Morgunblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 48
Demantur m æðstnr eðalsteina - <§till Sc ásxlfur Laugavegi 35 ÞRIÐJUDAGUR 14. DEÍlEMBER 1976 Mál Guðbjarts Pálssonar: Bæjarfógeti vísar málinu til sakadóms en sakadómur hafnar Frá athöfninni á Austurvelli s.l. sunnudag er kveikt var á norska jólatrénu, en tvær litlar dætur borgarstjóra, tvíburar, tendruðu Ijósin. Þessa mynd tók Ól. K. M. af foreldrum með barn sitt að horfa á jólasveinana sem skemmtu á húsþökum eftir að kveikt hafði verið á jólatrénu. I.jósin frá trénu tindra til vinstri á myndinni, en eftirtektin í andliti barnsins leynir sér ekki. Beðið úrskurðar saksóknara — Guðbjartur í ferðum milli Reykjavíkur og Keflavíkur RANNSÓKN í málum bifreiða- stjóra þess, sem setið hefur f gæzluvarðhaldsfangelsi í Kefla- vík undanfarið, tók nýja og allóvænta stefnu í gærdag. Bæjar- fógetinn f Keflavfk ákvað þá að rannsókn í máli mannsins skyldi hætt af hálfu embættis hans og það sent sakadómi Reykjavfkur til meðferðar. Sakadómur Reykjavíkur neitaði hins vegar að taka við málinu og sendi það áfram til rfkissaksóknara til ákvörðunar. Reynt var í fram- haldi þessa að fá fangann hýstan í fangelsinu í Síðumúla en það reyndist ekki unnt þar eð skjöl varðandi vistun hans reyndust ekki fullnægjandi. Varð því að flytja fangann aftur til Kefla- vfkur sfðdegis f gær en í gær- kvöldi þegar Morgunblaðið hafði sfðast fréttir var fanginn aftur á leið til Reykjavíkur, þar sem koma átti honum fyrir í Sfðu- múla, enda mun þá hafa verið gengið frá öllum formsatriðum af hálfu bæjarfógetaembættisins. Kemur nú væntanlega í hlut ríkissaksóknara að ákveða hvar mál bifreiðastjórans verður rannsakað, en eins og fram hefur komið kærði réttargæzlumaður bifreiðastjórans gæzluvarðhalds- úrskurðinn til Hæstaréttar og er þess að vænta að rétturinn felli úrskurð i máli þessu næstu daga. Jafnframt mun í dag ákveðið af hálfu dómsmálaráðuneytis hvort skipaður verði sérstakur setu- dómari til að rannsaka tildrög handtöku manns þess, sem ók bif- reiðastjóranum til Suðurnesja þá er þeir voru báðir handteknir, en hann hefur krafizt slíkrar rann- sóknár. Það er venja Morgunblaðsins að birta ekki að jafnaði nöfn i tilvik- um sem þessum nema játning eða Framhald á bls. 47 , ....... - Færeysku skipin búin með kvótann og farin af miðunum FÆREYSKIR togarar og linuskip yfirgáfu Islandsmið s.l. laugar- dag, en þá voru þau búin að fiska upp i þann kvóta, sem um var samið í marzmánuði s.l. en kvót- Saksóknari ákærir sjö manns: Ákæruatriði ná til manndráps, nauðgunar, þjófnaða, skjalafals, fjársvika og fíkniefnabrota RlKISSAKSÓKNARI höfðaði með ákæru sl. miðvikudag opin- bert mál á hendur sjö ungmenn- um, sem komið hafa við sögu I hinum meiriháttar sakamálum, sem hér hafa verið til rannsóknar Fyrsta vinna í frystihúsinu eftir árshlé Bíldudal 13. des. HAFRfJN hinn margumræddi bátur, er nú búin að fara í einn róður á línu og aflaði hann um 6 tonn. Er hann nú í öðrum róðri sinum, en þetta hefur skipt þeim sköpum að í dag var í fyrsta sinn í liðlega eitt ár unnið í frystihúsinu hér á staðnum, en siðast var unnið þar í september s.l. ár. píii sfðustu misseri, og sitja fimm þeirra enn I gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar Geirfinnsmáls- ins. Sakarefni eru ( átta meginþáttum og taka til manndráps, hlutdeildar ( þeim verknaði, brennu, nauðgunar, þjófnaðarbrota, skjalafals, fjár- svika og brota á ávana- og fíkniefnalöggjöf. Fólkið, sem hér um ræðir, er samkvæmt fréttatilkynningu ríkissaksóknara Kristján Viðar Viðarsson, Grettisgötu 83, Reykjavik, nú gæzlufangi í Reykjavík, fæddur 21. apríl 1955 I Reykjavík; Sævar Marinó Ciesielski, Þverbrekku 4, Kópa- vogi, nú gæzlufangi í Reykjavík, fæddur 6. júlí 1955 að Stóra-Hofi i Gnúpverjahreppi, Árnessýslu; Tryggvi' Rúnar Leifsson, Selás- bletti 14, Reykjavík, nú gæzlu- fangi í Reykjavik, fæddur 2. október 1951 i Reykjavík; Albert Klahn Skaftason, Laugavegi 46A, Reykjavik, fæddur 16. febrúar 1955 i Reykjavík; Erla Bolla- dóttir, Þverbrekku 4, Kópavogi, nú gæzlufangi i Reykjavik, fædd Framhald á bls. 47 Viðræður í Briissel á fimmtudag TÓMAS Tómasson, sendiherra tslands ( Brússel mun verða ( forsæti fyrir viðræðunefnd tslendinga ( samninga- viðræðunum um gagnkvæm fiskveiðiréttindi, sem hef jast ( Brússel á fimmtudag. Tómas, sem nú er staddur hér heima til þess að undirbúa viðræðurnar, fer utan á morgun. Ekki var í gær gefið upp hverjir yrðu með Tómasi í við- ræðunefndinni, en búast má við þvi að i nefndinni sitji bæði fulltrúar sjávarútvegs- ráðuneytisins og Hafrann- sóknastofnunarinnar, auk ef til vill fleiri fulltrúa frá utan- ríkisráðuneytinu. I gær var ekki ljóst, hver yrði í forsæti fyrir viðræðunefnd Efnahags- Framhald á bls. 47 inn átti að gilda þar til i marz á næsta ári. Samkvæmt þeim upp- lýsingum, sem Morgunblaðið fékk hjá Pétri Sigurðssyni, forstjóra Landhelgisgæzlunnar, I gær, þá voru 11 færeysk fiskiskip á mið- unum við Island s.l. föstudag, 6 skuttogarar og 5 línuskip. Sam- komulag Færeyinga og Islend- inga frá því i marzmánuði sl. gerði ráð fyrir að Færeyingar mættu veiða 17 þúsund tonn af fiski við Island næstu 12 mánuð- ina, þar af 8000 tonn af þorski. Þótt nýtt samkomulag yrði gert við Færeyinga á næstunni, gætu þeir aldrei hafið veiðar á Islands- miðum fyrr en eftir fjóra mánuði, þar sem samkomuiagið rennur ekki úr gildi fyrr en i marz. Sam- kvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, þá eru ekki neinar viðræður við Færeyinga fyrirhugaðar á næstunni. Þegar samkomulag Færeyinga og Islendinga um veiðar innan Framhald á bls. 47 Leita að líki Geir- finns við Kolviðarhól LÖGREGLUMENN hafa undan- farna daga leitað að Ifki Geirfinns Einarssonar ( grennd við Kolviðarhól, en eftir þvf sem Morgunblaðið kemst næst hefur hún ekki borið árangur enn sem komið er. Af hálfu rannsóknar- aðila er varizt allra frétta af leit þessari. Morgunblaðinu er þó kunnugt um, að rannsóknaraðilar telja sig hafa visbendingu um að lík Geir- finns sé að finna í grennd við Kolviðarhól, og jafnframt að þeir telji þessa vísbendingu raun- hæfari en jafnan áður, þegar leit að líkum hefur farið fram út af þeim tveimur mannshvörfum, sem til rannsóknar hafa verið undanfarin misseri. Lögreglumenn leituðu á þessum slóðum bæði á fimmtudag og föstudag, en aðstæður til leitar voru þá mjög slæmar báða dagana, vegna veðurs svo að þess er að vænta að leitað verði nánar á þessu svæði á næstunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.