Morgunblaðið - 14.12.1976, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976
Frakkar ógna Skot-
um á Hjaltlandsmiðum
Edinborg, 13. des. —AP
BREZKA eftirlitsskipið
Westra var í dag sent á
miðin úti af Hjaltlandi
eftir að skozkir sjómenn
skýrðu frá því að franskir
starfsbræður þeirra hefðu
ógnað þeim með rifflum.
Westra var send á vett-
vang fyrir tilmæli skozku
sjómannanna, en tals-
maður þeirra, Peter
Duncan skipstjóri, skýrði
frá því að 20 stórir togarar
frá Boulogne í Norður-
Frakklandi hefðu verið
mjög aðgangsharðir gagn-
vart skozku veiðiskipunum
Lyf gegn
hundaædi
Chicago, 13. des. — Reuter
LÆKNAR við Wister-
stofnunina í Chicago hafa
náð mjög góðum árangri í
lækningu hundaæðis-
sjúklinga, og segja sér-
fræðngar að þetta sé mesti
áfangi, sem náðst hefur í
baráttunni gegn hundaæði
í tæpa öld.
Nýja bólusetningarefnið, sem
læknarnir hafa reynt farsællega
erlendis, er mun betra og
auðveldara en það eldra. Fyrra
ónæmisefni var sprautað I kviðar-
holið, og þurfti þá 14—20
sprautur í hvern sjúkling, auk
þess sem það var sársaukafullt.
Með nýja efninu nægir að gefa
sjúklingnum sex sinnum sprautu
í handlegg, og nýja efninu fylgja
svo til engar þær hliðarverkanir,
sem tengdar voru því eldra.
Dr. Hilary Koprowski, læknir
við Wister-stofnunina, segir að
hér sé um algjöra byltingu að
ræða á þessu sviði, og stór-
felldasti áfangi, sem náðst hefur
frá þvi franski læknirinn Louis
Pasteur reyndi fyrstu bólu-
setningarnar gegn hundaæði árið
1884. Nýja efnið var framleitt í
Frakklandi, en tilraunirnar voru
gerðar í Iran undir eftirliti
Alþjóða heilbrigðisstofnunar-
innar. Fjörutíu og fimm mönnum,
sem óðir hundar eða úlfar höfðu
bitið, var gefið nýja efnið, og
héldu þeir allir lífi.
úti af Hjaltlandi, sem er
um 100 mílum fyrir norð-
austan Skotland.
Duncan sagði að Frakkarnir
hefðu virt að vettugi allar merkja-
sendingar frá skozku bátunum og
aðvaranir um að frönsku
togararnir væru of nálægt þeim
skozku. Þegar svo Skotarnir
ætluðu að nálgast Frakkana til að
ræða málið, gripu frönsku
sjómennirnir til rifflanna og
beindu þeim að Skotunum, að
sögn Duncans.
Duncan skipstjóri sagði að
Frakkarnir eltu skozku bátana í
þeirri trú að þeir vissu bezt hvar
væri veiðivon. Frakkarnir eru tfð-
ir gestir á Hjaltlandsmiðunum, og
þetta er ekki í fyrsta skipti, sem
fréttir berast af árekstrum á
miðunum, en ásökunin um vopna-
beitinguna er sú alvarlegasta til
þessa.
David Duke (Ijósklæddur til hægri) sætir aðkasti i Camp Pend-
leston 1 Kalifornlu. Einn llfvarða Dukes hefur gripið spjald sem
Duke var barinn með.
Norðmenn herða
gæzlu vegna út-
færslu um áramót
Nýr fundur
Rússa og
Norðmanna
Osl4, 13. desember. NTB.
FJÓRÐA umferð viðræðna Norð-
manna og Rússa um skiptingu
Barentshafs hófst i dag.
Sem fyrr vilja Norðmenn
miðlfnuskiptingu en Rússar
svæðaskiptingu sem hefði það f
för með sér að Norðmenn
afsöiuðu sér 155.000 ferkílómetra-
svæði.
Kaupmannahöfn, 10 des Ntb
SAMKVÆMT fréttum frá Kaup-
mannahöfn hafa Danir veitt þvi eftir-
tekt upp á siðkastið að hert hefur
verið á eftirliti varðskipa við tólf
milna mörk Noregs, vegna fyrirhug-
aðrar útfærslu um áramótin. Segir
svo i bréfi danskra sjómanna til fiski-
málaráðuneytisins I Kaupmanna-
höfn.
Danskir sjómenn sem stunda kol-
munnaveiðar segjast ekki þora að
verða áfram á fyrri miðum eftir áramót-
in, þar eð þeir óttast að afli og veiðar-
færi kynnu að verða gerð upptæk og
þvi leggja þeir til að viðræður verði
hafnar snarlega við Norðmenn, milli-
liðalaust, um þessi efni
Oruggast að fæða barnið heima
að sögn tveggja bandarískra lækna
Mbl. leitar álits dr. Gunnlaugs Snædals
AP-New Vork.
Tveir bandarfskir fæðinga-
læknar, dr. Mendelsohn og dr.
Mehl, lýstu þvf nýlega yfir á
læknaráðstefnu, að öruggara
væri að fæða börn 1 heimahús-
um en á sjúkrahúsum. Dr.
Mendelsohn sagði, að læknar
ættu til að raska uni of gangi
náttúrunnar, að þeir stóli um of
á lyf, svæfingar og framköllun
barnsburðarins. Einnig, að
læknar Ifti á meðgöngutfmann
sem 9 mánaða sjúkleikatlma-
bil.
„Hættan á slysum og smitun
er meiri á sjúkrahúsum“, sagði
dr. Mendelsohn enn fremur. Þá
mæla læknar, að sögn dr.
Mendelsohns, gegn brjósta-
mjólk og lita þar með fram hjá
sálfræðilegum þörfum bæði
barns og móður.
Dr. Mehl, sem
starfar við háskólann í
Wisconsin, kvaðst hafa rann-
sakað 2000 mæður, og hafði um
helmingur þeirra alið börn sfn
heima hjá sér. Dr. Mehl, segir
30 þeirra barna, sem fæddust á
sjúkrahúsum hafa skaddazt við
fæðinguna, en ekkert þeirra,
sem fæddist heima. 52 sjúkra-
hússbarnanna þörfnuðust upp-
lífgunar en aðeins 14 heima-
barna.
Mbl. bar þessa frétt undir
Gunnlaug Snædal, kvensjúk-
dómafræðing og spurði hann,
hvort hann áliti þessar yfirlýs-
ingar bandarísku læknanna á
rökum byggðar. Gunnlaugur
sagðist ekkert hafa á móti fæð-
ingum í heimahúsum og væri
engin ástæða til að ætla að þær
gætu ekki gengið rétt eins vel,
ef um eðlilega fæðingu væri að
ræða. „Hitt er svo aftur annað
mál,“ sagði Gunnlaugur, „ að
það er aldrei hægt að segja
fyrirfram hvort fæðing verður
eðlileg eða ekki, slíkt kemur oft
alls ekki í ljós fyrr en barnið er
að koma í heiminn.“ Því væri
það öruggara að ala börn sín á
sjúkrahúsum og öðrum
fæðingarstofnunum. Þetta ætti
einnig við hvað snerti um-
önnun barns og móður eftir
fæðinguna. Þá spurði Mbl.
Gunnlaug um álit hans á
móðurmjólkinni og kom fram í
samtalinu þar að lútandi, að
móðurmjólkin er afar mikilvæg
fyrir barnið, ekki aðeins frá
sálfræðilegu sjónarmiði heldur
einnig fyrir heilsu þess. Gunn-
laugur sagði lækna hérlendis
því ætíð mæla með því að barn
væri haft á brjósta, þó ekki væri
nema í örfáar vikur.
Aftur á móti hafa svör talsmanna
fiskimálaráðuneytisins verið þau að
þetta mál verði varla leyst með viðræð-
um við Norðmenn beint. þar sem
Norðmenn standi í samningum við
Efnahagsbandalagslöndin i heild.
í allmörg ár hafa danskir sjómenn
stundað kolmunnaveiðar á miðum sem
eru einkum á svæðum um það bil 20
milur úti fyrir Noregsströndum, en eftir
að eftirlitsskipum hefur verið fjölgað
mjög við tólf mílurnar munu Danir
stefna að þvi að snúa heim á leið fyrir
desemberlok
Víetnamar
neita innrás-
aráformum
Singaporeð. des. NTB.
VtETNAM neitaði 1 dag fréttum
um að þar væri 1 bfgerð innrás 1
Thailand eftir tvo mánuði. Opin-
bera fréttastofa landsins sagði að
þetta væri fleipur eitt og sett
fram sem tilefni til að veita
Bandarfkjamönnum leyfi til að
opna á ný herstöðvar sfnar f
Thailandi.
Fréttaritari Reuters f Bangkok
sagða í dag, að engin ókyrrðar-
merki sæjust í höfuðborginni.
Samak innanríkisráðherra hafði
sagt í opinberri heimsókn í
Singapore að innrásin myndi
verða gerð frá norðurhlutum
Burma skammt frá
landamærahéruðum Laos.
Utvarpið í Hanoi fjallaði í dag
um það í löngu máli að það væri
utanríkisstefna Víetnams að virða
sjálfstæði annarra þjóða.
— Blumenthal
Framhald af bls. 1.
Jafnframt er haft eftir
heimildunum að Jane Cahill
Pfeiffer, varaforstjóri IBM,
komi helzt til greina í stöðu
viðskiptaráðherra.
Carter ræddi í dag við
Robert Bergland, þingmann
frá Minnesota, sem er talinn
koma til greina sem land-
búnaðarráðherra og Frank
Johnson, dómara, sem berst
fyrir lögum og reglu, studdi
réttindabaráttu blökkumanna
í Alabama á árunum fyrir 1960
og er talinn koma til greina
sem dómsmálaráðherra.
— Stjórn Soares
Framhald af bls. 1.
gagnrýnt stjórnina fyrir dugleysi
og vinstriflokkar hafa gagnrýnt
hana fyrir óvinsælar sparnaðar-
ráðstafanir.
Kosningaþátttaka var tæplega
64% miðað við 75% í forseta-
kosningunum 1 júní og 92% I
þingkosningunum í apríl. Leið-
togi PSD, Francisco Sa Carneiro,
kvað ástæðuna pólitískan leiða.
Dr. Soares hafði vonað að
sósíalistar fengju 35% eins og í
kosningunum 1 apríl, en hann
sagði í dag að úrslitin sýndu að
minnihlutastjórn hans ætti að
vera áfram við völd.
Kommúnistar hafa greinilega
bætt við sig fylgi miðað við for-
setakosningarnar þegar þeir
fengu aðeins 7% og þing-
kosningarnar þegar þeir fengu
14%. Kommúnistar juku aðallega
fylgi sitt i Alentejo þar sem sósíal-
istar hafa verið gagnrýndir fyrir
að skila jörðum sem höfðu verið
teknar eignarnámi.
Þeir högnuðust einnig á því að
Otelo de Carvalho major tók ekki
þátt í kosningunum þar sem
honum hefur verið bannað að
skipta sér af stjórnmálum. Hann
hlaut 16% í forsetakosningunum
og varð annar.
Nú eru kommúnistar þriðji
stærsti flokkurinn og aftur
komnir fram úr miðdemókrötum
sem náðu þriðja sæti í apríl-
kosningunum. Soares viður-
kenndi í dag að kommúnistar
hefðu talsvert bætt stöðu sína og
sagði að þeir hefðu unnið fylgi á
kostnað róttækra vinstri manna
sem væru nánast orðnir fylgis-
lausir.
— Sameinast
Framhald af bls. 1.
ákvörðunina harðlega. Undanfar-
inn hálfan mánuð hefur Strauss
átt þrjá fundi með forustumönn-
um CDU til að reyna að leysa
málið og á fimmtudag í fyrri viku
lagði hann fram drög að sam-
komulagi um áframhaldandi sam-
starf flokkanna. Segir Strauss að í
drögum þessum hafi verið ákvæði
um að CDU tæki engar meiri-
háttar ákvarðanir án samráðs við
CSU, og tæki meira tillit til
heildarstefnu CSU.
Þetta samkomulag CDU og CSU
leiðir óhjákvæmilega til harðari
stjórnarandstöðu þegar þingið
hefur kjörið næsta kanslara og
umræður hefjast um stefnu ríkis-
stjórnarinnar næsta kjörtíma-
bilað.
Vinsældir Helmuts Schmidts
kanslara hafa heldur farið dvín-
andi undanfarna daga vegna
ágreinings um ellilaunamálin. A
miðvikudag í fyrri viku var sagt
að samsteypustjórn jafnaðar-
manna, SPD, og frjálsra
demókrata, FDP, hefði ákveðið að
fresta greiðslu 10% uppbótar á
ellilaun, sem koma átti til fram-
kvæmdar i júll næsta sumar, um
hálft ár. Þar sem ellilaunaþegar
eru 11.3 milljónir vakti þessi
fregn mikil mótmæli frá
almenningi, fjölmiðlum og þing-
mönnum — einnig frá þing-
mönnum SPD-flokks Schmidts
kanslara. Við þessi viðbrögð
ákvað ríkisstjórnin að hætta við
frestunina og koma þvi
uppbæturnar til greiðslu I jú]j
eins og ákveðið hafði verið.
Annar atburður gerðist á
laugardag, sem haft getur áhrif á
stjórnarsamstarfið I Bonn. Þá
ákvað stjórn flokks frjálsra demó-
krata I Neðra-Saxlandi að taka
upp samvinnu við kristilega
demókrata, og gæti sú ákvörðuri
leitt til frekari breytinga á flokka-
dráttum I Vestur-Þýzkalandi I ná-
inni framtíð. Hans-Dietrich
Genscher, formaður flokks
frjálsra demókrata, FDP, hefur
að vísu lýst því yfir að flokkurinn
muni sitja áfram i samsteypu-
stjórninnr með jafnaðarmönnum
næstu fjögur árin, en hann hefur
engin fyrirheit gefið um það hvað
við tekur i kosningunum 1980.
Þetta er i fyrsta skipti I sjö ár,
sem frjálsir demókratar hafa
tekið upp svæðisbundna sam-
vinnu við CDU, enda eru flokk-
arnir á öndverðum meiði varð-
andi ríkisstjórnina. Kristilegir
demókratar hafa hins vegar lagt
áherzlu á að ná samvinnu við
frjálsa demókrata í mörgum ríkj-
um Vestur-Þýzkalands, og þá með
það efst í huga að undirbúa ein-
hverja samstöðu í kosningunum
1980.