Morgunblaðið - 26.01.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1977
3
99
Hreyfiarmur lúsífersins reyndist leitartæki”
VIÐ höfðum tal af Friðrik Jessyni forstöðumanni Náttúrugripa-
safnsins I gær og inntum hann eftir því hvers þeir hefðu orðið
vlsari við athugun á lúsffernum sem lifði f safninu f 6 daga, en þetta
var fyrsti fiskurinn af þessari tegund sem vitað er að hafi náðst
lifandi úr sjó.
„Við náðum ágætum myndum af honum, bæði Ijósmyndum sem
Sigurgeir Jónasson tók og kvikmynd sjónvarpsmanna og það var
eiginlega það eina sem kom út úr þessu,“ sagði Friðrik, „en það var
mjög skemmtilegt að fá hann hingað og hafa hann. Áður var haldið
að armurinn sem kom út úr honum, hafi verið til þess að lýsa honum
á hafsbotni og hafa það skemmtilegt og hæna að sér bráð. Það kom
hins vegar I ljós í safninu hér að stöngina notar Lúsiferinn til þess
að leita að æti á botninum og þegar hann gerði það gekk hann allur i
bylgjum og einnig gat hann hreyft stöngina fram og aftur án þess að
hreyfa sig, en það kom greinilega i ljós að þetta leitartæki hans var
mjög viðkvæmt og það kom einnig greinilega i ljós að það lýsti af
þvi.
Hann var illvígur ef svo bar undir í búri sinu. M.a. beit hann
tvivegis i stöng sem ég setti niður i búrið til þess að hreinsa botninn
hjá honum og ég varð að taka fiskinn upp á stönginni til þess að fá
hann til að sleppa takinu. Við gátum einnig fylgst með þvi að hann
gat dregið beinkörturnar inn og út og við nána athugun virðist hann
jafnvel geta gleypt meira en stærð sina af æti.
Um dánarorsök vitum við ekki, hvort um er að ræða þrýstings-
breytingu eða eingöngu umhverfisbreytingu eða eitthvað annað, en
við vonumst til að fá annan áður en langt um liður og þá munum við
reyna einhverjar aðferðir við að halda i honum lifinu."
Lúsfferinn f Náttúrugripasafninu f Eyjum. Hann er að borða loðnu þarna og notar hreyfiarminn til
þess að kanna málið. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir f Eyjum.
Gfsli
Sinfóníutónleikan
Tvíleikur
Halldórs
og Gísla
TVEIR af okkar fremstu pfanó-
leikurum verða einleikarar á átt-
undu reglulegum tónleikum
Sinfónfuhijómsveitar fslands f
Háskólabfói á morgun, fimmtu-
dag, Þeir Gfsli Magnússon og
Halldór Haraldsson, en stjórn-
andi verður Páll P. Pálsson. Þeir
'Gfsli og Halldór leika á tónleik-
unum konsert fyrir tvö pfanó eft-
ir Béla Bartók, og er þetta f fyrsta
sinn sem þeir leika saman á tón-
leikum Sinfónfuhljómsveitarinn-
ar, enda þótt þeir hafi sl. tvö ár
leikið saman f útvarpi og sjón-
varpi.
Pianókonsertinn eftir Béla
Bartók hefur ekki verið fluttur
áður hér á landi, en að sögn flytj-
endanna er hann eitt erfiðasta
verk sem þeir hafa glímt við.
Konsertinn var upphaflega sam-
inn fyrir tvö píanó og ásláttar-
hljóðfæri en verkið var siðan end-
ursamið árið 1940 sem konsert
fyrir 2 píanó.
Að öðru leyti er á efnisskránni
verk Herberts H. Ágústssonar —
Concerto Breve, sem áður var
frumfluttur á Sinfóníutónleikum
i marz 1971 og Aus Italien, sin-
fónía op. 16 eftir R. Strauss.
Halldór
Hvers vegna eru PHILIPS litsjónvarpstækin
mest seldu litsjónvarpstæki Evrópu?
Iliiaagnaillll
l°l"l
Cglg
iiimiiniiijiiiiiiii
PHILIPS
Svar:
Tæknileg fullkomnun
ÞEIR SEM RANNSAKAÐ HAFA TÆKIN SEGJA
M.A.:
1) „PHILIPS litsjónvarpstækin falla í hæsta
gæðaflokk." (Könnun dönsku neytendasam-
takanna á 20 tegundum litsjónvarpstækja í
mars 1 976)
2) „Litgæðin eru best og í heildarniðurstöðu er
PHILIPS einnig hæst" (Úr prófun norrænna
neytendasamtaka á 1 2 gerðum litsjónvarps-
tækja).
AUK ÞESS FULLYRÐUM VIÐ:
1) Algjörlega ónæm fyrir spennubreytingum
(þolir 165 — 260 volt án þess að myndin
breytist).
2) Fullkomin varahlutaþjónusta og sérþjálfaðir
viðgerðarmenn í þjónustu okkar.
3) Bilanatíðni minni en ein á 3ja ára fresti.
4) Hentugasta uppbygging tækis (modules)-
auðveldar viðhald.
PHILIPS litsjónvarpstækin eru byggð fyrir fram-
tíðina, því að við þau má tengja myndsegul-
bandstæki, VCR (Fáanleg í dag) og myndplötu-
spilara, VLP (kemur á markað 1977). Hvor-
tveggja auðvitað PHILIPS uppfinningar.
SKOÐIÐ PHILIPS LITSJÓNVARPSTÆKIN í
VERSLUNUM OKKAR ( í Hafnarstræti 3 höfum
við tæki tengt myndsegulbandstæki).
PHILIPS MYNDGÆÐI
EÐLILEGUSTU LITIRNIR
PHILIPS KANN TÖKIN ÁTÆKNINNI
heimilistæki sf
Haf narstræti 3 — Sætúni 8