess,
að lokakaflann vildi ég skrifa
um viðhorf mitt til hans, sem ég
sé þó enn eins og barn, aðeins í
„skuggjsá og óljósri mynd“, en
er þó það dýrmætasta sem hug-
ur minn grfpur og von mfn er
bundin við, von mfn um
manninn bæði þessa heims og
annars.“
Höfundur þessarar ritsmiðar
getur ekki stillt sig um að segja
að lokum frá því, að meðan
hann vann að henni, varð
honum stundum svo órótt, að
hann spratt upp frá skrif-
borðinu og gekk hugsandi um
gólf, og velti því fyrir sér —
eins og raunar stundum áður,
— hvernig því muni liða, hinu
„rétttrúaða" fólki, sem er sann-
fært um, að það sjálft sé hólpið
f trú á að Jesús Kristur hafi
með blóði sínu friðþægt fyrir
syndir þess — og að allra
þeirra, sem ekki hafi þessa trú,
bíði eilff útskúfun. Þetta
hólpna fólk verður ef til vill að
búa i næstu íbúð við villu-
ráfandi vftisbörn, vinna með
trúleysingjum eða rangtrú-
uðum, á máski systkini, for-
eldra jafnvel börn, sem ganga á
vegi glötunarinnar. Mikill
meirihluti hins hólpna fólks
hlýtur að þjást í návist, jafnvel
nánustu ættartengslum, við
hina villuráfandi vegna þess
sem þeirra bfður, og einnig af
þeim sökum, að vissulega er
þarna svo alvarleg smithætta,
að hún getur kostað þann
hólpna sína eigin sáluhjálp. Svo
hefur þá ekki meira en svo
harðsvfruðum greinahöfundi
dottið f hug, að það sé tilvalið
verkefni handa næstu presta-
stefnu á hinu fornhelga
biskupssetri, Skálholti, að ræða
þetta augljósa vandamál og
sfðan samþykkja lífsreglur og
viðvörun, sem sé f fyllsta sam-
ræmi við hvort tveggja, boð
Krists um náunganskærleika
og hina yfirþyrmandi smit-
hættu.
Mýrum I Reykholtsdal
7. nóvember 1976
Guðmundur Gfslason Hagalfn
Barnahjálp
Sameinuðu
þjóðanna
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi frá Félagi Sameinuðu þjóð-
anna á Islandi:
Hinn 11. desember var dagur
Barnahjálpar Sameinuðu Þjóð-
anna.
Kvenstúdentafélag Islands hef-
ur f mörg ár beitt sér fyrir fjár-
söfnun handa Barnahjálp Sam-
einuðu Þjóðanna til hjálpar van-
nærðum, sjúkum og hjálparþurfa
börnum f vanþróuðum löndum
vfða um heim. Slík fjáröflun hef-
ur einkum farið fram f sambandi
við jól, áramót og merkisatburði
ýmiss konar.
Hér á landi hafa bóka- og rit-
fangaverslanir — fyrir atbeina
Kvenstúdentafélagsins — selt
kort Barnahjálpar Sameinuðu
Þjóðanna. Með þessum hætti hef-
ur safnast talsvert fé I sjóð til
framangreindrar hjálparstarf-
semi. Þar hefur sannast að „safn-
ast þegar saman kemur“.
En það er í mörg horn að lfta f
þessum efnum í hinum stóra van-
þróaða heimi, og fréttir þaðan
gefa — þvi miður — til kynna, að
mikil þörf sé þar fyrir hendi fyrir
enn aukna aðstoð við Barnahjálp
Sameinuðu Þjóðanna. Höfum
þetta f huga.
A vegum Kvenstúdentafélags
tslands eru veittar nánari upplýs-
ingar um Barnahjálp Sameinuðu
Þjóðanna. I síma 34260 (f Rvík)
eru einnig afgreiddar pantanir á
kortum Barnahjálparinnar, svo
og önnur gögn, sem þar er hægt
að fá.