Morgunblaðið - 14.12.1976, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976
47
— Mál Guðbjarts
Framhald af bls. 48
dómur liggi fyrir en þar sem mál þetta
hefur tekiðall sérstæða stefnu þykir
Morgunblaðinu ekki fært að halda
þeirri venju að þessu sinni. Maðurinn
sem hér um ræðir er Guðbjartur Páls-
son, bifreiðastjóri Haukur Guðmunds-
son, rannsóknarlögreglumaður í Kefla-
vík, og Kristján Pétursson, deildarstjóri
í tollgæzlunni á Keflavíkurflugvelli,
hafa um skeið kannað feril Guðbjarts
og meint fjársvikabrot hans, og enda
þótt Guðbjartur væri handtekinn á
þeirri forsendu að vera með smyglað
áfengi í fórum sínum, munu yfir-
heyrslur einnig hafa snúizt um þau
atriði Ákvörðun bæjarfógeta í Keflavík
um að rannsókn á máli Guðbjarts
skyldi hætt þar við embættið í gær
kom þeim báðum á óvart, og í viðtali
við Morgunblaðið, sem birtist hér á
eftir, segir Kristján Pétursson. að mál
Guðbjarts sé í raun umfangsmesta
fjársvikamál sem upp hafi komið hér á
landi, jafnframt því sem hann telur ekki
einleikið, að jafnan þegar þeir Haukur
fáist við umfangsmikil sakamál, séu
þau tekin af þeim og fengin öðrum
aðilum.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Jón Eysteinsson, bæjarfógeti i
Keflavík, að hann hefði tekið þá
ákvörðun í gærmorgun að málið skyldi
sent sakadómi Reykjavikur til með-
ferðar á þeirri forsendu að Guðbjartur
ætti löghemili i Reykjavík og eins
vegna þess að kæra á hann lægi fyrir
hjá sakadómi Reykjavíkur, þannig að
eðlilegt væri að þessi mál yrðu samein-
uð Viðar Olsen, rannsóknardómarinn i
máli þessu syðra, kvaðst ekkert vilja
um málið segja þar eð hann hefði ekki
lengur með það að gera. Morgun-
blaðinu er hins vegar kunnugt um, að
kæra sú á Guðbjart hjá sakadómi
Reykjavíkur var fyrir sex mánuðum
send embættinu í Keflavík þar eð yfir-
heyra þurfti þar aðila í sambandi við
kæruna. Mun þetta atriði hafa fléttazt
inn í rannsókn þá sem farið hefur fram
i Keflavík undanfarið á máli Guðbjarts.
Að ákvörðun bæjarfógeta voru tveir
lögreglumenn úr Keflavík sendir með
Guðbjart til Reykjavíkur, þar sem þeir
áttu að afhenda hann sakadómi
Reykjavíkur ásamt ýmsum gögnum
varðandi rannsókn málsins. Þar á
meðal var peningakassi Guðbjarts en
ekki hafði hins vegar fundizt lykill að
skápnum, svo að Haukur Guðmunds-
son, rannsóknarlögreglumaður, var
kominn miðja vegu til Keflavikur frá
Reykjavík með lásasmið þegar hann
mætti lögreglumönnunum tveimur
með Guðbjart og peningaskápinn, sem
átti að fara að opna
Þegar í sakadóm Reykjavíkur kom
var lögreglunönnunum tilkynnt, að
embættið sæi ekki ástæðu til að taka
við þessu máli Staðfesti Halldór Þor-
björnsson, yfirsakadómari, þetta i
viðtali við Morgunblaðið og kvaðst
hann hafa sent bréf bæjarfógeta í
Keflavík áfram til ríkissaksóknara til
umsagnar og ákvörðunar. Þessu næst
fluttu lögreglumennirnir úr Keflavik
Guðbjart í fangelsið í Síðumúla til að fá
hann vistaðan þar, en þar sem skjöl
hans reyndust ekki fullnægjandi treysti
fangelsisstjórinn sér ekki til að taka við
Guðbjarti. Varð því að flytja Guðbjart
aftur til Keflavíkur síðdegis í gær, og
þar mun hafa verið gengið frá öllum
formsatriðum, þar sem í gærkvöldi
voru lögreglumennirnir aftur á leið til
Reykjavíkur með Guðbjart Pálsson og
ferðinni heitið í Síðumúla. Um það
leyti sem komið var með Guðbjart til
Reykjavíkur I fyrra skiptið krafðist
réttargæzlumaður Guðbjarts að hann
yrði látinn laus, þar sem fyrir lá af hálfu
bæjarfógetaembættisins í Keflavik að
málinu gegn Guðbjarti væri lokið af
þess hálfu og yfirlýsing af hálfu saka-
dóms Reykjavíkur um að þar væri ekki
talin ástæða til að taka við málinu. Ekki
varð þó af því, að Guðbjartur væri
látinn laus, þar sem embættið í Kefla-
vik mun hafa endurskoðað afstöðu sina
og ákveðið að taka ábyrgð á Guðbjarti
enn um sinn
Morgunblaðið hafði í gær tal af
Kristjáni Péturssyni. deildarstjóra toll-
gæzlunnar : Keflavíkurflugvelli, og
spurði hann álits á þessari þróun
málsins Fer samtalið orðrétt hér á eftir
og skal tekið fram að Kristján ber að
sjálfsögðu sjálfur ábyrgð á ummælum
sinum:
„Maður getur ekki lengur orða bund
izt, sagði Kristján, „Það má segja að
um leið og farið er að gera athuganir á
málum, sem eru umfangsmikil og til-
teknar stéttir manna í þjóðfélaginu
virðast fléttast inn í, þá er bara eins og
himinn og jörð séu að farast. Við erum
búnir undanfarna mánuði að gera at-
huganir á mjög breiðum grundvelli er
óhætt að segja á athöfnum fjölmargra
aðila vegna meints fjármálamisferlis,
sem getur náð allt að 20 ár aftur í
tímann.”
Kristján var spurður hvort einhverjir
áhrifamenn hefðu tengzt rannsókn
þeirra. „Þvi er ekki að neita að þetta
mál varðar tilteknar stéttir," svaraði
Kristján, „tiltekna áhrifaaðila og þetta
eru bæði ýmsir athafnamenn í við-
skiptalifinu, þetta eru lögmenn og
þetta eru bankamenn til dæmis, svo að
eitthvað sé nefnt. En mér finnst það
meginatriði málsins, að það var svo i
tíð Valdimars heitins, fýrirrennara nú-
verandi ríkissaksóknara, og var meira
að segja lengst af hjá núverandi sak-
sóknara og ég veit ótal dæmi þess, að
þegar eitthvert embætti eða rann-
sóknaraðilar höfðu hafizt handa um
rannsókn mála, þá var málinu lokið í
þeirra embætti og beinlínis beðið um
það Það er hins vegar svo með ákveð-
in mál, sem við Haukur höfum verið
viðriðnir undanfarið. að það virðist
aðalkeppikeflið að koma málum,
þ.e.a.s. þegar um er að ræða mjög
umfangsmikil mál, úr okkar höndum.
Þá verður manni á að spyrja eða
hugsa Af hverju er betra að þetta sér í
höndum t.d. sakadóms. Síðan ætla ég
engan dóm að leggja á það '
Kristjáni var bent á, að bæjarfógeti í
Keflavík kvæðist eiga frumkvæðið að
því að hætta rannsókn málsins þar hjá
embættinu „Ég veit ekkert um það að
hvers fumkvæði þetta er, ég tek það
fram,” svaraði Kristján, „en það er að
mínu mati jafn óskynsamlegt hvort
sem það er að hans frumkvæði eða
einhvers annars að taka mál úr hönd-
um aðila, sem búnir eru að eyða mörg-
um mánuðum í að gera athuganir og
kannanir á þessu og ég leyfi mér að
efast um að sakadómur sé neitt hrifinn
af því að fá þetta mál fremur en
Gámamálið á sinum tima Ég veit ekki
hvers vegna er ve.rið að þrengja þessu
upp á stofnun sem segist vera svo
yfirhlaðin störfum, að þeir sjái ekki út
*úr því Hitt er annað mál, að það er
min skoðun að strax og mál þetta kom
hefði átt að hefjast handa og setja
setudómara í þetta mál og þá hefði
verið eðlilegt að fá fullrúa hjá bæjar-
fógetanum i Keflavik Og við hefðum
haldið áfram með rannsókn þessara
mála og fengið þá aðstoð að sjálfsögðu
sem nauðsynleg var. Aðalatriðið er, að
ég leyfi mér að fullyrða að hér sé um
að ræða umfangsmesta fjársvikamál
sem um getur i íslenzkri dómsmála-
sögu. Það er mitt mat á þessu máli og
stærðargráða þess er mun stærri en
nokkurra annara mála, sem mér er
kunnugt um."
Kristján var spurður hvort þeir Hauk-
ur Guðmundsson hefðu viðað að sér
miklum gögnum um mál þetta. „Vita-
skuld höfum við safnað miklu af göng-
um og þessi mál eru dæmigerð fyrir
það að ná trúnaðarsambandi við fólk
einmitt í þessum málaflokki, sem eru
bæði upplýsingar og gögn, sem við
höfum að sjálfsögðu aflað okkur."
Kristján var þá spuriSur álits á þeirri
gagnrýni sem fram hefði komið á það
hvernig staðið var að handtöku Guð-
bjarts Pálssonar og ökumanns hans
„Það er bæjarfógetaembættið í
Keflavík sem tekur ákvörðun um hana
og ég á náttúrulega engan þátt í þess-
ari handtöku á einn eða annan hátt og
tek það skýrt fram. Hins vegar var það
ætlun okkar Hauks, sem rannsakað
höfðum þetta mál að fara að ræða við
þennan mann innan skamms tlma Þeir
tóku þannig ákvörðunina um handtök-
una og síðan var formlega beðið um
aðstoð mína I þessu máli, þegar búið
var að opna það af bæjarfógetanum í
Keflavík, sem ég hef og veitt," sagði
Kristján að lokum.
— Saksóknari
Framhald af bls. 48
19. júlf 1955 í Reykjavík; Asgeir
Ebenezer Þórðarson, Sigtúni 35,
Reykjavik, fæddur 15. ágúst 1950
í Reykjavík, og Guðjón
Skarphéðinsson, Rauðarárstíg 32,
Reykjavík, nú gæzlufangi í
Reykjavík, fæddur 19. júli 1943 i
Vatnsdal A-Húnavatnssýslu.
I fréttatilkynningu rikis-
saksóknara segir svo:
Eru sakarefni ákæruskjals
rakin i átta meginþáttum. Fjallar
fyrsti þátturinn um manndráp,
þar sem ákærðu Kristjáni Viðari,
Sævari Marínó og Tryggva Rún-
ari er gefið að sök að hafa aðfarar-
nótt sunnudagsins 27. janúar 1974
í félagi ráðist á Guðmund Einars-
son, Hraunprýði, Blesugróf,
fæddan 6. október 1955, i kjallara-
Ibúð að Hamarsbraut 11. Hafnar-
firði, þáverandi heimili ákærða
Sævars Marinós, og misþyrmt
honum svo, þar á meðal með hníf-
stungum, er ákærði Kristján
Viðar veitti honum, að hann hlaut
bana af, og komið liki síðan fyrir
á ókunnum stað.
Ákærða Albert Kalhn er gefið
að sök eftirfarandi hlutdeild í
fyrrgreindum verknaði með því
að veita meðákærðu Sævar
Marinó, Kristjáni Viðari og
Tryggva Rúnari liðsinni við að
fjarlægja og koma líki
Guðmundar fyrir á ókunnum stað
og þannig leitast við að afmá um-
merki brotsins, bæði þegar fyrr-
greinda nótt og síðar siðla sumars
s.á., er líkamsleifar Guðmundar
voru fluttar á enn annan stað.
Fóru flutningar þessir fram í bif-
reiðum er ákærði Albert Kalhn
hafði til umráða og ók.
Ákæruefni annarra þátta
ákæruskjals taka til brennu,
nauðgunar og þjófnaðarbrota
Tryggva Rúnars, skjalafals,
þjófnaðar og fjársvika Sævars
Marínós og Erlu, þjófnaðarbrota
Kristjáns Viðars svo og til brota
þeirra Sævars Marinós, Ásgeirs
Ebenezers, Alberts Klahn og Guð-
jóns á löggjöf um ávana- og fíkni-
efni.
Máli þessu hefir verið visað til
dómsmeðferðar við sakadóm
Reykjavíkur.
— Viðræður
Framhald af bls. 48
bandalagsins, en þar sem um
er að ræða embættismannavið-
ræður, var jafnvel búizt við þvi
að Finn Olav Gundelach tæki
ekki þátt í þessum hluta við-
ræðnanna og að Irinn Emon
Gallagher yrði þá í forsæti, en
hann var hér með Gundelach í
þau tvö skipti sem könnunar-
viðræður fóru fram i
Reykjavík.
— Færeysku
Framhald af bls. 48
200 milna fiskveiðilögsögu Is-
lands var gert, var miðað við þann
afla, sem Færeyingar veiddu á
Islandsmiðum, milli 12 og 200
mílna, árið 1974. Það ár veiddu
þeir alls 19.500 lestir, þar af voru
saltfisktogararnir með 3000 lestir,
og 7.800 lestir voru Isaðar.
Þann 27. nóvember s.l. höfðu
færeysk fiskiskip fengið 15.217
tonn af fiski á Islandsmiðum frá
þvi í marz, þar af voru 7.400 tonn
þorskur. Þann dag voru 11 skip á
veiðum við Island og var talið að
þau myndu fylla í 17.000 tonna
kvótann,’og þá fór sjávarútvegs-
ráðuneytið þess á leit við Færey-
inga að þeir yfirgæfu Islandsmið
á miðnætti laugardagsins 11. des-
ember.
— Þórhallur
Framhald af bls. 2
myndir, en 11 þeirra eru til sölu.
Allar eru myndirnar vatnslita-
myndir og af landslagi, og auk
mötiva úr nágrenni Sandskeiðs
má kenna myndir frá Þingvöll-
um, Herðubreið, Austfjörðum,
o.fl. Allar eru myndirnar
verðlagðar á bilinu 7—17 þúsund
krónur.
Þórhallur sagði okkur, að hann
hefði stundað myndlistarnám I
Handíða- og myndlistarskólanum
1950—1951. Sagðist hann lítið
hafa máláð fyrr en i ár.
— Staksteinar
Framhald af bls. 7
um. Það er eins gott að
Alþýðuflokksmenn geri
sér það Ijóst strax að þeir
verða að velja og hafna.
Framundan eru geysilega
hörð átök í einstöku
verkalýðsfélögum vegna
þess að öfgamennirnir,
sem eru komnir vel á veg
með að yfirtaka Alþýðu-
bandalagið hyggjast halda
áfram útilokunarstefnu
sinni. Fyrst munu þeir
reyna að útiloka sjálf-
stæðismenn og fram-
sóknarmenn frá áhrifum I
verkalýðssamtökunum en
brosa blíðlega til Alþýðu
flokksins á meðan. Takist
þeim að ryðja stuðnings
mönnum fyrstnefndu
tveggja flokkanna úr
valdastöðum í verkalýðs-
félögum verður næsta
skrefið að ganga frá
Alþýðuflokknum í verka
lýðshreyfingunni. Þess
vegna hljóta lýðræðis-
sinnar » verkalýðshreyf-
ingunni nú að herða sam-
stöðu sína og undirbúa sig
undir mestu átök í verka
lýðssamtökunum í einn
og hálfan áratug. Alþýðu-
flokksmenn geta ekki
borið kápuna á báðum
öxium. Þeir verða að taka
afstöðu. Það er beðið eftir
•ivari.