Morgunblaðið - 29.03.1977, Side 1

Morgunblaðið - 29.03.1977, Side 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 71. tbl. 64. árg. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. KLM-þotan rakst beint framan á þotu Pan Am SantaCruz, Kanrfeyjum, 28. marz. Reuter. AP. NTB. TALA þeirra sem fórust þegar tvær risaþotur af gerð- inni Boeing 747 rákust á á Tenerife-flugvelli í gær er komin upp í 562 og tilkynnt var í dag að slysið hefði orðið með þeim hætti að KLM-þotan hefði rekizt „næstum því beint framan á“ þotu Pan-Am. Forseti Alþjóðasambands flugfélaga (IATA), Spán- verjinn Manuel de Prado, sem tekur þátt f rannsókn slyssins, skýrði frá þessu þótt spænsk hernaðaryfirvöld haldi rannsókn þessa mesta flugslyss sögunnar leyndri. Hann sagði að risaþoturnar hefðu verið andspænis hvor annarri á flugbrautinni áður en slysið varð. Landstjórinn á Tenerife, Antonio Oyarzabal, sagði að 562 hefðu beðið bana og 57 slasazt, 10 þeirra alvarlega. Fimmtán farþegar á fyrsta farrými þotu Pan Americans sluppu svo að segja ómeiddir. Samkvæmt bráðabirgða- tölum spænska flugmálaráðuneytisins komust aðeins 80 lífs af. Seinna var haft eftir spænskum embættismönnum að misskilningur milli starfsmanna flugturnsins og flug- stjóra risaþotanna kynni að hafa verið orsök slyssins. Spænska flugmálaráðuneytið sagði að allir um borð í risaþotu KLM hefðu látið lífið. KLM sagði að í þotunni hefðu verið 235 far- þegar, þar af sex ungbörn, og 14 manna áhöfn. Flestir farþegarnir voru hollenzkir skemmtiferða- menn. Þota Pan Am fór frá Los Angeles á laugardag með 364 far- þega sem ætluðu í skemmtisigl- ingu frá Kanaríeyjum til Miðjarð- arhafs og tók 16 farþega i New York. Sextán manna áhöfn var með þotunni þannig að I henni voru alls 396 manns þegar árekst- urinn varð á Tenerife. Seinna sagði Pan Am að vitað væri að 68 hefðu komizt lífs af úr þotu félagsins, 59 farþegar, sjö af áhöfninni og tveir starfsmenn Pan Am sem fóru um borð í Tene- rife. Tekið var fram að þessi tala gæti breytzt. KLM-þotan var að hefja sig til flugs þegar slysið varð og komin á nokkra ferð. Þota Pan Am var að koma sér í flugtaksstöðu og beið eftir að komast að ásamt nokkrum öðrum flugvélum, að þvi er de Framhald á bis. 19 Sorg í Hollandi Amsterdam, 28. marz. Reuter. HOLLF.NZKAR útvarps- stöðvar fluttu sigilda tónlist og felldu niður venjulega dag- skrárliði og þjóðin syrgði þá sem fórust í mesta flugslysi sögunnar. Fundi í Verkamannaflokkn- um er Joop den Uyl forsætis- ráðherra átti að ávarpa var frestað. (Jrslitaviðureign i hol- lenzku hnefaleikakeppninni átti að fara fram i dag en henni var einnig frestað. Forseti KLM, Sergio Or- landini, sagði að erfitt mundi reynast að bera kennsl á þá 249 sem fórust. (KLM birti seinna nöfn þeirra sem fórust og þeir voru 224 hollenzkir ferðamenn, fjórir Bandaríkja- menn, fjórir Vestur- Framhald á bls. 46 Leifar KLM-risaþotunnar á Los Rodeos-flugvelli á Tenerife. (AP-sfmamyndir) Carter gagnrýndur í upphafi viðræðna Moskvu, 28. marz. AP. LEONID Brezhnev, leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins, hóf viðræður sfnar við Cyrus Vance, utanrfkisráðherra Banda- rfkjanna, f dag með árás á stefnu Carters forseta f mannréttinda- málum og sagði að afskipti af sovézkum innanlandsmálum gætu gert jákvæð samskipti Rússa og Bandarfkjamanna að engu. Vance utanrfkisráðherra svaraði ekki athugasemdum Brezhnevs beint og las f staðinn upp skýrslu um samskipti land- anna og hvatti til ftarlegra við- ræðna þrjá næstu daga. Andrei Gromyko utanríkisráð- herra tók seinna undir yfirlýs- ingu Brezhnevs í veizlu og sagði að með undirritun lokayfirlýs- ingar Helsinki-ráðstefnunnar 1975 hefðu Bandaríkjamenn sam- þykkt að skipta sér ekki af sovézk- um innanlandsmálum. Gromyko sagði að Rússar leggðu sérstaka áherzlu á þessi meginatriði og bætti því við að Bandaríkjamenn yrðu að hafa þær í heiðri ef þeir vildu viðhalda góðum samskiptum við Rússa. „Það væru alvarleg mistök að halda annað," sagði hann. Vance minntist ekki á mann- réttindi í svarræðu sinni og ræddi um nauðsyn áframhaldandi „bar- áttu fyrir þvi að draga úr hættu á Framhald á bls. 46 Spænskur þjóðvarðliði og starfsmaður Rauða krossins leita f brakinu að eigum farþega. „Ég sá vini mína liggja hreyfingar- lausa í logunum” liggjandi hreyfingarlausa í log- unum,“ sagði Floy Heck, og bætti við að þetta hefði verið eins og i kvikmyndinni um Hindenburg, þýzka loftfarið, sem kviknaði i i Bandaríkjun- um árið 1937. Annar farþegi i Pan American-þotunni, Jim Naik, sagði i sjónvarpsviðtali að sennilega væri hann sá eini, sem sloppið hefði án teljandi meiðsla frá þessu mesta flug- slysi sögunnar. „Ég kastaðist út á flugbraut- ina þegar gífurleg sprenging Framhald á bls. 46 Madrid. Santa Cruz, 28. marz. Reuter—AP—NTB. „ÉG HEYRÐI hræðilegt brot- hljóð og fyrst hélt ég að spreng- ing hefði orðið. Svo fóru flygs- ur úr loftinu að falla niður og logarnir ætluðu allt að gleypa". Þannig fórust sjötugri konu frá Kaliforníu, Floy Heck, orð er hún lýsti flugslysinu mikla sem varð á flugvellinum á Santa Cruz. Hún var f hópi 40 far- þega, sem allir bjuggu f sama dvalarheimili í Kalifornfu. „Þegar ég skreið frá brenn- andi flakinu leit ég til baka og sá þá vini mina í hópnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.